Morgunblaðið - 20.12.1998, Síða 64
MORGUNBLADIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRl: KAUPVANGSSTRÆTI1
SUNNUDAGUR 20. DESEMBER 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
, 'w;3
Morgunblaðið/RAX
Gosið að minnka
en mikil bráðnun
Hólmar Gunnarsson komst ásamt felag-a sínum
frá borði brennandi báts undan Þorlákshöfn
Þetta var ótta-
lega óhugnanlegt
„PETTA var óttalega óhugnanlegt,"
sagði Hólmar Gunnarsson, annar
tveggja skipverja á eikarbátnum
Skálafelli AR, sem brann um það bil
mflu utan við höfnina í Þorlákshöfn í
gærmorgun. Hólmar og Hannes
Sigurðsson, skipstjóri, komust heilir
húfi um borð í Sigmund HF 369,
sem var skammt undan.
Bátnum var haldið frá Þorláks-
höfn til Reykjavíkiu-, þar sem hann
átti að fara í slipp en „þegar við vor-
um komnir rétt suður fyrir vitann
blossaði upp eldur,“ sagði Hólmar í
samtali við Morgunblaðið. Þá var
klukkan um átta. „Við vorum uppi í
stýrishúsi og sáum glampa að neð-
an. Við dældum á eldinn úr slökkvi-
tækjunum og héldum að við værum
búnir að slökkva en svo blossaði
hann upp af krafti.“
Brælan rosaleg og
8* kolsvartamyrkur
Gengið er úr stýrishúsinu ofan í
lúkarinn þar sem eldurinn kom upp í
eldavél og Hólmar sagði að brælan
og stækjan hefði verið slík að ekki
hefði verið verandi inni í stýrishús-
inu. „Við rejmdum að slökkva með
ví að dæla á eldinn en það var dautt
öllu og ekkert hægt að gera, svo
við forðuðum okkur,“ sagði Hólmar.
Tæki, stýrishás og
vistarverur báts-
ins ónýtar að sjá
Þeir náðu að hafa samband við Vest-
mannaeyjaradíó og sáu bát skammt
undan, sem reyndist vera Sigmund-
ur HF 369, sigldu að honum, lögðu
upp að og komust um borð.
„Maður hafði eiginlega ekki tíma
til að vera skelkaður," sagði Hólm-
ar, spurður hvort hann hefði ekki
orðið hræddur. „Þó fær maður inni-
lokunarkennd; brælan var svo rosa-
leg og úti var kolsvartamyrkur. Það
var erfitt við þetta að eiga. En við
vorum heppnir að það var bátur rétt
hjá og veðrið var gott. Það var lán í
óláni,“ sagði hann. Hólmar kvaðst
ekki telja að þeir félagar hefðu verið
í bráðri lífshættu, gúmmíbátur hefði
verið frammí og alltaf tök á að kom-
ast í hann.
Eftir að þeir félagar komust frá
borði tók Sigmundur HF Skálafell í
tog og reyndi að draga það áleiðis
inn til Þorlákshafnar. Jóhanna AR
kom að skömmu síðar og tók við,
enda stærri og öflugri bátur. Sjó var
dælt á eldinn úr Jóhönnu en Sig-
mundur hélt inn til hafnar með
Hólmar og Hannes. Þeir fóru þar
um borð í lóðsbátinn ásamt slökkvi-
liðsmönnum úr Þorlákshöfn og
héldu til móts við Jóhönnu. Eldurinn
var slökktur skammt utan við hafn-
armynnið.
Hólmar sagði að báturinn virtist
sér ónýtur; hann væri illa farinn og
tæki, stýrishús og vistarverur ónýt-
ar að sjá. „En ég veit ekki hvort vél-
arrúmið hefur sloppið," sagði hann.
Lítið hægt að hlaupa í burtu
Viðar Zóphoníasson á Jóhönnu
ÁR sagði, í samtali við Morgunblað-
ið, að þeir hefðu reynt að sprauta á
eldinn á landleið en það hefði logað
út um alla glugga. Kári Hafsteins-
son, sem ásamt Hafsteini Sigmunds-
syni var um borð í Sigmundi HF,
sagði í samtali við Morgunblaðið að
þeir hefðu verið nýbúnir að leggja
línu þegar Skálafellinu var siglt að
þeim. „Þeir voru að sigla fram hjá
okkur þegar eldurinn kom upp. Við
tókum mennina yfir og bátinn í tog
og byrjuðum að draga hann áleiðis í
land.“ Kári sagði að allt framanvert
Skálafellið hefði staðið í ljósum log-
um. Skipverjamir, kunningjar sínir,
hefðu verið heilir á húfi en skelkaðir.
„Það er lítið hægt að hlaupa í burtu
frá svona eldi,“ sagði Kári.
MAGNtíS Tumi Guðmundsson
jarðeðlisfræðingur segir að held-
ur hafi dregið úr eldgosinu í
Gríinsvötnum. Bráðnun sé hins
vegar veruleg og aska frá gosinu
hafí dreifst víða um jökulinn. Eld-
tungur sáust í skamma stund vest-
an til í sprungunni uin kl. 11, þeg-
ar Morgunblaðsmenn flugu yfir
svæðið.
Magnús Tumi flaug yfir gos-
stöðvarnar fyrir hádegi í gær.
Hann sagði að gosið væri minna
en það var á föstudag þegar það
hófst. Þá náði gosmökkurinn um
10 km hæð, en í gær náði hann
um 8 km hæð.
„Það er ljóst að sýnilegt gos er
heldur minna. Það hafa hins veg-
ar orðið talsverðar breytingar
þarna. Það hefur átt sér stað tölu-
verð bráðnun og það gæti verið
að gosefnin hafi skriðið eitthvað
inn í vötnin. Um það er ekki gott
að segja. Það er að bráðna tals-
vert stærra svæði norður frá gíg-
ununi út í íshelluna.
Gosið hefur einangrað sig á
miðju gossprungunnar. Askan
hefur dreifst um jökulinn og nær
iangt niður eftir Skeiðarárjökli og
alla leið austur á Breiðamerkur-
jökul,“ sagði Magnús Tumi.
Magnús Tumi sagði Ijóst að
jarðhiti í Grímsvötnum hefði verið
að aukast. Austan við vötnin hefðu
myndast nýjar spmngur, sem
gætu skýrst af auknum jarðhita.
„Ef jarðhitinn heldur áfram að
aukast gæti það opnað leið fyrir
vatn út úr Grímsvötnum og þar
ineð aukið iíkur á að einhvers
konar hlaup hefjist. En um þetta
er ekki hægt að segja mikið. Við
þurfum að skoða það betur.“
Meiri gosórói mældist á jarð-
skjálftaniadum Veðurstofunnar í
gær en í fyrradag. Óróinn var
mikiil við upphaf gossins fyrir há-
degi á föstudag. Síðan dró heidur
úr honum, en hann fór vaxandi
þegar leið á nóttina og var meiri
fyrir hádegi í gær en á sama tíma
á föstudag. Jarðskjálftamælarnir
eru tveir, við Kálfafell og
Skrokköldu, og sýndu þeir báðir
þessa sömu þróun. Hægt er að
fylgjast með þeim á heimasíðu
Veðurstofunnar.
■ Eldgosið/2,4