Morgunblaðið - 30.03.1999, Blaðsíða 71

Morgunblaðið - 30.03.1999, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐ JUDAGUR 30. MARZ 1999 71 FÓLK í FRÉTTUM Morgunblaðið/Jón Svavarsson Á FRUMSÝNINGU Ástu Sóllilju - Lífsblómsins, síðari hluta Sjálfstæðs fólks, var Herdfs heiðruð vegna starfsafmælisins. HERDÍS sem Snæfríður íslandssól árið 1950. Starfsafmæli Herdísar Þorvaldsdóttur HERDÍS hélt til Lundúna árið 1945 þar sem hún stundaði léiklistamám við Royal Academy of Dramatic Art en áður hafði hún sótt tíma í leiklist hjá Lárusi Pálssyni og Hai'aldi Bjömssyni og leikið nokkui- hlutverk hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Hún skrifaði undir samning við Þjóðleikhúsið haustið 1949 og hefur síðan þá leikið yfir 120 hlutverk innan veggja þess sem utan. „Mitt fyrsta hlutverk var Snæfríð- ur íslandssól í íslandsklukkunni sem frumsýnd var 20. apríl 1950. Við vor- um sextán leikarar sem vomm fasL ráðnir í upphafi en aðeins ég og Ró- bert Amfinnsson emm á lífi af þeim hópi. Þá vomm við yngst en nú emm við elst. En það vom auðvitað margir á B- og C-samningi sem tóku þátt í opnunarsýningunum. -Hefui' eitthvað breyst í leikhús- inu á þessum tíma? Á fj ölunum í fimmtíu ár Herdís Þorvaldsdóttir á að baki glæstan leikferil og er án efa ein af ástsælustu ---------------7------------- leikkonum okkar Islendinga. Hún rifjaði upp árin í Þjóðleikhúsinu með Sunnu Osk Logadóttur en þar hefur hún starfað í hálfa öld. „A fyrstu árum leikhússins voru þar margir svokallaðir „amatörar“, fólk sem fékk þjálfun eingöngu í gegnum það að leika og margir þeirra náðu samt frábæmm árangri. í dag er þama þrautþjálfað fólk og vel menntað og það hlýtur að skila sér í leikhússtarfinu. Snæfríður og Maggí minnisstæðustu hlutverkin - Þegar þú lítur til baka, hvað er eftirminnilegast? „Ætli það sé ekki opnunin sem er mér minnisstæðust og svo hlutverk Snæfríðai' sem var fyrsta stóra hlut- verkið mitt. En það em mörg hlut- verk sem ég hafði mikla ánægju af. Sérstaklega eitt sem ég vildi ekki leika, því mér fannst ég ekki passa í hlutverkið. Það var Maggí í leikriti Arthurs Millers, Eftii' syndafallið, en það var talað um það bak við tjöldin að það væri um líf hans og Marilyn Monroe. Ég lét þó til leiðast og ég verð að segja að ég hef aldrei verið eins hamingjusöm á ævinni eins og eftir írumsýninguna þegar ég fann að mér hafði gengið vel.“ - Þú hefur faríð í margar leikferðir tneð leikhúsinu. „Já, bæði innanlands og til útlanda. Á fyrstu áram leikhússins fórum við til hinna Norðurlandaþjóðanna með sýningar. Síðar, árið 1975, var farið í leikferð til Bandaríkjanna, alla leið fi’á Kanada og þvert yfu’ Bandaríkin. Við heimsóttum íslendingabyggðir og lékum fyrir fólk sem skildi eða talaði íslensku. Fyrir nokkrum árum á afmæli Reykjavíkur útbjó svo Auður Bjamadóttir dansprógramm samið fyrir unga konu og eldri sem hún vildi fá mig í og við fóram með það á Reykj avíkurhátíð í Þýska- landi. Ég hafði ofsalega gaman af því, vegna þess að mig hafði alltaf langað tU að dansa og það rættist loks á gamalsaldri Síðast fór ég í leikferð þegar við Gunnar Eyjólfsson fórum með Ástarbréfin til Láxem- ► EFTIR syndafallið var sýnt árið 1964 og þar fór Herdís með hlutverk Maggíar sem minnir óneitanlega á hina dáðu leikkonu Marilyn