Morgunblaðið - 20.12.1998, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 20.12.1998, Qupperneq 28
28 SUNNUDAGUR 20. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Golli FRÍKIRKJAN við Linnetstíg í Hafnarfirði. ÞAÐ ER einstaklega mikið framtak að söfnuður taki sig til og geri svo mikið í einum rykk. Pað er bókstaf- lega allt tekið í gegn, endurbætt, endursmíðað og lagfært. Pað eina sem ólokið er, er að mála húsið að utan. Hér þurfti að samræma sjónarmið. Það þurfti að taka mið af notkun safnaðarins á húsinu og þeirri stað- reynd að húsið er friðað, eins og allar kirkjur smíðaðar fyrir 1918, og því var verkið í heild unnið með húsverndarsjónarmið í huga,“ seg- ir Þorsteinn Gunnarsson. Hann rekur síðan það helsta sem tekið var fyrir í kirkjunni. Rennd tréijós sem verið hafa í kirkjunni frá íyrsta degi og voru farin að kola nokkuð eftir perurnar voru endurgerð í hvítu postulíni með gyllingum. Kirkjan var og klædd að innan með panel. Klæðningamar voru smíðaðar í stíl við gömlu borðin. Skipt var um glugga og allir viðir treystir í grind og gólfí. Nýtt timb- urgólf var lagt nema í forkirkju og miðgangi þar sem er steingólf. Kirkjan er „stór og mikil hvelfing“ eins og Porsteinn komst að orði, og var klædd panel. Honum hefur nú verið skipt út fyrir gifs og er það að sögn arkitektsins bæði fyrir sakir brunavama og betri hljóm- burðar. Uppmnalegir bekkir hafa verið fjarlægðir, svo og gamlir bíóstólar sem síðar komu til að auka sætafjölda. Þess í stað vora smíðaðir ný- ir bekkir. Það sama gildir uppi á pöllunum, en Þorsteinn segir að þar hafi verið mjög sér- stakir bekkir fyrir þar sem setfjölin hafi verið úr rimlum sem löguðu sig eftir líkamanum. Allar raf- og hitalagnir eru nýjar. Þá eru nýir ofnar og ný ljós. Allir gluggar eru nýir eins og getið var áðan, einnig allar hurðir. Loks var kirkjan öll máluð að innan og var tekið mið af upprunalegum litum í litavali í því skyni að komast eins nærri því gamla og unnt var. Samræming sjónarmiða Fríkirkjan í Hafnarfírði hef- ur verið tekin í alls herjar and- litslyftingu og um síðustu helgi var hún opnuð að nýju eftir hin- ar gagngeru breytingar. Þetta er gamalt hús, byggt árið 1913, en er nú nýtt hús að LOFTLJÓS. kalla má á gömlum grunni. Guðmundur Guðjónsson ræddi við þá Þorstein Gunn- arsson og séra Eyjólf Einarsson fríkirkjuprest í Hafnarfírði um breytingarnar og svo tala myndirnar sínu máli. Þorsteinn hældi Fríkirkjusöfnuðinum á hvert reipi fyrir atorku og framsýni og einnig sagði hann verksfræðistofuna Línuhönnun og verktakafyrirtækið Gamlhús, sem sérhæfir sig í endurgerð og viðhaldi gamalla húsa, eiga mikið hrós skilið fyrir framlög sln. Stór sigur Séra Einar Eyjólfsson, prestur Fríkirkju- safnaðarins í Hafnarfirði, sagði að síðasti sunnudagur hefði verið mikill gleðidagur fyrir söfnuðinn þar sem ;,nýja“ kirkjan hefði þá verið vígð af biskupi Islands, séra Karli Sigur- björnssyni. „Kirkjan hefur gjörbreyst og á allan veg til hins betra. Þetta er gamalt rótgróið hús og því viðbúið að stórar og miklar breytingar gætu orðið viðkvæmt mál í söfnuðinum. Ut- koman er hins vegar sú, að fólki virðist falla þetta frábærlega vel og mér þykir þetta vera dæmi um einstaklega góða endurgerð. Hér hafa ungir smiðir unnið stóran sigur, að öllum öðrum ógleymdum sem að verkinu komu,“ sagði séra Einar. Byggingarlist kirkjunnar Húsameistari kirkjunnar var Davíð Krist- jánsson, fæddur að Kambsstöðum í Ljósa- vatnsskarði 1. maí 1878. Á árunum 1893-1900 stundaði hann sjómennsku frá Vestfjörðum, en næstu fjögur árin nam hann trésmíði í Reykjavík hjá Jóni Sveinssyni trésmíðameist- ara á Sunnuhvoli. Að námi loknu fluttist hann til Hafnarfjarðar og starfaði þar Jengst af við trésmíðar, eða þar til hann var skipaður bygg- ingar- og heilbrigðisfulltrúi bæjarins 1938. Hann var einn af stofnendum fríkirkjusafnað- arins og átti sæti í fyrstu stjórn hans. Þá var hann bæjarfulltrúi í Hafnarfirði í tvo áratugi, 1918-38, þar af forseti bæjarstjómar í átta ár. Hann lést 1943.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.