Morgunblaðið - 11.12.1998, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
: ' ' r?n
^ # ífi í. W] r - 1
Morgunblaðið/Golli
Hlýindi á bókavertíð
Á þriðja tug teknir
við Gullinbrú
Á 142 km
hraða við
Akureyri
ÖKUMAÐUR var stöðvaður á
142 km hraða fyrir utan Akur-
eyri í gær við aðstæður sem að
sögn lögreglu gáfu ekki tilefni
til harðaksturs, en ísing mynd-
aðist síðdegis eftir úrkomu yfir
daginn. Og í Reykjavík stöðvaði
lögreglan á þriðja tug öku-
manna fyrir of hraðan akstur
við Gullinbrú.
Leyfilegur hámarkshraði þar
sem ökumaðurinn utan við
Akureyri var stöðvaður er 90
km og munaði ekki miklu að
hægt væri að svipta hann öku-
leyfi á staðnum samkvæmt
nýju reglunum. Að auki voru
átta aðrir ökumenn teknir fyrir
of hraðan akstur á Akureyri og
sagði lögreglan að þetta akst-
urslag kæmi verulega á óvart í
skammdeginu.
Vinnuflokkar að störfum
I Reykjavík stöðvaði lögregl-
an á þriðja tug ökumanna í
Grafarvogi við Gullinbrú sem
óku á 80-93 km hraða þrátt fyr-
ir merkingar um að draga bæri
úr hraða. Vinnuflokkar eru að
störfum við brúna og hafa
borist kvartanir vegna hrað-
aksturs.
BÓKAVERTÍÐIN nálgast senn
hámark og má segja að hlýindi
og rigningar hafí einkennt ver-
tíðina það sem af er, að minnsta
kosti sunnanlands. Það truflar þó
ekki endilega eftirspurnina.
FRAMKVÆMDUM við Búrfells-
línu 3A er lokið. Kostnaður við iagn-
ingu hennar var áætlaður um 2,6
milljarðar króna en endanlegur
kostnaður varð 2,4 milljarðar króna.
Línan liggur frá nýju tengivirki
við Búrfellsstöð, um 94 km leið vest-
ur fyrir Lyklafell á Mosfellsheiði.
Þar tengist hún Búrfellslínu 3B sem
lögð var fyrir nokkrum árum og
liggur að tengivirki við Hamranes
skammt sunnan Hafnarfjarðar.
Næsta haust verður línan tengd
Sultartangavirkjun með viðbótar-
línu frá tengivirkinu við Búrfells-
stöð.
Lagning Búrfellsllnu 3A hófst
með slóðagerð í ágúst 1997 og í kjöl-
farið voru gerðar undirstöður fyrir
línumöstrin. Efni í línuna fór að
berast í júlí sl. og fyrsta mastrið var
reist snemma í ágúst. Það verk ann-
aðist rússneska fyrirtækið
Technopromexport. Strenging leið-
Hvar sem menn fara eru þeir
minntir á gagnsemi og skemmtan
bókarinnar sjálfum sér til ánægju
eða til að gleðja aðra. Vissara er
nú samt að glugga örlítið í efnið
áður en kaup eru afráðin.
ai-a hófst mánuði síðar. Tenging lín-
unnar við raforkukerfí Landsvirkj-
unar er nú lokið og var línan
spennusett í gær. Verður hún tekin
í rekstur á morgun.
Byggð fyrir 400 kílóvolta
spennu
í frétt frá Landsvirkjun segir að
Búrfellslína 3A treysti öryggi raf-
orkukerfisins samfara auknum
flutningi á raforku vegna nýlegrar
stækkunar Búrfellsstöðvar um 60
megawött og byggingar Sultar-
tangavirkjunar.
Búrfellslína 3A er á 253
stálmöstrum. Hún verður í fyrstu
rekin á 220 kílóvolta spennu eins og
aðrar stærri háspennulínur Lands-
virkjunar. Línan er hins vegar
byggð fyrir 400 kílóvolta spennu og
þegar að því kemur að línan verður
rekin á þeirri spennu þrefaldast
flutningsgeta hennar.
Búrfellslína 3A
tekin í notkun
Mikill meiri-
hluti andvígur
MANNVERND, samtök um persónufrelsi og vísindafrelsi, hefur unnið könn-
un á afstöðu álitsgjafa vegna gagnagrunnsfrumvarpsins til heilbrigðisnefnd-
ar Alþingis. Félagsmenn fóru yfir þau álit sem nefíidinni hafa borist og flokk-
uðu þau eftir efnisþáttum. Niðurstöðumar em kynntar á meðfylgjandi mynd.
Yfirlit yfir afstöðu álitsgjafa um gagnagrunnsfrumvarpið til Heilbrigðisnefndar Alþingis Samantekt unnin af Mannvernd, samtökum um persónu- og vísindafrelsi
Afstaða álitsgjafa: Andvígur, neikvæður Afstaða 1 Samþvkkur, ekki Ijós 1 jákvæður
Afstaða til meðhöndlunar frumvarps á nokkrum málaflokkum:
Alitsgjafar:
Frum-
miðlægur
Hlutfallsleg skipting:
I 67% ■ I 73% ■.( 63a«! Sfl% 1 |U. M
Álitsgjafar tengdir ísienskri erfðagreiningu / álitsgerðir greiddar af ÍE:
Hákon Guðbjartsson
Högni Óskarsson sgsœis ssmm ssmem MasaiMsa fWH—WW'
Jón L Arnalds ■
Jón Steinar Gunnlaugsson HSKIBS
Lagastofnun HÍ (DÞB, OMA, VMM) ' HHH
Stefnumarkandi álit EFTA-dómstólsins
EFTA-ríkin skaðabóta-
skyld ef tilskipanir eru
ekki rettilega lögleiddar
í RÁÐGEFANDI áliti frá EFTA-
dómstólnum, sem gert var opinbert
í gær, segir að aðilum samningsins
um Evrópska efnahagssvæðið beri
skylda til að sjá til þess að það tjón
fáist bætt sem einstaklingur verður
fyrir vegna þess að landsréttur er
ekki réttilega lagaður að ákvæðum
tilskipunar sem er hluti EES-samn-
ingsins. Álitið var gefíð að beiðni
Héraðsdóms Reykjavíkur í málinu
Erla María Sveinbjörnsdóttir gegn
íslenska ríkinu.
