Morgunblaðið - 30.03.1999, Qupperneq 16
16 ÞRIÐ JUDAGUR 30. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Lánasjóður landbúnaðarins
11 milljónir
kr. í hagnað
Lánasjóður landbúnaðarnis
Niðurstöður úr ársreikningum 1998
Rekstrarreikningur muómr króna 1998 1997 Breyting
Vaxtatekjur 609 611 -0,3%
Vaxtagjöld 637 696 -8,5%
Vaxtatekjur-vaxtagjöld (28) (85) -67,1%
Tekjur af landbúnaðargjöldum 161 352 -54,3%
Hreinar vaxtatekjur 133 267 -50,2%
Aðrar rekstrartekjur 3 10 -70,0%
Önnur rekstrargjöld (58) (72) -19,4%
Framlag í afskriftarreikn. útlána (24) (37) -35,1%
Eignarskattur (37) (37) 0,0%
Óregluleg gjöld (6) (32) -81,3%
Hagnaður ársins 11 99 -88,9%
1
Efnahagsreikningur 3i.des. 1998 1997 Breyting
I Eíonir: I Milliónir króna
Sjóður og kröfur á lánastofnanir 214 857 -75,0%
Útlán 10.829 10.011 +8,2%
Aðrar eignir 37 56 -33,9%
Eignir samtals 11.080 10.924 +1,4%
I Skulclir oo eigid fé: I
Lántaka 8.494 8.387 +1,3%
Aðrar skuldir 68 61 +11,5%
Eigið fé 2.518 2.476 +1,7%
Skuldir og eigið fé samtals 11.080 10.924 +1.4%
HAGNAÐUR Lánasjóðs landbún-
aðarins nam 11 milljónum ki-óna
árið 1998 samanborið við 99 millj-
óna króna hagnað Stofnlánadeildar
landbúnaðarins. Hinn 1. janúar
1998 tók Lánasjóður landbúnaðar-
ins við öllum eignum, réttindum,
skuldum og skuldbindingum Stofn-
lánadeildar landbúnaðarins og féllu
þá úr gildi lög nr. 45/1971 um
Stofnlánadeild landbúnaðarins,
landnám, ræktun og byggingar í
sveitum, með síðari breytingum.
Um lánasjóð landbúnaðai'ins gilda
lög nr. 68/1997.
Hreinar vaxtatekjur
133 milljónir
Vaxtagjöld umfram vaxtatekjur
námu 28 milljónum króna en árið
áður námu þau 85 milljónum
króna. Hreinar vaxtatekjur, eftir
að tekjum af landbúnaðargjöldum
er bætt við, nema 133 milljónum
króna samanborið við 267 milljónir
króna á árinu 1997. Vextir af útlán-
um sjóðsins voru að meðaltali 4,3%
á árinu 1998 en vextir af teknum
lánum voru að meðaltali um 6%.
Til þess að mæta neikvæðum
vaxtamun fær sjóðurinn tekjur af
búnaðargjaldi sem innheimt er af
búvöruframleiðendum í samræmi
við lög nr. 84/1997 og eru á árinu
1998 færðar til tekna 161 milljón
króna vegna tekna af búnaðar-
gjaldi. „Stofnlánadeild landbúnað-
arins hlaut áður tekjur af neyt-
endagjaldi, lánajöfnunargjaldi og
búnaðarmálasjóðsgjaldi. A árinu
1998 voru vextir af útlánum sjóðs-
ins hækkaðir þar sem ljóst var að
tekjur af búnaðargjaldi yrðu mun
lægri en tekjur af fyiTnefndum
gjöldum,“ að því er fram kemur í
fréttatilkynningu.
Eigið fé sjóðsins í árslok nam
2.518 milljónum króna eða 22,7% af
niðurstöðu efnahagsreiknings. Eig-
infjárhlutfall, CAD-hlutfall, nam í
árslok 23,1% og lækkaði um 0,3% á
árinu 1998.
Framkvæmdastjóraskipti verða
hjá Lánasjóði landbúnaðarins 1.
apríl nk. er Leifur Kr. Jóhannes-
son hættir starfí framkvæmda-
stjóra sem hann hefur gegnt í rúm
15 ár. Guðmundur Stefánsson,
búnaðarhagfræðingur, tekur við
starfi framkvæmdastjóra.
Fyrirhugað er að flytja höfuð-
stöðvar Lánasjóðsins frá Reykja-
vík til Selfoss en tímasetning hefur
ekki verið endanlega ákveðin.
Opin kerfi hf.
Selja
hlut sinn
í Þróun
OPIN kerfi hf. gengu í gær
frá sölu á 24,4% eignarhlut í
Þróun ehf. Bókfært verð hlut-
arins var 3,1 m.kr. í ársreikn-
ingi félagsins 31. desember
1998. Söluverð hlutarins var
25 milljónir króna en innleyst-
ur söluhagnaður nemur 15
m.kr. nettó. Þá hafa Opin kerfi
gengið frá kaupum á 1,5%
eignarhlut í Hugviti hf.
