Morgunblaðið - 20.12.1998, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
SUNNUDAGUR 20. DESEMBER 1998 45F
ÞORGERÐUR
JÓNSDÓTTIR
sem hún skrifaði rétt áður en hún
dó:
Eg vildi svo gjaman verjast,
J)ó verður mér á að kvarta.
0, Guð minn, þaggaðu grátinn,
þú gafst mér svo viðkvæmt hjarta.
Elsku afí, Guð gefí þér styrk á
þessum erfíðu tímum. Þú veist að
við munum ávallt vera hjá þér.
Þóra Stefánsdóttir, Lovísa
Stefánsdóttir, Ragnhildur
Sophusdóttir og Jón Haukur
Baldvinsson.
Við andlát elskulegrar ömmu
minnar langar mig að minnast
hennar með örfáum orðum.
Amma Didda, eins og við bama-
börnin kölluðum hana alltaf, var
einstaklega hlý og góðhjörtuð
manneskja sem gott var að vera
nálægt. Aldrei munu samvem-
stundimar með ömmu úr bústaðn-
um á Laugarvatni líða mér úr
minni, en þar naut amma sín hvað
best. Það var sama hvort maður
var í sveitinni eða heima hjá ömmu
og afa í Garðabænum, alltaf vai-
allt svo snyrtilegt og fallegt og
kökur bornar fram af minnsta til-
efni.
Ég mun sakna elskulegrar
ömmu minnar, en mestur verður
söknuður afa. Ég veit að góður Guð
hefur tekið ömmu opnum örnium
og nú líður henni vel, laus við allar
þjáningar. Megi minningin um
elsku ömmu Diddu lengi lifa.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Elsku afi, Guð styrki þig.
Þóra Margrét Baldvinsdóttir.
Hún Þóra mágkona mín er látin
og það kom ekki á óvart. Hún var
búin að stríða við illvígan hjarta-
sjúkdóm í áratugi sem að lokum
dró hana til dauða. En allan þenn-
an tíma heyrði ég aldrei frá henni
æðruorð. Þrátt fyrir heilsuleysi og
sjúkrahúslegur sinnti hún heimili
sínu og börnum af mikilli prýði. Og
þar að auki starfaði hún að félags-
málum af miklum dugnaði þegar
þau hjónin bjuggu í Hafnarfirði og
reyndar líka eftir það. Hún var
heiðarleg og hreinskilin og sagði
skoðun sína við hvern sem í hlut
átti.
Þau Þóra og Björn Helgi voru
góð heim að sækja og höfðu
ánægju af að fá til sín gesti og var
þá oft glatt á hjalla á góðri stund.
Eftir að heilsa hennar versnaði
er á leið sýndi sig vel hvað hún átti
góðan mann, því hann tók ekki
aðeins að sér heimilisstörfm heldur
hjúkraði henni eftir bestu getu.
Ég þakka nú er leiðir skiljast
vegferðina sem við áttum saman og
bið henni blessunar guðs á nýrri
vegferð og trúi því að nú sé hún
laus við þjáningar.
Ég og Ragnheiður og hennar
fjölskylda sendum Bimi, börnum
þeirra, tengdabömum og afkom-
endum þeirra öllum okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Yilborg Jónsdóttir.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu
vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett.
Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er
móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru
nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect eru einnig auðveld í
úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í
bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess
(minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið
greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum.
Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina
fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal-
línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200
slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
+ Þorgerður Jónsdóttir fædd-
ist í Eyjafírði 22. október
1922. Hún lést á Hjúkrunar-
heimilinu Seli á Akureyri 4.
desember síðastiiðinn og fór út-
för hennar fram frá Akureyrar-
kirkju 16. desember.
Okkur barnabörnin langar að
kveðja ömmu okkar, Þorgerði Jóns-
dóttur, með nokkrum orðum. Það
fyrsta sem öllum datt í hug voru
vöfflurnar og pönnukökurnar henn-
ar ásamt rjómanum. Þessar krásir
hristi amma jafnan fram úr erminni
ef litið var inn til hennar og afa,
fyrst í Gránufélagsgötunni og síðar í
Skarðshlíðinni. Það var alltaf visst
ævintýri að koma í „Gránusélags-
götuna“ og fá að fara í allt dótið uppi
á hálofti. Fara út á Iðavelli og tína
blóm og færa ömmu sem tók bros-
andi við þeim (fjórum jafnvel fimm
faðmlögum) hún valdi eitt af hverri
tegund og setti í glös út í glugga.
