Morgunblaðið - 30.03.1999, Síða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 30. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ÁRÁS NATÓ Á JÚGÓSLAVÍU
Reuters
Prímakov sakaður um
/
að þiggja fé af Irökum
Moskvu. Reuters.
BRESKA leyniþjónustan komst á
snoðir uni að Irakar hefðu lagt
800.000 Bandaríkjadali, andvirði
58 milljóna króna, inn á banka-
reikning Jevgenís Prímakovs, for-
sætisráðherra Riisslands, í nóv-
ember 1997 í því skyni að fá liann
til að aðstoða Iraka við að afla sér
efna í kjarnvopn frá Rússlandi, að
sögn bandaríska tímaritsins New
Yorker í gær.
Rannsóknarblaðamaðurinn
Seymour Hersh segir í grein í
New Yorker að upplýsingar
bresku leyniþjónustunnar hafi
valdið miklu uppnámi meðal emb-
ættismanna bandarísku leyniþjón-
ustunnar CIA þótt yfirmenn henn-
ar hafi lengi grunað að Prímakov
hafi þegið fé af Irökum.
Að sögn Hersh rakti tölvunjósn-
adeild bresku leyniþjónustunnar
peningafærsluna til Tariqs Aziz,
aðstoðarforsætisráðherra Iraks.
Ekki væri ljóst hvernig leyniþjón-
ustan hefði komist að því að féð
hefði verið ætlað Prímakov þar
sem ólíklegt væri að hann hefði
notað bankareikninga á eigin
nafni til að þiggja fé af Irökum.
Tveir embættismenn CIA sögðu
þó að enginn vafi léki á því að
upplýsingar bresku leyniþjónust-
unnar væru réttar.
Frétt New Yorker hefur vakið
nýjar spurningar um hlutverk
Rússa sem traustustu verndara
Iraka og efasemdir um pólitíska
framtíð Prímakovs, sem hefur
verið talinn hugsanlegur eftir-
maður Borís Jeltsíns forseta.
Prímakov kynntist Saddam
fyrst þegar hann var fréttaritari
Prövdu í Miðausturlöndum á sjö-
unda áratugnum.
Rússneski utanríkisráðherrann
Igor Ivanov sagði að frétt New
Yorker væri ætlað að beina at-
hyglinni frá „villimannslegum"
árásum NATO á Júgóslavíu.
„Svarið er skýrt,“ sagði Ivanov.
„Þegar engin hugsanleg rök finn-
ast lengur til að réttlæta þessar
árásir ... eru svona bellibrögð
talin leyfileg."
London. The Daily Telegraph.
SLOBODAN Milosevic, forseti Jú-
góslavíu, hefur ákveðið að koma á
leynilegu hernaðarsamstarfi við
Saddam Hussein íraksforseta vegna
árása Atlantshafsbandalagsins á Jú-
góslavíu, að sögn heimildarmanna
breska dagblaðsins The Daily Tel-
egraph. Blaðið segir að Milosevic
hafi tekið þessa ákvörðun skömmu
áður en árásirnar hófust og leiðtog-
arnir tveir hafi tekið höndum saman
þar sem þeir stefni báðir að því
sama: að skjóta niður bandarískar og
breskar herfiugvélar.
Frá því Bandaríkjamenn og Bretar
hófu loftárásii- á írak í desember hef-
ur Saddam Hussein lagt mikið kapp á
að gera her sínum kleift að skjóta nið-
ur herflugvélar þeii-ra og klófesta
Milosevic og Saddam sagðir
hefja hernaðarsamstarf
Skotmörk
einræðis-
herranna
tveggja
SADDAM Hussein Iraksforseti
og Slobodan Milosevic, forseti
Júgóslavíu, eru nú sagðir hafa
efnt til samstarfs, en báðir
hafa mátt þola árásir af
höndum vesturveldanna. frak-
ar eru ekki síst sagðir ásælast
loftvarnarflaugar, í líkingu við
þær sem Serbar hafa yfir að
ráða, til að skjóta niður her-
þotur Breta og Bandaríkja-
manna. Bresk stjórnvöld til-
kynntu í gær að þeir hygðust
bæta átta Tornado GR-I
sprengjuflugvélum, eins og
þær sem sjást á myndinni, í
hóp þeirra sem þegar taka þátt
í árásum NATO á Júgóslavíu,
auk fjögurra Harrier-þotna og
olíuáfyllingarvélar.
www.velaverk.is s. 568 3536
flugmennina. Efth- að Atlantshafs-
bandalagið hóf sprengju- og flug-
skeytaárásir sínai- á Júgóslavíu hefm-
Saddam fundið nýjan bandamann -
Milosevic, sem hefm- heimilað emb-
ættismönnum sínum að semja á laun
um hernaðarsamstai-f við Iraka.