Að sögn Frosta Bergssonar,
stjórnarfoiTnanns Opinna
kerfa, fékk félagið mjög gott
tilboð í bréfin í Þróun, sem
sést á því að þeir ná að inn-
leysa söluhagnað upp á 15
milljónir króna.
Hann sagðist jafnframt
telja kaupin í Hugviti góða
fjárfestingu en vildi ekki
gi'eina frá kaupvirði. Hann
sagði Hugvit leiðandi á sviði
Lotus Notes kerfa á Islandi og
benti á að fyrirtækin hefðu átt
í samstarfi um þó nokkurn
tíma sem hlutafjárkaupin
komi til með að styrkja.
Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands fór fram á dögunum
Kom fram krafa um
hærri arðgreiðslur
FBA gefur út alþjóðleg skuldabréf
Andvirði bréf-
anna 4,4 millj-
arðar króna
ARÐGREIÐSLUR hlutabréfa úr
B-hluta stofnsjóðs hjá Sláturfélagi
Suðurlands voru hækkaðar úr 7%,
sem stjórnin hafði lagt til, í 11,09%
vegna kröfu sem kom fram frá
nokkrum stærstu hluthafanna í B-
deild á aðalfundi SS á föstudaginn
var. Samkvæmt samþykktum Slát-
urfélagsins geta aðilar sem eiga
meira en 10% í B-deild hlutafjár
krafist þess að arður sé hækkaður
í 10% ásamt jöfnunarþætti sem fer
eftir breytingum á lánskjaravísi-
tölu.
Vorum að nýta
rétt hluthafa
HOmar Þór Kristinsson, fulltrúi
sjóða í vörslu Kaupþings og
Kaupthing Luxembourg S.A., kom
fram með þessa kröfu fyrir hönd
hluthafa í B-deild stofnsjóðs. „Við
settum fram þessa kröfu til að ná
meiru út úr okkar fjárfestingu í fé-
laginu, og vorum þarna að nýta
rétt hluthafa," sagði Hilmar. „ís-
lenskur fjármálamarkaður virðist
ekki meta mikils eignarþátt sem
Skafl hf.
fjárfestir
FYRIRTÆKIÐ Skafl hf„ sem er að
80% í eigu íslenskra aðalverktaka
og 20% í eigu Hamla hf„ dótturfé-
lags Landsbanka Islands, hefur
keypt meirihluta í Sameinuðum
verktökum. Um er að ræða 90%
eignarhlut í félaginu og nam sölu-
gengi bréfanna 3,50. Heildarhlutafé
í Sameinuðum verktökum er um
312 m.kr. að nafnvirði og mark-
aðsvirði hlutarins því um 983 millj-
ónir.
Samkvæmt fréttatilkynningu er
kaupunum ætlað að renna frekari
stoðum undir fasteignarekstur þann
sem dótturfélög Islenskra aðalverk-
taka sjá um. Helsta eign Sa-
meinaðra verktaka hf. er 75% eign-
arhlutur í fasteigninni á Höfða-
bakka 9 í Reykjavík.
venjulega fylgir hlutabréfum, sem
er ráðstöfunarrétturinn og völdin
sem eru engin í þessum B-hluta,
heldur er þar aðeins ríkari réttur
til arðgreiðslna. Eigendur B-hluta-
bréfa hafa hins vegar rétt til að
taka til máls á aðalfundi." Hilmar
segir að bréfin hafi ekki gefið
neina ávöxtun á seinasta ári og
þeir hefðu lítið fengið út úr bættari
afkomu félagsins. Þetta hafi því
verið eina leiðin fyrir þá að fá góða
arðsemi af hlutabréfaeigninni.
Ollum formskilyrðum
fullnægt
Hilmar flutti hins vegar ekki til-
löguna fyrir fundinum, heldur var
það Steinþór Skúlason, forstjóri
SS, sem kynnti framkomna kröfu
þessara aðila, sem borist hafði
skriflega fyrir aðalfundinn, þess
efnis að þeir hygðust ganga eftir
fyllsta rétti sínum til arðs sam-
kvæmt samþykktum félagsins.
Steinþór kynnti einnig lögfræði-
legt álit sem Sláturfélagið hafði
fengið frá lögmanni sínum, þar
sem kom fram að öllum formskil-
yrðum slíkrar kröfu væri.fullnægt.
„I okkar samþykktum er þessi
réttur eigenda á hlutabréfum í B-
deild stofnsjóðs og þessi aukni
réttur er vegna þess að menn hafa
ekki atkvæðisrétt á aðalfundi. Það
er ljóst að þeir hafa lagt hlutafé
inn í félagið gegn því að hafa þenn-
an rétt, þannig að það er ekkert
við því að segja,“ sagði Steinþór
Skúlason í samtali við Morgun-
blaðið. Steinþór sagði ennfremur
að eftir að uppsafnað tap félagsins
hefði verið jafnað gætu eigendur
10% hlutar krafist allt að 10% arðs
auk verðbóta, en þó þannig að ekki
mætti ráðstafa meiru en helmingi
af hagnaði félagsins eftir framlag í
varasjóð. „Það var vel undir þeim
mörkum og við eigum ekki lengur
ójafnað tap. Fyrir nokkrum áram
áttum við ójafnað tap og þá hefði
ekki verið hægt að setja fram
þessa kröfu. Það var enginn
ágreiningur um þetta og var af-
greitt þegjandi og hljóðalaust,"
sagði Steinþór Skúlason.
