Morgunblaðið - 30.03.1999, Side 40

Morgunblaðið - 30.03.1999, Side 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 30. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ + MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐ JUDAGUR 30. MARZ 1999 41. STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDAST J ÓRI: RITSTJÓRAR: Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. 30. MARZ 1949 I^SLENZKA LÝÐVELDIÐ var ekki orðið fimm ára, þegar reynt var með ofbeldi að koma því á kné og hindra, að Alþingi gæti tekið ákvörðun um aðild Islands að Atlantshafsbandalaginu. Þetta var 30. marz árið 1949 og nú er hálf öld liðin frá þessum sögulega degi. Þá gerðu kommúnistar árás á Alþingishúsið, þar sem þingmenn fjölluðu um aðildina að NATO, sem ráðgert var að stofna hinn 4. apríl. Nær allir þingmenn lýðræðisflokkanna, Sjálfstæðisflokks, Alþýðuflokks og Framsóknarflokks, studdu aðildina, en þingmenn Sameiningarflokks alþýðu - sósíalistaflokksins ekki. Þar tóku þeir höndum saman við aðra kommúnistaflokka í álfunni, sem börðust hatramm- lega gegn stofnun Atlantshafsbandalagsins, enda töldu þeir NATO ógnun við heimsyfirráð kommúnismans. Loft var lævi blandið í heimsmálum i' aðdraganda að stofnun bandalagsins. Astandið var mjög hættulegt og eldfimt. Hvert ríkið af öðru hvarf undir hramm kommún- ismans á bak við járntjaldið, Tékkóslóvakía, Ungverja- land, Rúmenía, Búlgaría og austurhéruð Þýzkalands. Júgóslavía og Albanía voru þegar undir kommúnískri ein- ræðisstjórn þeirra Títós og Hoxha. Átök voru milli Sovét- ríkjanna og vesturveldanna út af stöðu Berlínar og þurfti að flytja allar nauðsynjar um loftbrú til vesturhluta borg- arinnar. Kommúnistar beittu sér víða fyrir verkföllum og óeirðum í löndum Vestur-Evrópu til að hrekja löglega kjörnar ríkisstjórnir frá völdum og undirbúa eigin valda- töku. Mikil átök áttu sér og stað víðar um heim og var Rauði her Maos að leggja undir sig Kína og Kóreustyrj- öldin á næsta leiti. Kjarnorkuvopnakapphlaupið var kom- ið í algleyming. Kalda stríðið var skollið á. Það var þessi heimsmynd, sem við blasti þennan ör- lagaríka dag, 30. marz, þegar lýðræðisflokkarnir á AI- þingi tryggðu sjálfstæði og öryggi Islands í ótryggum heimi og létu ekki hótanir og árásir háværs minnihluta, sem aðhylltist einræði kommúnismans, hrekja sig af leið. Sagan sýnir ljóslega hálfri öld síðar, að ákvörðun lýðræð- issinnanna um aðild Islands að Atlantshafsbandalaginu var rétt. Valdakerfi kommúnismans er hins vegar hrunið. PERLANí BORGARLANDINU ELLIÐAÁRNAR eru einstök perla í borgarlandinu og raunar allt umhverfi þeirra, Elliðaárdalurinn. Hvergi í veröldinni getur höfuðborg á stærð við Reykjavík státað af laxveiðiá innan sinna marka. Það er því á tímum vax- andi umhverfisverndar tímabært að beina athyglinni að þeirri hættu sem á því er að áin og umhverfi hennar verði eyðilögð. Orri Vigfússon, sem er formaður samtaka, sem hafa af mikilli elju unnið að verndun Atlantshafslaxins hefur haft forgöngu um að samtökin settu á laggirnar sérstaka Elliðaárnefnd, sem sett hefur sér það markmið að vernda Elliðaárnar. Nefndin hefur unnið skýrslur um ástand ánna, áhrif