Morgunblaðið - 05.03.1999, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 05.03.1999, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 5. MARZ 1999 55 BENEDIKT JÓNSSON + Benedikt Jóns- son fæddist á Höfnum á Skaga 7. maí 1947. Hann lést á endurhæfingar- stöð Grensásdeildar 25. febrúar síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Elínborg Björnsdóttir, f. 27. maí 1917, d. 2. maí 1971, og Jón G. Benediktsson, f. 23. maí 1921. Alsystir Benedikts er Stein- unn Birna, f. 23. apríl 1945, og hálf- systir Lára Bjarnadóttir, f. 17. aprfl 1936. Benedikt var kvæntur Guð- rúnu Blöndai, f. 7. mars 1950. Hennar foreldrar: Sigþrúður Guðmundsdóttir, f. 18. ágúst 1926, og Benedikt Blöndal, f. 23. maí 1924, d. 8. nóvember 1991. Benedikt og Guðrún eiga fjögur börn. Þau eru : 1) Elínborg Birna, f. 4. febrúar 1969, maki Jóhann Guðni Reyn- isson, f. 3. okt. 1966, og eiga þau tvær dætur, ínu Björk og Hugrúnu. 2) Bene- dikta Sigþrúður, f. 16. ágúst 1970, maki Björgvin Magnússon, f. 11. sept. 1962, og eru dætur þeirra Guð- _ björg og Lovísa. 3) Steinunn Ólöf, f. 25. aprfl 1973. 4) Jón Guðmundur, f 10. júní 1975, maki Helga Margrét Sig- urbjörnsdóttir, f. 31. maí 1974, og er sonur þeirra Benedikt. titför Benedikts fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Benedikt eða Benni frændi eins og hann var gjarnan kallaður í fjöl- skyldunni ólst upp hjá foreldrum sínum á Höfnum á Skaga og kynnt- ist því störfum í æsku bæði til lands 9g sjávar. Ungur lauk hann námi í Iþróttaskólanum í Haukadal og bú- fræðinámi á Hvanneyri og kom heim að því loknu. Árið 1969 kvænt- ist Benni eftirlifandi konu sinni Guðrúnu Blöndal og bjuggu þau á Höfnum um sinn, en störf við sjáv- arsíðuna áttu hug hans allan og fluttu þau suður 1972. Hann fór í nám í fiskmati og vann sem fisk- matsmaður í átta ár í Fiskverkun Kristjáns Guðmundssonar og féll það vel. Þá gerðist hann verk- smiðjustjóri í lagmetisverksmiðju í þrjú ár, en byggði síðan ísverk- smiðju fyrir báta og fiskverkendur og starfrækti hana meðan þörf var fyrii- þá framleiðslu á Suðumesjum. Arið 1989 gerði Benni út bát og vann við það meðan heilsan leyfði. Hann gekkst þá undir erfiðan upp- skurð, en náði sæmilegri heilsu um tíma og keypti þá leigubfl og stund- aði akstur uns heilsu hans hrakaði á nýjan leik. Hér á árum áður fórum við fjöl- skyldan í Grundarási oft í heimsókn norður að Höfnum til Elínborgar og Jóns og barna þeirra Birnu og Benna. Okkur systrunum fannst leiðin norður löng svo mikil var eft- irvæntingin. Á áfangastað vorum við komnar í ævintýraheim, selur upp við landsteina, æður á hreiðri, rekaviðardmmbar í fjörunni að ógleymdri glaðværð heimilisins. Aldrei var komið svo að Höfnum að ekki væri tekið lagið og var ævin- lega byrjað á uppáhaldslaginu hans afa á Áðalbóli, „Efst á Amarvatns- hæðum“. Þá settist Benni við fóts- tigna orgelið eða tók harmónikkuna og tók hvert lagið á fætur öðru og þurfti ekki á nótum að halda. Undir tók tenór, millirödd og bassi og ein- hvers staðar fundu bömin röddum sínum stað. Einstök hlýja og sam- heldni einkenndi andblæ heimilis- ins. Benni frændi var fullur af lífi og fjöri, glaðvær og glettinn. Hann undi sér vel í góðra manna hópi, var skjótur til svars og hafði gaman af kímnisögum. Benni steig mikið gæfuspor þegar hann kvæntist Guð- rúnu sinni. Þau eignuðust fjögur böm, þau Elínborgu Birnu, Bene- diktu Sigþrúði, Steinunni Ólöfu og Jón Guðmund. Barnabörnin era orðin fimm, fjórar stúlkur og einn drengur, sem ber nafn Benna. Eru þá komnir fjórir Jónar og fjórir Benediktar á víxl í beinan karllegg allt frá ofanverðri 18. öld. Benni og Guðrún vora afar sam- hent hjón sem bára mikla virðingu