Morgunblaðið - 05.03.1999, Page 4

Morgunblaðið - 05.03.1999, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 5. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Áhugahópur um auðlindir í almannaþágu með nýjar tillögur í sjávarútvegsmálum Almenningnr, ríkið og sveitarfélög eignist kvóta Morgunblaðið/Árni Sæberg FRÁ fundinum í gær þar sem áhugahópur um auðlindir í almannaþágu kynnti tillögur sínar. Guðmundur G. Þórarinsson er í ræðustól. ÁHUGAHÓPUR um auðlindir í al- mannaþágu leggur til að almenn- ingi, ríki og sveitarfélögum verði afhentar veiðiheimildir sem geti síðan ráðstafað þeim á frjálsum markaði. Lagt er til að hluta af tekjum af sölu veiðiheimilda verði, a.m.k. tímabundið, varið til að rétta hag íbúa í þeim byggðarlögum sem atvinna hefur minnkað vegna sam- dráttar í fískveiðum. í hópnum eru menn úr ýmsum stjórnmálaflokkum. Talsmenn hópsins á blaðamannafundi í gær voru Guðmundur G. Þórarinsson verkfræðingur, Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ, Hálfdán Kristjánsson bæjarstjóri og Þorsteinn Vil- hjálmsson prófessor. Guðmundur sagði að tillögur hópsins hefðu það að markmiði, að allir Islendingar nytu arðsins af fískistofnunum og öðrum auðlind; um sem þeir ættu jafnan rétt til. I öðru lagi vildi hópurinn kynna til- lögurnar fyrir almenningi og hvetja hann til þátttöku í umræð- um um þessi mál. I þriðja lagi vildi hópurinn knýja stjórnmálaflokk- ana til að breyta stefnu sinni í sjáv- arútvegsmálum. Guðmundur gagnrýndi harðlega núverandi fískveiðistefnu sem hann sagði að hefði leitt af sér milljarða eignatilfærslu á fáum ár- um. Enn meiri eignatilfærsla væri framundan þegar núverandi eig- endur kvótans yrðu keyptir út úr greininni. Hann sagði að úthlutun kvóta á sínum tíma hefði byggst á veikum veiðiréttarlegum gnmni. Heildarverðmæti kvótans væn á milli 300 og 400 milljarðar. Árið 1997 hefðu eigendur þessa kvóta verið 706 og þar af hefðu 22 aðilar átt 50% kvótans. Guðmundur sagði að kvótakerfið hefði farið illa með sjávarútvegsbyggðir þar sem kvót- inn hefði verið seldur og eftir stæði fólk án atvinnu. Aðganginum stýrt með markaðsaðferðum Markús Möller hagfræðingur sagði að tillögur hópsins byggðust á því að aðgangur að fískveiðum við Island yrði stýrt með markaðsað- ferðum. Veiðiheimildimar yrðu af- hentar almenningi, ríki og sveitarfé- lögum sem gætu ráðstafað þeim á fijálsum markaði til þeirra sem nýta þær. Jafnframt gerðu tillög- umar ráð fyrir að ríkisvaldið verði hluta veiðiheimildanna til að rétta hag íbúa í þeim byggðarlögum þar sem atvinna hefur minnkað vegna samdráttar í fiskveiðum. Markús sagði að tillögumar miðuðust að því að breytt yrði úr núverandi kerfí í nýtt kerfi á 10-15 áram þannig að sjávarátvegsfyrirtækin fengju tíma til að aðlagast nýju kerfl. Markús sagði að tilgangur tU- lagnanna væri að því að draga úr brottkasti afla, sem væri einn stærsti galli núverandi kerfis. Árangum'kasta leiðin til þess væri að lækka verð á veiðiheimildum. Hann sagðist telja allar líkur á að verðið myndi lækka þegar allur kvóti væri kominn á markað. Nú- verandi kvótaverð væri óeðlilega hátt. Markús sagði að í tillögunum væri gengið út frá því að kvóti yrði seldur á markaði til nokkurra ára. Jafnframt yi-ði kvóti ekki bundinn við skip. ■ Stefna/12 Asta þigg- ur níunda sætið ÁSTA Möller, formaður Fé- lags íslenskra hjúkrunarfræð- inga, hefur ákveðið að þiggja níunda sætið á lista Sjálfstæð- isflokksins í Reykjavík við al- þingiskosningar í vor. „Þetta leggst ágætlega í mig. Eg bjóst ekki við því að mér yrði boðið þetta sæti. Eg hafði uppi önnur áform og er reyndar að hætta sem formað- ur hjá hjúkranarfræðingum I vor og hafði ráðstafað mér annað næsta vetur. Eg þurfti því að endurskoða þau mál. Þetta var því dálítið eifið ákvörðun," sagði Ásta. „Mér finnst það hafa verið rétt ákvörðun að taka inn konu. Það skapar aukið jafn- vægi og aukna vídd á listan- um. Eg held að listinn sé mjög frambærilegur," sagði Ásta. Ari Edwald, sem sóttist eft- ir sæti á lista Sjálfstæðis- flokksins, sagði: „Sé þetta nið- urstaða nefndarinnar liggur mitt tækifæri í næsta próf- kjöri.