Monroe. borgar og lékum fyrir íslendinga þar. Svo þú sérð að það hefur ýmislegt verið brallað,“ sagði Herdís kankvís á svip en verður svo alvarleg og heldur áfram. „Fyrir þremur áram hélt ég að ég væri hætt að leika. Ég var alveg sátt við það og leit svo á að þama væri kafla í lífi mínu lokið og að annar tæki við enda nóg að gera. Verk Laxness heilluðu En fyrii' ári hringdi Magnús Geir í mig fi-á Iðnó en það átti að opna leik- húsið á ný með Laxness-dagskrá og hann bauð mér að vera með. Mér fannst spennandi tilhugsun að standa aftur á sviðinu í Iðnó, ég gerði það og hafði gaman af. í haust fór ég í heims- reisu og þegar ég var stödd í Ríó kom skeyti frá Þjóðleikhúsinu. í því óskaði Stefán Baldursson [Þjóðleikhússtjóri] eftir því að ég yrði með í þessari sýn- ingu [Sjálfstæðu fólki] og mér fannst verkefnið það spennandi að ég tók því strax og hef ekki séð eftir því. Sér- staklega ekki með þennan frábæra leikstjóra sem Kjartan Ragnarsson er. Hann er hugmyndaríkur og opinn og skemmtilegt andrúmsloft í kring- um hann.“ - Afhverju hélstu að þú værír hætt að leika? „Ég var búin á samning. Auk þess hafði leikhúsið nóg af eldri leikkon- um. Annai-s hef ég unnið næstum óslitið við leikhúsið í næstum fimmtíu ár.“ Glœsilegri gjafavörur finnast varla G a 11 é r í Usthúsinu í Laugardal Engiateigi 17-18 « Síml/Fax: 553 2886 Áhugi á landvemd - Hvað á hug þinn utan leikhúss- ins? „Á síðari áram hef ég verið að berjast við að vekja athygli á gróð- ureyðingu í landinu því ég hef satt að segja miklar áhyggjur af henni. Ég álít að orsökin sé lausabeit bú- fjár. Það þýðir afskaplega lítið að vera að kasta milljónum til upp- græðslu á smáblettum á meðan búfé er á lausagöngu og við höfum hvergi undan uppblæstrinum. Hvar endar það? Þróunarheimspeki er einnig mikið áhugamál hjá mér en hún gengur út á leit okkar að svörum við spurning- um um lífið og tilverana, tilganginn og sköpun heims og manns. Svo ég hef nóg að gera og á sem betur fer mörg_ áhugamál.“ - Attu þér uppáhaldsleikverk? „Nú segi ég eins og margir leikar- ar hafa sagt, að það verk sem maður er í hverju sinni á hug manns allan.“ -En höfund? „Ég held alltaf mikið upp á Lax- ness. Það er búið að setja íslands- klukkuna þrisvar sinnum upp á þessum fimmtíu árum, en mér finnst að það hefði mátt geyma hana og setja upp á fimmtíu ára afmæli leik- hússins og þá í tvennu lagi eins og Sjálfstætt fólk.“ - Viltu segja eitthvað að lokum? „Já, ég á þá ósk fyrir hönd Þjóð- leikhússins að þeir sem þai’ starfa megi bera gæfu til þess að hafa alltaf það besta á boðstólum, bæði af íslenskri og erlendri leiklist og að Þjóðleikhúsið megi ætíð vera fremst meðal jafningja.“ VAKORT Eftirlýst kort nr.: 4539-8700-0003-2001 4539-8700-0003-2019 4539-8100-0003-9374 4539-8100-0003-8897 4543-3700-0022-1781 4543-3700-0027-9888 4543-3700-0024-0435 4507-4300-0022-4237 4507-4500-0026-7523 Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið ofangreind kort úr umferð og sendið VISA islandi sundurklippt. VERÐLAUN kr. 5000 fyrir að klófesta kort og visa á vágest VISA ISLAND Álfabakka 16, 109 Reykjavik. Sími 525 2000. ^....... ............... ! wMnU' Blóm og servíettur Esteban ilmvörur G jafavö ru r Ingólfsstræti 5 S. >51 5080
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.