FJÁRFESTINGARBANKI at-
vinnulífsins hefur gefið út skulda-
bréf á alþjóðlegum markaði að fjár-
hæð 60 milljónir Bandaríkjadala,
eða sem svarar til um 4,4 milljarða
króna. Utgáfa þessi markar upp-
hafið að skuldabréfaútgáfu bank-
ans á alþjóðlegum markaði sam-
kvæmt nýjum MTN-rammasamn-
ingi bankans. Umsjón með útgáf-
unni hefur ABN Amro bankinn í
Lundúnum, en auk hans standa að
útgáfunni Deutsche Bank, Men-ill
Lynch og Salomon Smith Barney.
I fréttatilkynningu kemur fram
að skuldabréfin eru til fimm ára og
greiðast í einu lagi í lok lánstímans.
Bréfin bera breytilega vexti sem
svara til 25 punkta álags á milli-
bankavexti (LIBOR) sem um þess-
ar mundir nema um 5%. Þóknun
banka er 0,15% af lánsfjárhæðinni
og nemur því heildarkostnaður
EIMSKIP hefur tekið tilboði Bún-
aðarbanka íslands hf„ sem átti
lægsta tilboð í 800 milljóna króna
skuldabréfasölu fyrir félagið.
Sex bönkum var gefinn kostur á
að bjóða í skuldabréfasölu fyrir
Eimskip að fjárhæð 800 milljónir.
Samhliða sölu skuldabréfanna
skyldi bjóða í skiptasamning sem
breytti kjörum bréfanna úr ís-
lenskum krónum yfir í erlendar
myntir með álagi á Libor-vexti.
Lánstími bréfanna skyldi vera 8
ár, miðað við árlegar endur-
greiðslur vaxta og höfuðstóls, en
einnig var heimilt að miða við 10
ára lánstíma.
FBA af lántökunni millibankavöxt-
um að viðbættu 0,28% álagi. Þetta
era ívið hagstæðari kjör en aðrar
íslenskar fjáimálastofnanir hafa
notið á alþjóðlegum skuldabréfa-
markaði að undanförnu.
„FBA undirritaði fyrr í mánuðin-
um fyrst íslenski'a fjármálafyrir-
tækja MTN rammasamning um al-
þjóðlegar skuldabréfaútgáfur. Að
undanfömu hefur FBA kynnt
bankann og hinn nýja samning á
meðal erlendra fjármálafyrirtækja
og fjárfesta víða um Evrópu. I kjöl-
far góðra viðbragða frá fjárfestum
ákvað FBA að ráðast í fyrrgreinda
skuldabréfaútgáfu til fimm ára,
sem markar um leið upphaf að
þátttöku FBA á alþjóðlegum MTN-
markaði. Skuldabréfin era skráð í
kauphöllinni í Lundúnum," að því
er segir í fréttatilkynningu frá
FBA.
Tilboð bárust frá 4 aðilum og
átti Búnaðarbanki íslands hf.
lægsta tilboðið samkvæmt al-
mennum útboðsskilmálum. Einnig
barst frá Búnaðarbankanum frá-
vikstilboð sem ákveðið er að taka
þar sem Búnaðarbankinn sölu-
tryggir 500 milljónir króna. Sam-
kvæmt þessu tilboði greiðir Eim-
skip 0,38% álag á Libor-vexti auk
söluþóknunar, 0,75%. Þessi kjör
eru sambærileg þeim kjörum sem
Eimskip hafa áður boðist í sams-
konar útboðum og jafnframt
áþekk fjármagnskostnaði félags-
ins erlendis, að því er fram kemur
í fréttatilkynningu.
Nýr framkvæmda-
stjdri Union Islandia
ÁSBJÖRN Bjömsson tekur við
starfi framkvæmdastjóra Union
Islandia s.a. dótturfyrirtækis
SÍF hf. á Spáni en Úlfar Stein-
dórsson sem gegnt hefur starfi
framkvæmdastjóra mun hætta
störfum í lok júlí næstkomandi.
Óvíst er hvað tekur við hjá
Úlfari.
Viðskiptafræðingur
frá HÍ
Ásbjörn Björnsson gegnir nú
stöðu sölu- og markaðsstjóra
SIF hf. Ásbjörn er 41 árs að
aldri. Hann er viðskiptafræðing-
ur frá Háskóla
Islands og
lauk meistara-
prófi í mark-
aðsfræðum frá
Colorado State
University.
Hann hefur
starfað hjá
SÍF síðan 1991
og sem sölu- og markaðsstjóri
frá 1994. Áður starfaði hann hjá
Vegagerð ríkisins, Útflutnings-
ráði Islands og Álafossi hf. Ás-
björn er kvæntur Helgu Einars-
dóttur og eiga þau þrjú börn.
Eimskip semur um
800 milljóna króna
skuldabréfasölu