Morgunblaðið - 05.03.1999, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 5. MARZ 1999 61 f
MINNINGAR
öðrum afkomendum hugheilar
samúðarkveðjur. Minningin um
Böðvar Pétursson mun fylgja okk-
ur sem kynntumst honum um
ókomna tíð.
Ólafur Ragnarsson.
I dag er kvaddur kær félagi úr
röðum íslenskra bókaútgefenda,
Böðvar Pétursson, ljúfmenni og
annálaður dugnaðarforkur, sem
lengst af starfaði hjá bókaútgáf-
unni Helgafelli og síðan Vöku-
Helgafelli. Böðvar Pétursson er
meðal þeirra sem setið hafa lengst
í stjórn Félags íslenskra bókaút-
gefenda. Hann var kjörinn í stjórn
félagsins 1966 og starfaði þar óslit-
ið til 1988. Hann var varaformaður
á árunum 1978 til 1983 er hann
baðst undan því embætti af heilsu-
farsástæðum. A erfiðleikatímabili í
sögu félagsins, þegar við blasti að
það yrði lagt niður, á starfsárinu
1979 til 1980, tók Böðvar við
stjórninni og stýrði félaginu far-
sællega yfir hjallann, vann mark-
visst að endurskipulagningu
stjórnar og tókst að sætta deiluað-
ila og bjarga félaginu frá upplausn.
Hlaut hann fyrir margfalda þökk
og lof félaga sinna, þótt sjálfur
vildi hann lítið úr þessu gera eftir
á.
Böðvar tókst á hendur margvís-
leg tiúnaðarstörf fyrir bókaútgef-
endur á þessum árum. Hann var
ætíð valinn í samninganefndir þeg-
ar framundan voru samningar við
bóksala, rithöfunda eða aðra, enda
til þess tekið hve félagsvanur og
ráðagóður hann var og laginn að
leysa úr hvers kyns deilum. I þakk-
lætisskyni fyrir hið mikla og ósér-
hlífna starf Böðvars í þágu félags-
ins var hann kosinn heiðursfélagi
þess á síðasta stjórnarfundi sínum
1988 og heiðraður sérstaklega á
100 ára afmælishátíð félagsins
1989.
Þótt Böðvar viki úr stjórn fé-
lagsins naut það áfram starfskrafta
hans og reynslu er hann tók að sér
að vera fulltrúi bókaútgefenda í
stjórn og fuiltrúaráði höfundarrétt-
arsamtakanna Fjöh's og var það
allt til dánardags.
Félag íslenskra bókaútgefenda
sendir Halldóru Jónsdóttur eigin-
konu Böðvars og öðrum aðstand-
endum hugheilar samúðarkveðjur
með virðingu og þökk.
Félag íslenskra bókaútgefenda.
Elsku afi, það er skrítið að
hugsa til þess að þú sért farinn.
Þú þessi kraftmikli maður sem
áttir erfitt með að stoppa og hugs-
aðir vel um heilsu þína. Hinsvegar
veit ég að þú ert kominn á góðan
stað þar sem þér líður vel og þú
færð útrás fyrir hreyfíþörf þína.
Þegar við fjölskyldan heimsóttum
ykkur ömmu í Skeiðarvoginn
tókst þér með einstökum hætti að
laða litlu börnin að þér með leikj-
um og gjöfum sem þau kunnu vel
að meta.
Eg veit að börnin mín eiga eftir
að sakna þín og allt sem þú hefur
gert fyrir þau lifir í minningu um
góðan afa sem ávallt gaf sér tíma
til að sinna þeim.
Ég vil þakka þér fyrir allar sam-
verustundirnar sem við áttum sam-
an og allt sem þú hefur gert fyrir
mig og fjölskyldu mína gegnum ár-
in.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem.)
Dóra Birna.
Elsku langafi, við vildum að þú
værir ennþá hjá okkur. Þú varst
svo góður við okkur. Við þökkum
þér fyrir hvað þú varst tillitssamur
við okkur. Þú vildir allt fyrir okkur
gera. Takk fyrir allar bækurnar
sem þú gafst okkur, þú ert besti afi
í heimi.
Elín Ósk, Eva Ósk
og Eyrún Ósk.
