Morgunblaðið - 30.03.1999, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 30.03.1999, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 30. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Útlendingaeftirlitið sjálfstæð stofnun HINIR ungu þingmenn í sal Alþingis á fyrsta degi þingsins í gær. Viðbrögð banka og sparisjóða við Veltukortum SPRON Georg’ Lárusson verður forstjóri STARFSEMI Utlend- ingaeftirlitsins verður skilin frá embætti ríkis- lögi-eglustjóra og það gert að sjálfstæðri stofnun. Jafnframt verður stofnuninni ráð- inn nýr forstjóri og verður það Georg Kj-. Lárusson, varalög- reglustjóri í Reykjavík. Breytingar þessar taka gildi 1. október næstkomandi í kjölfar nýrra laga sem sam- þykkt voru 10. mars um skipan útlendinga- eftirlits. Starfshópur Georg vinnur nú að því að Lárusson finna stofnuninni nýtt húsnæði og undirbúa starfsemi hennar samkvæmt hinum nýju lög- um. Starfshópinn skipa Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri, Björg Thorarensen, skrifstofustjóri dómsmálaráðuneytis, Jóhann Jó- hannsson og Georg Kr. Lárusson, sem er formaður starfshópsins. Dómsmálaráðherra ákvað með heimild í 36. grein , starfsmannalaga að flytja Georg Kr. Lárusson til í starfi og fela honum að gegna embætti forstjóra Ut- lendingaeftirlitsins. Er skipunartími hans hinn sami og sem varalög- reglustjóri, þ.e. til 30. apríl 2003. „Þetta er spennandi verkefni, margt ft'amundan og miklar breytingar,“ sagði Georg í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði fyrsta verk- efni starfshópsins að finna stofnun- inni nýtt aðsetur, ganga frá starfs- mannamálum, en þeir verða á bilinu 13 til 15, og síðan sagði hann nauð- synlegt að skipuleggja útgáfu vega- bréfa sem þurfa að vera komin í gagnið á miðju næsta sumri. Ymist ný kort eða breytt- ir skilmálar eldri korta enda væri deila VISA-ísland og SPRON eingöngu um nafnið á nýju korti SPRON en ekki skilmálana. Landsbanki fyrst og fremst með breytt núgildandi kort „Landsbankinn býður viðskipta- vinum nú þegar víðtæka möguleika varðandi greiðsludreifingu eða skipt- ingu á kreditkortareikningum,“ sagði Björn Líndal, framkvæmda- stjóri hjá Landsbanka, spurður um hvernig Landsbankinn myndi bregð- ast við þessum nýjungum á mark- aðnum. „Við munum vitaskuld bæta þessum nýja möguleika við og það mun fyrst og fremst gerast með þeim hætti að menn geti áfram notað núgildandi kort. Þetta er hins vegar ekki nein sérstök nýjung því greiðsludreifing og greiðsluskipting er löngu þekkt á kreditkortamark- aðnum hér á landi,“ sagði Björn. Visa-kort eftir páska Einar S. Einarsson, framkvæmda- stjóri VISA-ísland, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að Veltikort Visa mundu standa viðskiptavinum til boða strax eftir helgi og muni þau bjóðast viðskiptavinum allra banka og sparisjóða líkt og önnur VISA- kort, hvað sem líður deilu SPRON og VISA-íslands vegna heitis Veltu- korts SPRON. Hann sagði að VISA- ísland mundi halda lögbannsmáli til streitu vegna Veltukorta SPRON og kvaðst búast við að lögbannið fengist lagt á formlega í dag. „VISA er í þeirri stöðu að við leggjum til kerfí og kort en það er hvers einstaks banka og sparisjóðs