virkjana og fleiri þátta á laxastofninn í ánum og hefur nefndin skrifað borgarstjóra og leggur til að raf- orkuframleiðslu verði hætt í ánum. Hefur nefndin lagt fram gögn máli sínu til stuðnings. í viðtali við Orra Vigfússon í Morgunblaðinu í fyrradag er fjallað um þessi mál en Orri hefur hlotið viðurkenningu á alþjóðavettvangi fyrir stórmerkilegt starf á þessu sviði. I viðtalinu segir hann m.a.: „Hliðstæð vandamál eru þekkt, þar sem byggð er við laxár. Þær eru viðkvæmar og bíða mikið tjón sé ekki gripið til nauðsynlegra varúðar- ráðstafana í tíma. í stefnumótun Reykjavíkurborgar er gert ráð fyrir að Reykjavíkurborg verði árið 2002 þekkt fyrir hreinleika og stórbrotna náttúru og áhugaverður áfangastaður við dyr óspilltrar náttúru. Elliðaárnar verða ekki hluti af þessum veruleika nema tekið sé í taumana strax.“ Það er ástæða til að veita þessum orðum athygli. Þau eru mælt af manni, sem þekkir betur til en flestir aðrir. Auk þeirra þátta í umhverfi Elliðaánna, sem nú þegar hafa neikvæð áhrif á lífríki ánna eru fyrirhugaðar stór- framkvæmdir við vegalagningu og brúargerð í námunda við Elliðaárnar á næstu árum. Enginn veit á þessari stundu hvaða áhrif slíkar framkvæmdir munu hafa. Við eigum að gera verndun Elliðaánna og umhverfi þeirra að stærsta umhverfisverndarmáli höfuðborgarsvæðisins og setja okkur markmið í samræmi við það. Árásin á Alþingi ✓ Þátttaka Islands í Atlantshafsbandalaginu klauf á sínum tíma þjóðina. Kristján Jónsson rifjar upp slaginn á Austurvelli 30. mars 1949 og ræðir við nokkra sem þar voru. JEPPI með gjallarhorn, þaðan streyma hvatningar um and- stöðu og svívirðingar um „landsölumennina". Lög- reglumenn með svarta stálhjálma og kylfur, táragassprengjur innan seil- ingar. Á stalli á miðjum vellinum trónir maður úr öðru efni en venju- legt fólk og afreksmaður á sinni tíð, þegar hann var af holdi og blóði. Nú er hann þögull, enginn veit hvað hon- um finnst um þetta upphlaup, reiði- ópin, barsmíðarnar, grjótkastið, eggjasletturnar á hurð Alþingishúss- ins, brotnar rúðurnar. Veður voru öll válynd í heimsmál- unum 30. mars 1949 og þytur þeirra barst hingað, þjóðin var ekki lengur einangruð úti í reginhafi. Árið á und- an höfðu kommúnistar og leppar þeirra steypt lýðræðislegri ríkis- stjórn Tékkóslóvakíu, hún var nú undir jámhæl Stalíns, kommúnistar voru að sigra í Kína. Islendingar voru ein af þjóðunum tólf sem stofnuðu Atlantshafsbanda- lagið 4. apríl 1949 en deilurnar um aðildina voru svo heiftúðugar hér að enn eru sumir móðir ef ekki sárir. I grannlöndunum var lítið um mót- mæli ef undan er skilin viðleitni sov- éthollra kommúnista og einstaka friðarsinna. Brigslin gengu hér á víxl, ýmist voru menn „handbendi Stalíns", „þrælar auðvaldsins" eða „þjóðníðingar". Kalda stríðið var ný- hafið, íslenskt orðfæri þess var að fæðast en gjarnan vitnað í fornar bókmenntir og nýlegri ættjarðarljóð. Tilfinningarnar voru á suðupunkti. Menn slepptu fram af sér beislinu, jafnvel rólegheitafólk, og í ræðustól Alþingis fóru sumir hamförum. En aðildin var samþykkt með 37 at- kvæðum gegn 13 eftir geysiharðar umræður og stóðu þær í nokkra daga, reyndar samfleytt alla