Morgunblaðið - 20.12.1998, Side 41

Morgunblaðið - 20.12.1998, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. DESEMBER 1998 41 SKOÐUN ástæðum. í fyrsta lagi er hér um mikið magn kolefnis að ræða. I öðru lagi væri ekki lítið atriði ef unnt væri að nýta gróðurhúsaloft- tegundir sem nú streyma frá stór- iðjunni út í andrúmsloftið. það mundi leiða til þess að stóriðjan yrði að mestu umhverfisvæn. Það hefur komið fram í fjölmiðl- um að Járnblendiverksmiðjan á Grundartanga hefur ákveðið að byggja nýjan ofn sem mögulegt verður að loka þannig að hægt væri að nýta frá honum afgasið sem að mestu er koleinoxíð en inniheldur einnig nokkurt koltví- oxíð. Með því að bæta í þetta gas vetni mætti fræðilega framleiða um 87.000 tonn af metanóli á ári sem, ef það yrði notað til að knýja efnarafalabíla, gæti komið í stað 98.000 tonna af bensíni. Þetta met- anól mundi sem sagt nægja til að knýja mestallan bensínbílaflota landsmanna. Afgasið frá núverandi ofnum Járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga og frá kerum álver- anna í Straumsvík og Hvalfirði er blandað með lofti þannig að það er mikið þynnt og kolefnisinnihald þess fer að svo til öllu leyti út í and- rúmsloftið sem 600.000 tonn af koltvíoxíði á ári. Væri þessum ofn- um og kerum lokað, sem tæknilega verður ekki séð að sé óyfirstígan- legt, mætti fræðilega nota þetta af- gas ásamt afgasinu frá væntanleg- um nýjum ofni Járnblendiverk- smiðjunnai- og viðbótarvetni til að framleiða 525.000 tonn af metanóli á ári. Þessi 525.000 tonn af metanóli, ef það yrði notað til að knýja efn- arafala í bflum og fiskiskipum, gæti komið í stað 590.00 tonna af bensíni og olíu en það er meirihlutinn af núverandi árlegum bensín- og olíu- innflutningi Islendinga. Þetta mundi leiða til þess að út- streymi á Islandi af gróðurhúsaloft- tegundinni koltvíoxíð mundi lækka niður í 30% af því sem nú er. Jafn- framt væri stóriðjan orðin um- hverfisvæn. Vetnisvæðing Islendinga En hvernig mætti þá standa að því að hefja í áfongum notkun inn- lendrar orku í stað innflutts elds- neytis? Að áliti greinarhöfundar gæti þetta hugsanlega gerst á eftir- farandi veg. Artöl, sem gefin eru fyrir hvern áfanga, ber að skoða sem lauslegar hugmyndir greinar- höfundar um það hversu hratt vetnisvæðing Islendinga gæti gengið fyrir sig. 1. (2002-2004) Tilraunakeyrsla 1- 3 strætisvagna í Reykjavík sem knúnir væra efnarafólum. Vetni fyrir efnarafalana kæmi frá Aburð- arverksmiðjunni í Gufunesi. 2. (Frá 2004) Endurnýjun núver- andi strætisvagnaflota þannig að í stað dísflstrætisvagna komi efn- arafalaknúnir strætisvagnar. 3. (Frá 2000) Athugun á mögu- legri framleiðslu metanóls úr vetni og kolefni í afgasi frá stóriðju eða öðrum innlendum kolefnisgjöfum. 4. (Frá 2004) Hefja notkun efn- arafalaknúinna einkabfla. Vetnið yrði geymt um borð bundið í met- anóli. 5. (2004-2006) Forathugun á því að knýja skip efnarafölum. Vetnið yrði geymt um borð bundið í met- anóli. 6. (2006-2015) Tilraunakeyrsla efnarafalaknúins skips. 7. (2015-2040) Endurnýjun fiski- skipaflotans í áföngum þannig að í stað núverandi skipa komi efn- arafalaknúin skip. Hér er að sjálfsögðu einungis um að ræða vangaveltur greinarhöf- undar um það hvernig mætti standa að því að gera Island óháð innflutningi eldsneytis. Jafnframt gæti þá orkunotkun bfla og fiski- skipa minnkað niður í allt að helm- ing og útstreymi gróðurhúsaloft- tegunda minnkað niður í allt að þriðjung þess sem nú er. Þessar vangaveltur eru þó ekki alveg út í loftið. þær eru byggðar á fræðilegri þekkingu og tækniþekkingu sem nú er til staðar. Hvað sem öllu líður þá gæti verið hér á ferðinni slíkt stórmál að fyllsta ástæða ætti að vera til þess að það sé athugað rækilega. Höfundur er prófessor í efnafræði við raunvísindadeild Háskóla Js- lands. IOL4TRE - ^v TIIE ORIGIXAL/USA ^ TÍU ÁRA ÁBVRGÐ, ÆVIEIGN ★ VERD AÐEINS FRÁ 2900,- ★ MARGAR STÆRDIR ★ /ÓLASERÍA & FÓTUR FVLGIR * UTSÖLUSTADIR ALASKA | Alaska v/BSÍ, Borgartúni 22 a Ármúla 34 s: 562 2040 | ISÐH 520! Frábært tæki Innbyggt módem V.24 Innbyggt ferjald Tengi fyrir höfuðtól Handfrjáls ■^C ocoorv þráðlaus sími með skjá 10 númera minni Góð drægni Góð rafhlaða ýVZ AlfaU Borðsími með skjá Handfrjáls Tímamælir samtöl I— •** Ðesþmasfer 120 Borðsími með skjá Handfrjáls Tímamælir samtöl 3.490 ■m Aloka, Öðruvísi sími 10 minni Litur: Silfur og svart 5 htei Siöumúia 37 -108 Reykjavík S. 588-2800 - Fax 588-2801 F0LK! ishÆ SKIÐA- 0G m JIIMl i i ~ israsp^SgjoLA ^ AFSLATTUR SKIÐAPAKKAR BARNA- SKIÐAGLER- AUGU frá 860 frá 14.688 frá 16.720 frá 23.851 frá 28.347 BARNA- SKI0AGALLI Buxur og úlp frá 8.900 jóla Gjafeilkoirf - ntMryrirkeit uhv ávíkhíha BARNAPAKKI KRAKKAPAKKI UNGLINGAPAKKI FULLORÐINSPAKKI GÖNGUSKÍÐAPAKKI frá 15.585 Tökum notuð heilleg skfði uppí ný Opið öll kvöld til jðla r töppurinn/ i útfa/íát BARNA- . SKIÐASK0R frá 6.900 ...% STYRISLEÐI frá 7.400 Skeifan 6 * Reykjavík * Sími 533 4450

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.