Morgunblaðið - 30.03.1999, Page 54
54 ÞRIÐJUDAGUR 30. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
FARSÆLL frá Arnarhóli er kominn í sitt gamla form og sigraði i
Skautahöllinni ásamt knapanum Ásgeiri Svan.
Istölt Reiðsports
Farsæll kominn
til sjálfs
sín og* sigraði
verðskuldað
Hestamenn héldu öðru sinni innreið í
Skautahöllina í Laugardal og kepptu þar
% í ístölti. Þar voru saman komnir margir
af bestu hestum landsins. Valdimar
Kristinsson stóð þar í miðjum hringnum
á hálum ís og myndaði og fylgdist með
því sem þar fór fram.
ÁSGEIR Svan Herbertsson og Far-
sæll frá Arnarhóli gerðu að engu
áform Hafliða Halldórssonar á Valí-
ant frá Heggstöðum um að sigra
öðni sinni á Istölti Reiðsports í
Skautahöllinni. Allt hefði þó gengið
eftir hjá Hafliða og Valíant ef ekki
hefði orðið breyting á keppenda-
^kránni á síðustu stundu og þeir Ás-
?bir og Farsæll ekki verið á meðal
keppenda. Einvígi þessara tveggja
para var írábær hápunktur á eftir-
minnilegri kvöldstund í Skautahöll-
inni þar sem fram komu 30 knapar
með afbragðsgóða hesta.
Eins og á fyrsta mótinu í fyrra
gekk hestunum misjafnlega að fóta
sig á hálu svellinu og sum þeirra
fundu sig engan veginn og náðu ekki
taktinum. En það var ekki hægt að
segja um þessa miklu gæðinga sem
efstir stóðu. Það var ánægjulegast
að sjá að Farsæll þessi mikli yfir-
burðahestur virðist nú kominn með
fyrri getu og voi-u margir þeirrar
skoðunar að Farsæll hafi aldrei sést
jafn öflugur í töltkeppni sem nú.
Hann hefur fyrst og fremst kynnt
sig sem yfirburða sterkur fjórgangs-
hestur en alltaf þó verið á meðal
þeirra sterkustu í tölti en vantað
herslumuninn til komast þar á topp-
inn.
Farsæll sem verður ellefu vetra í
vor virðist á þessari stundu vera á
toppnum. Hann fór illa út úr hita-
sóttinni á síðasta ári og var ekki
sjálfum sér líkur að fasi og fram-
göngu á mótum. Ásgeir Svan stefnir
með hestinn í úrtöku fyrir heims-
meistaramótið í sumar og má ætla að
þeir félagar geri tilkall til fjórgangs-
sætisins í liðinu.
Þrátt fyrir að hafa lotið í lægra
haldi fyrir Farsæli og Ásgeiri geta
Hafliði og Valíant unað glaðir við
FERMINGARTILBOÐ HESTAMANNSINS!
Hrafn hnakkur m/öllu kr.79.800,- áður-krÁÖ-ÁSÖÖ
Sleipnir hnakkur m/öllu kr. 89.990.- áður ku+OTÆOO
Horka sléttar skóbuxur kr. 14.900,- áður ícl-4-77900
Horka flauel skóbuxur kr. 13.900 áður I«v4-6t900
Mikið úrval af beislum
á fermingatilboði
frá kr. 3.990.-
Casco reið-
hjálmarnir
vinsælu
með 15%
afslætti.
Sendum í póstkröfu um alR land!
HUGRÚN Jóhannsdóttir hlaut sérstök kvennaverðlaun fyri sýningu
sína og Blæs frá Sigluvík en hún var með hæstu einkunn kvenna sem
þátt tóku í keppninni.
VEL FER á með þeim félögum Hafliða og Ásgeir þegar verðlaunin
hafa verið borin í þá og ekki að sjá hin harða keppni hafi áhrif á
vinskapinn.
SIGURVEGARI kvöldsins af viðbrögðunum að dæma var tvímæla-
laust Jón Ólafsson sem hlaut vandaðan hnakk í happdrætti kvöldsins
með honum á myndinni eru Ásta B. Benediktsdóttir og Halldóra
S. Guðlaugsdóttir.
sitt. Klárinn var feiknagóður hjá
Hafliða, allt fas og höfuðburður með
því besta sem gerist og ljóst að hann
er einnig kominn í sitt fyrra form.