nóttina áður en atkvæði voru loks greidd 30. mars. Allir tíu þingmenn Sameining- arflokks alþýðu - Sósíalistaflokksins voru á móti, einnig tveir þingmenn Alþýðuflokksins, Gylfí Þ. Gíslason og Hannibal Valdimarsson, og einn framsóknarmaður, Páll Zóphonías- son. Tveir framsóknarmenn, Her- mann Jónasson og Skúli Guðmunds- son, sátu hjá. Atkvæðagreiðslu á Alþingi um að- ildartillöguna lauk um kl. 14.30 og var hún samþykkt. Skömmu áður hóf Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon LÖGREGLUMENN, búnir kylfum og svörtum stálhjálmum, hrekja andstæðinga aðildarinnar að Atlantshafsbandalaginu á brott frá Austurvelli 30. mars 1949. Loks var beitt táragasi og Ieystist þá mannsöfnuðurinn nær samstundis upp eftir um tveggja stunda átök. Margir fóru niður að Tjörn til að kæla augun með vatni. Óspektir voru einnig síðar um kvöldið og var þá enn beitt táragasi. Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra undirritaði samninginn um aðild Islands í Washington nokkrum dögum síðar. 1 i l i li V 1 - > . J fólk að safnast saman á Austurvelli til að mótmæla en fyrir voru mörg hundruð stuðningsmanna aðildarinn- ar sem höfðu orðið við hvatningu ráðamanna Sjálfstæðisflokks, Fram- sóknarflokks og Alþýðuflokks til fólks um að verja þinghúsið fyrir árásum kommúnista. Tók fólkið sér stöðu framan við húsið ásamt lög- reglumönnum sem þar voru en vara- lið lögreglu, úr röðum óbreyttra borgara, beið átekta inni í húsinu. Reykjavík var enn lítill bær, Kópa- vogur varla til, meirihluti þjóðarinn- ar bjó úti á landsbyggðinni. En allt að 10.000 þúsund manns munu hafa verið á Austurvelli. Flestir við- staddra voru sennilega á móti inn- göngunni og kröfðust margir þjóðar- atkvæðis. Var auðvelt fyrir þá grimmustu að kasta grjóti og öðru rusli að þinghúsinu og fela sig í mannþrönginni. Kastað var grjóti að þingmönnum og ráðherrum og mildi að ekki varð manntjón. Nokkrir lögreglumenn og óbreyttir borgarar úr röðum beggja deiluaðila, alls um tuttugu manns, slösuðust en enginn þó alvarlega. Þegar Bjarni Benediktsson utan- ríkisráðherra ætlaði eftir atkvæða- greiðsluna að setjast inn í bíl með öðrum þingmönnum við Alþingishús- ið var kastað steini í bílinn og maður nokkur réðst á ráðherrann og reyndi að draga hann út. „Þarna ertu helvít- ið þitt, Bjarni Benediktsson," sagði maðurinn. Sautján ára gagnfræðaskölastúlka gekk að Stefáni Jóhanni Stefánssyni Mynd í eigu Alþingis/Guðni Þórðarson SÆTI forseta Sameinaðs þings, Jóns Pálmasonar, eftir árásina á þing- húsið, á gólfinu eru glerbrot en flestar rúður á framhliðinni voru brotnar. Þingmaðurinn Hermann Guðmundsson fékk stein með glerflísum í höfuð- ið, hann var frá vinnu í tvær vikur. forsætisráðherra, er var að koma út úr þinghúsinu, og rak honum kinn- hest. Henni fannst að ráðherra hefði svikið sig. Þjóðviljinn hóf ungu stúlkuna til skýjanna fyrir þetta „afrek“. Og í Tímariti Máls og menningar í apríl sama ár skrifaði rithöfundur um „ungu, háttprúðu skólastúlkuna" og íslenskt hjarta „sem sló í ungum barmi, þróttmikil hönd sló hart, því að hugir þúsundanna fylgdu högginu eftir“. Efasemdir um aðildina gengu oft þvert á flokksbönd þótt