Morgunblaðið - 11.12.1998, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1998 15
LANDIÐ
Morgunblaðið/ólafur Jens Sigurðsson
BJÖRGUNARSTÖÐIN Líkn.
Slysavarnadeild-
in Bj örg 70 ára
Hellissandi - Um þessar mundir
eru 70 ár liðin frá þvi að Slysa-
varnadeildin Björg á Hellissandi
var stofnuð. Deildin er því jafn-
gömul sjálfu Slysavarnafélagi ís-
lands. Stofnun deildarinnar var
tilkynnt Slysavarnafélagi íslands
sem þá var nýstofnað 8. desem-
ber 1928. Björg mun því vera
þriðja elsta slysavarnadeild
landsins af þeim sem enn starfa.
Þegar stofnað var til SVFÍ
1928 vaknaði strax mikill áhugi á
Hellissandi fyrir því að taka þátt
í starfsemi félagsins. Tíð sjóslys
hér við strendurnar hafa þar
vafalaust valdið mestu. Fyrsti
formaður Bjargar var Ólafur Jó-
hannesson skipstjóri og liafn-
sögumaður, síðar fisksali í
Reykjavik. Svo skemmtilega vill
til að hann er afi Ólafs Kr. Ólafs-
sonar sýslumanns Snæfellinga.
En líklega hefur enginn maður
markað dýpri spor í því að halda
þessu félagsstarfi lifandi öll þessi
ár, þrátt fyrir andvaraleysi og
stunduin minnkandi áhuga fyrir
slysavörnum, en Benedikt S.
Benediktsson kaupmaður. Á
Hellissandi hefur stjórn slysa-
varnadeildarinnar alla tíð farið
með yfírstjórn björgunarsveitar-
innar. Leifur Jónsson, hafnar-
vörður í Rifi, tók að sér að halda
merki deildarinnar á lofti eftir
að Benedikt hætti.
Afmælishátíð 13. desember
Stjórn Slysavarnadeildarinnar
Bjargar hyggst minnast þessara
merku timamóta 13. desember
nk. með veglegum hætti, því
menn eru stoltir af því að deildin
skuli vera jafngömul SVFÍ sjálfu.
Ætlunin er að hátíðahöldin heíj-
ist með messu í Ingjaldshóls-
kirkju kl. 13, þar sem björgunar-
sveitin og unglingadeildin munu
klæðast búningum sinum og
standa heiðursvörð með fána
SVFI og íslenska fánann. Að
messu lokinni verður haldið að
Björgunarstöðinni Líkn, höfuð-
stöðvum deildarinnar, og nýja
tækjageymslan vígð. Má segja að
þar með sé lokið síðasta áfanga
byggingar björgunarstöðvarinn-
ar sem er myndarlegt hús og til
mikils sóma fyrir deildina.
I nýju tækjageymslunni verður
komið upp sýningu, þ. á m.
myndum úr starfi deildarinnar
og sýningu á tækjabúnaði henn-
ar. Þá verður nýi björgunarbát-
urinnn, Björg, til sýnis í Rifshöfn
og gestum verður gefinn kostur
á að sigla ineð honum um höfn-
ina og e.t.v. lengra ef veður leyf-
ir. Bíll deildarinnar verður not-
aður til að flytja fólk á milli ef
það óskar þess.
Veitingar og sagan sögð
Meðan á sýningunni stendur í
Líkn verður kaffiveitingar í boði.
Afmælishúfur verða seldar og
vakin verður athygli á söfnun
björgunarbátasjóðs SVFÍ. Af-
mælishátíðinni lýkur svo með
flugeldasýning kl. 17. Slysa-
varnamenn á Hellissandi vonast
til að sem flestir sjái sér fært að
taka þátt í afmælishátíð Bjargar
þennan dag, 13. desember nk.,
sérstaklega heimafólk og þeir
gestir aðrir sem boðið verður til
afmælisins.
