Morgunblaðið - 30.03.1999, Side 26

Morgunblaðið - 30.03.1999, Side 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 30. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ ÁRÁS NATO Á JÚGÓSLAVÍU Serbneskar hersveitir stökkva tugþúsundum manna á flótta frá Kosovo-héraði í Júgóslavíu Reuters FLOTTABORN frá Kosovo í Makedóníu í gær. Flóttafólkinu voru gefnar kringlur til þess að seðja sárasta hungrið. MIKIL eyðilegging varð á bækistöðvuni serbneskra öryggissveita í Pristina, höfuðborg Kosovo, í árásum NATO í fyrrinótt. • • Orvænting grípur um sig í Kosovo FLOTTAFOLKIÐ Brussel, Belgrad, Tirana. Reuters. EKKERT lát var á straumi flótta- fólks frá Kosovo-héraði í gær en talið er að um 50.000 manns hafí verið stökkt á flótta í héraðinu frá því loftárásir Atlantshafsbandalags- ins hófust. Rúmlega hálf milljón Kosovo-Albana hefur neyðst til þess að flýja heimili sín frá því að átök hófust í héraðinu í febrúar 1998 en það er um fjórðungur íbúa þess. Emma Bonino, fyrrum fram- kvæmdastjóri neyðarhjálpar Evi'- ópusambandsins (ESB), hyggst halda til Albaníu og Makedóníu á morgun til þess að leggja mat á flóttamannavandann í þessum tveimur löndum og sjá hvernig ESB getur best komið yfíi-völdum þar til aðstoðar. Áætlað er að 80-100.000 flótta- menn frá Kosovo séu í Albaníu, 4.000 í Bosníu og 5.000 í Svartfjalla- landi. Um eitt þúsund manns komu yfir landamærin til Makedóníu í gær. Jamie Shea, talsmaður Atl- antshafsbandalagsins (NAO)í Brus- sel, sagði flóttamannavandann vera hinn mesta í Evrópu í hálfa öld: „Miklar hörmungar munu von bráð- ar dynja yfir ... svo miklar að ann- að eins hefur ekki gerst í Evrópu frá því að heimsstyrjöldinni seinni lauk.“ Straumur flóttamanna frá Kosovo-héraði liggur aðallega til Svartfjallalands, sem er hérað í Sambandsríki Júgóslavíu, Ma- kedóníu og svo til Albaníu. Dragisa Burzan, aðstoðarforsætisráðherra Svartfjallalands, lýsti því yfir í gær að Svartfellingar hygðust taka á móti Kosovo-Albönum svo lengi sem þeir gætu. Fólki hótað lífláti komi það sér ekki á brott Ekki hægt að sannreyna frásagnir sjónai’votta sem hafa vitnað um voðaverk serbneskra hersveita í Kosovo, þ.s. erlendum fréttamönn- um hefur verið meinað að fara til héraðsins. Stjórnvöld í Belgrad halda því hins vegar fram að ein- ungis hafi verið ráðist til atlögu við sveitir Frelsishers Kosovo. Flótta- fólk frá Pec, sem kom til Svart- fjallalands, greindi fréttaritara BBC frá því að serbneskar öryggis- sveitir hefðu gefíð þeim fimm mín- útur til þess að tína saman föggur sínai' og halda á brott, ellegar yrðu þau skotin. Þúsundir manna yfir- gáfu bæinn og sögðust sumir hafa séð lík á götum Pec og á veginum sem liggur til Svartfjallalands. Flestir flóttamannanna eru gam- almenni, böm og konur, sem segja öryggissveitir Serba hafa tekið alla karlmenn höndum. Flóttafólk sem Serbar sakaðir um fjöldamorð á Kosovo-Albönum náð hefur til Makedóníu hefur svip- aða sögu að segja. Að þess sögn eru albanskir karlar í Kosovo-héraði í mikilli lífshættu. Kosovo-Albanar hafa einnig flúið yfir landamærin til Albaníu tugþúsundum saman. Sjónarvottar að skipulögðum fjöldamorðum Flóttamenn, sem komust til Tet- evo í Makedóníu, greindu fi-á því að serbneskir öryggislögreglumenn hefðu handtekið 60 karlmenn í þorpinu Kutlin, þ.s. Frelsisher Kosovo hafði bækistöðvar, skömmu eftir að loftái'ásir NATO hófust. Metush Loki var í hópi tæplega 50 manna sem tókst að fela sig í u.