Morgunblaðið - 20.12.1998, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 20. DESEMBER 1998 31
um aldamót - sagnaarfur norrænna
ríkja - þær segja frá trú, von og
kærleika. I bókinni eru sögur og
myndir eftir Islendinga og tak-
markið er að dreifa bókinni á öll
heimili á Norðurlöndum. Við feng-
um þýðingarstyrk frá Kristnisjóði
til þess að gefa út þessa bók, sem er
eitt af stærstu verkefnum næsta
árs. Að öðru leyti munum við ein-
beita okkur að kristilegum bókum
og tónlist fyrir almenning jafn-
framt því sem við verðum með
víðtæka útgáfu fyrir barna- og
æskulýðsstarf kirkjunnar eins og
verið hefur. Pess má geta að við
gefum einnig út lög og reglur kirkj-
unnar, bækur sagnfræðilegs eðlis,
m.a. gáfum við út sögu Þorláks
helga. Við höfum einnig gefið út
mikið af bókum eftir biskupinn,
séra Karl Sigurbjörnsson. Alls höf-
um við gefið út 150 titla á sjö ár-
um.“
Hvernig skyldi salan ganga á
hinu kristilega efni Skálholtsútgáf-
unnar? „Hún gengur mjög vel hér í
búðinni en því miður síður í hinum
stærri bókabúðum. Slíkum bókum
er oft ekki valinn nógu góður stað-
ur í almennum bókabúðum. Einnig
seljum við allt fræðsluefni til kirkn-
anna. Staðreyndin er sú að fólk hef-
ur mikinn áhuga á efni sem er trú-
arlegs eðlis. Við gefum ekki út
bækur um dulrænt efni en við ætl-
um hins vegar að gefa út bók um
kristna íhugun (meditation) á
næsta ári. Við fáum geysilega mikið
sent af handritum. Við höfum sett
okkur það markmið að gefa út sem
mest af barnabókum sem byggjast
á kristnum grunni. Það þarf ekki að
ræða um Jesú á hverri síðu til þess
að bók byggist á kristnum grunni.
Bækur geta verið siðferðilega upp-
byggilegar án þess að slíkt komi til.
Ævintýri frá ýmsum löndum sem
við erum að gefa út eru til dæmis af
slíkum toga. Hirðir og hundrað
kindur er smellin bók um Jesú sem
góða hirðinn sem týndi einum sauð
og skildi hina 99 eftir til að leita að
honum. Góð barnabók er bók sem
byggir sálarlíf barns upp og styður
við kristilegt uppeldi þess, þannig
útgáfa fyi-ir börn vill Skálholtsút-
gáfan vera.“
Skálholtsútgáfan og Kirkjuhúsið
eru algerlega í eigu kirkjunnar en
eru rekin sem sjálfstæð stofnun. I
stjórn fyrirtækjanna sitja níu
manns, en þrír skipa framkvæmda-
nefnd sem sér um daglegan rekst-
ur. Markmiðið er að láta reksturinn
bera sig. Við getum þó sótt um
styrk til einstaka útgáfuverkefna.
Við setjum okkur að vera áræðin í
útgáfu en geta þó haldið utan um
verkefnin og séð út úr þeim. Það er
í reglum útgáfunnar að ef hún skil-
ar hagnaði þá á hann að fara til út-
gáfu á bókum sem byggjast á
kristnum grunni. Starfsmenn eru
þrír í fullu starfi og einn í hálfu
starfi, allt konur, vel menntaðar.
Tvær þeirra hafa áttunda stigs próf
í söng en við segjum stundum að
við hinar tvær „séum í sjöunda
himni“, það er oft tekið lagið hér. Á
vegum útgáfunnar starfa hins veg-
ar fjölmargir verktakar. Mjög mikil
vinnudreifing er í útgáfunni."
