Morgunblaðið - 30.03.1999, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 30.03.1999, Qupperneq 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 30. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ LANDSBYGGÐIN Gjaldstofn fasteigna á landsbyggðinni sá sami og í Reykjavík þótt markaðsvirðið sé lágt Grafa undan sjálfum sér Eigendur íbúðarhúsnæðis og almenns at- vinnuhúsnæðis á landsbyggðinni þurfa að greiða fasteignaskatta af eignum sínum eins og þær væru staðsettar í Reykjavík þótt markaðsvirði þeirra sé kannski ekki nema brot af Reykjavíkurverði. Fram kemur í grein Helga Bjarnasonar að sumir 7 telja þetta óréttlæti sem ekki standist. A sama tíma hefur dregið úr lánveitingum banka og lánastofnana út á fasteignir fólks og fyrirtækja á landsbyggðinni, meðal ann- ars vegna ótta við að veðin verði verðlaus. «íítiímfOT FASTEIGNASKATTUR húsa á landsbyggðinni er reiknaður eins og þau væru í Reykjavík, óháð verðmæti. SVEITARFÉLÖGIN á landsbyggð- inni innheimta fasteignaskatta af íbúðarhúsnæði og ýmsum eignum sem notaðar eru til atvinnurekstrar miðað við sérstakan álagningarstofn sem tekur mið af fasteignamati í Reykjavík en ekki fasteignamati og þar með markaðsverði á viðkomandi y stað. Munurinn getur verið marg- faldur og hefur verið að aukast vegna hækkunar fasteignamats á höfuðborgarsvæðinu og lækkunar matsins í minni byggðum 7úti um landið. Ahugamenn um málið hafa vakið athygli á því á búnaðarþingi, landsfundi Sjálfstæðisflokksins, að- alfundi Samtaka ferðaþjónustunnar og víðar og Vinnuveitendasamband Islands vinnur nú að athugun á því. Kemur það til umræðu við endur- skoðun laga um tekjustofna sveitar- félaga. Þegar ný lög um tekjustofna sveit- arfélaga tóku gildi fyrir tæpum ára- tug var ákveðið að jafna álagningar- stofn til fasteignaskatts á landinu öllu. Var það gert með því að búa til sérstakan álagningarstofn sem byggist á fasteignamati í Reykjavík og skiptir þá engu máli hvers virði fasteignin er á viðkomandi stað. Fasteignaverð og þar með fasteigna- mat hafði þróast með mismunandi hætti og þar með möguleikar sveit- arfélaga til að hafa tekjur af inn- heimtu fasteignaskatts. Lögunum var breytt að kröfu sveitarfélaga á landsbyggðinni. Þórður Skúlason, framkvæmdastjóri Sambands ís- lenskra sveitarfélaga, segir að tekjur sveitarfélaganna hafi verið mjög misjafnar og umrætt ákvæði hafi verið sett inn í þeim tilgangi að jafna möguleika þeirra. Grefur undan atvinnurekstri Vinnuveitendasamband íslands varaði við breytingunni á sínum tíma og segist Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri sambandsins, hafa notað þau orð að verið væri að færa fjósin inn á Laugaveg. „Nú er þetta farið að bíta með vaxandi þunga því munur á fasteignamati fer vaxandi en verðmæti eignanna er ekkert meira en matið segir til um. Með því að leggja skatt á allt annað verð eru sveitarfélögin að grafa und- an atvinnurekstri á landsbyggðinni,“ segir Þórarinn. Hann rökstyður skoðun sína með því að segja að landsbyggðin eigi undir högg að sækja og fyrirtækin þurfi á að halda allri þeini sérstöðu sem landsbyggð- in býr yfir, þar á meðal ódýrari fast- eignum fyrir reksturinn. Ef hins vegar eignirnar eru skattlagðar eins og á eftirsóttasta stað landsins hljóti menn að velta því fyrir sér af hverju fyrirtækin séu ekki sett upp þar. „Þessi afstaða sveitarstjómanna lýs- ir hættulegri sjálfseyðingarhvöt og sýnir að þær hafa lítinn skilning á því að þeirra svæði eru í samkeppni við önnur um fólk og fyrirtæki," seg- ir Þórarinn. Formaður Félags ferðaþjónustu- bænda hefur beitt sér í málinu vegna þess að félagar í hans samtökum hafa orðið fyrir barðinu á þessari uppreiknireglu í auknum mæli. Víð- ast hvar var litið á gistihús og veit- ingasali á lögbýlum sem