Morgunblaðið - 11.12.1998, Síða 66

Morgunblaðið - 11.12.1998, Síða 66
■'66 FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ Þarftu að senda tölvupóst? Veistu ekki hvert netfangið er? Skoðaðu Netfangaskrána á mbl.is. Fljótlegt og þægilegt! FRÉTTIR BSSli í’ V - Morgunblaðið/Golli Jólaljósin tendruð í Hafnarfírði JÓLALJÓSIN verða tendruð á jólatré Hafnarfjarðar á Thorsplani laugardaginn 12. desember ki. 15. Þar mun Lúðrasveit Hafnarfjarð- ar leika kl. 14.45. Sendiherra Dana, Klaus Otto Kappel, flytur kveðju og tendrar Ijósin á jólatré sem er gjöf frá danska vinabænum Fredriks- berg. Formaður bæjarstjórnar, Þorsteinn Njálsson, flytur ávarp. Séra Gunnþór Ingason flytur hug- vekju. Karlakórinn Þrestir syngur nokkur lög. Kertasníkir flytur ávarp. Að athöfn lokinni um kl. 15.30 fer Lúðrasveit Hafnarfjarðar fyrir skrúðgöngu á jólaball í íþrótthúsinu v/Strandgötu. Neó tríóið leikur ásamt Eddu Borg. Auðvitað koma jólasveinarnir í heimsókn og gengið verður í kringum jólatréð. Vann ferð til Minneapolis FÉLAGSVÍSINDASTOFNUN Háskóla Islands hélt á dögunum happdrætti, en dregið var úr innsendum dagbókum í íjöl- miðlakönnun sem gerð var dag- ana 15.-21. október sl. Vinning- urinn var ferð fyrir tvo til Minn- eapolis frá Flugleiðum með gist- ingu. Vinningurinn kom á miða númer 618 en eigandi hans var Frímann Sigurnýasson. Á mynd- inni veitir Frímann vinningnum viðtöku úr hendi Bylgju Valtýs- dóttur starfsmanns Félagsvís- indastofnunar. Mannréttindi brotin víða um heim Flensborgarhöfn kl. 13.30 Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur. Fulltrúi Þjóðverja flytur kveðju og tendrar ljós á jólatré sem er gjöf frá vinabænum Cuxhaven. Kvennakór Hafnarfjarðai- syngur. Valgerðm- Sig- urðardóttir, formaðui' Hafnarstjói-n- ar, flytur ávarp. Söngur leikskóla- bama frá Hvammi. Stekkjastaur og Hurðaskellir mæta á svæðið. Vatnsveitan lækkar tenging- argjöld VEITUSTJÓRN Reykjavíkurborg- ar hefur ákveðið að lækka tenging- argjöld Vatnsveitu Reykjavíkur frá og með næstu áramótum. Lækkunin er mismunandi fyrir breytilegar stærðir á heimæðum, frá rúmum 4% á stærstu heimæðum í um 52% lækkun á minnstu heimæðum. Þessi breyting er ákveðin til að færa tengingargjöld vatnsveitunnar nær þeim tengingargjöldum sem eru hjá hitaveitunni. Með þessari breytingu verða gjöldin einnig svip- uð og hjá vatnsveitum í nágranna- sveitarfélögum borgarinnar. RAUÐI kross íslands hefur sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu í til- efni af 50 ára afmæli mannréttinda- yfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna: „Rauði kross Islands minnir á að þrátt fyrir að 50 ár séu liðin frá samþykkt mannréttindayfírlýsing- ar Sameinuðu þjóðanna eru mann- réttindabrot daglegt brauð víða um heim. Að mati félagsins ber íslend- ingum skylda til þess að veita þeim liðsinni sitt sem ekki njóta þeirra mannréttinda sem þeim ber sam- kvæmt yfirlýsingu Sameinuðu þjóð- anna. Rauði kross Islands leggur í þessu sambandi sérstaka áherslu á eftirfarandi: Við Islendingar eru meðal auðugustu þjóða heims og getum tryggt að þeir sem standa höllum fæti vegna sjúkdóma, at- vinnumissis, örorku, aldurs eða annarra aðstæðna njóti ekki síður en aðrir mannsæmandi lífskjara. Styrjaldir, efnahagsþvinganir og efnhagslegt öngþveiti valda tugum milljóna manna algerri neyð, hrekja fólk á flótta og svipta það réttindum sínum og reisn. Börn eru víða notuð til herþjónustu þrátt fyr- ir ákvæði mannréttindayfirlýsing- ar. A þessum _ tímamótum hvetur Rauði kross íslands íslenskan al- menning og stjórnvöld til þess að sýna þeim sem mest þurfa á að halda, heima og erlendis, samstöðu og samhug.“ Pressukvöld á aðventu BLAÐAMANNAFÉLAG íslands efnir til bókakvölds fyrir félags- menn sína í Sölvasal, á efri hæð Sól- ons Islandusar, í kvöld, fóstudags- kvöldið 11. desember. Salurinn verður opnaður kl. 21 og dagskráin hefst um klukkustundu síðar. Fjórir blaðamenn lesa úr bók- um sínum, sem nýkomnar eni út. Það eru þau Ámi Þórarinsson, sem les kafla úr „Nóttin hefur þúsund augu“, Eiríkur S. Eiríksson, sem les úr „Áin mín“, Gerður Kristný les úr smásagnasafni sínu „Eitruð epli“ og Sindri Freysson les úr verðlauna- bókinni „Augun í bænum“. Blaðamenn eru hvattir til að fjöl- menna á þetta óformlega pressu- kvöld á aðventunni.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.