Serbar eru sagðh- hafa samþykkt
að aðstoða Saddam við að endurreisa
her íraks, einkum loftvamh- landsins.
I staðinn eiga Irakar að aðstoða Serba
við að verjast loftái-ásum NATO.
Irakar ásælast loftvarnaflaugar
írökum er mjög umhugað að efla
loftvarnh' sínar. Þeir hafa einkum
þurft að reiða sig á gamlar sovéskar
loftvarnaflaugar af gerðunum SA-2
og SA-3, sem duga engan veginn í
bai'áttunni við háþróaðar herflugvél-
ar Bandaríkjamanna og Breta.
Irakai' vilja að Serbar útvegi þeim
loftvarnaflaugar af gerðinni SA-7,
sem eru mun þróaðri. Þótt flaugarn-
ar hafi í fyrstu verið smíðaðar eftir
sovéski'i hönnun hafa Serbar endur-
bætt þær og talið er að þær geti
reynst bandarísku og bresku her-
flugvélunum hættulegar verði þeim
beitt í Irak.
The Daily Telegraph skýrði frá
því í vikunni sem leið að serbneskir
tæknimenn hefðu þegar aðstoðað
Iraka við að undirbúa loftvarnagildr-
ur fyrir flugvélar Bandaríkjamanna
og Breta. Irakar hafa einnig reynt
að fá Serba til aðstoða við að gera
íraskar MiG-orrustuþotur nothæfaj-
að nýju. Serbneskir tæknimenn sáu
um reglulegt viðhald á þotunum áður
en Persaflóastyi'jöldin hófst og
fregnir herma að serbneskum sér-
fræðingum hafi þegar verið falið að
stai'fa með íraska flughernum.
Rússar sagðir ætla
að útvega Saddam hergögn
Saddam hefur einnig hafið samn-
ingaumleitanir við Rússa, sem hafa
fordæmt árásir NATO á Júgóslavíu.
Vangaveltur eru um að rússnesk
flutningavél, sem vai' stöðvuð í
Aserbaídsjan í vikunni sem leið, hafi
verið á leið til Bagdad en ekki
Belgrad eins og talið var í fyrstu.
Staðfest hefur verið að í flutninga-
vélinni voru 23 hreyflar í MiG-þotur
og 30 rússneskir tæknimenn.
The Daily Telegraph skýrði frá
því í síðasta mánuði að stjórn Rúss-
lands hefði samþykkt að útvega
Irökum hergögn fyrir andvirði 11,7
milljarða króna þrátt fyrir viðskipta-
bann Sameinuðu þjóðanna. Rússar
sögðu þá að ekkert væri hæft í frétt
blaðsins, en að sögn The Daily Tel-
egraph er líklegt að þeir verði ekki
Reuters
SERBNESK kona hrópar víg-
orð gegn NATO við mynd af
Slobodan Milosevic á mótmæla-
fundi í Berlín.
jafnvarfærnii' í viðskiptum við Serba
og Iraka eftir hai'kalega gagnrýni
Borís Jeltsíns forseta á árásir NATO
á Júgóslavíu í vikunni sem leið.
Rússar eru sagðh- hafa samþykkt
að endurbæta MiG-þotur Iraka og
efla loftvarnir þein-a, að því er The
Daily Telegraph hefur eftir stjómai'-
erindrekum í Moskvu. Blaðið segir
að Jevgení Prímakov, forsætisráð-
herra Rússlands, hafi samþykkt að-
stoðina við Iraka.
