Morgunblaðið - 20.12.1998, Qupperneq 2
2 SUNNUDAGUR 20. DESEMBER 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Erfítt að spá um næsta Skeiðarárhlaup en stíflan veik
Ekki lekið úr Gríms-
vötnum frá sumri
SIGURÐUR Reynir Gíslason, vís-
indamaður á Raunvísindastofnun
Háskólans, segir að sýni sem tekið
var úr Skeiðará síðdegis á föstu-
dag bendi ekki til þess að eldgosa-
vatn hafi lekið úr Grímsvötnum.
Hann segir að lekið hafi úr
Grímsvötnum á fyrrihluta þessa
árs, en ísstíflan við Grímsfjall hafi
haldið frá því í sumar.
„Þegar stóra hlaupið kom í
Skeiðará í nóvember 1996
raskaðist þröskuldurinn við
Grímsfjall. Strax tveimur vikum
eftir hlaup fór að leka úr
Grímsvötnum. Lekinn hélt áfram
yfir veturinn, en undir vorið 1997
stöðvaðist lekinn og þröskuldurinn
fór að halda. Þá fórum við að sjá
venjulegt vatn í Skeiðará. Upp úr
síðustu áramótum fór aftur að
koma vatn úr Grímsvötnum og
náði það hámarki fyrrihluta árs.
Þá var mikil jöklafýla af ánni og
við köllum þetta í gamni hlaup.
Síðan þegar fór að vora lokaðist
Engin sláandi
breyting á eíiia-
styrk frá mælingu
í nóvember
aftur og stíflan hélt alveg í sumar.
Þegar leið á haustið hefúr verið
stígandi í efnastyrknum í ánni. Það
er hins vegar ekki auðvelt að túlka
hvort um er að ræða leka úr vötn-
unum eða breytingar vegna vetr-
arrennslis. Við mældum síðast í
nóvember og þetta sem við mæld-
um í gær var mjög svipað og þá.
Það er því ekki að sjá neina
sláandi breytingu,“ sagði Sigurð-
ur.
Efnastyrkur vatnsins
hefur forspárgildi
Sigurður sagði að efnastyrkur
vatns úr Grímsvötnum væri mun
meiri en úr venjulegu rennsli í
Skeiðará. Með því að taka reglu-
lega sýni úr ánni væri hægt að sjá
hvort vatn læki frá Grímsvötnum
og spá um hlaup. Hann sagði að í
venjulegu Skeiðarárhlaupi væri
hægt að segja fyrir um hlaup með
nokkrum fyrirvara vegna þess að
venjulega byrjaði að leka úr
Grímsvötnum áður en sjálft
hlaupið kæmi. I stóra hlaupinu
1996 hefði hins vegar mjög lítið
lekið áður en hlaupið hófst. Lekinn
hefði hafist aðeins 6-10 klukkutím-
um áður en hlaupið kom.
Vatnamælingar næstu daga
Sigurður sagði erfitt að spá um
hvenær næsta Skeiðarárhlaup
hæfist. Það lægi þó fyrir að ísstífl-
an við Grímsfjall væri veik og léti
fyrr undan en fyrir tveimur árum.
Til þess að hún gæfi eftir þyrfti
hins vegar að vera nægur þrýsting-
ur á hana frá vatni í Grímsvötnum.
Vatnamælingamenn munu fylgj-
ast með Skeiðará næstu daga.
Flutt með
þyrlu vegna
andnauðar
KONA á þrítugsaldri var flutt með
þyrlu í Sjúkrahús Reykjavíkur á
laugardagsmorgun vegna andnauð-
ar í kjölfar líkamsárásar á veitinga-
stað í Borgarnesi um nóttina.
Tilkynnt var um atburðinn til lög-
reglunnar í Borgarnesi klukkan
3:19. Konan mun hafa hlotið högg á
háls og átt erfitt með andardrátt.
Að mati læknis þótti ráðlegt að
koma konunni undir læknishendur í
Reykjavík og var þyrla Landhelgis-
gæslunnar kölluð til. Flutti hún kon-
una á slysadeild Sjúkrahúss Reykja-
víkur. Var hún á góðum batavegi í
gærmorgun.
