Morgunblaðið - 05.03.1999, Síða 30

Morgunblaðið - 05.03.1999, Síða 30
30 FÖSTUDAGUR 5. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Myndlistarvor Islandsbanka í Vestmannaeyjum Morgunblaðið/Sigurgeir LISTAMAÐURINN ásamt fjölskyldu sinni og sýningarstjóranum, Benedikt Gestssyni, lengst til hægri. Til vinstri er Margrét Lísa Stein- grímsdóttir, eiginkona Helga Þorgils Friðjónssonar, sem er í miðjunni, og með þeim börn þeirra, Þorgils og Olöf Kristín. Það sem skiptir máli Helgi Þorgils sýn- ir málverk FYRSTA myndlistarsýningin í fímm sýninga röð, sem haldin verð- ur undir yflrskriftinni Myndlistar- vor íslandsbanka í Vestmannaeyj- um, verður opnuð á morgun, laugar- dag. Það er Helgi Þorgils Friðjóns- son sem ríður á vaðið og sýnir mál- verk í gamla áhaldahúsinu á horni Græðisbrautar og Vesturvegar. Sýningin verður opnuð kl. 14 á morgun og stendur fram til sunnu- dagsins 14. mars. I kjölfarið fylgja fjórar sýningar sex iistamanna, hver á fætur annarri, allt fram til 9. maí. Markmiðið með Myndlistarvori íslandsbanka í Eyjum er að sögn forsprakkans, Benedikts Gestsson- ar, blaðamanns á Fréttum í Vest- mannaeyjum, að efla skilning á samtímamyndlist og ekki síður að efla tengsl ísienskra myndlistar- manna við íbúa í dreifðum byggðum landsins. „Ef vel er á málum haldið ætti að vera hægt að gera Vest- mannaeyjar að eftirsóttum sýning- arstað," segir hann. Fannst eitthvað vanta Sjálfur er Benedikt aðkomumað- ur í Eyjum, flutti þangað fyrir um ári frá Reykjavík. „Þar hefur maður haft ýmsa möguleika tii þess að njóta sjónlista og ég hef alla tíð ver- ið mikill áhugamaður um myndlist. Svo þegar ég kom hingað til Eyja þá fannst mér einhvern veginn vanta eitthvað," segir hann. Með þetta í huga fór hann að kanna jarð- veginn og tókst að fá styrk hjá Vestmannaeyjabæ til þess að fá myndlistarmann í heimsókn sl. haust. Ekki leið á löngu fyrr en Bjarni H. Þórarinsson kom með heilt Sjónþing til Eyja og vakti það þó nokkra athygli, að sögn Bene- dikts. „í framhaldi af því fréttu ung- ir myndlistarmenn í Reykjavík af þessum sal, sem er ansi skemmti- legur. Þeir komu svo hingað á eftir Bjama, þeir Jón Óskar, Guðjón Bjarnason og Bjarni Sigurbjörns- son og héldu sýningu." Hver sýning nær yfir tvær heigar Segja má að ekki hafi verið aftur snúið og enn fór Benedikt af stað, í þetta sinn til bankastjóra íslands- banka í Vestmannaeyjum, Barkar Grímssonar. Benedikt hafði í huga að halda eina sýningu en banka- stjórinn spurði hvort ekki væri hægt að halda sýningaröð. „Þannig að veiviljann vantar ekki,“ segir Benedikt, sem hófst strax handa við að skipuleggja sýningahaldið. Auk íslandsbanka styrkja Vestmanna- eyjabær, Eyjaprent/Fréttir og Sjó- vá-Almennar í Vestmannaeyjum og HSH-flutningar Myndlistarvorið. Allar verða sýningarnar opnaðar á laugardegi og er miðað við að síð- asti sýningardagur verði á sunnu- degi rúmri viku síðar, þannig að hver sýning nái yfir tvær helgar. Að lokinni málverkasýningu Helga Þorgils verður opnuð samsýning, sem stendur frá 20. til 28. mars, en þar sýnir Sigþrúður Pálsdóttir, Sissú, skúlptúi’ og Guðlaugur Krist- inn Óttarsson andaflsverk. Dagana l.-ll. apríl sýnir svo Gabríela Frið- riksdóttir veggmyndir og 17.