landbúnað- arbyggingar en útihús í sveitum eru undanþegin ákvæðum tekjustofna- laga um hækkun álagningarstofns til samræmis við fasteignamat í Reykjavík. Við sameiningu sveitarfé- laga þar sem sveitarhreppar samein- ast þéttbýlisstöðum hefur samræm- ing álagningar fasteignagjalda víða leitt til þess að eignir sem notaðar era við ferðaþjónustu hafa verið flokkaðar með almennum eignum til atvinnurekstar og álagningarstofn- inn þá verið reiknaður upp og skatt- prósentan auk þess hækkuð. Heimilt er að leggja allt að hálfs prósents fasteignaskatt á íbúðarhúsnæði, sumarbústaði, jarðir og útihús og mannvirki á bújörðum sem tengd era landbúnaði en 1,32% á aðrar eignii- og 25% álag að auki á báða fiokka. Yfirvöld og dómstólar hafa krafist samræmingar í þessa átt. Agúst Sigurðsson á Geitaskarði, formaður Félags ferðaþjónustu- bænda, segir að tilvik af þessu tagi séu enn fá en þeim fari fjölgandi. Dæmi séu um að fasteignagjöld hafi hækkað tvö- eða þrefalt milli ára hjá ferðaþjónustufyrirtækjum þótt byggingar hafi ekki stækkað. Telur Agúst að vafi leiki á um lögmæti skattlagningar af þessu tagi, þar sem gjaldstofninn sé ekki í samræmi við það verð sem menn geti fengið fyrir eignina. Þjónustugjald eða skattur? Vafi virðist leika á um túlkun á eðli fasteignaskatts, hvort hann sé almennur skattur í sveitarsjóð eða gjald fyrir ákveðna þjónustu sem sveitarfélagið veitir. Húnbogi Þor- steinsson, skrifstofustjóri í félags- málaráðuneytinu, segir að litið hafi verið á fasteignaskattinn sem gjald fyrir tiltekna þjónustu sveitarfélags- ins. Það virðast hafa verið rökin fyrir því að ákveðið var að jafna tekju- möguleika sveitarfélaganna því þjón- ustan sem sveitarfélögin þm-fi að veita eigendum fasteignanna sé óháð fasteignamati. Húnbogi nefnir hreinsun á götum, holræsi og viðhald þeirra, brunavarnir og fleira. Þórður Skúlason, framkvæmdastjóri Sam- bands íslenskra sveitarfélaga, er á annarri skoðun. Telur að íbúarnir geti ekki gert kröfu um tiltekna þjónustu fyi-ir fasteignaskattinn. Lögð séu á sérstök gjöld til að standa undir rekstri til dæmis hol- ræsa og vatnsveitna. Ef litið er á fasteignaskattinn sem þjónustugjald verður að gera þá kröfu til sveitarfélaganna að þau geri grein fyrir því að gjaldið sé í sam- ræmi við þá þjónustu sem einstak- lingurinn nýtur. Sú regla er orðin viðurkennd að þjónustugjöld mega ekki vera hærri en nemur kostnaðin- um við þjónustuna. I tilvikum ferða- þjónustufyrirtækja í sveit virðist erfitt að færa rök fyrir því að eigend- ur fasteignanna hafi fengið aukna þjónustu við hækkun fasteigna- skattsins. Þeir eiga sínar eigin vatns- veitur og fráveitur og reka þær, sjá um lýsingu og hreinsun vega og svo framvegis. Brunavarnir er eina þjón- ustan sem í fljótu bragði má fullyrða að þeir njóti út á fasteignaskattinn. Agúst Sigurðsson segir að ef ekki takist að hnekkja þessari skattlagn- ingu á ferðaþjónustuna hljóti eigend- ur fyrirtækjanna að krefjast sömu þjónustu og þau fyrirtæki sem starfa í bæjum og þorpum. Meðal annars að sveitarfélagið leysi til sín fráveit- ur og vatnsveitur og reki þær. Hún- bogi vekur athygli á því að með sam- einingu sveitarfélaga aukist sú þjón- usta sem sveitarfélögin veita í sveit- unum. Skilaboð um að ekki eigi að fjárfesta úti á Iandi Þótt ferðaþjónustan hafi orðið sér- staklega fyrir barðinu á umræddum ákvæðum telgustofnalaga sveitarfé- laga telur Agúst að aðrar atvinnu- greinar muni einnig finna fyrir þeim því tekjur sveitarfélaganna dugi ekki fyrir útgjöldum þeirra. Segir hann að sveitarfélögunum veiti ekki af tekjunum en finna verði aðra leið til að jafna tekjur þeiiTa. „Þetta eru bein skilaboð um að fólk sem býr úti á landi eigi ekki að fjárfesta á lands- byggðinni," segir Agúst Sigurðsson. Þórarinn V. Þórai'insson