Morgunblaðið - 30.03.1999, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. MARZ 1999 29
ÁRÁS NATÓ Á JÚGÓSLAVÍU
NATO-herinn missir sína fyrstu flugvél
í árásunum á Júgóslavíu
Flugmaðurinn
sóttur inn á yfír-
ráðasvæði Serba
BJORGUN FLUGMANNS STEALTH-ÞOTUNNAR
Talið er að nokkrar sérþjálfaðar sveitir björgunarmanna séu í viðbragðsstöðu til að fara í leiðangra inn á
júgóslavneskt yfirráðasvæði til að bjarga flugmönnum úr flugvélum sem Serbar kunna að skjóta niður.
BJORGUNARFERLIÐ
Allt að 40 flugvélar
koma við sögu til
stuðnings
björgunaraðgerð
AWACS-vél, sem er
fljúgandi fjarskiptastöð,
nemur boð frá neyðar-
sendi flugmannsins og
beinir björgunarsveit-
inni til hans
Orrustuþotur eru til varnar og
trufla fjarskipti óvinarins
BJÖRGUNARVESTI
BANDARÍSKS
HERFLUGMANNS
Flugmenn eru
þjálfaðir í að finna
sér felustað og
komu björgunar-
flugvéla
Áttaviti
Neyðar- /
sendir /.
Neyðar-
sendir
Arásarþyrlur tryggja
öryggi björgunarvettvangs Ta|stöð
Stórar þungvopnaðar
herþyrlur lenda og út úr þeim
stökkva sérsveitir
Sérsveitirnar dreifa sér
og tryggja athafnasvæðið,
finna flugmanninn sem hrapaði
og snúa aftur til þyrlunnar
r\
Annar búnaður
Ljósmerkjasendir
Neyðarblys
Vatnsbnlsi
Færi
Spegill til merkjagjafar
Eldfæri
Skotfæri
Vasaljós ;iS
Source: U.S. Military Combat Aircrew individual Survival Equipment, Breuninger
BJÖRGUNIN
Lundúnum. Daily Telegraph, Reuters.
F-117 Stealth-þota bandaríska
flughersins sem var í árásarleið-
angri yfir Júgóslavíu hrapaði um 50
km norðvestur af Belgrad á laugar-
dagskvöld. Flugmaðurinn, sem
varpaði sér út í fallhlíf, komst hjá
því að lenda í höndum Serba og var
bjargað upp í þyrlu af sérþjálfaðri
sveit bandarískra landgönguliða.
Flugmaðurinn, sem talinn er vera
Ken „Wiz“ Dwelle höfuðsmaður, er
einn örfárra orrustuflugmanna sem
hefur verið bjargað eftir að hafa
hrapað á óvinasvæði. Áhöfnum her-
flugflota NATO varð rórra er fregn-
ir bárust af giftusamlegri björgun
flugmannsins, sem fór fram undir
erfiðum kringumstæðum í myrkri
inni á miðju yfirráðasvæði Serba á
sama tíma og spenna var í hámarki
á fjórða degi loftárása NATO.
Serbar segjast hafa
skotið þotuna niður
Dwelle var á flugi yfir Serbíu um
kl. 19:45 á laugardagskvöld á F-117
„Nighthawk“-þotu, sem líkist leður-
blöku í laginu og á að vera erfitt að
greina á radar, þegar félagi hans
sem flaug við hlið hans á annarri eins
flugvél, sá sprengingu í vél Dwelles
sem byrjaði að hrapa. Serbar segjast
hafa skotið vélina niður, en talsmenn
bandaríska vamarmálaráðuneytisins
vildu í fyrstu ekki kveða opinberlega
upp úr hvað hefði grandað vélinni,
bilun eða loftvarnir Serba. Þó var
haft eftir ónafngreindum heimildar-
manni hjá NATO í gær að Serbar
hefðu sannarlega gi-andað vélinni.
Flugmenn beggja Stealth-vélanna
voru í gær og fyrradag yfirheyrðir
um hvað gerðist í NATO-herstöðinni
í Aviano á NA-Ítalíu.
Þetta var í fyrsta sinn sem flug-
vél af þessari gerð fórst í hernaði.
Hún kostar yfir þrjá milljarða
króna í framleiðslu.