vinstrisinnar væru fremstir í flokki. Hópur menntamanna stofnaði Þjóðvörn gegn inngöngunni í NATO, þar voru meðal frammámanna sr. Sigurbjörn Einarsson, síðar biskup, Jónas Haralz, síðar seðlabankastjóri, og fleiri þjóðþekktir menn. í menning- arlífinu bar mikið á andstæðingum NATO, enda vinstrimenn þar öflugir. Atómstöð Halldórs Laxness kom út skömmu fyrr og þar var óspart slegið á strengi þjóðernis. Hann varaði sak- lausa eyþjóðina við því að nú ætluðu öfl hins illa að selja nýfengið sjálf- stæðið í hendur útlendinga. Ekki má gleyma að landsmenn 'höfðu hlotið sjálfstæði aðeins fjórum árum fyrr og því hæg heimatökin að höfða til þjóðrækni. Skáldið Jóhannes úr Kötlum hvatti til harðrar baráttu gegn samningn- um og afsali þjóðfrelsis - en hann hafði einnig ort: „Sovét-Island, óska- landið, hvenær kemur þú?“ Þjóðviljinn sagði varalið lögi-egl- unnai- hafa verið „vitstola hvítliða- skríl“ eins og það var orðað. „Land- ráð framin í skjóli ofbeldis og villi- mannlegra árása á friðsama alþýðu" var fyrirsögn blaðsins. Morgunblaðið sparaði ekki heldur stóru orðin í fyr- irsögnum daginn eftir atburðinn: „Ofbeldishótanir kommúnista í fram- kvæmd: Trylltur skríll ræðst á Al- þingi". Tíminn og Alþýðublaðið fóru einnig hörðum orðum um mótmæl- endurna. Línurnar í umræðum um öryggis- og varnarmál næstu áratug- ina höfðu verið lagðar. Handtak á 40 ára stúdentsafmælinu SUMIR hafa skipt um skoðun, aðrir halda fast við sinn keip. Enn aðrir voru að gegna skyldustörfum og höfðu ekki mótað sér skoðun á aðild íslands að Atlantshafsbandalaginu. En þátttak- endurnir í atburðunum góðviðrisdag- inn 30. mars 1949, sem rætt var við, voru flestir fúsir að tjá sig. Leifur Sveinsson lögfræðingur var 21 árs háskólanemi og einn af liðs- mönnum varaliðs lögreglunnar sem stofnað var vegna þess að ráðamenn óttuðust að andstæðingar samnings- ins myndu ráðast á AJþingishúsið. „Liðið var stofnað með vísan í lög um lögreglumenn nr. 50 frá 1940 og við vorum þarna sem opinberir starfsmenn," segir Leifur. „Ef ein- hverjir þeirra hefðu orðið fyrir veru- legum skakkaföllum í átökunum hefði ríkið orðið að greiða þeim bæt- ur.“ Alls voru í því 85 manns, einkum ungir og hraustir menn, allt karlar og meðal þeirra allmargir mennta- skóla- og háskólanemar. Stjórnendurnir voru einkum þeir Ásgeir Pétursson, síðar sýslumaður, Eyjólfur Konráð Jónsson, síðar rit- stjóri og alþingismaður og Thor O. Thors, framkvæmdastjóri, að sögn Leifs. Um 800-900 sjálfboðaliðar stilltu sér upp fyrir utan húsið en 85- menningarnir voru hins vegar hafðir til taks í þingflokksherbergi Fram- sóknarflokksins „með samþykki Ey- steins". Þeir höfðu hjálma og kylfur og auk þess armbindi í fánalitunum til auðkennis, svipað og fyrirliðar í knattspyrnuliði. „Við vorum einu mennirnir á land- inu sem vissu ekki hvað var að gerast fyrir utan húsið, við vorum lokaðir inni frá klukkan ellefu um morgun- inn til fjögur. Við gátum aðeins horft á dómkirkjudyrnar." Hann segir að liðinu hafi loks verið sagt að fara út og, eftir nokkurt þóf, að taka með sér hjálma og kylfur. Lögreglustjóri hafi sagt að þingmenn hygðust nú halda heim og bílar þeirra ættu að koma að aðalinngangi hússins. Varaliðið ætti að tryggja að bílstjórarnir gætu ekið að húsinu um Kirkjustræti. Leifur segist halda að útrásin hafi verið mistök. „Eins og þingmennirn- ir gætu ekki beðið þangað til allir væru farnir! Margir þingmenn gengu reyndar út eins og ekkert hefði í skorist, Einar Olgeirsson og líka nokkrir stjórnarþingmenn.