Morgunblaðið - 11.12.1998, Page 40

Morgunblaðið - 11.12.1998, Page 40
40 FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1998 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ BISKUPA sögur ásamt Sturl- uugu og annálum eru samtíðar- heimildir um þjóðarsöguna á þriggja alda skeiði eða frá því um miðja 11. öld og til miðrar 14. aldar. Hið íslenska fornritafélag hefur nú tekist á hendur útgáfu Biskupa sagna og er stefnt að því að henni Ijúki árið 2000 en bindin verða fimm alls. Biskupa sögurn- ar í þriðja bindi sem kom út nú í haust ná yfir tímabilið frá um 1240 til um 1340 og eni samdar af samtíðarmönnum biskupanna sem frá segir. I því eru ævisögur Arna Þorlákssonar Skálholts- biskups (d. 1298) og Lárentíusar Kálfssonar Hólabiskups (d. 1330) og að auki þáttur um Jón Hall- dórsson Skálholtsbiskup (d. 1339). Hann var norskur klaust- urbróðir af Predikarareglu, lærður í Bologna og París, og kunni best að skemmta með æv- intýrasögum. Ennfremur eru í bindinu gamlar ættartölur tengd- ar íslenskum biskupum. Guðrún Asa Grímsdóttir sá um útgáfuna. „Sögurnar eru frumheimildir frá fyrstu hendi um ijölda atriða Islandssögunnar. Þær eru verk síns tíðaranda, settar saman af biskupavinum sem þekktu helstu virðingarmenn síns samtíma og voru oft sjónarvottar atburða, en studdust að auki mjög við skjöl og annála. Flestar heimildir þeirra eru nú að mestu glataðar. I þessum sögum eru falin menn- ingarverðmæti sem má jafna við háreistar miðaldakirkjur suður í Evrópu,“ segir Guðrún Ása Grímsdóttir. „Ur sögunum má lesa menningarheim kaþólskrar tíðar þegar biskupar voru í raun æðstu valdhafar innanlands. Sög- urnar varpa ljósi á valdsvið bisk- upanna og sýna live sterk ftök 100 ár frá fæðingu C.S. Lewis Auknar vin- sældir í Banda- ríkjunum I ÞESS hefur verið minnst að undan- fómu að 100 ár em liðin frá fæðingu rithöfundarins C.S. Lewis. Mest er : gert til hátíðabrigða í Bretlandi og svo í Bandaríkjunum, en þar njóta verk hans æ meiri vinsælda, að þvi er segir í BBC. Gefnar verða út sérútgáfur verka Lewis, frímerki til heiðurs honum og leikrit byggð á verkum hans sett á svið. í Bretlandi verður þekktasta barnabók Lewis og sú fyrsta í Narn- íu-röðinni; „Ljónið, nornin og skápur- inn“, sett upp hjá konunglega Shakespeare-leikhúsinu og heimili Lewis í Oxford verður gert upp eins og það leit út á fimmta áratugnum, en Lewis lést árið 1963. Vinsældir Lewis í Bretlandi byggj- ast einkum á barnabókum hans, en í Bandaríkjunum eru verk hans um kristindóm æ meii-a lesin. Ái-lega selj- ast um 1,5 miljónir eintaka af bókum Lewis, gerðar hafa verið framhalds- þættir í sjónvarpi eftir verkum hans, . svo og kvikmynd um líf rithöfundar- ins og eiginkonu hans, hinnar banda- rísku Joy. Nefndist hún „Shadowlands" og fór Anthony Hop- kins með hlutverk Lewis. Þá eru ótaldar allar vefsíðurnar og spjallrás- imai’ sem aðdáendur Lewis hafa komið sér upp. Lewis var fæddur í Belfast á Norð- ur-írlandi árið 1898. Hann var bók- menntafræðingur og gagnrýndandi og skrifaði fyrstu verkin því tengd. Hann samdi einnig vísindaskáldsög- ur, t.d. Perelandra, sem út kom árið 1943, og bamabækurnar um Namíu. Að síðustu má nefna skrif hans og út- varpsþætti um trúarvamarfræði. Trúarrit Lewis höfða mjög til Bandaríkjamanna. Sjálfur var hann trúleysingi framan af ævinni en sner- ist svo til kristinnar trúar. Fjölmörg félög hafa verið stofnuð til að fjalla um trúarsýn Lewis og eitt þeirra, sem hefur aðsetur í Suður-Kalifom- íu, hyggst fara í pílagrímsferð til kirkju heilags Lúkasar í Monróvíu þar sem mynd Lewis er á steindum glugga í kirkjunni. Biskupa sögur biskupsvaldið hafði meðal al- mennings og í þeim eru helstu vitnisburðir um átök milli kon- ungsvalds og kirkjuvalds á ís- Iandi á 13. og 14. öld.