Maður sá, sem talinn er hafa lagt
hendur á konuna, mun hafa ráðist á
annan mann í Borgarnesi og veitt
honum áverka.
------M-*-----
Sex grunaðir um
ölvunarakstur
SEX ökumenn voru grunaðir um
ölvunarakstur í Reykjavík aðfara-
nótt laugardags og eiga þeir yfir
höfði sér að missa ökuréttindi.
Bflstjórarnir voru stöðvaðir á
tímabilinu frá miðnætti tii klukkan
sjö um morguninn.
Heilbrigðisráðherra
fer til Færeyja
Færeyskir
sjúklingar
til Islands?
Þúrshöfn. Morgunblaðið.
LÍKUR eru á að færeyskir
sjúklingar, sem þurfa til meðferðar
á sjúkrahúsi utan Færeyja, muni í
auknum mæli leita lækninga á Is-
landi.
í þeim tilgangi að komast að því
hvaða möguleikar eru fyrir hendi á
samstarfi á sviði heilbrigðismála
hefur Helena Dam á Neystabo,
félags- og heilbrigðismálaráðherra í
landsstjóm Færeyja, boðið Ingi-
björgu Pálmadóttur, heilbrigðis-
ráðherra, til skrafs og ráðagerða til
Færeyja. Hún býst við svari frá
hinni íslensku starfssystur sinni
fljótlega eftir áramót.
„Við höfum áhuga á að auka sam-
starfið á sviði heilbrigðismála við
fleiri lönd en Danmörku. Þar með er
ekki sagt, að við séum ekki ánægð
með þá þjónustu sem við fáum í
Danmörku, en við óskum eftir því að
auka sambandið við önnur lönd - og
í þessu samhengi sérstaklega Is-
land,“ segir Helena Dam á Neysta-
bo. Hún segir að talið sé að betri
meðhöndlun ýmissa tegunda
krabbameins standi til boða á Is-
landi en í Danmörku.
BLAÐINU í dag fylgir 12 síðna
auglýsingablað í stóra broti frá Ný-
kaupi „Uppskrift að gleðilegum jól-
um.“ Blaðinu er dreift á höfuðborg-
arsvæðinu.
Morgunblaðið/Halldór
VERSLANIR voru teknar að fyllast þegar fyrir hádegi í gær. Þessi fjölskylda var að setja
í innkaupakerruna í Kringlunni.
Rætt um fjárlög á Alþingi
Andstaða vefeng-
ir þjóðhagsspá
ÞRIÐJA og síðasta umræða um
frumvarp til fjárlaga næsta árs stóð
yfir á Alþingi í gærdag en óvíst var
hvenær atkvæðagreiðsla færi fram
um framvarpið og breytingartillög-
ur við það. Meirihluti fjárlaganefnd-
ar Alþingis leggur m.a. til þá breyt-
ingartillögu að allt að 300 milljónum
króna verði varið til stofnunar eign-
arhaldsfélaga á landsbyggðinni sem
ætlað er að styrkja atvinnulíf þar og
auka fjölbreytni atvinnuframboðs.
Þá óskar meirihlutinn eftir því að
framlag til málefna fatlaðra verði
hækkað um 67 milljónir króna. Þar
af eiga 60 milljónir að fara til nýrra
stofnana í Reykjavík og Reykja-
neskjördæmi í samræmi við skýrslu
nefndar um biðlista eftir búsetu og
annam þjónustu hjá svæðisskrif-
stofum málefna fatlaðra.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær gerir meirihlutinn ráð
fyrir að tekjuafgangur ríkissjóðs
verði um 2,6 milljarðar á næsta ári
m.a. vegna endurmats Þjóðhags-
stofnunar á efnahagshorfum næsta
árs. Minnihluti fjárlaganefndar ve-
fengir hins vegar þessa þjóðhags-
spá og telur að í henni felist vanmat
á innflutningi og fjárfestingu. Þeir
þættir geti haft talsverð áhrif á
tekjuhlið ríkissjóðs.
