Morgunblaðið - 30.03.1999, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 30.03.1999, Qupperneq 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 30. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Alþingiskosn- ingarnar 8. maí Listi Sam- fylkingar í Reykjavík ákveðinn SAMNINGANEFND Alþýðu- bandalags, Alþýðuflokks og Sam- taka um Kvennalista í Reykjavík hafa birt framboðslista Samfylk- ingarinnar í Reykjavík við Alþing- iskosningarnar 8. maí nk. Listann skipa: 1. Jóhanna Sigurðardóttir, al- þingismaður, 2. Ossur Skarphéð- insson, alþingismaður, 3. Bryndís Hlöðversdóttir, alþingismaður, 4. Guðrún Ögmundsdóttir, félagsráð- gjafí, 5. Asta Ragnheiður Jóhann- esdóttir, alþingismaður, 6. Mörður Árnason, íslenskufræðingur, 7. Árni Þór Sigurðsson, hagfræðing- ur, 8. Guðný Guðbjörnsdóttir, al- þingismaður, 9. Jakob Frímann Magnússon, tónlistarmaður, 10. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, nemi, 11. Heimir Már Pétursson, blaða- maður, 12. Stefán Benediktsson, 13. Hulda Ólafsdóttir, sjúkraþjálf- ari, 14. Guðrún Sigurjónsdóttir, sjúkraþjálfari, 15. Magnús Arni Magnússon, alþingismaður, 16. Bi-ynja Baldursdóttir, nemi, 17. Vignir Halldórsson, iðnnemi, 18. Katrín Kaaber, starfsmaður á leik- skóla, 19. Sigurður Hólm, háskóla- nemi, 20. Þórunn Sveinbjömsdótt- ir, varaformaður Eflingar, 21. Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, 22. Páll Halldórsson, jarðeðlisfræð- ingur, 23. Gísli Helgason, fulltrúi, 24. Margi'ét Pálmadóttir, söng- stjóri, 25. Tryggvi Þórhallsson, raf- verktaki, 26. Steinunn Ólína Þor- steinsdóttir, leikari, 27. Borgþór Kæmested, fulltrúi, 28. Haraldur Finnsson, skólastjóri, 29. Sigríður Auðunsdóttir, framkvæmdastjóri, 30. Bragi Skúlason, sjúki’ahús- prestur, 31. Sigþrúður Gunnars- dóttir, bókmenntafræðingur, 32. Pétur Jónsson, viðskiptafræðingur, 33. Elísabet Þorgeirsdóttir, rit- stjóri, 34. Margrét H. Sigurðar- dóttir, varaformaður Félags eldri borgara, 35. Atli Heimir Sveinsson, tónskáld, 36. Adda Bára Sigfús- dóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi, 37. Guðrún Halldórsdóttir, skóla- stjóri og fyrrverandi alþingismað- ur, og 38. Gylfí Þ. Gíslason fyrrver- andi ráðherra. ------------ Framboðslisti Kristilega lýðræðis- flokksins KRISTILEGI lýðfræðisflokkurinn hefur ákveðið framboðslista í Reykjavíkurkjördæmi við alþingis- kosningarnar 8. maí n.k. Eftirfarandi em í framboði: 1. Guðmundur Örn Ragnarsson, prestur í 2. Árni Bjöm Guðjónsson, húsgagnasmíðameistari, 3. Einar Friðberg Hjartarson, múrara- meistari, 4. Herdís Tryggvadóttir, húsmóðir, 5. Páll Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri, 6. Bima Einarsdótt- ir, leikskólakennari, 7. Leifur E. Núpdal, sölufulltrúi, 8. Þóra Sigríð- ur Jónsdóttir, kennaranemi, 9. Birgir Sævar Pétursson, trésmið- ur, 10. Ólöf L Einarsdóttir, gi-asa- læknir, 11. Ólafur Öm Jónsson, verkamaður, 12. Jóhannes Ásgeir Eiríksson, tæknimaður, 13. Krist- ján Páll Amarsson, sölumaður, 14. Elsa Þorvaldsdóttir, húsmóðir og 15. Sigurgeir H. Bjamason, prent- ari. Heilbrigðisráðuneytið birtir auglýsingu um rekstrarleyfí gagnagrunnsins Morgunblaðið/Ásdís GUÐMUNDUR Magnússon, forstöðumaður Þjóðmenningarhússins, afhenti Davíð Oddssyni forsætisráðherra fyrsta eintak kynningarbæklings um starfsemi hússins. Hjá þeim stendur Salome Þorkelsdóttir formaður hússtjórnar Þjóðmenningarhússins. Þjóðmenningarhúsið opnað 20. aprfl á næsta ári Ætlað að kynna íslenska sögu og menningararf DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra tók í gær við fyrsta kynningarbæk- lingi um nýtt Þjóðmenningarhús og opnaði jafnframt vefsíðu húss- ins við athöfn í gamla lestrarsal þess. Þjóðmenningarhúsið er nýtt nafn á Safhahúsinu við Hverfis- götu. Guðmundur Magnússon, sagnfræðingur og forstöðumaður hússins, og Salome Þorkelsdóttir, formaður hússtjórnar, kynntu til- vonandi starfsemi hússins, sem verður opnað á ný hinn 20. apríl árið 2000, eftír gagngerar endur- bætur. Öll starfsemi í húsinu tekur mið af friðun þess, sem á við bæði utandyra sem innan, og listrænu og sögulegu verðmætí hússins. Ali- ar breytingar em gerðar í samráði við húsafriðunamefnd, enda spannar saga þess yfir 90 ár. Húsið verður samt sem áður aðlagað að umferð gesta og öryggis þeirra. Lyfta verður sett í húsið tíl að ti-yggja aðgengi fyrir alla og tölvur og skjáir verða áberandi í sýning- arsölum, enda er húsinu ætlað að kynna sögu þjóðarinnar og menn- ingararf á lifandi hátt. Á fyrstu hæð hússins verður veitingastofa og verslun þar sem seldar verða bækur, listmunir og minjagripir en húsinu er ætlað að höfða til Islend- inga jafnt sem erlendra ferða- manna. Sýningar um landafundi og áhrif kristni í húsinu verða bæði fastar og breytilegar menningarsögulegar sýningar auk þess sem salir og stof- ur verða leigðar út og lánuð tíl op- inberra athafna, funda, fyrirlestra og listviðburða. Við opnun hússins hiim 20. apríl árið 2000 verður opn- uð sýning um siglingar og landa- fundi Islendinga á miðöldum, með áherslu á landnám á Grænlandi og fund Vínlands. Er sýningin sam- starfsverkefni Þjóðmenningarhúss og Landafundanefndar. 17. júm árið 2000 verður svo opn- uð sýning um áhrif kristni á ís- lenskt þjóðlíf í þúsund ár. Að henni standa Þjóðslgalasafn Islands, Kristnihátíðamefnd auk Þjóðmemi- ingarhússins. Einnig verður sýning til langs tíma um íslenska bóka- gerð, bókmenntír, skáld og fræði- menn þjóðarinnar. Þá verða sýn- ingar á íslenskum gjaldmiðli og öðrum ríkistáknum, auk þess sem gjörðabók þjóðfundarins 1851 verð- ur tíl sýnis í húsinu. Á vefsíðu hússins sem Davíð Oddsson opnaði í gær er hægt að fylgjast með undibúnhigi nýju starfseminnar og framvindu endur- bóta sem nú eru að hefjast innan- húss. Verða þar reglulega birtar fréttir og myndir af undirbúningi og framkvæmdum við húsið. Slóð vefsíðu Þjóðmennmgarhússins er www.kultur.is. Áfengis- og tóbaks- verslun ríkisins Ekki verið rætt um rýmri af- greiðslutíma HÖSKULDUR