“ í formálanum segir að Árna saga Þor- lákssonar Skálholts- biskups gerist á seinni hluta þrett- ándu aldar í fram- haldi af Sturlunga sögu? „Áma saga gerist í framhaldi af Sturl- unga sögu á því tíma- skeiði þegar íslend- ingar tóku við nýjum lagarétti úr hendi N or egskonungs, Magnúsar Hákonar- sonar lagabætis. Meginatburðir sög- unnar snúast um við- töku nýrra Iaga og nýs kristinréttar, en ákvæði hans kölluðu á miklar breytingar á yf- irráðarétti manna yfir jörðum þar sem kirkjur höfðu verið reistar og var deilt hart um hvort biskup skyldi ráða yfir jörðunum eftir kirkjulögum ellegar kirkjubændur eftir lands- lögum. Efni sagnanna er því samofíð íslensku landslagi og landgæðum jafnt og alþjóða- kirkjurétti og trúarsetningum. Sögurnar ýta við hugmyndum sem hljóta að hafa verið uppi hér á miðöldum, að með því að gefa kirkjunni og hennar dýrðar- mönnum land verði það frjórra! Sögurnar em leiðarsteinar um hvernig tekið var við kirkjulög- um og kennisetningum að utan með þeirri þjóð sem ein varð- veitti í fornum Eddukvæðum þann norður-evrópska goðaheim sem staðið hafði áður en kristni var hér lögtekin og var nátengdur frjó- semisdýrkun, von manna um ávöxt af landi sínu. Deilurnar um yfirráðarétt kirkjustaða sem frá segir í Árna sögu og Lárentíus sögu end- urspegla umrót sem varð í samfélaginu með viðtöku nýrra laga jafntímis því að bókfestar voru sögur á borð við Landnámu og hinar veigamestu Islendingasögur eins og Brennu-Njáls saga. Tímabilið sem Árna saga og Lár- entíus saga ná yfir er því eitt hið afdrifaríkasta í sögu þjóðarinnar og því em sögur þessara biskupa lyklar að þekkingu og skilningi á atburðum og hugarfari þeirra tíma. En eru sögurnar líkar að gerð og innihaldi? „Sögurnar eru allólíkar af- lestrar. Lárentíus saga er auð- læsari, full af skemmtisögum, en Árna saga leynir reyndar á sér ef vel er að gáð. Hún er fastari í formi og stendur í sumum köfl- um mjög nærri íslendinga sögum í tilsvörum og mannlýsingum en í öðmm köflum er hún býsna tor- ræð enda sterklega mótuð af kennistíl kirkjufeðra,“ segir Guð- rún Ása Grímsdóttir og heldur áfram: „í þessari útgáfu er leit- ast við að létta lesendum skilning á sögunum með dálitlum formála og skýringargreinum neðanmáls við textana. Skýringagreinar miða einkum að því að tengja sögurnar við aðrar samtíðaheim- ildir og víkka þannig sjónarhorn lesenda, en sögurnar sjálfar eru í eðli sínu hlutdrægar og fylgja í hvívetna málstað kirkjunnar og biskupa. Þetta er í fyrsta sinn sem Biskupa sögur koma út í hefðbundu formi íslenskra forn- rita sem hefur notið hylli lesenda í hartnær 70 ár. Með útgáfunni er reynt að halda í heiðri mikil- vægum kafla í sögu þjóðarinnar og þeirra formanna hennar sem fylgdu boðorðum kristninnar af sannfæringu og vildu vera þjóð sinni til eftirdæmis. Boðskapur og innsti kjarni biskupa sagna er sú trú að skýrt fordæmi lands- stjórnarmanna vísi almenningi á götu hins góða og sanna.“ Herra Árni byskup er þessi frá- sögn er af skrifuð var son Þor- láks Guðmundssonar gi’íss ok Hall- dóru dóttur Orms í Holtum. Hann var fæddi’ á því ári sem Magnús byskup Gizurason andaðist. Hann fæddiz upp með föður sínum ok móður, en þau bjoggu í þann tíma at Svínafelli at ráði Orms Svínfellings ok vóni þar meðan hann lifði ok nokkora stund síðan at ráði Ög- mundar Helgasonar er þá hafði fjárforáð sona Orms. En síðan pen- ingar eydduz fyrir sonum Orms at Kálfafelli fóru þeir byggðum sínum til Svínafells, en Þorlákr varð fyiir sakir magns munar at skipta byggð- um; fengu þeir honum þá Rauðalæk ok fór hann þangat. Upphaf Arna Sögu Biskups Guðrún Ása Grímsdóttir Ur einu nátthríð- arskjóli í annað BÆKUR j\áttúruskáldskapur VARGATAL eftir Sigfús Bjartmarsson. Bjartur. 