Morgunblaðið - 14.03.1999, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
SUNNUDAGUR 14. MARZ 1999 43
segja má að hann eigi drjúgan þátt
í þeim faglega grunni sem stofnun-
in hefur byggt á allt til þessa dags.
Þótt Þórir léti af starf! brunamála-
stjóra vann hann lengst af einstök
verkefni fyrir stofnunina og miðlaði
henni áfram af sérþekkingu sinni.
Þórir var mikill á velli og gat ver-
ið fastur fyrir þegar sannfæring
hans bauð honum svo. Hann var ná-
kvæmur og vandvirkur í störfum og
fylgdi eigin sannfæringu. Fyrir það
naut hann trausts og virðingar
starfsbræðra sinna og annarra
samferðamanna. Með fráfalli hans
hefur verið höggvið skarð í sér-
þekkingu á sviði brunavarna hér á
landi.
Ég vil að lokum votta eiginkonu
Þóris, Þórhildi Katrinu, og bömum
þeirra samúð við andlát elskulegs
eiginmanns og foður.
Bergsteinn Gizurarson.
Þegar Þórir Hilmarsson hóf starf
sem brunamálastjóri vorið 1979
beið hans ærinn starfi við að fram-
fylgja brunamálareglugerðinni sem
þá var nýkomin út og seinna sama
ár tók gildi ný byggingarreglugerð.
Reglugerðirnar þóttu strangar
samanborið við fyrri reglur og fór
mikil vinna í að sannfæra menn um
ágæti þeirra. A þessum tíma var
stofnunin liðfá, auk brunamála-
stjóra voru starfsmenn tveir fyrr-
verandi slökkviliðsmenn og ein
stúlka á skrifstofunni. Fljótlega
fékk Þórir að ráða til starfa verk-
fræðing í hálft starf sem verktaka
en fyrst í árslok 1982 fékkst leyfi
lýrir að ráða verkfræðing í fullt
starf og annan um mitt árið 1983.
Þessi ár voru tími mikilla breyt-
inga og varð Þóri fljótt ljóst að
verulegt átak þyrfti að gera í
fræðslumálum varðandi bruna-
hönnun sem þá var hugtak sem fáir
þekktu. Þórir fylgdist grannt með
þein-i þróun sem átti sér stað á
þessum tíma annars staðar á Norð-
urlöndum en þar var mikið að ger-
ast á þessu sviði.
Þórir samdi við norska verkfræð-
ingafélagið um að það gengist fyrir
ráðstefnu hér á landi í samvinnu við
Brunamálastofnun og félög arki-
tekta, verk- og tæknifræðinga. Ráð-
stefnan var haldin í mars 1981 og
voru fengnir færastu fyrirlesarar
Norðmanna til að flytja framsöguer-
indi. Mikill áhugi var fyrir ráðstefn-
unni og sóttu hana um 130 manns.
Með þessari ráðstefnu og annarri í
júní 1984 urðu straumhvörf í hönn-
un brunavarna í byggingum hér á
landi og veitti hönnuðum aukinn
styrk til að takast á hendur hönnun
flókinna bygginga. I þessu umhverfi
hófst hönnun Kringlunnar en þar
reyndi mjög á að hugsað væri eftir
nýjum brautum en hönnunin ekki
bundin í viðjar forskrifta.
Brunamálastofnun undir sfyrkri
stjórn Þóris var hönnuðunum til
ráðgjafar frá fyrstu tíð og oft þurfti
að taka stórar og óvanalegar
ákvarðanir um grundvallarþætti
brunahönnunar. Sú fyrirmynd sem
þarna skapaðist undir handleiðslu
Þóris hefur verið notuð í margar
aðrar byggingar og reynst vel.
Eftir að Þórir lét af störfum sem
brunamálastjóri á árinu 1986 vann
hann á eigin verkfræðistofu allt til
þess síðasta. A þeim tima vann
hann að brunamálum á margan
hátt m.a. sem ritari nefndar um
endurskoðun brunamálalaganna
1992 og með ritun á ýmsum reglum
sem Brunamálastofnun hefur gefið
út og er höfundur að ýmsum reglu-
gerðum m.a. um úðakerfi og eld-
varnaeftirlit og hafði umsjón með
brunavarnaákvæðum nýju bygg-
ingarreglugerðarinnar sem tók
gildi sl. sumar. Með henni rættist
langþráður draumur að sameina
byggingar- og brunamálareglu-
gerðirnar í eina. Sem yfirmaður var
Þórir einstaklega ljúfur og þægi-
legur. Góður og tryggur vinur vina
sinna. Hann deyr langt um aldur
fram og er saknað af vinum sínum.
Við sendum eiginkonu, börnum
og öðrum vandamönnum okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Theódór Amason,
Guðmundur Gunnarsson.
SVEINN FRÍMANN
ÁGÚST BÆRINGSSON
+ Sveinn Frímann Ágúst Bær-
ingsson fæddist að Furufirði
í Grunnavíkurhreppi í Norður-
ísafjarðarsýslu 18. ágúst 1906.
Hann lést 23. febrúar síðastliðinn
og fór útför hans fram frá Foss-
vogskapellu 5. mars.
Enginn veit hvað átt hefur fyrr
en misst hefur. Sveinn okkar er dá-
inn. Aldrei er maður undirbúinn
slíku. Þegar ég fékk þessar fréttir
brá mér og ég settist niður og þá
streymdu minningamar fram.