Þingfrestun óákveðin
Auk fjárlagafrumvarpsins vora
fjölmörg önnur mál á dagskrá þing-
fundar í gær. Ekkert samkomulag
virðist vera milli stjórnar og stjórn-
arandstöðu um þinghaldið næstu
daga og óvist hvenær þingi verður
frestað fyrir jói.
Mikið
verslað
fyrir jólin
VERSLUN fyrir jólin er að ná há-
marki þessa dagana. Mikið var að
gera í búðum um helgina. Sigurð-
ur Jónsson, framkvæmdastjóri
Kaupmannasamtakanna, sagði að
útlit væri fyrir góða verslun fyrir
jólin. Hún hefði að vísu farið
nokkuð seint af stað líkt og í
fyrra. En eftir 10. desember, þeg-
ar nýtt kortabii hófst, hefði jóla-
verslunin komist í fullan gang.
Sigurður sagði að fyrir síðustu jól
hefði mikil aukning orðið í jóla-
verslun og sumir hefðu verið van-
trúaðir á að jafnmikil verslun
yrði fyrir þessi jól, en útlit núna
væri almennt gott. Sigurður
sagðist að vísu ekki hafa góðar
upplýsingar um verslun á lands-
byggðinni. Gott veður og góð
færð væri ekki að öllu ieyti
hagstæð fyrir landsbyggðarversl-
unina því þá væri hætt við að
fleiri gerðu sín kaup í Reykjavík.
Dagskrárstjóri á
hverju heimili
► Möguleikar í stafrænu sjón-
varpi „óþrjótandi". /10
„Mistök“ fortíðar
opinberuð?
► Stuðningur Bandaríkjanna við
herforingjastjórnir í Rómönsku-
Ameríku upp á yfirborðið. /12
Með bjartsýnina að
leiðarljósi
► íslendingar eiga þátt í miklum
umskiptum í Öksfjord í N-Noregi.
/22
Verslunin og útgáfan
styðja hvor aðra
► í Viðskiptum/Atvinnulífi á
sunnudegi er rætt við Eddu Möll-
er, framkvæmdastjóra hjá Kirkju-
húsinu og Skálholtsútgáfunni. /30
►1-36
Hamhleypa í fugla-
söfnun
► í litlum skúr á bænum Ytri-
Neslöndum á Sigurgeir Stefáns-
son merkilegt safn uppstoppaðra
fugla og eggja. /1&18-19
Hrædd við að gera
okkur að fíflum
► Leikur og sköpun er inntakið í
námskeiðum Helgu Arnalds. /10
Og steinarnir tala
► Egill Benedikt Hreinsson, pró-
fessor í rafmagns- og tölvuverk-
fræði þykir einnig lagtækur
jasspíanisti. /22
C FERÐALÖG
► l-4
Hugleiðingar um Ind-
landsferð
► íslendingar styðja blásnauð
indversk börn til náms. /2
Washington-eyja
► Ferðast um fornar Islendinga-
slóðir /3
D
W0 BILAR
► l-4
Sonata með veggrips-
kerfi sem virkar
►Hyundai Sonata reyndur í
hálku. /2
Reynsluakstur
► Laguna nú með minni vél og
verklegri Applause með nýjum
svip. /4
Eatvinna/
RAÐ/SMÁ
► l-20
Kodak fær alþjóðlegu
umhverfisverðlaunin
►Viðui'kenningin fyrir
„einnota“/margendurnota mynda-
vélar. /1
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir l®4/8/bak Brids 50
Leiðari 32 Stjömuspá 50
Helgispjall 32 Skák 50
Reykjavíkurbréf 32 Fólk í fréttum 54
Skoðun 40 Útv/sjónv. 52,62
Minningar 42 Dagbók/veður m
Myndasögur 48 Mannl.str. 30b
Bréf til blaðsins 48 Dægurtónl. 32b
ídag 50
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR: 1&6