1998- 153 bls. RÖMM er taugin sem bindur ís- lendinga við harðbýla náttúruna, auðnirnar og kaldranaleg öræfin. Sigfús Bjartmarsson sendir nú frá sér bók sem hann nefnir Vargatal og er öðru vísi en allar bækur sem ég hef lesið. Hér er ekki á ferðinni nein glansmynd af dýrum eða upphafning hins villta lífs í rómantískum anda heldur þvert á móti mynd af harð- býlum heimi. Ef til vill er þó ástin á harðgerðri, íslenskri náttúrunni of- urlítið rómantísk innst inni. Það er miklu fremur eins og Sigfús sé að reyna að skoða dýrin í umhverfi þeirra á eins hlutþausan hátt og skáld getur gert. í fljótu bragði mætti ætla að slík vísindi ættu lítið skylt við fagurfræði en bók Sigfúsar er á margan hátt merkilegt framlag til að samþætta þjóðleg fræði og skáldskap. Vargar Sigfúsar eru flestir af ís- lensku bergi brotnir þótt sumir eigi hér ekki vetrardvöl. Þetta eru fugl- ar, hvítabirnir, selir og hvalir. Meg- inviðfangsefni Sigfúsar er að lýsa ævikjörum þessara dýra, lífsbaráttu þeirra og umhverfi. Hann nálgast þetta út frá sjónarhorni náttúruunn- andans, sjómannsins, veiðimannsins, járnbindingamannsins, borgar- barnsins í rottuveiðihug eða bónd- ans og búmannsins. Hann á það jafnvel til að stilla dýi-um inn í kvik- myndaramma. Um hvítabjörninn segir svo: „Nú og þá tekur við þriðja skeiðið þar sem hann snýst bai’a í keilu þyrlukastarans, uppréttur og baðandi út hrömmunum. Disneyleg- ur bangsi þótti þeim í vélinni nema gömlum veiðimanni sem stökk ekki bros því þetta sýndist honum líkjast því sem gamlir menn höfðu til marks um að mórar þrengdu að birninum, eða hann væri lentur í svo óvígri kví forsend- inga að hann sæi sér hvergi undankomu auð- ið.“ En í raun staldrar lesandi htt við það sjón- arhorn sem höfundur velur sér. Það er nóg annað að skoða. Það er varla rétt að segja að umfjöllun Sig- fúsar um vargana sé frásagnir. Miklu frem- ur lýsing, brot af lífi þeÚTa í hnotskurn, inn- sýn í aðstæður. I kring- um allt hleðst síðan veröld mannanna upp- full af sínum dýrafjandsamlega veruleika. Án þess þó að einhver siðferðisleg afstaða þvælist fyrir. Meira eins og eðlilegur hluti um- hverfis eins og þegar fjallað er um að smyrill sé grunsamlega slappur og menn gi’uni að hann sé orðinn „mæðinn af einhverri mengun, ann- an farið að muna um þungmálmana úr sinni sumarleiru, annan um hálf- þroskað steinlunga eftir vistina í verksmiðjustrompinum, nú eða um geislun af Kólaskagaheiðunum eða úr Garðaríki, friðlandinu góða í kringum Tsjernobyl." En umfram allt er þó vargurinn settur í íslenskt umhverfí, hai-ðneskjulegt og kald- ranalegt. Stíllinn minnir um sumt á ljóð Sig- fúsar. Hann er fullur með orðkyngi og myndir og seiðandi orðfæri sem minnir á ljóð. Eitt megineinkenni ljóðstíls hans, t.a.m. í Ijóðabókinni Zombí, var ákveðin hrynjandi sem byggðist á löngum, opnum og undir- skipuðum málsgreinum eða setn- ingaröð sem hlóðu utan á sig mynd- um. Jafnframt bar á tíðri notkun lýs- ingarháttar nútíðar. Þetta einkenni varir í hinni nýju bók og gefur henni dálítið ljóðrænan blæ. Vargarnir hafa persónuleg ein- kenni. Dregnai’ eru upp það sterkar myndir af þeim að við setjum okk- ur í spor þeirra. Þetta eru að jafnaði grimm- lyndir einfarar sem eira engu og eru hvergi vel- komnir eins og sumir menn. Sögumaður hef- ur að vísu misjafna samúð með þeim. Örn- inn er hér ekki sá kon- ungur sem rómantíkin krýndi heldur líkist hann klunnalegum og mannfælnum einfara jafnvel borinn saman við bróður hans við Kyrrahafið: „Mann- fælnin kannski rammari í honum, einrænni, enn fornari í skapi og gamalgrónari og því tregari til að aðlagast nútíman- um dettur manni í hug þó fáránlegt sé að hugsa þannig um fugl.