„Það er með ólíkindum að ríki sem
á fasta aðild að öryggisráðinu skuli
heimila svo óskammfeilið brot á
vopnasölubanni Sameinuðu þjóð-
anna,“ sagði embættismaður í
breska utanríkisráðuneytinu. „Það
bendir til þess að tengsl Rússa við
íraka séu orðin miklu nánari eftir að
Prímakov varð forsætisráðherra."
Serbar gætu fengið olíu
The Daily Telegraph sagði á sunnu-
dag að líkurnar á því að Milosevic
héldi velli myndu aukist með sam-
starfinu við Saddam þai’ sem írakai'
gætu séð Serbum fyrir olíu og reiðufé.
Þar sem Serbar framleiða ekki ol-
íu sjálfir getur her þeirra ekki stai'f-
að til lengdar án olíu frá Irak. Efna-
hagur Serbíu er að hruni kominn og
gjaldeyrir frá Irökum, sem fæst með
olíusölu í trássi við viðskiptabann Sa-
meinuðu þjóðanna, myndi gera Ser-
bum kleift að gi'eiða laun hermanna
sinna.
Ymislegt bendir þegar til þess að
Milosevic hafi farið að ráðum Sadd-
ams. Serbnesk vopn hafa verið flutt
út um alla Serbíu til að koma í veg
fyrir að NATO geti eytt þeim, auk
þess sem serbnesk yfirvöld hafa
Reuters
IROSK fjölskylda gengur fram-
hjá stórri mynd af Saddam
Hussein, forseta fraks, á götu í
Bagdad-borg.
þaggað niður í stjórnai'andstæðing-
um tii að tryggja að landsmenn heyri
aðeins áróðm' stjórnvalda.
Serbnesk sendinefnd
fór til Bagdad
Fyrsta skrefið í þá átt að koma á
formlegu hernaðarsamstarfi milli
Serba og íraka var tekið fyrr í mán-
uðinum þegar sendinefnd
serbneskra sérfræðinga fór til
Bagdad í því skyni að kanna hvernig
þjóðirnar gætu stai'fað saman
þannig að þær hefðu báðar hag af
því.
Serbneska sendinefndin var undir
stjórn Jovans Djúkovic, undirhers-
höfðingja og aðstoðarvarnarmála-
ráðhen’a Serbíu. Áður hafði ívan
Ivanovich, serbneskur sérfi’æðingur
í efna- og sýklavopnum, hafið könn-
unarviðræður við embættismenn í
Bagdad og skoðað íraskar hergagna-
verksmiðjur í nokkra daga. Sendi-
nefndin skoðaði síðar íraska verk-
smiðju sem vopnaefth'litsmenn Sa-
meinuðu þjóðanna segja að notuð
hafi verið til að framleiða efnavopn.
Að sögn leyniþjónustumanna í
Miðausturlöndum heimilaði Milos-
evic þessar heimsóknir.
Embættismenn í breska utanríkis-
ráðuneytinu segjast hafa miklai'
áhyggjur af hernaðarsamstaifi
Serba og Iraka. „Svo virðist sem
þeir hafí sameinast um eitt markmið
- að skjóta niður flugvélar banda-
manna,“ sagði háttsettur stjórnarer-
indreki í vikunni sem leið. „Saddam
og Milosevic líta svo á að þjóðir
heims hafi útskúfað þeim og þeir
verði því að taka höndum saman til
að halda velli.“
ORKUVER
350 IVIHZ Intel
Pf’nl iiini II Klamth
m/512 flýtiminni
Vinnslumínni
64mbSDRAM
17“
3,5" 1/14mb
43 GB ultra DMA
8 MB
AGP-3D
PO-338-A 3D
60WStereo
32 hraða CD
56.600 baud
Dtrulegt verð kr.
3 mánaða Intemetáskrift
hiáSkfmu
Huabúnaður: Windows 95
qDi
w
Ms
Skiár
Disklingaclrif
| Harður aiskur
Sldáminni
Skjákort
Hljoðkort
Hatalarar
DVD drif
Mótald
119.900.-
RílíMKJílPtRZLUIÍ ISLílhDS If
- ANNO 1 929 -
Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776
rord97 -MsWorks4.0
Gæðavottun ISO 9001
ISO 9002 - ISO 14001
VARNARBANDALAG
I:
i