hvort fyi-ir öðra og var notalegt að vera í návist þeirra þar sem svo mik- il hlýja ríkti í sambandi þeirra. Þau nutu þess að vinna saman, fara á sjóinn og hlúa að börnum sínum saman heima fyrir. Greinilegt var að Benni var mikill íjölskyldufaðir og hreykinn af fólkinu sínu. Guðrún er einstaklega mikilhæf kona og ann- aðist mann sinn af kostgæfni í hinni erfiðu sjúkdómslegu hans. Jón faðir hans og börnin hans létu sitt heldur ekki eftir liggja og víst er að Benna fannst hann ríkur af allri þeirri um- hyggju sem hann naut frá ástvinum sínum. Við biðjum þess að fólkið hans hafi styrk til þess að standa af sér þá miklu raun sem yfir hefur gengið. Fjölskyldan Grundarási. „Sérhver gefi eins og hann hefir ásett sér í hjarta sínu. Ekki með ólund eða með nauðung, því Guð elskar glaðan gjafara." (2. Kor. 9.7.) Elsku besti vinur minn, Benni, dó að morgni 25. febrúar. Þetta bæna- kort dró ég að kvöldi 11. janúar síð- astliðins eftir að vitað var að þrátt fyrir aðgerð sem hann fór í í nóvem- ber síðastliðnum, sem lofað hafði góðu, og hve ótrúlega fljótt hann gat hafið endurhæfíngu á Grensás- deild, hafði nýtt höfuðæxli náð að myndast á aðeins tveimur mánuð- um. Þau Guðrún höfðu gert sér fulla grein fyrir því að svona gæti farið. Aðeins klukkustund eftir þennan úrskurð var Benni með spaugsyrði á vörum og glettnisglampa í augum, búinn að fá mig og Gunnu, hjúkran- arfólk þriðju hæðar Grensáss og vaktmenn til að koma upp kerfi svo hann gæti púað langþráðan vindil án þess að nýja eldvamarkerfið færi í gang. Allir elska glaðan gjafara eins og Benni var. Ég kynntist þeim hjón- um og dætrum þeirra þremur árið 1973 er Benni var meðal annars umboðsmaður Vængja á Rifi. Síðan bættist Jón yngri við árið 1975. Minningarnar um heimsóknir á Rif með strákana mína þrjá, ferðalag í Landmannalaugar, þar sem sá fjórði hafði bæst við, sunnudags- flugtúra á TF-FRÝ, sem við áttum með öðrum, að ógleymdri stórkost- legri veiðiferð að Geitakarlavatni norður á Skaga, lifa skært í minn- ingunni. Allar samverustundir með fjölskyldum okkar beggja gleymast aldrei og ég leita óspart þangað þegar erfitt hefur verið að sætta sig við ótímabært lát Benna. Það var þó ekki fyrr en í veikindum hans sem ég gerði mér grein fyrir hversu einstakur hann og Gunna voru. Árið 1993, er ég þurfti að fara í stóra aðgerð og Benni var í geisla- meðferð á Landspítalanum, var andlit hans það fyrsta sem ég sá og þekkti. Daglega labbaði hann frá taugadeild til að sitja hjá mér og stappa í mig stálinu eða bara að halda í höndina á mér. Ekki þurft- um við endilega að tala mikið sam- an, jafnvel sofnaði ég oft. Það var mér nóg að vita af honum. Ég vona að mér hafi tekist að launa honum brot af þeirri vináttu sem hann sýndi mér. Sumir fara í gegnum lífið án telj- andi erfiðleika og áfalla. Ég tel að hvernig við bregðumst við þeim áföllum sem kunna að verða á vegi okkar í gegnum lífið sýni hvað í okkur býr. Þar fékk Benni hæstu einkunn og reyndar fjölskyldan hans öll. Það hafa verið forréttindi að eiga vináttu ykkar allra. Við mæðgurnar vorum eins og börn sem geta ekki beðið eftir að fá að opna jólapakkana sína þegar við höfðum loksins fundið réttu gjöfina til að færa Benna upp á spítala. Okkur þótti svo undurvænt um hann og hefðum svo gjaman viljað hafa hann áfram hjá okkur öllum, en undir það síðasta varð maður að sætta sig við að dauðinn var eina lausnin fyrir þig elsku vinur. Elsku Gunna, Ellý, Benný, Stein- unn, Nonni, Jón eldri, tengdabörn, barnabörn og aðrir ættingjar, ykk- ar er missirinn mestur. I minning- unum geymi ég mynd af vini mínum Benna með kúrekahatt á höfði, haldandi utan um Gunnu sína í sum- arbústaðnum Litlu-Höfnum. Far