Ég vil í fáeinum orðum minnast
Böðvars Péturssonar sem kenndi
mér að hlaupa á fjöll. Mér er í
fersku minni mín fyrsta ferð með
Ferðafélagi Islands fyrir rúmum
tuttugu árum. Ég og vinkona mín
ákváðum að drífa okkur í göngu-
ferð með ferðafélaginu vegna ít-
rekaðra áskorana og varð Baula
fyrir valinu. Ég mætti galvösk
snemma morguns á Umferðarmið-
stöðina, en vinkonan svaf yfir sig.
Það runnu á mig tvær grímur þeg-
ar komið var upp í Norðurárdal.
Kannski hefði verið viturlegra að
velja auðveldara fjall. Ég var ný-
búin í próflestri, vita óþjálfuð og
þar að auki illa skóuð á stígvélum.
En ég huggaði mig við að með-
reiðarfólkið virtist flest af léttasta
skeiði og ég hlyti altént að hafa í
fullu tré við gamla gráhærða
manninn í bláu úlpunni. Þar
skjátlaðist mér hrapallega því sá
gráhærði tók undireins forustuna,
skeiðaði upp undirhlíðar Baulu og
var horfinn sjónum mínum á ör-
skotsstund. þetta reyndist vera
Böðvar Pétursson. Eg sá hann
ekki aftur fyrr en ég skreiddist ör-
magna með þeim síðustu upp að
vörðunni á toppi Baulu, þar sem
hann sat og var að ljúka við nestið
sitt. Þetta var fyrsta ferð mín með
Böðvari en langt frá því sú síðasta.
Næstu árin gekk ég á ótal fjöll
með honum og félögum hans í
Ferðafélagi íslands með stöðug-
um og jöfnum hraða án þess að
pústa of lengi í einu samkvæmt
fjallgöngureglu Böðvars. A endan-
um hafði ég í fullu tré í fjalla-
hlaupum við manninn í bláu úlp-
unni sem var alveg hættur að vera
gamall. Ferðirnar urðu margar,
dagsferðir, helgarferðir, sumar-
leyfisferðir, vinnuferðir og óvissu-
ferðir. Böðvar var hinn ákjósan-
legasti ferðafélagi, léttur á fæti og
léttur í lund. Hann var góður far-
arstjóri, glöggur á leiðir og fróður
um örnefni og sögu enda hafði
hann svo að segja hlaupið um
landið þvert og endilangt. Mínar
hjartans þakkir fyrir samfylgdina
yfir fjöll og firnindi. Vinum og
vandamönnum Böðvars votta ég
innilegustu samúð.
Sigurbjörg Þorsteinsdóttir.
' i.
ÍÍJÉVl
Orbylg]ufóftnet Þriggja mánaða
Opnar þer nýja vídd í áskrift að
vali á sjónvarpsefni! Bíórásinni
Tækin frá THOMSON eru meðal þeirra vönduðustu og
tæknilega fullkomnustu sem bjóðast í dag.
• 28" Black Pearl myndlampi • Audio/video-tengi
• Nicam Stereo • Super VHS-tengi
• Innbyggðir 2x20 watta hátalarar • Islenskt textavarp
• 2 scart tengi • Navilight stýrikerfi
• Islenskt textavarp
• Scart-tengi
• Audio/video-tengi
• Fullkomin fjarstyring
5.000,- afWattur af Þriggja mánaða
örbylgjuloftneti ef þú áskrift að
kaupir Daewoo 20 “. Bíórásinni.
Daewoo er einn stærsti
framleiðandi sjónvarpa í
heiminum í dag!
Orbylgjuloftnet
Vantar þig aðstoð við
uppsetninqu örbylgju-
loftnetsins?
Nú býður BT öllum sem kaupa
örbylgjuloftnet upp á
uppsetningu Ifka. Innifalið f
verðinu er allt efni og vinna!
THOMSON 28DG21B
BT • Skeifunni 11 • 108 Rvk • Sími 550 4444
BT • Reykjavíkurvegi 64 • 220 Hafnarf. • Sími 550 4020
Uppfylli bíllinn ekki kröfur þínar og væntingar,
hefurðu möguleika ó að skipta honum yfir í annan og betrí.
<$£> TOYOTA
Betri notaðir b
ORYGGI
ÁBYRGÐ