-25. apríl sýna þeir Kristján Steingrím- ur og Tumi Magnússon málverk. Síðasta sýningin í þessari lotu hefst 1. maí og stendur til 9. maí. Þar sýn- ir Lovísa Lóa Sigurðardóttir mál- verk, innsetningar og „perfor- mance“. TOJVLIST Háskólabfó SINFÓNÍUTÓNLEIKAR Flutt voru verk eftir Mozart og Mendelssohn. Einleikari: Edda Er- lendsdóttir. Stjórriandi: Rico Saccani. Fimmtudaginn 4. mars 1999. ÞAÐ er sérkennilegt að bæði verkin eftir Mozart á þessum tón- leikum, Parísar-sinfónían og síðasti pínanókonsertinn, eru verk þar sem meistarinn var ekki í sínu besta formi. I Parísar-sinfóníunni er hann að leitast við að geðjast Frökkum, sem á þessum tíma litu á sinfóníska tónlist að nokkru sem annars flokks tónlist og í píanó- konsertinum K. 595, er Mozart ekki sá magnaði píanisti, sem birt- ist oft með stórkostlegum hætti í sumum fyrri konsertunum. Hvað um það, þá er Parísar-sinfónían gott verk og var að mörgu ieyti vel leikin undir stjóm Saccanis. Edda Erlendsdóttir lék hinn ljóðræna og allt að því innhverfa konsert Mozarts mjög vel, sérstak- lega hæga þáttinn og einnig loka- rondóið, þar sem mest er um að vera fyrir píanóið og hefst á stefi, sem kalla má frumgerð lagsins, sem við Islendingar syngjum við texta Þorsteins Erlingssonar, Nú tjaldar foldin fríða, sinn fagra blómasal. Edda „söng“ konsertinn mjög fallega og af öryggi og gerði ekki tilraun til að gera meira úr tónmáli verksins, með því að keyra upp hraðann eða leggja efninu meiri hljómstyi-k, heldur flytja verkið í heild, af því látleysi, sem segja má að sé aðall þess. Lokaverk tónleikanna var sú „skoska“ eftir Mendelssohn (1809- 1847). Mendelssohn lifði aðeins fram undir miðja 19. öldina og þá voru menn enn að undrast yfir Beethoven, rétt aðeins farnir að vingast við J.S.Bach og áttu jafn- vel eftir að læra að meta Schubert. Tónmálið hjá Mendels- sohn er því klassísk rómantík og jafnvel hinum frumlega Schumann hafði ekki tekist að semja hrein- rómantíska sinfóníu, svo að rétt er að hafa það í huga, þegar endur- meta skal tónlist snillingsins, því snillingur var Mendelssohn óum- deiianlega. „Skoska" sinfónían er gott verk og var sérlega vel flutt af Sinfóníuhljómsveit íslands, undir stjórn Saccanis, sem gefur hverri tónhendingu sinn tíma, leggur áherslu á blæbrigði og sér- kenni í rithætti og nær hljómsveit- inni svo, að lesa má úr andliti hvers hljóðfæraleikara einbeitni, er blómstrar í sérlega áhugaverð- um og athyglisverðum leik, þannig að tónmálið fær tilfinningalega merkingu, verður eitthvað sem skiptir máli. Með öðrum orðum, leikur Sinfóníuhljómsveitar Is- lands, undir stjóm Saccanis, í þeirri „skosku“, eftir Mendels- sohn, var hreint frábær. Jón Asgeirsson "Það besta sem komið hefur frá leikstjóra Sense And Sensibility." - ROGER EBERT, Chicago Sun Tirnes eftir Ang Lee ” í 1 i r' Kevin Kline Joan Allen Sigourney Weaver °9 Christina Ricci Þa& var árið 1973, og stroumhvörf lágu í loftinu. tory nrv ii * , hltí ölt Wá ki tejlij isteffiifetIfefei kjlé ' ■ ítotop'jfe M. |ÉíiÉilp Átóíjfii m ■■■ JÍBej ;liS|jits wtififflc íliéiáte VsÉr^lf.122^ FRUMSÝND í DAG M iMVú 3.-16. mars Strandverðir teknir upp í Ástralíu. Kíkt Bak við tjöídin til Völu Matt. Beinar útsendingar frá Formula 1. í Dagskrárblaðinu þínu. / allri sinni mynd!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.