Alltaf fékk hver sitt glas, sama hve
margir fóru út að tína. Það má segja
að margt hafí breyst þegar amma og
afí fluttu í Skarðshlíðina. Þó svo að
umhverfið breyttist var andrúms-
loftið alltaf það sama. Umhyggjan
og ástin allt í kring. Síðustu árin
voru ömmu, afa og okkur öllum erfíð
sökum veikinda hennar. Veikinda
sem ollu því að yngri barnabörnin
kynntust ekki þeirri hlið á ömmu
sem við hin eldri þekktum. Minning
um góða konu lifír í hjörtum okkar.
Þó sérhver snjóhvít baldursbrá,
er blikar nú í lands þíns reit,
og fífill hver og f|óla smá
að íjarðarbláma úr efstu sveit
þig gréti, eins og áður Baldur,
því ekkert sinnti dauðinn kaldur.
Því dauðans Þökk ei viknar við,
þó vinir hylji grátna brá;
hún á hinn djúpa undrafrið,
sem engin stuna rjúfa má.
Því skal hver við sín örlög una,
en ástvin horfinn þakka og muna.
(Hulda.)
Elsku amma, við viljum þakka þér
fyrir allt og allt.
Fyrir hönd barnabarna,
Hulda og Harpa.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför föður míns, tengda-
föður, afa og langafa,
GRÍMS PÁLSSONAR,
Hrafnistu,
Reykjavfk.
Valtýr Grímsson,
Helga Valtýsdóttir,
Hugrún Valtýsdóttir,
Guðmunda Jóhannesdóttir,
Grímur Helgi Pálsson,
Auður Þórhallsdóttir,
Sigurður S. Antonsson,
Guðni Guðnason,
Kristjana Sigurðardóttir
og barnabarnabörn.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför eiginmanns míns, föður,
tengdaföður og afa,
ÞÓRÐAR EGILSSONAR,
Höfðagrund 24,
Akranesi.
Jóna Valdimarsdóttir,
Guðni Þórðarson, Sjöfn Guðmundsdóttir,
Gylfi Þórðarson, Marta Kristín Ásgeirsdóttir
og barnabörn.
+
Þökkum alla þá samúð og hlýju sem okkur
hefur verið sýnd vegna andláts
INGIBJARGAR RAGNARSDÓTTUR,
Skjólbraut 10,
Kópavogi.
Ragna Páisdóttir, Þórmundur Sigurjónsson,
Páll Einarsson,
Ragnar Ragnarsson,
Guðrún Ragnarsdóttir, Árni Björn Jónasson,
+
Hugheilar þakkir sendum öllum þeim sem sýnt
hafa okkur samúð, stuðning og hlýhug við
andlát og útför ástkaers eiginmanns míns,
föður og afa,
VIGFÚSAR SIGURÐSSONAR,
Sogavegi 34,
Reykjavík,
Guð blessi ykkur öll.
Ragna Þ. Stefánsdóttir,
Hanna Rúna Vigfúsdóttir,
Ragna Skinner.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
SIGURÐUR B. ÓLAFSSON,
Njarðargötu 3,
Keflavík,
sem lést 15. desemþer, verður jarðsunginn frá
Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 22. desemþer
kl. 13.30.
Jónína Einarsdóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
RETTARHÁLS 4, REYKJAVÍK
Sala — Leiga
• Mikil lofthæð, 5 m á neðri hæð og 9 m á efri hæð,
möguleiki á millilofti á efri hæð.
• Óvenju stór lóð um 12.200 m2 og gott athafnasvæði.
• Háar innkeyrsludyr.
• Frábær og stöðugt vaxandi staðsetning.
• Auðvelt er að skipta húsnæðinu í einingar.
• Grunnflötur hvorrar hæðar er um 2.700 m2.
• Afhending íjúní/júlí 1999.
Byggingaraðili Eykt ehf.,
Borgartúni 21, Reykjavík.
Einkasöluaðili
Sími 533 4040 Fax 588 8366
oreigr^hfr
Armúla 21
DAN V.S. WIIUM, hdl. lögg. fasteignasali.
Skipholt 50A
Til sölu í þessu glæsilega húsi um 1.600 fm. Um er að ræða skrif-
stofu- og íbúðarhúsnæði, auk þess stór salur og bílskúrar. Húsnæði
á einum besta stað í borginni og í góðu ástandi. Gefur marga
nýtingarmöguleika. Góð bílastæði.
Nánari upplýsingar gefur Magnús Leópoldsson á skrifstofu FM.
C