Morgunblaðið - 05.03.1999, Blaðsíða 21
mm
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 5. MARZ 1999 21
VIÐSKIPTI
Marel selur í Bandaríkjunum
120 m.kr. fisk-
vinnslubúnaður
Starfsmenn fyrirtækis-
ins ein stór fjölskylda
MAREL hf. hefur gengið frá sölu á
fiskvinnslubúnaði ásamt tilheyr-
andi hugbúnaði við bandarískt fyr-
irtæki fyrir vinnslu á bolfiski og
laxi. Gert er ráð fyrir að búnaður-
inn verði afhentur í maí næstkom-
andi og nemur samningsupphæðin
um 120 milljónum króna.
Hörður Arnarson, staðgengill
Geirs A. Gunnlaugssonar forstjóra,
Deutsche
bankar í
Frakklandi
Frankfurt. Reuters.
DEUTSCHE Bank, stærsti
banki Þýzkalands, bankar á
dyr í Frakklandi, þar sem
hann ætlar að koma á fót
bankakeðju.
Hingað til hefur Deutsche
ekki tekizt að ná því marki að
eignast franska fjármálastofn-
un. Bankinn hyggst bæta úr
því með því að ráða 150
starfsmenn og opna 10 útibú.
Auk þess verður veitt síma-
og tölvuþjónusta í París.
Deutsche rekur útibú í
Belgíu, á Italíu og Spáni auk
Þýzkalands. Frakkland hefur
alltaf verið stór „eyða“ á evru-
svæðinu, sem bankinn lítur á
sem heimamarkað.
sem er í þriggja mánaða veikinda-
leyfi vegna vinnuálags, segist
ánægður með samninginn sem sé
ákveðinn áfangi í ljósi þess að fé-
lagið hefur ekki verið að selja svo
stór kerfi inn á Bandaríkjamarkað
undanfarin ár. Marel hefur sl. 10 ár
selt búnað í fiskvinnslur í Alaska
og verksmiðjuskip sem veiða í
Kyrrahafi, en ekki afhent heild-
stæða verksmiðju áður.
Ein fullkomnasta verksmiðja
í Norður-Ameríku
Samkvæmt fréttatilkynningu
mun bandaríska fyrirtækið reisa
húsnæði fyrir verksmiðjuna í
Alaska-fylki sem verður ein sú full-
komnasta fyrir bolfisk og lax í
Norður-Ameríku. Marel var valið
til að gera tillögu að vinnslufyrir-
komulagi fyrir verksmiðjuna og
síðan til að afhenda allan vél-, raf-
og hugbúnað fyrir utan frysti- og
flökunarvélar.
Fytr á þessu ári gekk Marel
USA, dótturfyrirtæki Marels vest-
anhafs, frá sex sölusamningum,
samtals að upphæð um eitt hund-
rað milljónir króna á alþjóðlegri
kjúklingasýningu í Atlanta.
Framundan er hin árlega sjávarút-
vegssýning í Boston sem fram fer
dagana 16.-18. mars, þar sem Mar-
el verður meðal þátttakenda,
ásamt níu öðrum íslenskum íyrir-
tækjum en alls taka um 750 fyrir-
tæki þátt í sýningunni sem er ein
stærsta sinnar tegundar í heimin-
um.
HARALDUR Haraldsson nýr
stjórnarformaður og eigandi Aburð-
aivcrksrniðjunnar í Gufunesi ásamt
öðrum nýjum stjórnarmönnum og
eigendum, kynnti sig og fyiTrætlanir
sínar með verksmiðjuna á fundi í
Áburðarverksmiðjunni í gær.
Að sögn Haraldar gekk fundurinn
mjög vel og var góður andi á honum
að hans sögn.
Hann sagði að á fundinum hefði
m.a. verið greint frá ráðningu
Bjarna Kristjánssonar, fyrrum fjár-
málastjóra hjá Stöð 2, í ráðgjafastarf
hjá verksmiðjunni en hann mun að
sögn Haraldar skoða alla þætti
rekstursins til að sjá hvernig hægt
er að ná sem mestum og bestum ár-
angri í rekstri hennar.
