Morgunblaðið - 20.12.1998, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 20. DESEMBER 1998 29
GLUGGAR,
F.V. Jóhannes Einarsson formaður safnaðarstjórnar, Þorsteinn Gunnarsson arkitekt, Hjalti Sigmundsson
tæknifræðingur hjá Línuhönnun, séra Einar Eyjólfsson fríkirkjuprestur og Þorsteinn Bergsson fram-
kvæmdastjóri Gamlhúss.
PREDIKUNARSTÓLLINN.
Upprunalegar teikningar kirkj-
unnar hafa ekki varðveist svo vitað
sé, en augljóst er talið að við gerð
þeirra hefur Davíð haft í huga Frí-
kirkjuna í Reykjavík, eins og hún
leit út nýbyggð, án þess að fá að láni
rifhvelfingar og tvíglugga efri hæð-
ar. Líkar kirkjur eru til eftir Guð-
mund Jakobsson timburmeistara á
Kálfatjörn og Akranesi, en þær eru
frá ofanverðri 19. öld.
Fríkirkjan í Hafnarfirði er fyrsta
raflýsta kirkjan. Hún stendur á
steinsteyptum sökkli, byggð af
bindingi og járnvarin jafnt á þaki
sem veggjum en panelklædd innan
í öndverðu. Á hvorri hlið eru átta
gluggar, allir með gotneskum odd-
bogum, tveir á hvoru tveggja kór
og kirkju í upphafi, en fjórir á
turni. Á kirkjunni voru tvennar úti-
dyr, aðrar vestan á forkirkju og
hinar á austurgafli norðan kórs. Á
suðausturhorni var reykháfur og
kirkjan hituð með kolaofni. Fram-
sýni hafa menn haft, því þeir létu
leggja rafmagnsleiðslu, þótt raf-
magn væri af skornum skammti í
Hafnarfirði. Bundust safnaðarmeð-
limir samtökum um að spara raf-
magn heima fyrir þannig að lýsa
mætti upp kirkjuna þegar brýnust
væri þörfin á þvi.
Önnur tímamót
Þetta eru ekki fyrstu tímamótin.
Árið 1931 fór fram gagnger viðgerð
á kirkjunni og var þá m.a. byggður
nýr og stærri kór með steyptum
kjallara undir og turnspíran löguð
að smekk tímans, smíðuð með
píramítalagi utan um gamla turn-
inn. Teikningarnar að breytingun-
um gerði Guðmundur Einarsson
trésmíðameistari, en hann hafði
einnig umsjón með smíði kirkjunnar
1913. Fleiri minni breytingar voru
gerðar í samræmi við meginbreyt-
ingarnar og þótti mönnum að þeim
loknum sem uppi stæði ný kirkja.
Hún var því endurvígð sem slík 27.
september 1931 af séra Jóni Auð-
uns, að viðstöddu fjölmenni.
Árið 1933 var keypt orgel í kirkj-
una, mikið verkfæri á sínum tíma og
árið 1955 var bætt um betur og nýtt
og stærra verkfæri keypt frá
Þýskalandi. Til þess að koma því
fyrir þurfti verulega smíðavinnu,
stigar í forkirkju voru teknir niður
og byggð tvö stigahús sitt hvonim
megin við forkirkjuna þess í stað og
söngpallurinn lengdur til austurs.
Að auki var byggt lítið skrúðhús
sunnan við kórinn, fast við austur-
gafl framkirkju. Enn teiknaði Guð-
mundur Einarsson og eru teikning-
arnar dagsettar í septemner 1954.
Það eru elstu teikningar sem til eru
af kirkjunni.
í þessari törn var enn fremur
komið fyrir rafmagnshitun í stað
kolakyndingar og kirkjan öll klædd
að innan með masoníti og síðan mál-
uð að innan.
Menn hafa ekki setið auðum
höndum. 1962 var gömlum bekkjum
skipt út fyrir notaða bíóstóla. 1974
var sett í kórglugga steint gler og
ytra byrði kirkjunnar endurnýjað
frá grunni, m.a. með því að taka of-
an af tveimur af hverjum þremur
burstum. 1976 var tekin í gagnið
miðstöðvarhitun.
Áiúð 1982 var síðasta umtalsverða
vinnutörnin við kirkjuna uns hún
fór í andlitslyftingu síðasta sumar.
Þá voru smíðaðar fjórar viðbygg-
ingai- við kirkjuna, allar úr járn-
vörðu timbri. Fyrst var nýtt og
stærra skrúðhús. Síðan anddyri við
bakdyi- norðan kórs, síðan biðher-
bergi norðan forkirkju og loks sal-
emi sunnan forkirkju.
1 * , *
SEÐ fram í kór.
1 ljll
fíj , \ tjpg
W - >- if.-t. i.