þú í friði elsku vinur. Fríða Einarsdóttir og börn. Nú er baráttunni hans Benna lok- ið og nú líður honum loks vel. Ég hitti Benna fyrst á Reykjalundi sumarið ‘93 þar sem við vorum bæði í endurhæfingu en ég kynntist hon- um ekki fyrr en í desember sl. Þar voram við aftur komin í endurhæf- ingu en nú á Grensásdeild en í þetta skipti vorum við búin að liggja sam- an á sjúkrahúsi áður. Þar sem við Benni voram bæði ákveðin og bjartsýn á að komast þangað sem við þurftum, fóram við í keppni um það hvort okkar yrði fljót- ara að losa sig við stólinn en þeirri keppni náðum við ekki að ljúka. Ég gleymi því ekki þegar við fóram í fyrsta skipti að æfa gang í tröppum, það var erfitt en auðvitað fóram við bæði upp tröppumar og aftur niður, af þessu afreíd voram við stolt! Alveg frá því ég kynntist Guð- rúnu, eiginkonu Benna, í þessum erfiðu veikindum hans hef ég dáðst að hugrekkinu og bjartsýninni sem þau og reyndar öll fjölskyldan býr yfir. Bjartsýnni hjónum en Guðrúnu og Benna er ekki hægt að kynnast og er ég heppin að hafa fengið að kynnast þeim. Elsku Guðrún, Steinunn og aðrir aðstandendur, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Megi Guð vera með ykkur. Elísabet. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞURÍÐUR INGJALDSDÓTTIR, Kríuhólum 2, Reykjavfk, áður til heimilis á Grenstanga, A-Landeyjum, lést á Landspítalanum þriðjudaginn 2. mars. Auðunn Valdimarsson, Kristjana U. Valdimarsdóttir, Guðlaug H. Valdimarsdóttir, Svandís R. Valdimarsdóttir, Ingjaldur Vatdimarsson, Dagný Á. Valdimarsdóttir, Bryndís S. Valdimarsdóttir, Sólrún B. Valdimarsdóttir, barnabörn og Sigríður Gréta Oddsdóttir, , Snorri Þ. Tómasson, Sigmar Ólafsson, Karl O. Karlsson, Susi Haugaard, Erlendur Guðbjörnsson, Andri H. Einarsson, barnabarnabörn. t Elskulegur faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir, bróðir og afi, GUNNAR HALLDÓRSSON, Álfaskeið 88, Hafnarfirði, lést þriðjudaginn 2. mars. Hafsteina Gunnarsdóttir, Helgi Bentsson, Amalía Rut Gunnarsdóttir, Jónas Yamak, Anna María Valtýsdóttir, Jón B. Hermannsson, Unnur Bjarnadóttir, Ásgeir Halldórsson og barnabörn. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, KLARA GUÐNÝ KARLSDÓTTIR, Skeggjagötu 16, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum mánudaginn 1. mars, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni miðvikudaginn 10. mars kl. 13.30. Ólafur Benedikt Guðbjartsson, Luisa Prudentino, Karl Hauksson, Penefrancia íris Hauksson, Sigurbjörn Marinósson, Halldóra Sigurðardóttir, og barnabörn. t Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, bróðir og afi, KRISTJÁN KRISTJÁNSSON frá Akureyri, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur miðvikudaginn 3. mars. Jarðarförin fer fram í kyrrþey. Kristján Kristjánsson, Valgerður Árni Sæberg Kristjánsson, Friðrik Kristjánsson, Kolbrún Kristjánsdóttir, Kristján Kristjánsson. t SIGURÐUR ÁSGEIRSSON frá Reykjum, í Lundarreykjadal, iést á Sjúkrahúsinu Akranesi að morgni fimmtudagsins 4. mars. Ásgeir Sigurðsson, Björg Sigurðardóttir, Sveinn J. Sveinsson, Freysteinn Sigurðsson, Ingibjörg Sveinsdóttir, Ingi Sigurðssson, Magnús Sigurðsson. t Eiginmaður minn, faðir og stjúpfaðir, SVEINN KLEMENZSON, Görðum í Reynishverfi, andaðist á heimili sínu miðvikudaginn 3. mars. Jarðarförin verður auglýst síðar. Elsa Ragnarsdótttir, Þórunn Edda Sveinsdóttir, Ragnar Sigurður Indriðason, Görðum. t Móðir okkar, SESSELJA MARGRÉT MAGNÚSDÓTTIR, áður búsett á Vatnsnesvegi 13, Keflavík, lést á hjúkrunarheimilinu Garðvangi, Gerða- hreppi, fimmtudaginn 4. mars. Útförin auglýst síðar. Birgir og Páll Axelssynir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.