“ Hann segir um aðdragandann að hundruð manna hafi um nokkurra daga skeið komið á fundi í Sjálfstæð- ishúsinu og verið viðbúnir því að „kommúnistar gerðu árás og hindr- uðu umræðurnar" á þingi sem stóðu marga daga. „Þegar við komum út reka þessir andstæðingar Atlantshafsbandalags- ins upp óp. Og þegar fyrirliði okkar, Sigurður Þorsteinsson, sem var lög- reglumaður, heyrir þessi öskur og grjóthríðin bylur á húsinu álítur hann að þetta sé árás á okkur. Hann beinir kylfunni fram og það er merki um að við eigum að stöðva mennina sem voru að henda hraunhellunum. Það er eins og olíu væri hellt á eld þegar við birtumst þarna. Þetta var stríð. Menn reyndu að slasa engan en einn úr okkar röðum, menntaskólanemi, var tekinn og bar- inn illa. Við vorum mjög óánægðir með að þeir sem voru dæmdir skyldu aldrei sitja inni, enginn þeirra, held- ur ekki forsprakkarnir. En það var ægilegt að lenda í þessu, til dæmis hafði einn af aðalmönnum andstæð- inganna verið samstúdent minn. Það jafnaðist ekki aftur á milli okkar fyrr en á 40 ára stúdentsafmælinu 1986, þá tókumst við loks í hendur." Blöskraði túlku Morgunblaðsins Jón Böðvarsson íslenskufræðingur og fyrrverandi skólameistari, hefur verið eindreginn andstæðingur Atl- antshafsbandalagsins og hersetunn- ar frá því að bandarískt herlið kom aftur hingað 1951. En hann var menntaskólanemi og félagi í Heimdalli 1949 og hlýddi kallinu þeg- ar ungir sjálfstæðismenn voru beðnir um að verja Alþingishúsið fyrir árás. „Ég var að verða nítján ára um þetta leyti,“ segir Jón. „Ég held að þetta hafi verið nokkur hundruð manns sem stóðu á verði fyrir fram- an húsið, ég var við hornið á Dóm- kirkjunni. Fyrir hverjum 15-20 manna hópi var einn ábyrgur, við vorum margir úr Menntaskólanum í Reykjavík. Ég var fylgjandi inngöngunni í NATO en ég trúði því statt og stöðugt að hér yrði aldrei her á frið- artímum. Það var svo stutt síðan sjálfstæðið fékkst, 1944 og það var svo mikill fögnuður í landinu þá. Maður stóð þarna á Þingvöllum í grenjandi rigningu, alveg holdblaut- ur og fagnaði.“ Jón segir að reiðin hafi verið mikil á báða bóga og hart deilt. „Svo kem- ur 50 manna lið út úr húsinu, meðal þeirra nokkrir bekkjarbræður mínir og ég sá þá lemja menn. Rétt fyrir framan mig ætlaði einn þeirra að lemja gamlan mann en annar Leifur Sveinsson Jón Böðvarsson Árni Pálsson Karl Bóasson Páll Eiríksson + menntaskólanemi þreif af honum kylfuna til þess að koma í veg fyrir þetta.