Landpóstur á hvítum jó
Hrunamannahreppi - Landpóst-
arnir voru miklir aufúsugestir á
árum áður, ekki síst í dreifbýli
landsins, enda komu þeir færandi
hendi á hestum sínum með lang-
þráðan póstinn. Oftast með
nokkra hesta í lest og ekki var
spurt um veður og færð sem oft
var mjög erfið yfir vegleysur og
óbrúaðar ár. Hlutverki þessara
manna í Islandssögunni má þjóð-
in ekki gleyma, svo merk sem
hún er.
Nú er öldin önnur. í þéttbýli er
póstur borinn út alla virka daga en
þrisvar í viku til sveita. Mikill
mannfjöldi vinnur nú við þessi
þjónustustörf. Einn þeirra er Jón
Gunnlaugsson á Selfossi, en hann
hefur ekið pósti í Hrunamanna-
hrepp frá Selfossi í 12 ár og lætur
vel af því starfi. Hann á vini á öll-
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
um bæjum og er aufúsugestur eins
og íyrirrennarar hans voru á árum
og öldum áður.
Ferðamáti hans er hinsvegar
æði ólíkur fyrirrennurum hans; nú
er brunað á gæðingi góðum af
japönsku kyni sem Jón hefur ný-
lega eignast og lætur vel af.
Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson
VERKSTJÓRASAMBAND íslands færir Heilbrigðisstofnun Hvamins-
tanga gjafir. F.v.: Ragnar Árnason, Elín Lindal, Guðmundur H. Sig-
urðsson, Lárus Jónsson, Helga Stefánsdóttir og Egill Gunnlaugssou.
Heilsugæslan á
Hvammstanga
fær gjafir
Hvammstanga - Heilbrigðisstofn-
un Hvammstanga voru færðar
góðar gjafir fyrir skömmu. Verk-
stjórasamband Islands aflienti
heilsugæslustöðinni vönduð tæki,
blóðtökubekk og sjúkraþjálfun-
arbekk til notkunar við endur-
þjálfun.
Að sögn Ragnars Árnasonar,
sem afhenti gjafirnar, er sam-
bandið búið að gefa á 14 staði
vítt um land í tilefni 60 ára af-
mælis sambandsins. Ragnar
sagði að gróska væri í störfum
sambandsins og nú væru 72 fé-
lagar í félagi verksljóra á Norð-
urlandi vestra.
Ný verslun með
föndur og
gjafavörur
Sauðárkróki - Nýlega var opnuð verslunin Kompan á
Aðalgötu 3 á Sauðárkróki með gjafavöru svo og
hannyrða- og fóndui"vörur ýmiss konar. Það er Auður
Herdís Sigurðardóttir sem hér er að bæta úr brýnni
þörf íbúa á Sauðárkróki og hefur á boðstólum flest það
sem á þarf að halda þegar fólk vill grípa til listsköpunar
eða þá að fóndra eitthvað sjálfum sér til ánægju.
Auður Herdís sagði hér vera gamlan draum að
rætast, á fjörur hennar hefði rekið þetta heppilega
húsnæði og ekki hefði verið um annað að ræða en að
hrökkva eða stökkva. Hún sagðist opna verslunina á
heppilegum tíma svona rétt fyrir jól þegar flestir væru
að leita að fallegum persónulegum gjöfum og vissulega
bæru þessir dagar svipmót þess að jól væru á næstu
grösum.
Hins vegar sagði hún að markmiðið væri að þjóna
Morgunblaðið/Bjöm Bjömsson
AUÐUR Herdís Sigurðardóttir í verslun sinni.
öllum þeim sem vildu fást við eitthvað í höndunum og
hún hefði á boðstólum efni til sauma og prjónaskapar
svo og myndlistarvörur, áhöld til tréskurðar og
leirvinnslu auk gjafavöru. Auður Herdís sagði
viðtökurnar hafa verið mjög ánægulegar og fyrstu
dagarnir í verslunarrekstrinum lofuðu góðu.
