Morgunblaðið - 20.12.1998, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 20. DESEMBER 1998 39
riðið einn á hesti, þó pabbi héldi í
tauminn, yfír þessar ár, sem marg-
ar sögur höfðu farið af, að menn
hefðu sundriðið.
Hestarnir voru léttir í spori frá
ánni heim að Odda. Pegar þangað
kom, var farið að hesthúsi, sem var
neðan við túnið. Leyfi hafði fengist
hjá séra Erlendi að geyma hestana
þar á meðan á fermingunni stóð. I
hesthúsinu hafði fjölskyldan líka
fataskipti. Engin aðstaða var á
sjálfu prestsetrinu til að hýsa allar
fjölskyldur fermingarbai-nanna til
fataskipta og munu foreldrar mínir
ekki hafa farið fram á það. Nýbúið
var að moka gólfið í hesthúsinu og
voru nokkrar hellur í gólfínu, sem
við tylltum okkur á og studdum við
hvert annað og aðstoðuðum við að
hafa fataskipti. Allt gekk þetta vel
og síðan gengu foreldrar mínir með
strákana sína til kirkju, þar sem
Jón fermdist berfættur í skónum.
Kveikt í kvígu
Ég var átta ára. Það var kominn
j vetur og faðir minn var á vertíð í
Vestmannaeyjum, eins og jafnan
áður, til að afla heimilinu tekna.
Eitthvað munum við bræðurnir,
a.m.k. þeir eldri, hafa verið að reyna
að hjálpa til við heimilisstörfin. Búið
var ekki stórt, um eitthundrað og
tuttugu ær, rúmlega tuttugu lömb
í og um sextíu hross. Það voru fjórar
mjólkandi kýr í fjósi auk veturgam-
? allar kvígu.
Við bræðurnir uppgötvuðum að
einhverjar pöddur voru á síðum
kvígunnar. Við hugleiddum hvernig
vinna mætti á þessum pöddum.
Jóni, sem var elstur okkar bræðra,
datt það snjallræði í hug, að bera
steinolíu á síður kvígunnar og
kveikja síðan í, en hafa teppi tilbúið
til að skella yfír kvíguna til að
slökkva eldinn á réttu augnabliki,
; svo hún biði ekki tjón af. Þetta þótti
I okkur, sem yngri vorum, snjöll hug-
i mynd hjá stóra bróður. Móðir okkar
vissi ekki um þessa hemaðaráætlun
,S okkar gegn pöddunum. Verkið var
vel undirbúið, kvígan var á ysta
básnum og því stutt að dyrunum, ef
-j eitthvað færi úrskeiðis. Við gættum
Iþess að setja ekki mikla olíu á hár
hennar og einungis á afmarkað
svæði, svo hægara væri að hemja
| eldinn og hann breiddist ekki út.
Allt var skipulega undirbúið, en
nokkur spenna var í loftinu, kannski
ekki síst af ótta við að móðir okkar
kæmi að okkur, þegar verst stæði á
og eldur logaði á kvígunni.
Þegar Jón bar eldspýtuna að síðu
kvígunnar, yarð mikill blossi, sem
þegar breiddist yfír síðu hennar.
Hún tók mikinn kipp, og hinum
kúnum brá einnig og þær bauluðu
svo hátt að við óttuðumst að það
heyrðist inn í bæ til mömmu. En við
vorum tilbúnir með teppið og skellt-
um því yfir kvíguna og kæfðum eld-
inn og henni varð ekki meint af og
pöddurnar hurfu. Þannig tókst
þetta herbragð okkar, en foreldrar
okkar fengu ekki að vita af upp-
átækinu fyrr en mörgum árum
seinna, þegar þeir voru hættir bú-
skap. Og þá sögðu þeir fátt.
• Bókarheiti er Á lífsins leið. Fjöldi
þjóðkunnra manna og kvenna segir frá at-
vikum og fólki sem ekki gleymist. Útgefandi
er Stoð og styrkur. Bókin er 179 bls.
Tölvur og tækni
á Netinu
mbl.is
—/KLLTAf= G!TTH\SAG NÝTT
Þar sem þjálfunin byrjar
R
R
púlsmælar
P. Ólafsson ehf.,
Trönuhrauni 6, Hafnarfirði,
sími 565 1533, fax 565 3258.
Söluaðilar POLAR púlsmæla:____________________
flkranes: Guðm. B. Hannah úrsm. Ólalsvík: Verslunin Hrund. ísafjörður: Vestursport. Sauðárkrókur:
Sundlaugin. Ólafsfjðrður: Tíska og sport. Akureyri: Úrsmiðavinnust. Halldórs Ólafssonar. Húsavík:
Skokki, heilsurækt. Egilsstaðir: Apótekið. Neskaupstaður: SÚN-búðin.Vestmannaeyjar: Hressó,
heilsurækt. Selfoss: Styrkur. Kellavík: Georg V. Hannah úrsm. Hlaupasíðan: http://www.mmedia.is/hlaup
c
^00(fymi^svnin£arsalur
OPIÐ: Mán. - fbs.
Fimmtud.
Laugard.
Sunnud.
10:00 - 18:00
10:00-20:00
11:00-16:00
13:00 - 16:00
TM - HÚSGÖGN
SíSumúla 30-Sími 568 6822
Scholl
SCHOLL HEILSUSKÓRNIR
Tilkynning frá Kirkjugörðum Reykjavíkurprófastsdæma
Jólaþjónusta
starfsfólks
Jól í görðunum
Á jólum kemur fjöldi fólks í Fossvogskirkjugarð, Gufuneskirkju-
garð og Suðurgötugarð til þess að huga að leiðum ástvina sinna.
Við munum leitast við að leiðbeina ykkur eftir bestu getu.
Þjónustusímar 551 8166 og 587 3325
Aðalskrifstofan í Fossvogi, sími 551 8166 og skrifstofan í Gufu-
nesi, sími 587 3325, eru opnar alla virka daga frá 8.30-16.00.
Skrifstofurnar eru opnar á Þorláksmessu og aðfangadag frá kl.
9.00 til 15.00. Þar veitum við upplýsingar, gefum leiðbeiningar
um aðhlynningu leiða og afhendum ratkort ef þörf krefur.
Þjónusta á Þorláksmessu
og aðfangadag
Á Þorláksmessu og aðfangadag, milli kl. 10.00 og 15.00, verða
Fossvogskirkja og þjónustuhús í Gufuneskirkjugarði opin fyrir þá
sem vilja staldra við í dagsins önn. Á aðfangadag munu prestar
verða til staðar. Starfsmenn Kirkjugarðanna verða á vettvangi í
görðunum báða þessa daga og taka á móti ykkur og leiðbeina
frá kl. 9.00 til 15.00.
Gleðilega jólahátíð
Starfsfólk Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma