Morgunblaðið - 20.12.1998, Side 50

Morgunblaðið - 20.12.1998, Side 50
; 50 SUNNUDAGUR 20. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ Ég þakka öllum þeim, sem glöddu mig á áttrœðisafinœli mínu þann 28. nóvember sl. Ég óska ykkur gleðilegra jóla og guðs blessunar á komandi ári. Leifur Pálsson, Hnífsdal. Vitundarvígsla manns og sólar Dulfræði fyrir þá sem leita. Fæst í versl. BETRA LÍF í Kringlunni 4-6 Námskeið og leshringar. Opnar umræður á hóppóstlista-rafþósti VmJÁhugamenn um Þróunarheimspeki Pósthólf 4124, 124 Reykjavík, fax 587 9777, sími 557 9763 í DAG VELVAKAJMDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Svar til Moshe ÞANN 12. des. sl. barst bréf til Velvakanda frá Moshe Okon í Jerúsalem, þar sem hann lýsir hópi kappsfullra Islendinga í skrúðgöngu í miðborg Jerúsalem í þeim tilgangi að sýna stuðning við Isra- elsríki á fimmtugasta af- mæli þess. Einnig veltir hann fyrh' sér ýmsum spurningum sem mér er ljúft að svara og um leið fæ ég tækifæri til að leiðrétta það sem rangt er farið með í bréfi hans. Pessi fyrrnefnda ganga er árlegur viðburður í Jerúsalem og tengist Laufskálahátíðinni, sem er ein af þremur aðalhátíðum Biblíunnar. íslenskir ísra- elsvinir ásamt þúsundum þátttakenda írá meira en eitt hundrað löndum hafa tekið þátt í þessari gleði- hátíð sl. 18 ár. Þessi ganga var ekki tengd 50 ára af- mæli Israelsríkis. Spurt var hvort „þetta fólk“ styðji ísraelsk lög, sbr. lög varðandi hjóna- bönd, eignanám landsvæða, áframhaldandi hersetu Israela í S-Lí- banon o.fl. Svar í fáum orð- um: Við virðum lög Israels, sem og allra annaiTa landa. við sjáum heldur ekki að það sé í okkar valdi að breyta þeim. Sem ein- staklingur getum við þrátt fyrir það haft óh'k sjónar- mið á einstökum greinum í lögum landsins. Varðandi hersetu ísra- ela í S-Líbanon viljum við gjarnan að þeir þyrftu ekki að vera þar til að vernda saklausa íbúa, kon- ur og börn í N-ísrael íyrir hryðjuverkasamtökum Hisbollah-hreyfingarinnar sem ei-u alfai'ið á móti frið- ai-samkomulagi við Israel. Islenskir Israelsvinir fagna fimmtíu ára tilveru þessa lýðræðisríkis, (sem er hið eina í Mið-Austur- löndum) og fagna barátt- uþreki og dugnaði þessar- ar ofsóttu þjóðar sem hef- ur þurft að berjast fyrir sjálfstæði sínu og unnið sigi-a þrátt íyrir hatramm- ar árásir nágrannaþjóða og hryðjuverkasamtaka í landinu frá stofnun þess. Við óskum gyðingum og aröbum blessunar á kom- andi hátíð ljóss og friðar. Með Shalom kveðju, Ólafur Jóhannsson, form. félagsins Zíon, vinir Israels. Borgarbókasafnið Á HVERJU ái'i tekur þjóðin við sér þegar bóka- bylgjan skellur yfir á haustinu. Fjölmiðlar ræða um bækur og höfunda, talað er við þá og bækurn- ar gagnrýndar. Fólkið dregst með og forvitnin eykst með hverri viku, síðan kemur að því að fólkið vill fara að lesa þess- ar bækur, sumir bíða til jóla en flestir eru óþohn- móðari og vilja lesa þær sem íyrst. Þá er úr vöndu að ráða, bækur eru dýrar og hvað er þá hægt að gera? Jú, bókasöfn! í öllu þessu bókafári sem margir telja ánægju- legasta tíma ársins er þó ein stofnun sem ekki lætur raska ró sinni. Frá október til desember ríkii- innan þeirrai' stofnunar, Borgar- bókasafninu, vh'ðulegur friðiu' og þeir fáu sem vilja leita skjóls fyi-ir bókaæðinu finna þar griðastað. Par getur fólk dundað sér við að fletta bókum fyrri ára í ró og næði. Um daginn í einhverju bjartsýnisæði ráfaði ég inn á safnið og bað um bók sem búin var að vera í um- ræðunni um væntanleg bókmenntaverðlaun á næsta ári. En því miður, viku fyrir jól, var hún ekki komin á safnið! Þá ætlaði ég að panta hana, en það var ekki held- ur hægt, pantanir giltu bara fyrir þær bækur sem komnar voru fram í af- greiðslu! Annað dæmi um fum- leysi títtnefndar stofnunar er tryggð hennar við gömlu gildin, besta dæmið er andúð hennar á nútíma þægindum svo sem bifreið- um. Að hennar mati er hverjum manni hoht að nota sínar fætur og menga ekki með bhkkbeljunni og þvi er það mátulegt á leti- haugana að þurfa að eyða nokkrum tíma til að finna stæði fyrir dnisluna! Auk þess verða blessuð skóla- börnin að fá stæði fyrir sína bíla í hverfinu! Mörg önnur dæmi mætti telja upp, svo sem stað- festu safnsins hvað varðar að ýta ekki undir þessa spjátrunga sem veifa greiðslukortum í tíma og ótíma þegar greiða skal fyrir þjónustu á safninu, þeim væri nær að greiða fyrir þjónustuna með pen- ingum eða ávísun eins og gert hefur verið árum saman. Staðfesta safnsins er brjóstvörn gegn öllu þessu fári, bóka-, pöntunarþjón- ustu-, bíla- og kortarugli! Loks kom að því að Þjóðminjasafnið öðlaðist verðugan keppinaut! Lesandi. Svar við fyrirspurn HAFT var samband við Velvakanda frá Hjálpar- stofnun kirkjunnar vegna fyrhspurnar um aðstoð í Keflavík sem birtist í Vel- vakanda sl. föstudag. Vill Hjálparstofnun kirkjunnar benda á að stofnunin tekur við umsóknum af öllu land- inu og er fólki bent á að hafa samband við sóknar- prest sinn og sækja um að- stoð. Tapað/fundið Svart lífsstykki týndist SVART hfsstykki týndist fyrir utan Videoheima, Fákafeni, aðfaranótt laug- ardagsins 12. desember. Finnandi hafi samband i síma 567 5283. Fundar- laun. PEUGEOT Qón 4 vesimtifl Þaö er alltaf mikið fjör og hamingia í kringum Ijón og bogmann. Samskipti þeirra eru mjög óþvinguð og öll á spérænu nótunum. Það er erfitt aö smitast ekki af brosi bogmannsins þegar hann er meö Ijóninu. Magnað samband sem hittir beint í mark. JÚFUR NfBÝLAVEGI SÍMI 554 2600 SKAK l insjoii Margeir Pétursson Staðan kom upp á Guðmundar Ara- sonar-mótinu sem nú stendur yftr í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafn- arfirði. Bragi Þorfinnsson (2.235) hafði hvítt og átti leik gegn Sigurði Páli Steindórssyni. 21. Hxb7! - Df6 (Auðvitað ekki 21. - Hxb7? 22. Df8+ og mátar) 22. Hxb8 - Rxb8 23. Del - Dg6 24. Rf4 - Rxf4 25. Hxf4 - h5 26. Df2 - Rd7 27. e5 - Db6 28. h3 og svartur gafst upp. Sjöunda umferðin fer fram í dag og hefst taflið kl. 17. JÓLAPAKKAMÓT fyrir 15 ára og yngri fer fram í dag hjá Helli í Þöngla- bakka 1 í Mjódd (hjá Bridgesamband- inu) og hefst kl. 14. HVITUR leikur og vinnur Víkverji skrifar... EKKI Á morgun heldur hinn, þriðjudaginn næsta, eru vetrar- sólstöður. Þá er stytztur dagur á hringferð ársins. En birtan sækir í sig veðrið; hrekur smám saman myrkrið út úr sólarhringnum. Tak- markið er náttlaus voraldarveröld; gróðurríki í blóma á Jónsmessu að vori. Dagurinn eftir vetrarsólhvörf, næsti miðvikudagur, er sjálf Þor- láksmessan, séríslenzkur hátíðis- dagur. Þá sezt fólk sem komið er til vits og ára að skötuveizlu. Kæsta skatan var framan af vestfirzkur siður en er nú þjóðarsiður. Víkverji hlakkar til þess að snæða léttkæsta skötu á Þorláksmessunni. Það er vel við hæfi, að mati Vík- verja, að halda fast í þjóðlegar mat- arhefðir: skötu á degi Þorláks helga, hangiket á jólum, hákarl, harðfisk, svið og fleira þjóðlegt góðmeti á þorra. Það verður að hafa það þó ein- hverjar pempíur fitji upp á trýnið þegar hákarlinn og skatan koma á matborð þjóðarinnar. Þjóðlegar matarhefðir eru hluti af menning- ararfleifð okkar. XXX BLESSUÐ jólaljósin prýða sér- hvert byggt ból um þessar mundir og lýsa upp skammdegið. Landinn finnur sér og sitthvað til upplyftingar í drunga myrkurs og kulda. Jólaglögg, jólahlaðborð, skata á Þorláksmessu, þorrablót, árshátíðir o.s.frv. eru að hluta til varnarviðbrögð gegn skammdeg- inu, myrkrinu og kuldanum. Það verður á stundum heitt í kol- um íslenzkra dægurmála, eins og alkunna er. En aldrei verður heit- ara í surtarbrandinum en í skamm- deginu, þegar kuldinn í umhverfinu er hvað mestur. Þá eru flestir dæg- urmálaraftar á sjó dregnir og þráttað með tilþrifum. Alþingi, sjálfur löggjafinn, fer oftar en ekki í fylkingarbrjósti þessarar skamm- degisáráttu. Að þessu sinni hétu hólmgönguefnin, hitagjafarnir, gagnagrunnur og kvóti. Mergurinn málsins er þó ekki sá hverjir ásteytingarsteinarnir eru, heldur þrasið sjálft, sem hverfur síðan með myrkrinu undir vorið. xxx STARFSHÆTTIR Alþingis síð- ustu vikur fyrir jólahlé og þing- lok að vori hafa löngum þótt í frásögur færandi. Fundir standa lungann úr sólarhringum og þing- menn, sumir hverjir, tala þindar- laust, jafnvel klukkustundum sam- an, þótt þeir hafi löngu sagt allt það sem máli skiptir að koma á fram- færi. Fólk spyr: Gilda ekki sömu lög og reglur um starfstíma og hvíld þingmanna og annarra vinn- andi manna? Getur það verið að löggjafinn sé að brjóta almennar vinnutímareglur? Eru vökur og vinnulag af þessu tagi til þess fallin að skerpa dómgreind þingmanna og auðvelda ákvarðanatöku í flókn- um og vandasömum málum? Máski ættu þingmenn að huga að því sem stundum er sagt: Þankinn nær lengst í þögn. Hugarró og sál- arfriður mynda kjörland farsællar ákvarðanatöku. xxx SKRIFANDI um gagnagrunn langar Víkverja til að staldra við grein Hjálmars Jónssonar, prests og þingmanns, í DV á dög- unum. Hann er að svara einstak- lingi, sem fór mikinn gegn grunnin- um. Hjálmar segir: „Brjóti rekstrarleyfishafinn af sér þá verður hann sviptur leyfínu. Verði reynt að misnota gagna- grunninn þá verða sett lög sem taka fyrir slíkt. Evrópa er á fullri ferð í umræðu um persónuvernd sem og önnur mannréttindi. Við tökum þátt í því og líklegt má telja að ákvæði verði leidd í lög sem tryggja verndina enn þá betur en er í dag. Og fyrst þú skrifar mér um krist- indóminn þá bendi ég þér á það að jólaguðspjallið byrjar á frásögn um söfnun persónuupplýsinga í gagna- grunn. Það var verið að skrásetja alla heimsbyggðina.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.