Hafliði og Valíant voru valdir athygl-
isverðasta par keppninnar en svo
skemmtilega vildi til að þau verðlaun
gaf Hestaskólinn á Ingólfshvoli þar
sem Hafliði er skólastjóri og einn af
aðaleigendum skólans. Það er svo
aftur spurning hvernig á að velja at-
hyglisverðasta par í keppni sem
þessari því auðvitað eru það sigur-
vegaramir sem oftast eru athyglis-
verðastir.
Keppnin var með svipuðu sniði og
í fyrra. Þrír keppendur voru saman á
vellinum í forkeppni þar sem þrír
dómarar gáfu einkunnir. Átta stiga-
hæstu keppendurnir komust áfram
og kepptu þeir innbyrðis í fjómm
bráðabönum þannig að par í fyrsta
sæti mætti þeim sem voru í áttunda
sæti og par í öðru sæti mætti pari í
sjöunda sæti. Endirinn varð sá að
Daníel Jónsson sem keppti á Erli frá
Kópavogi atti kappi um þriðja sætið
við Snorra Dal á Hörpu frá Gljúfri
þar sem Daníel hafði betur og kvöld-
ið endaði á einvígi Hafliða og Ás-
geirs.
Sérstök verðlaun gefin af Top
Reiter voru veitt þeim kvenknapa
sem hæsta einkunn hlaut og féllu
þau í skaut Hugrúnu Jóhannsdóttur
sem keppti á Blæ frá Sigluvík. Þá
fengu keppendur í 5. til 8. sæti
páskaegg en fimm efstu fengu eign-
arbikara sem gefnir voru af Orku.
Sigui'vegarinn fékk eina 20 poka af
fóðurbæti frá fóðurblöndunni. Þá
giltu aðgöngumiðamir sem happ-
drættismiðar og vom þrír folatollar í
verðlaun. Einn hjá Toppi frá Eyj-
ólfsstöðum, Hektor frá Akureyii og
Hami frá Þóroddsstöðum sem var
sýndur í höllinni áður en dregið var.
Rúsínan í pylsuendanum var svo
glæsilegur hnakkur frá Reiðsport
með öllum fylgihlutum vel yfir hund-
rað þúsund að verðmæti og var gleði
vinnandans svo mikil að ekki fór
milli mála að þar færi sigurvegari
kvöldsins.
Keppnin nú var örlítið frábmgðin
hefðbundinni töltkeppni að því leyti
að sett voru hraðamörk á síðasta at-
riðið sem venju samkvæmt er yfir-
ferðartölt. Var þetta góð ráðstöfun
því glæsilegar sýningar era fljótar
að breytast í andhverfu sína á hálf-
um ís ef hestar fara að srika og jafn-
vel falla. Sá kunni kappi Erling Sig-
urðsson sá um að áminna keppendur
í míkrófóninn ef of hratt væri farið.
Til vara hafði hann gult spjald við
hendina sem hann var tilbúinn að
veifa ef keppendur ekki héldu sig á
mottunni. Tvö gul spjöld hefðu þýtt
brottrekstur úr keppni en ekki kom
til þess að Erling þyrfti að veifa
spjaldinu góða. Keppnin dróst mjög
á langinn og kom glöggt fram að
stilla má fjölda keppenda í hóf og
eins að gæta tímans sem fer í ýmis
auka atriði. Þriggja tíma dagskrá
ætti að vera hámarkið á samkomu
sem þessari. Eins og í fyrra tókst
þetta ístölt Reiðsports með miklum
ágætum. Yfir tólf hundmð manns
fylgdust með keppninni að þessu
sinni og tók mannskapurinn virkan
þátt í því sem fram fór á vellinum.
Úrslit urðu annars sem hér segir:
1. Ásgeir S. Herbertsson á Farsæli
frá Arnarhóli.
2. Hafliði Halldórsson á Valíant frá
Heggstöðum.
3. Daníel Jónsson á Erli frá Kópa-
vogi
4. Snorri Dal á Hörpu frá Gljúfri.
5. Ragnar Hinriksson á Hrafni frá
Ríp.
6. Vignir Siggeirsson á Ofsa frá Við-
borðsseli
7. Hermann Karlsson á Amal frá
Húsavík.
8. Guðmar Þ. Pétursson á Nökkva
frá Tunguhálsi II.
Efsti kvenknapi
Hugrún Jóhannsdóttir á Blæ frá
Sigluvík.
Útborgun
Ö Greiða skal út laun
á morgun
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur