Morgunblaðið - 30.03.1999, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 30. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Könnun á viðhorfum notenda og starfsfólks heimaþjónustu
Allir nema
einn telja þjón-
ustuna góða
Morgunblaðið/Kristján
KRISTÍN Sigursveinsdóttir deildarstjóri og Grétar Þór Eyþórsson,
verkefnisstjóri hjá NORPUS, kynna niðurstöður könnunar á viðhorf-
ura notenda og starfsfólks til Heimaþjónustu Akureyrarbæjar.
NÆR allir sem njóta Heimaþjón-
ustu Akureyrarbæjar telja hana
góða eða mjög góða, eða um 95%, og
aðeins einn notandi taldi hana undir
meðallagi. Þetta kemur fram í könn-
un á viðhorfum notenda og starfs-
fólks Heimaþjónustunnar sem gerð
var seint á síðasta ári. Heimaþjón-
ustan hefur undanfarin misseri verið
þátttakandi í samnorrænu gæða-
verkefni um félagslega þjónustu,
NORPUS. Um tveggja ára verkefni
er að ræða og lýkur því i lok þessa
árs.
Grétar Þór Eyþórsson, verkefnis-
stjóri NORPUS, Þórgnýr Dýrfjörð,
forstöðumaður Búsetudeildar Akur-
eyrarbæjar, og Kristín Sigursveins-
dóttir kynntu könnunina nýlega, en
Þórgnýr tók fram að mikil vinna
væri enn eftir við að fara í gegnum
alla þætti hennar. Viðskiptavinii’
Heimaþjónustu Akureyrarbæjar eru
á milli 500 og 600 talsins, en 86 mann
lentu í tilviljunarúrtaki, eða um 15%
hópsins. Svörun var góð, en alls
sendu 68 inn svör eða um 79%. Sp-
urningalistar voru sendir til 60
starfsmanna og bárust svör frá 43
eða um 71%.
Niðurstöður könnunarinnar eru
afar jákvæðar fyrir heimaþjónust-
una. Langflesth’ svöruðu þannig að
vel hefði gengið að fínna hvert ætti
að leita þjónustunnar eða 97% og
jafnstór hópur kvað hafa gengið vel
að fá umbeðna þjónustu. Flestum
þótti einnig skammur tími líða frá
því beðið var um þjónustu og þar til
hún var veitt.
Þegar spurt var hvernig þjónustan
var gáfu 95% henni einkunnina góð
eða mjög góð en aðeins einn taldi
hana undir meðallagi. Það mat verð-
ur að teljast bera þjónustunni gott
vitni, þó eins og Grétar benti á að
einn óánægður viðskiptavinur er of
mikið, því markmið félagsþjónustu
sé að veita öllum sem eftir leita góða
þjónustu. „Það er ekki hægt að horfa
framhjá einum óánægðum," sagði
hann.
Þegar spurt var um viðmót þess
starfsfólks sem veitir þjónustuna
svöruðu 88% því til að það væri mjög
gott og 12% að það væri gott. Meiri-
hluti notenda er sáttur við verðlagn-
ingu þjónustunnar, en 8% töldu það
of hátt.
Hvað starfsfólkið varðar telja um
95% þeirra sem svöruðu að þjónust-
an sé góð eða mjög góð. Þá má nefna
að um 30% svarenda telja að þjón-
ustan hafi breyst á síðasta ári, þrír
fjórðu hlutar þess segja breytinguna
til batnaðar, en fjórðungur að hún
hafi versnað. Rúmur helmingur
starfsmanna telur verð fyrir þjónust-
una hæfilegt en nær 40% þeirra
þekktu ekki verðlagninguna.
Fræðsla til starfsfólks, ráðgjöf og
handleiðsla og laun voru þeir þrir
þættir sem flestir nefndu þegar spurt
var hvað mikilvægast væri að bæta.
„Við erum gríðarlega stolt og von-
um auðvitað að ekki sé um tóma
hendingu eða heppni að ræða að nið-
urstöðumar eru með þessum hætti,“
sagði Þórgnýr. „Ég tel að þessar já-
kvæðu niðurstöður sýni að okkur
hefur tekist að mæta þörfum við-
skiptavinanna."
Framboðs-
listi Sam-
fylkingar
samþykktur
FRAMBOÐSLISTI Samfylk-
ingarinnar á Norðurlandi
eystra var samþykktur á fund-
um kjördæmisráða Alþýðu-
bandalags og Alþýðuflokks á
Akureyri laugardaginn 27.
mars sl.
Listann skipa eftirtaldir:
1. Svanfríður Jónasdóttir, al-
þingismaður, Dalvík, 2. Örlygui’
Hnefill Jónsson, héraðsdóms-
lögmaður, Húsavík, 3. Kristín
Sigursveinsdóttir, formaður
Iðjuþjálfafélags Islands, Akur-
e\TÍ, 4. Pétur Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri, Akureyri, 5.
Hadda Hreiðarsdóttir, nemi,
Akureyii, 6. Heimir Ingimars-
son, framkvæmdastjóri, Akur-
eyri, 7. Óli Björn Einarsson,
húsasmiður, Kópaskeri, 8. Hall-
dór Guðmundsson, bifvélavirki,
Ólafsfirði, 9. Þórunn Þorsteins-
dóttir, afgreiðslustjóri, Þórs-
höfn, 10. Sigrún Stefánsdóttir,
nemi, Akureyri, 11. Jón Helga-
son, fyrrverandi formaður Ein-
ingar, Akureyri og 12. Jóhanna
Aðalsteinsdótth, fyrrverandi
bæjarfulltrúi, Húsavík.
Gæðastjórmmarkerfí Mjólkursamlags KEA fær ISO 9001 vottun
Mikilvægt skref
í framtíðar-
uppbyggingu
Morgunblaðið/Björn Gíslason
OLAFUR Jónsson gæðastjóri og Hólmgeir Karlsson, framkvæmda-
stjóri mjólkuriðnaðarsviðs KEA, taka við staðfestingu á ISO 9001
vottun úr hendi Kjai-tans Kárasonar hjá Vottun.
Ljösavatnsskarði
Þrír á
slysadeild
ÞRÍR voru fluttir á slysadeild Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri á
sunnudagskvöld eftir harðan árekst-
ur í Ljósavatnsskarði. Óhappið, sem
varð skammt norðan við Birnings-
staði var tilkynnt til lögreglu skömmu
fyrir kl. 21 á sunnudagskvöld. Lög-
reglu- og sjúkrabifreiðar frá Akur-
eyri og Húsavík fóru á staðinn.
Að sögn lögreglu á Húsavík vildi
slysið þannig til að ökumaður jeppa
missti vald á honum og snérist hann
á veginum með þeim afleiðingum- að
jeppinn lenti framan á fólksbíl sem
kom á móti. Ökumaður og farþegi
fólksbílsins voru fluttir á slysadeild
sem og farþegi í jeppanum. Leið-
indaveður var á þessum slóðum,
nokkur skafrenningur og voru snjó-
dreifar á veginum.
MJÓLKURSAMLAG KEA er fyrst
íslenskra matvælaframleiðslufyrir-
tækja og þar með mjólkursamlaga
að fá ISO 9001 vottun og nær hún
einnig til Safagerðar KEA og
Smjörlíkisgerðar KEA. Vottunin
var formlega staðfest við athöfn í
samlaginu í gær.
„Þetta er stund sem við starfs-
menn höfum beðið eftir með mikilli
eftirvæntingu. Ég vona að þau
tímamót sem við stöndum nú á eigi
eftir að efla okkur sem fyrirtæki um
alla framtíð," sagði Hólmgeir Karls-
son, framkvæmdastjóri mjólkuriðn-
aðarsviðs KEA. Markvisst hefur
verið unnið að uppbyggingu innra
eftirlits og gæðastjórnunarkerfis
hjá Mjólkursamlagi KEA og fékk
samlagið vottað innra eftirlitskerfi
samkvæmt GÁMES gæðakerfi. í
kjölfarið var lögð áhersla á upp-
byggingu gæðastjórnunarkerfis
með það að markmiði að fá hinn al-
þjóðlega ISO 9001 staðal. Með þess-
um áfanga er staðfest að gæða-
stjórnunarkerfi KEA stenst alþjóð-
legar kröfur og viðskiptavinir fyrir-
tækisins geta gengið að því sem
vísu að gæði framleiðslunnar séu
þau sem til er ætlast, að því er fram
kom í máli Kjartans Kárasonar hjá
Vottun. „Fyrirtækið er nú komið í
hóp þeirra sem hafa gæðastjómun
að leiðarljósi," sagði hann og benti á
að um 350 þúsund fyrirtæki í heim-
inum hefðu þessa vottun. Þau eru
28 talsins á Islandi. „Það er jákvætt
að sjá fyrirtæki í hefðbundinni
grein fá þessa vottun, við verðum að
hlúa að starfsemi af þessu tagi, svo
þau hafi tækifæri til að stækka og
dafna,“ sagði Kjartan og bætti
einnig við að kröfur til fyrirtækja
með þessa vottun ykjust.
Áhugi og þolinmæði starfsfólks
„Gæðamál hafa ævinlega verið í
hávegum höfð hjá mjólkursamlag-
inu,“ sagði Hólmgeir, en með vott-
uninni nú yrði aukin áhersla lögð á
vöruþróun og markaðssókn og þá
væri hún einnig liður í áformum fyr-
irtækisins um sókn á markaði í út-
löndum. Samlagið fékk á síðasta ári
staðfest útflutningsleyfi til landa
Evrópusambandsins, fyrst mjólkur-
samlaga hér á landi.
Hólmgeir þakkaði starfsfólki fyr-
ir áhuga og þolinmæði, en það tók
virkan þátt í uppbyggingu gæða-
kerfisins. Daglegur rekstur gæða-
kerfisins byggist á þátttöku starfs-
manna og er í raun lykilatriði til að
það virki.
Mjólkursamlag KEA er eitt
stærsta mjólkurbúið hér á landi og
tekur árlega á móti um 20 milljón-
um lítra af mjólk frá 175 mjólkur-
framleiðendum. Það er aðalostabúið
í landinu og framleiðir gróft reiknað
annan hvem ostbita sem landsmenn
leggja sér til munns. Osturinn frá
samlaginu myndi duga ofan á eina
brauðsneið handa öllum ísiending-
um, alla daga ársins. Þá framleiðir
mjólkursamlagið helminginn af við-
biti landsmanna og alla kotasælu og
gráðost sem búinn er til hérlendis.
PENTAX
FERMINGARTILBOÐ
PENTAX PC-55 Date
Sjálfvirkur fókus
Sjálvirkt Ijósop og hraði
Einföld filmuþræðing
Dagsetning
Taska fylgir
3 STK. FUJIFILM SUPERIA filmur fylgja
Verð aðeins kr. 7.490
L'JOSMYNDAVORUR
Skipholti 31, Sími 568 0450 Kaupvangsstræti 1, s. 461 2850
Starfslaun listamanna
Árlega er veitt úr Menningarsjóði Akureyrar starfslaunum
listamanna eða listamanns. Menningarmálanefnd velur
listamennina sem starfslaun hljóta.
Hér með er auglýst eftir rökstuddum ábendingum frá ein-
staklingum, samtökum listamanna eða öðrum, um hverjir
skuli hljóta starfslaun á árinu 1999. Menningarmálanefnd
er ekki bundin af ábendingunum. Ábendingar skulu sendar
til menningarskrifstofu Akureyrar, Glerárgötu 26, fyrir 8.
apríl nk.
Menningarmálanefnd Akureyrarbæjar
Verslunin
Hraðkaup
opnuð í
Kaupangi
HRAÐKAUP opnaði verslun í
Kaupangi á Akureyri á laugar-
dag og var margt. um manninn í
nýju versluninni um helgina.
Fólk dreif að strax og var opnað
um morguninn og var straumur-
inn stöðugur. Salan var tvöfalt
meiri þennan dag en á vanaleg-
um laugardegi og voru viðtökur
viðskiptavina góðar.
Nokkrar breytingar hafa ver-
ið gerðar á húsnæðinu en þar
var áður Kjörbúðin í Kaupangi.
Þegar inn er komið blasir við
nýr ávaxta- og grænmetiskælir,
fremst á fyrsta gangi eru nýjar
brauðhillur, þá tekur goskælir-
inn við, nijólkurkælirinn og loks
kjötkælirinn.
Hraðkaup sérhæfír sig í fersk-
um vörum og góðu úrvali og þá
er áhersla lögð á að bjóða við-
skiptavinum ávallt nýjustu vörur
á markaðnum hverju sinni.