“ Hanna Birna Kristjánsdótt- ir, sem orðuð hafði verið við sæti á lista Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjavík, kvaðst fagna niðurstöðu kjömefndar. „Eg er sátt við þessa niðurstöðu og tel hana mjög góða fyrir flokk- inn. Ásta Möller er góður full- trái og ég tel niðurstöðuna sigur fyrir konur. Nái Ásta kjöri inn á þing, og miðað við sama stuðning í næstu kosn- ingum, era allar líkur á því að hlutur kvenna í þirgliði sjálf- stæðismanna muni tvöfaldast. Það væri mikill sigur fyrir konur og Sjálfstæðisflokkinn í heild,“ sagði hún. Gæsluvarðhald Nígeríumanns Kröfu um framleng- ingu svarað í dag GÆSLUVARÐHALD Nígeríu- mannsins, sem innleysti falsaðar ávísanir fyrir á tólftu milljón króna í Islandsbanka í síðustu viku rann út í gær og tók dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur sér frest til morguns, í dag, fóstudag, til að svara kröfu rík- islögreglustjóra um hálfsmánaðar framlengingu á gæsluvarðhaldi mannsins. Annar Nígeraímaður var úr- skurðaður í gæsluvarðhald til 10. mars í gær og beinist rannsókn málsins að fleiri útlendingum sem tengjast málinu, enda hefur ríkis- lögreglustjóri rökstuddan gran um að um sé að ræða alþjóðlegan glæpavef. Hversu marga menn um ræðir er hins vegar ekki ljóst enn- þá, en alþjóðalögreglan Interpol annast meðal annars tengsl á milli lögreglusveita í þeim löndum, sem vefurinn er talinn teygja anga sína til. Morgunblaðið/Ásdís Neró vaktar Laugaveginn LEIÐIR flestra íslendinga liggja um Laugaveg fyrr eða síðar, enda ein helsta verslunar- gata í þéttbýli hérlendis. Hund- urinn Neró hafði komið sér vel fyrir og virti hús og mannlif fyrir sér af mikilli athygli þegar ljósmyndari Morgunblaðsins rakst á hann í gær. Hann vaktaði Laugaveginn friðsæll á svip og virtist ekki til þess lík- legur að fylgja fordæmi nafna síns sem grunaður var um að eiga þátt í bruna Rómar í keis- aratíð sinni árið 64 eftir Krist. Dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi Sýndi ámælisvert gá- leysi við framúrakstur RÚMLEGA fertugur maður var í gær dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og 150 þús- und króna sekt auk ökuleyfissvipt- ingar í tvö ár fyrir að hafa ekið í veg fyrir bifreið á öfugum vegar- helmingi við framúrakstur í Hval- firðinum sumarið 1997 þar sem vegsýn var skert vegna hæðar á veginum. Maðurinn tók fram úr tveim bif- reiðum í einu, þar af einni 20 metra langri vöruflutningabifreið skammt vestan Hvammsvíkur og var gefið að sök að hafa ekki gætt nægilega vel að umferð á móti með þeim afleiðingum að mjög harður árekstur varð með bifreið manns- ins og bifreið sem kom á móti. Þrír fullorðnir slösuðust alvarlega í árekstrinum, þar af móðir ákærða, sem hlaut heilaskaða og slæm beinbrot, og hjón á þrítugsaldri, sem hlutu margháttuð beinbrot og meiðsli. Taldi framúrakstur leyfílegan Ákærði leit svo á að hann mætti hefja framúrakstur þar sem veglín- an á akbrautinni væri rofin á átta metra kafla og neitaði að hafa tekið fram úr bifreiðunum á óbrotinni línu, en í niðurstöðu dómsins sagði að rofið í vegmerkingunni væri augljóslega vegna vegarslóða sem lægi til sjávar. Hins vegar yrði að skýra þann vafa, hvort vegmerk- ingin að þessu leyti væri nægilega skýr, ákærða í hag. Dómurinn komst engu að síður að þeirri niðurstöðu að ákærði hefði ekki sýnt þá aðgæslu við framúr- aksturinn sem krafist væri af bif- reiðastjóram ahnennt og að telja yrði það stórkostlegt gáleysi að treysta því að hann hefði greiðan veg framundan þegar hann tók fram úr bifreiðunum tveimur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.