að selja þessi kort. Við höfum samt auglýst og munum auglýsa að þessi Veltikort Visa muni bjóðast eftir páskana." Hann sagði að ágreiningurinn við SPRON væri fyrst og fremst um nafnið en VISA gerði i sjálfu sér ekki athugasemdir við að SPRON eða Islandsbanki og aðrir bankai’ og sparisjóðir, sem eru meðal eignarað- ila VISA-ísland, bjóði nýja skilmála í samvinnu við keppinautinn, Europay. „Þetta snýst bara um óheimila notkun á þjónustuheiti sem við eigum lögvarinn rétt á þótt spari- sjóðsstjórinn virðist misskilja málið þannig að við séum að leggja stein í götu hans. En það er hans einbeitti brotavilji í málinu, sem veldur því að við förum í lögbann. Hann heldur óbreyttum hætti og þyngir heldur sóknina," sagði Einar S. Einarsson. ÍSLANDSBANKI og nokkrh- spari- sjóðir hafa þegar tilkynnt að þeir hyggist bjóða krítarkortaviðskipti með sámbærilegum skilmálum og Sparisjóður Reykjavíkur býður með nýjum Veltukortum. Aðrir bankar undirbúa að breyta skilmálum á kortum sínum og VISA-ísland hyggst bjóða ný kort, Veltikort, með sambærilegum skilmálum strax etir páska, að sögn Einars S. Einarsson- ar, framkvæmdastjóra Visa. _ Sigurveig Jónsdóttm hjá Islands- banka sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær að bankinn hefði ákveðið að bjóða þeim hópi viðskiptavina, sem þegar hafa Valkort frá bankan- um eða nýta sér vildarþjónustu Is- landsbanka, upp á sambærileg við- skipti og veltukort SPRON bjóða, þ.e. korthafar þurfa aðeins að greiða 5% eða a.m.k. 5.000 krónur úttektar um hver mánaðamót, auk vaxta. Nýir skilmálar bætist þá við nú- verandi viðskipti og standi til boða þeim sem koma nýir inn í vildarþjón- ustu eða fá Veltukort. Breytingar standa þeim sem hafa Valkort frá Mastercard þegar til boða en koma til framkvæmda gagnvart VISA- korthöfum frá og með 6. aprífl, að sögn Sigurveigar. Sparisjóður vélstjóra og sparisjóð- irnir í Keflavík, Hafnarfirði og Kópa- vogi auglýstu ný kort, SP-kort frá MasterCard, úrri helgina. Þau virð-' ast sambærileg við Veltukort SPRON. Jónas Reynisson, sparisjóðsstjóri í Hafnarfirði, sagði í samtali við Morgunblaðið að hver sparisjóður hefði gert sinn samning við MasterCard og væru þau í alla staði sambærileg við Veltukort SPRON, auk þess sem kortunum fylgdi tryggingapakki vegna ferða-slysa- trygginga. Búnaðarbanki býður nýja skil- mála fyrir gömul kort Stefán Pálsson, aðalbankastjóri Búnaðarbanka íslands, sagði við Morgunblaðið í gær að væntanlega mundi bankinn á næstu dögum bjóða nýja skilmála, sambærilega Veltu- kortum, í tengslum við þau kort, sem þegar eru í boði, án þess að ný kort verði gefin út. „Þetta eru litlar nýj- ungar. Þetta er spuming um að út- víkka það sem menn hafa verið að gera,“ sagði Stefán. Hann sagði að spurningar um nýja skilmála tengd- ust á engan hátt aðild Búnaðarbank- ans eða annarra að VISA-ísland, anplegurauður I Ching, Veraldarviska, List friðarins og Leið pílagrímsins. Fjögur klassísk rit um andleg málefni, áhugaverðar handbækur um leiðir að farsæld í lífi og starfi. Bækur sem vekja til umhugsunar. 