“ Mörg falleg myndbrot eru um ódrepandi tófuna en kaflinn um hana finnst mér einna bestur. Skyldi vera til nokkuð íslenskara en tófa í auðn eft- ir ellefuhundruð ára samveru með okkur? I lok kaflans sjáum við hana fyrir okkur að haustlagi á leið „um nýja ranghala haustveðranna, snuddandi og snapandi úr einu nátt- hríðaskjóli í annað, og látlaust að líta um öxl, en ekki til fortíðar nei, og á ekki heldur til saknaðaraugu yfir nokkrum þeim hlut sem illa forgeng- ur, ja nema þá afnöguðum fæti í boga, og jú síðasta yi-ðlingnum áreið- anlega köldum." Vargatal er að mörgu leyti mögn- uð bók um grimmilegt og harð- neskjulegt líf villtra dýra á íslandi og víðar. Á bak við frásögnina ómar einhver harmrænn tónn eins og voldug hljómkviða og handan allrar hörkunnar og kaldranans er ein- hver slík samhðun með allri skepn- unni að bókin lætur mann ekki ósnertan. Skafti Þ. Halldórsson Sigfús Bjartmarsson Nýjar hljóðbækur • ÉG HEITI Blíðfíiuiur, en þú mátt kalla mig Bóbó er eftir Þor- vald Þorsteinsson í lestri höfundai’. I kynningu segir m.a.: „Blíðfinnur kynnist barninu, nýjum og skemmti- legum leikfélaga. En dag einn hverf- ur barnið fyrh-varalaust og nú hefst æsileg leit Blíðfinns að vini sínum um dimma skóga og há fjöll. Bókin er á tveimur snældum og u.þ.b. 2 klst. að lengd. Verð: 1.990 kr. • Agga gagg, með skollum á ströndum er eftir Pál Hersteinsson. Lesai’i er Þórarinn Eyfjörð leikari. I kynningu segir: „Höfundur dvaldi norður í Ofeigsfirði á Strönd- um við rannsóknir á vistfræði tóf- unnar. Hér lýsir hann á gamansam- an hátt samskiptum við Stranda- menn, villta óblíða náttúru og ekki síst kynnum sínum af víðförlustu tófu landsins, Jensínu.“ Bókin er fimm snældur og u.þ.b. 7 klst. að lengd. Verð: 2.990 kr. • EVEREST, íslendingar á hæsta fjalli heims er eftir Hörð Olafsson. Jón St. Krisljánsson leikari les og lýsir myndum. Bókin er á fímm snældum. Verð: 2.990 kr. Útgefandi hljóðbókanna er Orð í eyra, hljóðbókaútgáfa Blindrabóka- safns íslands. Blindrabókasafnið hefur auk þess til sölu um 60 titla af skáldsögum á hljóðbókum í lestrum höfunda, landskunnra leikara og annarra. • BORGIN bak við orðin er efth’ Bjarna Bjarnason í lestri Hjalta Rögnvaldssonar leikara. I bókinni eru sögur af ein- kennilegu kon- ungsríki sem fléttast saman við ævintýralega frásögn úr óþekktri borg. Höfundur hlaut Bók- menntaverðlaun Tómasar Guð- mundssonar árið 1998 fyrh’ söguna. Bjarni Bjarnason hefur áður sent frá sér skáldsögur, leikverk, smá- sögur og ritgerðir. Útgefandi er Hljóðbókagerð Blindrafélagsins í samvinnu við Vöku-Helgafell, sem gefur bókina samtímis út á prenti. Lengd: 4 snældur (um 6 klst.). Hljóðritun og framleiðsla: Hljóðbókagerð Blindra- félagsins. Kápumynd efth• Kristínu Gunnlaugsdóttur. Verð 4.280 kr. • NORÐURLJÓS er eftir Einar Kárason og er í lestri höfundar. I kynningu segir m.a.: „Á fyrri hluta átjándu aldar lítur sveinninn Svart- ur dagsins ljós á litlum bæ á Vest- urlandi. Þegar hann er enn á barnsaldri sundra harð- drægir valds- menn heimili hans og hrekja bróður hans í útlegð." Hljóðritun og framleiðsla: Hljóð- bókagerð Blindrafélagsins. Bókin kemur einnig út á prenti hjá Máli og menningu. Lengd: 4 snældur (8 klst.). Kápumynd er eftir Guðjón Ketilsson. Verð 3.980 kr. • TEITUR tímaflakkari er eftir Sigrúnu Eldjárn. Höfundur les. I kynningu segir: „Inni í dimmu og drungalegu skógarþykkti stendur skugga- legt hús. Þar býr Tímóteus upp- finningamaður með tilraunadýr- unum sínum.“ Hljóðritun og framleiðsla: Hljóðbókagerð Blindrafélagsins. Sagan kemur samtímis út á prenti hjá Forlaginu. Lengd: 2 snældur (um 90 mín.). Kápa: Sigrún Eld- járn. Verð 1.590 kr. Sigrún Eltyárn Einar Kárason

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.