Elsku Sveinn, það er margt sem
við spjölluðum um þegar ég heim-
sótti þig og konuna þína og þegar
þið komuð til mín. Þú varst alltaf
svo ánægður að sjá bamabömin
þín. Þú komst og gistir yfir helgi
og varst svo hrifinn af matarstell-
inu og hnífapörunum að ég gaf þér
6 manna stell með þér heim. Ég
kynntist þér og konunni þinni 1982
þegar þú varðst afi. Þá kom ég til
ykkar með nýfæddan son okkar,
þið tókuð mér svo vel og baminu.
Þú varst svo ánægður að vera orð-
inn afi. Þú varst ennþá ánægðari
þegar þú fékkst nafna 1985. Aldrei
mun ég gleyma þegar þú komst og
gistir yfir helgi þegar nafni þinn
átti afmæli og þú dansaðir og dans-
aðir við ömmu mína, það var alveg
æðislegt að sjá þig dansa.
Elsku Sveinn, nú veit ég að Jar-
þrúður hefur tekið á móti þér opn-
um örmum og þá veit ég líka að þér
líður vel. Ég bið guð að varðveita
þig og geyma og bið guð að gefa
systur þinni styrk og ég vil þakka
öllum þeim sem hugsuðu um Svein
í veikindum hans.
Bestu kveðjur,
Inga.
Elsku afi okkar. Nú hefur þú
lokað aftur augunum og hjartað
sofnað svefninum langa en minn-
ingamar lifa. Þegar við komum á
Hólmgarð 39 og þú opnaðir skáp-
inn og þú sagðir hvað má bjóða
ykkur þá varstu með fullan skáp af
allskonar góðgæti, þegar þú varst
að leika við okkur, halda á okkur
og hampa okkur. Þegar þú og kon-
an þín komuð í Keflavíkur til okkar
var mjög gaman. Allar þessar og
fleiri minningar geymum við í
hjarta okkar um ókomna tíð.
Elsku afi, bestu þakkir fyrir allt.
Megi Guð geyma þig og varðveita.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinimir kveðja
vinmn sinn látna,
er sefúr hér hinn síðsta blund.
(V. Briem.)
Kristinn, Sveinn og Gestur.
Birting afmælis- og
minningargreina
MORGUNBLAÐIÐ tekur afrnælis- og minningargreinar til birtingar
endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjóm blaðsins í Kr-
inglunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstra;ti 1,
Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569
1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið grein-
ina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
"I"
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför,
BALDURS ÓLA JÓNSSONAR,
áður til heimilis á Hafnarbraut 8,
Neskaupstað,
Boðahlein 11, Garðabæ.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hrafnistu
í Hafnarfirði.
Irma Pálsdóttir,
Anna Gréta Baldursdóttir, Sigurður Runólfsson,
Sólveig Baldursdóttir, Sigurður Steinar Ketilsson.
+
Þökkum innilega öllum þeim, sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu,
LAUFHEIÐAR JENSDÓTTUR,
Hátúni 4,
Reykjavík.
Guðrún Eiríksdóttir, Viðar Janusson,
Þórður Eiríksson, Guðrún G. Bjömsdóttir.
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum innilega öllum þeim sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför
ÞORSTEINS HANNESSONAR
söngvara.
Kristín Pálsdóttir
og fjölskylda.
+
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við
andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar,
móður okkar og dóttur,
KRISTÍNAR KATRÍNAR
GUNNLAUGSDÓTTUR,
Stigahlíð 53.
Guð blessi ykkur öll.
Erlendur Guðmundsson,
Kristín Vala Erlendsdóttir, Karl Thoroddsen,
Gunnlaugur Pétur Erlendsson,
Guðmundur Kristinn Erlendsson,
Kristín Bernhöft Pétursson
og aðstandendur.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður, systur og ömmu,
INGIBJARGAR PÁLSDÓTTUR EGGERZ
listmálara,
Laugavegi 65,
Reykjavík.
Sérstakar þakkirtil starfsfólks á Arnarholti fyrir
alúð og umönnun, einnig til starfsfólks Sjúkra-
húss Reykjavíkur.
Sólveig Eggerz, Allan Brownfeld
Páll Ólafur Eggerz, Gabriele Eggerz,
Þorbjörg Pálsdóttir,
Ólöf Pálsdóttir,
Jens Pálsson.
og barnabörn.
+
Við þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og útför móður okkar, tengdamóður,
systur og ömmu,
ERLU VÍDALÍN HELGADÓTTUR
fyrrum kaupkonu. '
Ragnheiður Óskarsdóttir, Hallgrímur Thorsteinsson,
Lára Bjarnadóttir, Theódór Kárason,
Elín Bjarney Bjarnadóttir, Brynjólfur Sigurðsson,
Bjarni Bjarnason,
barnabörn og systkini hinnar látnu.
+
Innilegar þakkir fyrir samúð, hlýhug og vináttu
við andlát og útför,
MARGEIRS SIGURÐSSONAR
skipstjóra,
Austurströnd 10,
Seltjarnarnesi.
Sigurður Ingi Margeirsson, Dóra Hafsteinsdóttir,
Magnús Margeirsson, Jenný Ólafsdóttir,
Brynja Margeirsdóttir, Guðjón Davíð Jónsson,
Ása Kristín Margeirsdóttir, Örn Stefán Jónsson
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför ástkærs eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
SÆVARS FRÍMANNS
SIGURGEIRSSONAR,
Vesturbergi 12,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til deildar A3 á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur og hjúkrunarþjónustu Karitas fyrir
hlýhug og umönnun.
Marsý Dröfn Jónsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Lokað
verður á morgun, mánudaginn 15. mars vegna útfarar
ÞÓRIS HILMARSSONAR verkfræðings, fyrrv. brunamálastjóra.
Brunamálastofnun ríkisins.