Ekkert til sparað
Flugmanninum tókst að varpa
sér út er vélin var enn í mikilli hæð
og gekk síðan í gegn um þraut-
skipulagt björgunarferli. Hann
lenti skammt frá þorpinu Budja-
novci, á landbúnaðarsvæði um 50
km norðvestur af Belgrad. Ekki
hefur verið skýrt frá því opinber-
lega hvernig björgunin fór fram í
einstökum atriðum, en frétzt hefur
að aðgerðin tók í heild um sex
klukkustundir. Hermálafræðingar,
sem Reuters-fréttastofan vitnar tíl,
segja tugi flugvéla, sérútbúinna
þyrla og nýjustu fjarskiptatækni
hafa komið við sögu.
Sú staðreynd, að um var að ræða
eina háþróuðustu herþotu heimsins
gerði að verkum að ekkert var til
sparað að finna flugmanninn.
Þjálfunin ein, sem hver flugmaður
þessara véla hefur á bak við sig, er
sögð kosta nærri 300 milljónum
króna.
Paul Beaver, hermálasérfræð-
ingur á tímaritinu Jane’s Defence
Weekly, segir víst að innan fáeinna
mínútna hafi aðrar NATO-vélar
verið komnar á vettvang og aðgerð-
ir verið samhæfðar úr AWACS-vél,
sem er fljúgandi fjarskiptastöð.
Flugmaðurinn hafí verið í sam-
bandi við AWACS-vélina og úr
henni hafi björgunarmönnum verið
vísjið á felustað hans.
I gær var upplýst í Aviano-her-
stöðinni að þyrlur og A-10-flugvél-
ar, sem eru sérútbúnar til að
granda skriðdrekum, hefðu verið í
björgunarleiðangrinum og hann
hefði verið gerður út frá Aviano.
ítalska fréttastofan ANSA hafði
eftir heimildamönnum í bandaríska
varnannálaráðuneytinu að flugmað-
urinn hefði látið vita með fjarskipta-
búnaði að hann væri heill á húfi, en
þyrfti að halda sig í felum þar sem
hann hefði heyrt í serbneskum her-
mönnum í nágrenninu. Leitin að
honum tók, að sögn ANSA, um þrjá
tíma en aðeins um 15 mínútur að
fiska manninn um borð.
Þar sem flugmaðurinn hafði ekki
tíma til að háfa með sér „svörtu
kassaná', flugritana, úr stjórnklefa
vélarinnar er talið líklegt að
NATO-þotur hafí varpað sprengj-
um á flakið til að tryggja að stjórn-
klefinn eyðilegðist örugglega og
þessar upplýsingar lentu ekki í
höndum Serba.
Þrátt fyrir þetta atvik héldu
Stealth-þotur áfram árásarleið-
öngrum yfir Júgóslavíu frá Aviano í
gær, eins og ekkert hefði í skorizt.
VINSTRIHREYFINGIN
grænt framboð
VINSTRTHREYFTNGIN - GRÆNT FRAMBOÐ OPNAR
HETMASTÐU Á NETTNU LAUGARDAGTNN 3. APRÍL
OG ER SLÓÐTN WWW.Vg.ÍS.
Eins og nafnið gefurtil kynna
leggur Vinstrihreyfingin - grænt
framboð höfuðáherslu á
umhverfisvernd og vinstristefnu,
jöfnuð og félagslegt réttlæti.
Stefnuyfirlýsing hreyfingarinnar
sem samþykkt var á stofnfundi í
febrúarsíðastliðnum erkomin út.
Einnig hefurverið gengið frá
ítarlegri málefnahandbók. Bæði
ritin liggja frammi á kosninga-
skrifstofum og verða aðgengileg
á heimasíðunni.
Við hvetjum kjósendur til að kynna
sér áherslur okkar, líta við á
kosningaskrifstofum eða á
heimasíðunni, www.vg.is.
KOSNTNG ASKRTFSTOJFUR HAFA
ÞEGAR VERTÐ OPNAÐAR Á
EFTTRTÖLDUM STÖÐUM:
Reykjavík: Suðurgötu 7. Sími: 552-8872.
Netfang-. vg@vg.is
Akureyri: Hafnarstræti 82. Sími 462-3463
Egilsstöðum: Kaupvangi 6. Sími 471-2320 og 471-2327
Hafnarfirði: Fjarðargötu 11
Borgarnesi: Borgarbraut 2
Vinstrihreyfingin - grænt
framboð vekur athygli
kjósenda á því að
listabókstafur flokksins við
alþingiskosningarnar 8.
maí næstkomandi er U.
Gengið hefurverið frá
framboðslistum í öllum
kjördæmum landsins.