0 FORLAGIÐ I c MINL 1111) l‘íl AtiHÍMSlNS ItM vkh,ívusNS VI raujar VISKA Alþingi unga fólksins sett í gær Haldið í tilefni 50 ára afmælis Evrópuráðsins ALÞINGI unga fdlksins var setf með formlegum hætti í Alþingis- húsinu við AusturvöII í gær. Ólafur G. Einarsson, fráfarandi forseti Alþingis, setti þingið en það mun standa þar til á rnorg- un. Þingið er haldið í tilefni 50 ára afmælis Evrópuráðsins, en verið er að kynna þátttakend- um, sem eru á aldrinum 16 til 20 ára, starfsemi ráðsins sem og störf Alþingis. Allir á aldrinum 16 til 20 ára gátu sótt um að fá að sifja þing- ið en 63 ungmenni voru valin af sérstakri nefnd og koma þau frá öllum kjördæmum landsins. Þátttakendurnir ganga í störf alþingismanna og fylgja alfarið þeim hefðum og reglum sem ríkja í þinghúsinu. Kurteisari en hinir eldri Ólafur G., sem stjórnaði fund- inum til að byrja með, gerði þingmönnum grein fyrir því að þeir væru nú í kastljósi fjölmiðla og að þau orð sem þeir létu falla á þinginu yrðu ekki afmáð. Hall- dór Asgrímsson utanríkisráð- herra ávarpaði einnig þingið og sagðist vonast eftir góðum og hreinskilnum umræðum og bætti því síðan við að eflaust yrðu þingmennirnir ungu kurt- eisari í ræðustóli en hinir eldri, sem jafnan eiga sæti í þinginu. Að loknum ræðum Ólafs og Halldórs var kosið um þingfor- seta og var Ingólfur Friðriksson kjörinn, en hann tók strax við stjórn þingsins. Þijár þingnefndir skipaðar Þrjái' þingnefndir voru skip- aðar við upphaf þings, þ.e. um- hverfisnefud, utanríkisnefnd og menntamálanefnd, en 21 þing- maður skipar hveija nefnd. Jóni Ómari Gunnarssyni, 17 ára nema í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, leist mjög vel á það starf sem framundan væri. Jón, sem situr í utanríkisnefnd, sagð- ist hafa nokkur inál á sinni könnu, en það sem honum þætti mikilvægast væru málefni flótta- mahna á Islándi. Hann ságði áð ekki mætti hleypa of mörgum flóttamönnum til landsins, því fátæktinni yrði ekki útrýmt með því að koma með hana til Iands- ins. Þá telur hann brýnt að flóttamenn læri íslensku og fræðist um jand og þjóð. Dagmar Ösp Vésteinsdóttir, 16 ára nemi í Verslunarskóla Is- lands, sagðist hafa sótt um að fá að taka þátt í þinginu ásamt nokkrum vinum sínum, en að liún hafi verið sú eina sem hafi verið valin. Dagmar, sem situr í menntamálanefnd, sagði að jafn- rétti til náms væri ákaflega mikil- vægt í sínum huga, því allir ættu að hafa sömu tækifærin til að stunda nám óháð fjárliagsstöðu. Hún sagðist ekki hafa neimi sér- stakan áhuga á að stunda þing- mennsku í framtíðiimi, því fjöl- miðlarnir ættu hug sinn allan. í dag heldur þingið áfram, en þingfimdur hefst klukkan tíu og stendur til klukkan íjögur og á morgun hefst fundurinn klukkan níu og stendur til klukkan fjögur. Að loknum þingstöidum á morg- un verður móttaka fyrir þingfull- trúa í utanrfldsráðuneytinu. Sjoppu- ræningja enn leitað LÖGREGLAN í Kópavogi leit- ar enn manns sem rændi sölu- turn á Smiðjuvegi á fimmtu- dagskvöld. Hann ógnaði tveim- ur afgreiðslustúlkum með hnífi og hafði á brott með sér um 50 þúsund krónur í peningum úr sjóðvél. Samkvæmt lýsingu af- greiðslustúlkna var ræninginn rúmlega tvítugur að aldri, um 168 cm á hæð, klæddur í dökka peysu og gallabuxur, með gi'æna húfu á höfði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.