Morgunblaðið - 30.03.1999, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. MARZ 1999 51
Einstætt
skákmót
SKAK
Grand Rokk
STÓRMEISTARAMÓT GRAND
ROKK
26. raars 1999
Taflfélag Grand
Rokk stóð fvrii' ein-
stæðu skákmóti á
föstudaginn. I
fyrsta skipti tefldu
allir íslensku stór-
meistararnir, níu
talsins, saman á
skákmóti.
Þeir Grand
Rokk-menn eiga
heiður skilinn fyrir
að ná þessum af-
reksmönnum sam-
an, því margir
þeirra eru í krefj-
andi störfum þar
sem lítill tími gefst
til taflmennsku.
Engu að síður tókst
þetta, þótt með
naumindum væri.
Þannig þurfti Jón
L. Amason t.d. að
fara beint af skák-
mótinu út á Kefla-
víkurflugvöll þar
sem hann var á leið
úr landi. Þá þurfti
Helgi Áss Grétars-
son að gera sér sér-
staka ferð til lands-
ins, en hann dvelst
erlendis um þessar
mundir.
Mótið tókst að
öllu leyti vel og
vakti mikla athygli.
Fyrir skákáhugamenn var þetta
stórviðburðm- og margir hafa
vafalaust glaðst yfir því að sjá
elstu stómieistai-ana okkar, þá
Friðrik Ólafsson og Guðmund
Sigurjónsson, við taflborðið á
nýjan leik.
Alls voru keppendur 14, en
auk stórmeistaranna tóku þeir
Dan Hansson, Róbei-t Harðar-
son, Sigmbjörn Bjömsson, Sæv-
ar Bjarnason og Tómas Björns-
son þátt í mótinu.
Lokaröð keppenda varð sem
hér segir:
1. Jóhann Hjai-tarson 10‘/z v.
2. -3. Hannes H. Stefánsson 9'/z v.
2.-3. Helgj Ólafsson 9M: v.
4. Margeir Pétursson 9 v.
5. Þröstur Þórhallsson 8/2 v.
6. Helgi Ass Grétarsson 8 v.
7. Jón L. Ámason 7 v.
o.s.frv.
Æfingaleysið setti strik í
reikninginn hjá þeim Friðriki og
Guðmundi, sem hvað eftir annað
byggðu upp vinningsstöður, en
misstu þær niður í tímahraki.
Hins vegar hrakku þeir í gang
seinni hluta mótsins og var það
sérstaklega áberandi hjá Frið-
riki, sem fékk fjóra vinninga af
sjö í síðustu skákunum og gerði
m.a. jafntefli við Jóhann og sigr-
aði Jón L. Þá vann Guðmundur
Hannes Hlífar í næstsíðustu um-
ferð. Það er því ljóst að þeir
Friðrik og Guðmundur eru enn
skeinuhættir og lítið þarf til þess
að þeir komist í gott form á nýj-
an leik.
Mótsstjórn var skipuð þeim
Hrafni Jökulssyni og Kristjáni
Erni Elíassyni. Ríkharður
Sveinsson var skákdómari á
mótinu.
Kramnik sigrar
á Amber-skákmótinu
Ki-amnik vann verðskuldaðan
sigur á Amber-skákmótinu í
Mónakó. Hann hlaut 14/2 vinn-
ing í 22 skákum. Shirov og Topa-
lov lentu í 2.-3. sæti, hálfum
vinningi á eftir Kramnik.
Anand gekk best allra í at-
skákunum, fékk 7'/2 vinning. Þar
lenti Kramnik í öðra sæti með
614 vinning. Eins og áður hefur
komið fram var
frammistaða Anand
í blindskákunum
hins vegar mun lak-
ari, en þar fékk
hann fjóra vinninga
og lenti í einu af
neðstu sætunum.
Þeir Kramnik,
Shirov og Topalov
urðu langefstir í
blindskákunum,
fengu allir átta
vinninga.
Lokastaðan á
mótinu varð þessi:
1. Vladimir Kramnik
2751 W'/z v.
2. -3. Alexei Shirov
2726 14 v.
2.-3. Veselin Topaiov
2700 14 v.
4.-5. Joel Lautier 2596
ll'/zv.
4.-5. Viswanathan An-
and 2781 ll'/z v.
6. Anatoly Karpov
2710 11 v.
7. -9 Vassily Ivanchuk
2714 9!4 v.
7.-9. Predrag Nikolic
2633 94 v.
7.-9. Ljubomir Lju-
bojevic 2571 9V4 v.
10.-12. Jeroen Piket
2619 9 v.
10.-12. Boris Gelfand
2691 9 v.
10.-12. Loek van Wely
2632 9 v.
Einvígi Spassky
og Korchnoi
Þeir Boris Spassky og Viktor
Korchnoi tefla nú tíu skáka ein-
vígi í Sankti Pétursborg. Einvíg-
ið er haldið í tilefni af 275 ára af-
mæli háskólans sem kenndur er
við borgina. Hvor keppandi fær
eina klukkustund fyrir skákina
og tefldar era tvær skákir á dag.
Þegar fjóram skákum er lok-
ið er staðan jöfn, 2-2. Spassky
vann fyrstu skákina, en
Korchnoi aðra og þriðju.
Spassky náði síðan að jafna
leikinn í fjórðu skákinni.
Ekki er teflt í dag, 30. mars,
en einvíginu lýkur 1. apríl.
Áslaug Kristinsdóttir
kvennameistari Reykjavíkur
Keppni í kvennaflokki á Skák-
þingi Reykjavíkur 1999 er lokið.
Kvennaskákmeistari Reykjavík-
ur 1999 varð Aslaug Kristins-
dóttir, en hún sigraði Aldísi Rún
Lárasdóttur U/2 - /2 í einvígi um
fyrsta sætið. Þær hlutu báðar
3!4 vinning af 4 mögulegum. I
þriðja sæti varð Ingibjörg Edda
Birgisdóttir með 2 vinninga og
Harpa Ingólfsdóttir fjórða með
1 vinning. Skákstjóri var Ólafur
H. Ólafsson.
Páskamót TR
Páskamót TR verður haldið
I. apríl og hefst það kl. 16. Rétt
til þátttöku eiga öll börn og
unglingar 14 ára og yngri.
Tefldar verða sjö umferðir sam-
kvæmt Monrad-kerfi með 10
mínútna umhugsunartíma. I
verðlaun eru páskaegg fyrir
þrjú efstu sætin, en auk þess
verður eitt páskaegg dregið út
af handahófi. Mótið fer fram í
félagsheimili Taflfélags Reykja-
víkur, Faxafeni 12.
Daði Örn Jónsson
Hannes Hlífar Stefánsson
Friðrik
Ólafsson
Guðmundur
Sigui'jónsson
HATIÐLEGUR
í BRAGÐI
lPegair íslenski osturinn er kominn á ostabakkann,
þegar kann kórónar matargerðina — brœddur eða djúpsteiktur
— eða er einfaldlega settur beint x munninn — þá er hátíð!
ÍSLENSKIR
OSTAR,
v
www.ostur.is
HVlTA HÚSIO / SlA