viður- kennh' rekstrai-ei'fiðleika sveitarfé- laganna en segir að þeir stafi af því að fjöldi sveitarstjórna hafi ekki sýnt nægilega ábyrgð í fjármálum. Samkvæmt upplýsingum Hún- boga Þorsteinssonar er vinna við endurskoðun laga um tekjustofna sveitarfélaga að hefjast. Sveitarfé- lögin telja að ríkið hafi bætt á þau verkefnum án þess að samsvarandi tekjur hafi fylgt. Telur hann að nefndin sem vinnur verkið muni taka til athugunar þau sjónarmið sem Fasteignaskatturinn hækkað um 165% frá 1997 Hætta við að stækka FASTEIGNASKATTUR Höfða- brekku í Mýrdal þar sem rekin er ferðaþjónusta hefur hækkað um 165% frá árinu 1997, án þess að byggingar hafi stækkað eða bæst við. Eigendur fyrirtækisins hafa fallið frá áformum um stækkun vegna þessa og segja skynsam- legra að fjárfesta þar sem skatt- lagning sé í samræmi við verð- mæti eignanna. Fasteignaskattur Höfðabrekku var 252 þúsund á árinu 1997 en er tæp 670 þúsund á yfirstand- andi ári. Við skattinn bætist sorphirðugjald, um 60 þúsund kr., og hefur það lækkað heldur á þessu timabili. Hækkun fast- eignagjaldanna stafar af því að ferðaþjónustuhluti jarðarinnar, það er að segja gistihús og veit- ingahús, hafa verið flutt úr A- gjaldflokki í B-fiokk. í A-flokki eru íbúðarhús, sumarhús og - ~-f* mannvirki sem nýtt eru til Iand- búnaðar. Jóhannes Kristjánsson og Sólveig Sigurðardóttir hættu hefðbundnum búskap fyrir nokkrum árum og sneru sér al- farið að þjónustu við ferðafólk. Við það að eignir flyljast úr A- flokki í B-flokk þrefaldast fast- eignaskatturinn auk þess sem skatturinn er lagður á eignirnar miðað við fasteignamat sambæri- legra eigna í Reykjavík. Fast- eignamat ferðaþjónustuhluta jarðarinnar er tæpar 17 milljón- ir, og á það að vera nálægt mark- aðsverði eignanna, en álagning- arstofninn er reiknaður upp í tæpar 50 milljónir kr. í samræmi við hótel í Reykjavík. Jóhannes nefnir fleiri dæmi um sláandi mun á því að fjárfesta í Reykjavík og úti á landi. Þau hjónin keyptu sér hús í Vík á 1,8 milljón kr. Ibúðin er 76 fermetrar auk 38 fermetra í kjallara sem ekki er með fullri lofthæð. Húsið er metið í fasteignamati á 2,8 milljónir en álagningarstofn hennar til fasteignaskatts er lið- lega 5,7 milljónir kr. Álagningar- stofninn er því meira en þrisvar sinnum hærri en markaðsverð eignarinnar. Þau hafa einnig ný- lega keypt sér 105 fermetra blokkaríbúð í Reykjavík. Fast- eignamat íbúðarinnar er tæplega 6,8 milljónir kr., svipað og nemur kaupverðinu, og fasteignaskattur er greiddur af þessu sama mati. Þessu til viðbótar nefnir Jóhannes að samkvæmt veðsetningarregl- um bankanna geti hann fengið 4,5 til 5 milljóna kr. lán út á íbúðina í Reykjavík en í hæsta lagi 1 til 1,2 milljón út á íbúðina í Vík þótt munur á mati þeirra til fasteigna- skatts sé tiltölulega lítill. „Eg get ekki sætt mig við það að þurfa að greiða fasteignaskatt af húsnæði sem ég get selt á 40 þúsund kr. fermetrinn eins og það væri 100 þúsund króna virði. Þetta eru bein skilaboð um að ef ég á peninga þá á ég að ljárfesta JÓHANNES Kristjánsson á Höfðabrekku. þar sem verðmæti húsnæðisins stendur undir gjaldstofninum," segir Jóhannes og segist hafa hætt við að stækka veitingasal- inn af þessum ástæðum. Hann segist ekki hafa fengið aukna þjónustu við hækkun fast- eignagjaldanna. Hann á eigin vatnsveitu og fráveitu og þarf sjálfur að bera kostnað við við- hald þeirra. Hann annast siyó- moksturinn sjálfur og Iýsingu við bæinn. „Ég lít þannig á að fast- eignaskattur af íbúðarhúsnæði mínu eigi að duga til að standa undir þeirri þjónustu sem ég og fjölskylda mín fáum hjá sveitar- félaginu en ekki eigi að skatt- leggja eignirnar á margföldu markaðsverði til að standa undir almennum rekstri,“ segir Jó- hannes.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.