Málavextir voru þeir að Erla
höfðaði mál fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur og krafðist greiðslu
ógi'eiddrar iaunakröfu úr Ábyrgð-
arsjóði launa, en fyrirtækið sem
hún starfaði hjá hafði orðið gjald-
þrota. Kröfu hennar hafði verið
hafnað af ábyrgðarsjóðnum vegna
ákvæða laga sem útiloka systkini
hluthafa í hinu gjaldþrota fyrirtæki
frá greiðslum úr sjóðnum. Taldi
Erla slíkt óheimilt samkvæmt til-
skipun ráðsins 80/987/EBE og höfð-
aði skaðabótamál á hendur ríkinu
fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Undanþágan ekki
nógu rúm
Héraðsdómur Reykjavíkur beindi
í fyrsta lagi þeirri spurningu til
EFTA-dómstólsins hvernig ætti að
skýra umrædda tilskipun. Svaraði
EFTA-dómstóllinn því þannig að
það væri andstætt henni að á Is-
landi væru í gildi lagaákvæði sem
leiddu til þess að ekki fengist
greiðsla úr ábyrgðarsjóði launa.
Samkvæmt 24. tl. XVIII. viðauka
við EES-samninginn undanþá Is-
land meðal annai's stjórnarmenn fé-
lags, þá sem áttu 5% eða meira af
fjármagni félagsins, framkvæmda-
stjóra þess og ættingja slíkra aðila í
beinan legg (direct relative) vernd
tilskipunarinnar. Taldi dómstóllinn
að skilja mætti orðalagið „direct
relative" svo að það næði til systk-
ina. Hins vegar væri í íslensku út-
gáfunni talað um ættingja í beinan
legg sem vísaði skýrlega til þröngs
hóps ættingja upp á við og niður á
við, en ekki til systkina. ísland hefði
því ekki óskað eftir nægilega rúmri
undanþágu til að ná yfir sérákvæði
íslenskra laga.
Francovich-fordæmið
Síðari spurningin laut að því hvort
það varðaði íslenska ríkið skaða-
bótaábyrgð gagnvart launþeganum
að hafa ekki, samfara aðild að EES,
breytt landslögum í samræmj við til-
skipunina. Ríkisstjómir fslands,
Noregs og Svíþjóðar héldu því fram
frammi fyrir EFTA-dómstólnum að
EES-samningurinn skyldaði EFTA-
ríkin ekki til að bæta tjón sem ein-
staklingar verða fyrir vegna þess að
landsréttur er ekki réttilega lagaður
að samningnum. Var sú afstaða
studd með því að hvorki EES-samn-
ingurinn né Rómarsamningurinn
geymdu ákvæði sem mæltu fyrir um
skaðabótaábyrgð ríkisins. I EB-rétti
hefði meginreglunni um skaðabótaá-
byrgð ríkja verið komið á fót í dóm-
um dómstóls EB, einkum í svoköll-
uðu Francovich-máli frá 1991. Þar
sem dómaframkvæmd þessi byggð-
ist að miklu leyti á sérstökum ein-
kennum á réttarkerfí bandalagsins,
sem ekki væri fyrir að fara í rétti
efnahagssvæðisins (EES-rétti), ætti
hún ekki við um EES-samninginn.
Til dæmis væri ekki gert ráð fyrir
framsali löggjafarvalds eða beinum
réttaráhrifum og forgangi ákvæða
EES-samningsins gagnvart lands-
rétti.
Ekki venjulegur
þjóðréttarsamningur
Dómstóllinn segir í niðurstöðu
sinni að EES-samningurinn sé
þjóðréttarsamningur sem sé sér-
staks eðlis (sui generis) og sem feli í
sér sérstakt og sjálfstætt réttar-
kerfí. EES-samningurinn komi ekki
á fót tollabandalagi heldur þróuðu
fríverslunarsvæði. Samruni sá sem
EES-samningurinn mæli fyrir um
gangi ekki eins langt og sé ekki eins
víðfeðmur eins og samruni sá sem
Rómarsamningurinn stefni að. Hins
vegar gangi markmið EES-samn-
ingsins lengra og gildissvið hans sé
víðtækara en venjulegt sé um þjóð-
réttarsamninga.
Telur dómstóllinn að „markmiðið
um einsleitni og það markmið að
koma á og tryggja rétt einstaklinga
og aðila í atvinnurekstri til jafnræð-
is og jafnra tækifæra komi svo
skýrt fram í samningnum, að
EFTA-ríkjunum, sem aðild eiga að
samningnum, hljóti að bera skylda
til þess að það tjón fáist bætt sem
hlýst af því að landsréttur er ekki
réttilega lagaður að tilskipunum."