“ Sá síðarnefndi var dæmdur í fangelsi fyrir að ráðast á lögregluna, segir Jón. Hann segist halda að ungu nemarnir í varaliðinu hafi verið gripnir af æsingi en sér hafi þótt dómurinn „alveg hrikalegur“. Þetta hafi haft mikil áhrif á sig en hann nefnir að sjálfur hafi hann verið ný- kominn af málfundi í Menntaskólan- um þar sem hann flutti ræðu og mælti með Atlantshafsbandalaginu. „Það sem mér blöskraði var hvern- ig Morgunblaðið túlkaði þetta, það sagði að menn eins og Jón Múli Árnason og Stefán Ögmundsson hefðu hvatt til árása á Alþingi. Þeir gerðu það ekki. Mér fannst blaðið túlka þetta eins og þetta hefði verið stríðsástand." Stefán og fleiri sögðu m.a. fólkinu á Austurvelli með aðstoð gjallarhorns að þingmenn sósíalista væru fangar í þinghúsinu en vegna hættuástandsins var Alþingismönn- um bannað að fara út um hríð. Guðfræðinemi kastar eggi Séra Árni Pálsson í Kópavogi var 21 árs guðfræðinemi og lét meðal annars hrífast af málflutningi manna á borð við sr. Sigurbjörn Einarsson, síðar biskup en hann var mjög and- vígur aðildarsamningnum. Árni segir ennfremur að sér hafi þótt sem keyra ætti málið í gegn allt of hratt. Hann var meðal mótmælenda á Austurvelli, kom þangað_ af útifundi við Miðbæjarskólann. Árni er nú löngu búinn að skipta um skoðun á Atlantshafsbandalaginu og segist að sjálfsögðu skilja að lýðræðisríki þurfi að bindast varnarsamtökum. „Ég segi eins og Halldór Laxness, maður gengur ekki með steinbarn í magan- um alla ævina“. Eiginlega líti hann meira á þátttöku sína í átökunum 1949 sem ungæðingsskap. Árni hlaut dóm ásamt 19 öðrum. Fyrir hvað? „Ég henti einu eggi að skólabróður mínum sem stóð undir vegg Alþing- ishússins og viðurkenndi strax sekt mína, gagnstætt mörgum öðrum. Stutt var í búðir þarna og einhver hefur farið og keypt nokkur kíló af eggjum til að nota á staðnum. Sakadómarinn sem yfirheyrði mig spurði mig fljótlega hvort ég væri í flokki. Ég sagðist vera í einum, Þjóð- ernisflokki sósíalista, það er nasista- flokknum íslenska. Þegar ég var níu ára gamall ylfingur í skátafélaginu Erni í Reykjavík skráði stjórnandinn þar okkur alla í flokkinn. „Þessi flokkur er ekki til,“ svaraði dómarinn mér og ætlaði að sleppa því að láta skrá ummælin. Ég sagði þá að ef ég væri spurður og svaraði samvisku- samlega en síðan ætti ekki að skrifa þetta niður ætti ég ekkert erindi þarna.“ Árni getur brosað að þessu núna en málið var í senn hlægilegt og há- alvarlegt. Þegar hæstaréttardómar féllu 1952 voru þeir mikið áfall. Byggt var á ákvæðum um landráð, sakborningar misstu kosningarétt og kjörgengi sem merkti m.a. að þeir áttu ekki að geta stundað háskóla- nám. Fimm hinna dæmdu voru í Há- skólanum og dr. Alexander Jóhann- esson rektor ákvað strax í samráði við háskólaráð að hlíta þessu í engu. Dómarnir væru þess eðlis að ekki væri hægt að vísa mönnum úr skóla og Árni og hinir fjórir fengu að halda áfram svo fremi þeir brytu ekki regl- ur skólans. Seinna hlutu sakborning- arnir fulla sakaruppgjöf og dómarnir voru þurrkaðir út úr öllum bókum 1957. Áður en hæstaréttardómurinn féll var Árni kallaður niður í sakadóm, sem þá var við Fríkirkjuveg, átti að fara sem hljóðlegast bakdyramegin og koma ekki fyrr en um hálfellefu um kvöldið. Þar var fyrir verjandi hans og saksóknarinn, þeir stóðu við líkan af miðbænum. „Þeir segja mér að ég geti breytt framburði mínum, um það hvar ég hafi verið staddur þegar ég fleygði egginu. Þeir vildu að ég segðist hafa staðið við gamla Líknarhúsið, vestan við Alþingishúsið. Þá hefði ég ekki getað kastað í átt að Alþingishúsinu, ég hefði ekki hitt það. Alvaran fólst nefnilega í því að ég hafði óvirt Al- þingi með því að kasta í það eggi.