Hússtjórnarskólinn á Hallormsstað
Samráðsfundur
um skólastarfíð
Morgunblaðið/Hallfríður Bjarnadóttir
FRÁ fundi skólanefndar Hússtjórnarskólans.
Reyðarfirði - Laugardaginn 5. des-
ember boðaði skólanefnd Hússtjórn-
arskólans til samráðsfundar um
framtíð skólans. Vai- þar mætt
áhugafólk um starfsemi skólans. Að-
eins tveir Hússtjórnarskólar eru
starf'andi í landinu, hinn er Hús-
stjómarskólinn í Reykjavík. Skóla-
meistari er Birna Kristjánsdóttir, en
hún tók við því starfi í haust.
Skólinn er nú sjálfseignarstofnun,
bakhjarlar eru Samband sveitarfé-
laga í Austurlandskjördæmi, Ferða-
málasamtök Austurlands, Búnaðar-
samband Austurlands og Samband
austfirskra kvenna.
Fundarstjóri var Björn Hafþór
Guðmundsson, bæjarstjóri Austur-
Héraðs. Katrín Ásgrímsdóttir skóla-
nefndarmaður lýsti samningi við
menntamálaráðuneyti um rekstur
skólans sem sjálfseignarstofnunar.
Helga Hreinsdóttir, formaður skóla-
nefndar, gerði grein fyrir starfsemi
skólans, aðsókn að honum og fjár-
hagsstöðu. Kostnaður við rekstur er
11.400 þús. á ári miðað við að hann
sé fullsetinn. Skerðist framlagið
hlutfallslega ef meii'a en einn nem-
enda vantar í fullsetningu.
Síðan var farið í hópvinnu þar sem
hugmynda vai- leitað að stefnumótun
fyrir skólann/skólahúsið. Margar
hugmyndir komu ft-am, upp úr stóð
þó að halda í gamlar hefðir, svo sem
vefnað, fatasaum og hönnun en leita
nýjunga sem féllu vel að skólanum og
hans umhverfi öllu. Nefnd var sett til
að vinna úr hugmyndabankanum.
Á haustönn er kennd fatagerð og
fatahönnun, hreinlætisfræði, veit-
ingatækni, næringarfræði, vörufræði
og örverufræði. Nemendur geta tek-
ið 26 einingar á önn en skólinn er í
samstarfi við Menntaskólann á
Egilsstöðum.
Lífsleikni ætti að vera kjörorð
hússtjómarskólanna. Nú er talið
nauðsynlegt að læra á tölvur, það
hlýtur þó að vera nauðsynlegra að
kunna að lifa lífinu í öllum þeim
hröðu breytingum sem ganga yfir
samfélagið.
Á vorönn eru laus pláss, karlmenn
hafa sótt skólann nokkuð og eru fjór-
ir skráðir á vorönnina. Það hefur þó
viljað brenna við að þeir guggni þeg-
ar að mætingu er komið en þeir eiga
ekki síður en stúlkur erindi í þessa
skóla.
Herrafata-
verslun Kor-
máks og
Skjaldar á
Stöðvarfirði
OPNAÐ hefur verið á Stöðvarfirði
útibú frá Herrafataverslun Kormáks
og Skjaldar. Þar eru á boðstólum
sams konar vörur og karlmenn
þekkja úr versluninni í Reykjavík,
fatnaður og gjafavara, og er við-
skiptavinum auk þess boðið að panta
vörur úr versluninni fyrir sunnan sér
að kostnaðarlausu.
Aðstandendur vonast til að með
versluninni á Stöðvarfirði sé aukin
mjög þjónusta við austfirska karl-
menn, en þetta mun vera eina herra-
fataverslunin í fjórðungnum, segir í
fréttatilkynningu.
Herrafataverslun Kormáks og
Skjaldar á Stöðvarfirði er opin kl.
16-19 virka daga og klukkan 13-18
um helgar.