Jónsson, forstjóri Áfengis- og tóbaksverslunar ríkis- ins, segir að rýmri afgreiðslutími áfengisútsalna hafí ekki komið til umræðu innan fyrirtækisins, en samkvæmt nýrri reglugerð er heim- ilt að hafa útsölustaði áfengis opna á milli kl. 8 og 23 á daginn. _ . Höskuldur segir að ÁTVR eigi eftir að ræða við stjórnvöld um hvað þau vilji gera varðandi íýmri af- greiðslutíma, en ný reglugerð um smásölu sé líklega viljayfirlýsing stjórnvalda til þess. „Breytingar hafa ekki verið á döf- inni hér, við eigum eftir að ræða það við stjórnvöld hvað þau vilja gera í því máli og hvað felst í þessari heim- ild. Innan þessa fyrirtækis hafa ekki verið neinar umræður um breytingu á afgreiðslutíma," sagði Höskuldur í samtali við Morgunblaðið í gær. Auglýst eftir umsóknum á öllu EES-svæðinu HEILBRIGÐIS- og trygginga- málaráðuneytið auglýsti í Morgun- blaðinu um síðustu helgi eftir um- sóknum frá aðilum sem vilja takast á hendur gerð og starfrækslu gagnagrunns á heilbrigðissviði. Að sögn Þóris Haraldssonar, aðstoðar- manns heilbrigðisráðherra, verður auglýst eftir umsóknum á öllu Evr- ópska efnahagssvæðinu. Auglýs- ingar af þessu tagi fást hins vegar ekki birtar í stjórnartíðindum Evr- ópusambandsins og verður auglýs- ingunni því komið á framfæri við aðildarríki EES-samningsins í gegnum sendiráð Islands. Auglýs- ingin verður einnig birt á íslensku og ensku á heimasíðu ráðuneytis- ins. Umsóknarfrestur rennur út 28. apríl næstkomandi. Heilbrigðisráð- herra mun svo á grundvelli um- sóknanna velja allt að þrjá aðila til frekari viðræðna um verkefnið og útgáfu rekstrarleyfis. „Við höfum fengið fyrirspurnir um þetta mál og við göngum út frá því að það muni berast nokkrar umsóknir," segir Þórir. Skv. auglýsingunni skulu fylgja umsóknum ítarlegar upplýsingar um starfssvið og verkefni umsækj- enda, sérfræðiþekkingu á sviði heilbrigðisvísinda og fjárhagslegt bolmagn til að leysa verkefnið af hendi. Þá skal umsækjandi setja fram hugmyndir um verkáætlun og tækni-, öryggis- og skipulagslýs- ingu. Ovíst hve langan tíma tekur að ganga frá samninguin I áuglýsingu ráðuneytisins segir m.a. að gert sé ráð fyrir að í gagnagrunninn verði fluttar upp- lýsingar úr sjúkraskrám á íslensk- um heilbrigðisstofnunum og hjá sjálfstætt starfandi heilbrigðis- starfsmönnum samkvæmt nánara samkomulagi við þá aðila. „Það er m.a. háð samningum rekstrarleyf- ishafa og heilbrigðisstofnana hve langt aftur í tímann verður farið við skráningu upplýsinga úr sjúkraskrám, en það ræður mjög miklu um stærð gagnagrunnsins og kostnað við gerð hans,“ segir í auglýsingunni. Að sögn Þóris er óvíst hversu langan tíma mun taka að vinna úr umsóknum og ganga frá samning- um við væntanlegan rekstrarleyf- ishafa. „Það er alveg ljóst að end- anlegt rekstrarleyfí verður ekki gefið fyrr en búið er að uppfylla fjölda skilyrða sem sett eru. Það er því talsverður tími í að sjálft verk- efnið fari í gang,“ sagði hann.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.