“ Þetta dugði þó ekki; Árni var dæmd- ur í hæstarétti en sat aldrei inni fremur en hinir. Lögregla milli steins og sleggju Sagt hefur verið að lögreglumenn hafi verið eins og milli steins og sleggju við Alþingishúsið 30. mars 1949. Karl Bóasson var lögreglumað- ur á verði við Alþingishúsið og var 24 ára gamall, hafði þá starfað i lögregl- unni í fjögur ár. Hann fékk þungan hlut, líklega steinhellu, i mjöðm og marðist illa en þurfti þó ekki á sjúkrahúsvist að halda. Hann telur að varalögregluliðið sem haft var til taks inni í húsinu hafi gert illt verra er það var sent út. „Helst vildi ég nú gleyma þessum degi,“ segir Karl. „Ég held að hægt hefði verið að verja húsið ef við hefð- um verið einir um þetta en við vorum aðeins búnir kylfum, það er rétt. Þær voru langar, úr tré og mjög óhentug- ar og við höfðum ekki fengið neina sérstaka þjálfun í að bregðast við svona átökum. Búningarnir sem við notuðum þá voru úr þykku ullarefni, hnepptir upp í háls. Þeir voru auðvit- að hlýir á veturna en óþjálir og alltof of heitir á sumrin." Varð hann síðar var við einhverja andúð á lögreglunni meðal almenn- ings vegna óspektanna við Alþingis- húsið og framgöngu lögreglunnar þar? „Nei ég varð alls ekki var við það. Sjálfur átti ég frændur og vini, einn þeirra var harður Sjálfstæðismaður, sem voru mikið á móti aðildinni að NATO en þeir voru ekki í neinum vígahug gegn lögreglunni.“ Páll Eiríksson var á vakt í Alþing- ishúsinu, hann var 28 ára og hafði verið í lögreglunni frá 1943. „Vaktin mín var send í Alþingis- húsið að kvöldi 29. mars en þá voru þingfundir. Við vorum þarna alla nóttina uppi á annarri hæðinni og fram á næsta kvöld." Sigurjón Sigurðsson lögi-eglustjóri var nýtekinn við starfinu og hefur oft verið deilt á þá ákvörðun hans að senda út varaliðið, sem var til taks inni í húsinu, en Páli er illa við að gagnrýna sinn gamla yfirmann. Hann segir þó að það hafi hleypt illi blóði í marga þegar þeir sáu ungu mennina koma út með hjálma og kylfur. En er það rétt að þeir hafi vaðið gegn fólkinu og lamið það? „Við lögreglumennirnir sem vor- um inni í húsinu fórum ekki út alveg strax þannig að ég þori ekki að segja til um það. Rúður voru farnar að brotna undan steinkastinu, þing- menn ennþá inni og við gátum því ekki farið út strax. Auk þess þurftum við fljótlega að setja á okkur gas- grímurnar. Það var reiðubúið nokk- urt lögreglulið fyrir utan húsið, búið hjálmum og með táragassprengjur, það var byrjað að kasta sprengjun- um þannig að maður sá ekki vel hvað gerðist." Páll segir að lögreglumönnunum hafi alls ekki liðið vel en þeir hafi orðið að hlýða skipunum. „En ég tel nú að bæði þeir sem voru inni og hinir úti á Austurvelli hafi í raun ekki gert sér grein fyrir afleiðingunum. Margt af þessu fólki var það ungt að það má kannski segja að þeir hafi talið að þarna væri einhvers konar gamlárskvöldshasar. En toppamir vissu náttúrlega að það var alvara á ferð,“ segir hann. ■f

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.