Georg Árnason formaður starfs-
mannafélags verksmiðjunnar hélt
stutta ræðu á kynningunni og bauð
nýja eigendur velkomna í „fjölskyld-
una“ en hann segir að starfsmenn
verksmiðjunnar séu eins og ein stór
fjölskylda.
„Nýir eigendur ætla jafnvel að
koma með meiri starfsemi í verk-
smiðjuna og það leggst vel í menn
þar sem fyrri eigandi gerði ekkert til
að bæta við starfsemi til að styðja við
rekstur hennar enda þröngur stakk-
ur búinn. Haraldur og hans menn
gera sér grein fyrir að það þarf að að
styðja við reksturinn en framtíðin
sker úr um framhaldið. Við tökum
einn dag íyrir í einu,“ sagði Georg.
Hann sagðist í ræðu sinni hafa tal-
að um að starfsmenn ættu samleið
með verksmiðjunni og að verksmiðj-
an væri ekkert án starfsmannanna.
„Við erum bara menn fyrirtækisins
og erum margir búnir að vinna í ár
og áratugi hér. Við fógnum því ef
það kemst drift í hlutina."
Á fundinum sagði eldri stjóm
verksmiðjunnar af sér og ný stjórn
tók við. Nýja stjórn skipa eftirfar-
andi menn. Haraldur Haraldsson er
stjórnarformaður, Jóhann J. Ólafs-
son er varafonnaður og meðstjórn-
endur eru þeir Gunnar Ólafsson,
Þorvaldur Jónsson og Ásgeir Sigur-
vinsson. •
Morgunblaðið/Árni Sæberg
HARALDUR Haraldsson og aðrir nýir stjórnarmenn og eigendur Áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi kynntu
sig og fyrirætlanir sínar fyrir starfsmönnum verksmiðjunnar í hádeginu í gær.
/ S
Georg Arnason á kynningarfundi í Aburðarverksmiðjunni í gær
g
ACO ~ Amur
ACO andlitslínan er sex hágæðavörur fyrir milda en áhrifaríka
vernd viðkvæmrar andlitshúðar. ACO Andlitslínan dekrar við
húðina og uppfyllir allar ströngustu kröfurACO um öryggi og
áreiðanleika.
ACO ~ HVERM DAG
ACO HVERN DAG ernútímaleg lína húðvemdarvara sem notaðar
eru daglega til að viðhalda heilbrigðri húð andlits, bols, handa
og fóta.
ACO ~ LÁGT VERD
Þessi húðvörulína sameinar mikil gæði og lágt verð. Stórar
pakkningar stuðla að því að magn og gæði fáist fyrir lítið.
ACO ~ MEDICM
ACO MEDICIN línan er til að leysa vandamál varðandi húðina,
hvort sem það er mjög þurr húð, svitavandamál eða viðkvæmur
hársvörður. ACO býður upp á bestu fáanlegu lausnina.
ACO ~ KARIMEKH
Mikil þekking og löng reynsla ACO er hér nýtt sérstaklega
með þarfir karlmanna í huga.
ACO ~ ACNE
Margir unglingar eiga í stríði við bólur á húð og fílapensla.
ACO býður hér upp á bestu fáanlegu lausn. Salicylsýran leysir
upp nabbana sem stífla svitaholurnar og hindrar þannig
fílapenslamyndun um leið og þeim gömlu er eytt.
ACO ~ 6ARAI
Húð smábama er sérstaklega viðkvæm og er t.d. mikið þynnri
en húð fullorðinna. Hér koma ACO vörurnar að sérlega góðum
notum og að sjálfsögðu eru engin ilmefni notuð.
9ACO
Þæreru ffamleiddar eftir ströngustu öryggiskröfiim og í þæreru
aðeins valin hráefhi sem þekkt eru afþvíað valda ekki ofhæmi.
í flestum tilvikum er hægt að velja á milli ACO húðvara með
eða án ilmefha.
h