Það eru starfandi fleiri kristileg-
ar útgáfur á Islandi, en þær eru fá-
ar að sögn Eddu Möller. „Fíladelfía
hefur þurft að draga saman seglin
og einnig Saltútgáfan, útgáfa
KFUM og K. Við höfum hins vegar
aukið útgáfuna mjög mikið og sýnt
að okkar mati mikla bjartsýni og
áræði. Skálholtsútgáfan er farin að
velta 40 til 50 milljónum króna á
ári. Það má heldur ekki minna vera
til þess að reka svona fyrirtæki."
Áð lokum getur Edda þess að
þótt vissulega lúti rekstur Kirkju-
hússins og Skálholtsútgáfunnar um
ýmislegt lögmálum markaðarins þá
sé eitt og annað sem geri starfsem-
ina þarna sérstaka. „Fólk sem kem-
ur hér og verslar þarf oft að létta á
sér, enda eru þær vörur sem seldar
eru hér margar tengdar stórum
viðburðum í lífi fólks og einnig and-
láti ástvina. Ef þörf er á er gott að
geta vísað fólki til prestanna sinna
eða jafnvel upp á efri hæðir hússins
hér, þar sem margir prestar eru
starfandi. Hér gefa menn sér tíma
fyrir fólk. Fjölskylduþjónusta
■ f : yk
rbT:
* ■B&tSZK*: ■ ■
wm . . . ..■
EDDA Möller og Guðrún Finnbjamardóttir, sem einnig starfar hjá Kirkjuhúsinu.
kirkjunnar er líka hér í nágrenninu,
á Klapparstíg 27, þangað vísum við
þeim sem gagn geta haft af þeirri
þjónustu. Hingað kemur fólk í gleði
og sorg til að kaupa gjafir handa
sínum nánustu, það er því ekki
óeðlilegt að persónuleg mál beri
hér á góma. Það skaðar ekki í þessu
starfi að ég hef verið virk í kirkju-
starfi í minni kirkju - Fríkirkjunni í
Hafnarfirði.
Þar er ég þar sem hlutirnir eru að
gerast og sé líka og finn hvað vant-
ar í hinu kirkjulega starfi. Loks má
geta þess að við fáum hér mikinn
stuðning frá Fræðsludeild kirkj-
unnar og biskupi sjálfum. Karl Sig-
urbjömsson er einn okkar helsti
velgjörðarmaður því hann hefur
svo mikinn áhuga á kristilegri út-
gáfu.“
W
pJ W
*" " X, "
.w%.
Vetrarmánuðir eru fegursti tími ársins í Austurlöndum, blómskrúð,
sólskin, þurrt og hæfílega heitt. Verðlagið leyfir lúxuslíf, sem fáir láta
eftir sér á Vesturlöndum. Thailand er sannkölluð gullakista ferða-
manns, og enn geturðu tryggt þér frábæra ferð með flugi, flutningum,
gistingu á völdum hótelum með stórum morgunverði og fararstjórn
fyrir að meðaltali aðeins kr. 6.700 á dag með fluginu inniföldu.
En gjaldmiðlar Austurlanda eru aftur á uppleið
og senn hlvtur verðið að hœkka.
TRYGGDU ÞÉR SUMARSÆLU UM HÁVETUR í HEILLANDI UMHVERFI
BÓKUNARSTAÐA:
17. janúar UPPSELT, biðlisti.
31.janúar 7 sæti
14. febrúar 4 sæti
28. febrúar 12 sœti
14. mars laus sæti
25. mars ný páskaferð
Malasía og Bali 11 dagar - laus sœti.
28. mars 10 sœti, páskar
11. apríl 12 sæti
25. apríl laus sæti
9. maí. laus sæti
16. maí. UPPSELT
30. maí. laus sæti
Margar ferðir okkar eru uppseldar,
en þú getur tryggt þér láza verðið í
allar vetrarferðirnar með því að stað-
festa pöntun fyrir 31. desember.
OPIÐ ÍDAG FRÁ KL. 14-16
FERÐASKRI
HEIMSKLÚBBUR INGÓLFS
Austurstræti 17, 4. hæð, 101 Reykjavík, sími 562 0400, fax 562 6564,
netfang: prima@ heimskiubbur.is, heimasíða: hppt://www.heimsklubbur.is