þ.b. 100 metra fjarlægð frá vatnsbóli þ.s. 60 manna hópnum var haldið í fjórar klukkustundir. „Við gátum leynst á bak við foss allan daginn en við heyrðum þegar mönnunum var misþyrmt með barsmíðum," sagði Loki. Hann sagði annan mann í sín- um hópi hafa séð hvar sextíu manna hópnum var þröngvað inn í stóran vatnsgeymi og sprengju svo varpað inn í geyminn. Metush Loki telur víst að mennirnir hafi látist í sprengingunni eða drukknað. Þegar serbneska öryggislögreglan var á brott komu mennirnir úr felum und- an fossinum. Þá höfðu konurnar og bömin í bænum þegar lagt á flótta. Fehmije Haxhiolli kom 15 ára syni sínum undan með því að klæða hann í kvenmannsföt og setja á hann slæðu: „Okkur var skipað að hafa okkur á brott yfir landamærin. Öryggislögi-eglan hótaði að skjóta okkur værum við ekki á bak og burt að morgni,“ sagði Haxhiolli. Frásagnir flóttafólksins eru óstaðfestar og segir William Wal- ker, yfirmaður bandarísku eftirlits- sveitanna (KVM), sem yfirgáfu Kosovo áður en loftárásir hófust, að engin leið sé fyrir þær að ganga úr skugga um sannleiksgildi frásagn- anna. Starfsfólk Flóttamannahjálp- ar Sameinuðu þjóðanna tekur í sama streng. BBC hafði eftir ónafn- greindum starfsmanni SÞ að Kosovo-Albanar, sem störfuðu fyrir vestrænai’ hjálparstofnanir eða sendiráð, hefðu verið teknir af lífi vegna tengsla sinna við þær.“ Serbneska ríkisútvarpið greindi frá því í gær að að mikill fjöldi kvenna og barna hefði flúið Pristan, héraðshöfuðborg Kosovo, auk þess sem eldar loguðu í norðurhluta borgarinnar. Arkan sagður í Kosovo Sést hefur til hins illræmda serbneska sérsveitarforingja Ark- ans í Kosovo að því er George Ro- bertson vamarmálaráðherra Bret- lands greindi frá í gær. Arkan, sem heitir réttu nafni Zeljko Raznatovic, stjórnaði hópi her- manna sem kallaðir voru Tígrarnir í stríðinu í Júgóslavíu á árunum 1991-1995 og sagðir era hafa framið fjöldamorð í Króatíu og Bosníu, „Hann er alræmdur hrotti," sagði Robertson, „og spurt er: Hver sendi hann til Kosovo?" Robertson sagði á fréttamanna- fundi að stríðsglæpir og þjóðernis- hreinsanir yrðu ekki liðnar í Kosovo: „Þeir sem bera ábyrgð á glæpum gegn óbreyttum borgurum verða dregnir fyrir dómstóla. Við fylgjumst vel með framvindu mála og daglega berast okkur sönnunar- gögn sem nota má gegn stríðs- glæpamönnum." Aðrar heimildir herma að Arkan hafi að undanfórnu haft bækistöðvar í Sanjak í Serbíu og hrakið múslíma á því svæði á brott. í gær sótti Arkan mótmæla- fund vegna loftárása NATO í Belgrad. Landssöfnun t að.Lange 11 í “ sDtfCÍMil jölskyldunni rfirði Eins og komil fjölskyldun® fjarlægt oqáro vegna útbrmH títlu. Af sörriu* eyða húsgögn jn'efurfram i fjölmiðlum var heimili Ipö Langeyrarvegi 9 i Hafnarfirði ennttil kaldra kola þann 6. mars sTO og skemmda af völdum veggja- ^tæðu hefur fjölskyldan orðið að ■TOi, bókum og fleiru úr innbúi sínu. Fjölskyldan hefúr því misst aleigu sína, hús og heimili, án þess að fá rönd við reist og vilja aðstandendur þessa átaks því hér með skora á islensku þjóðina að taka höndum saman og sýna stuðning í verki með því að styrk'ja- ■ þau til endurbyggingar heimilisins að Langeyrarvegi. Sparisjóður Hafnarfjarðar er fjárgæsluaðili söfnunarinnar og tekur á móti framlögum á reikning númer 12000. REIKN.NR. m IKI 1101-26- BANKI 12000 FJARGÆSLUAÐILI: SPARISJOÐUR HAFNARFJARÐAR Reuters Serbar mótmæla SERBAR, sem búsettir eru er- lendis, hafa víða efnt. til mikilla mótmæla við sendiráð NATO- ríkjanna en þessi mynd var tekin við breska sendiráðið í Búkarest í Rúmeníu. Rúmenar hafa leyft NATO-þotunum að fljúga inn í lofthelgi sína í árásunum á herstöðvar í Ser- bíu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.