Morgunblaðið - 30.03.1999, Síða 58

Morgunblaðið - 30.03.1999, Síða 58
* 58 ÞRIÐJUDAGUR 30. MARZ 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Kjartan Bald- ursson fæddist í Reykjavík 20. nóv- ember 1951. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 21. mars síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðrún Rósa Sig- urðardóttir frá Hælavík og Baldur Maríusson. Þau voni ógift. Uppeld- isfaðir Kjartans frá ellefu mánaða aldri er Hjörtur Magnús Guðmundsson frá Reykjavík. Sonur Hjartar frá fyrra hjóna- bandi er Karl, f. 1948. Systkini Kjarfans, böm Guðrúnar og Hjartar, era: Lilja, f. 1953, Sig- nín, f. 1954, Guðmundur, f. Ástin mín. Ég man svo vel þegar ég skrifaði þér bréfið sem kom okkur saman. Og nú sit ég, einu ári og þremur mánuðum seinna, og skrifa þér ann- að bréf til að kveðja þig hinstu kveðju. Mig langar að þakka þér frá mín- um innstu hjartarótum fyrir að þú komst inn í líf mitt og gafst mér alla þína ást, fyrir að vera minn besti vinur og félagi, fyrir litla lífið sem við sköpuðum saman og fer að koma í heiminn bráðum og fyrir að vera honum Snorra mínum góður stjúp- faðir og vinur. Megi Guð og englarnir geyma þig þangað til við hittumst aftur, hinum megin. Að sofna var ljúft við sönginn þinn, svífa í draumaheiminn inn á mosaendanum mjúka, enn ég lófann þinn funheita finn sem fór svo blítt um líkama minn, og frostlaufin burtu sá fjúka. I líf mitt þú komst sem lofsöngur tær, sem Ijós í myrkri, svo undur skær. M ævintýri ei gleymi. Drauminn okkar sem dafnaði í gær daginn sem okkur báðum var kær ég vona, vinur, þig dreymi. (Unnur Sólrún) Vertu sæll, hjartað mitt. Þín eiginkona, Asdi's Emilfa. Sæll Kjartan minn. Ég vildi þakka þér fyrir það hvað þú varst ákveðinn í að láta mig vera í trommuskólanum þrátt fyrir að fjárhagurinn leyfði það ekki. Auk þess sem ég hafði gaman af öllum sögunum um æsku þína. tii dæmis þegar þú stalst ... jæja þú veist hvað ég meina. Það var ailtaf gaman að spyrja þig að einhverju tengdu tónlist eða geimverum, vegna þess að það var svo gaman þegar við vorum famir að rökræða fram og aftur málefnin, svo lengi að við vorum komnir með efni í heila bók. Svo vil ég þakka þér fyrir þær stundir sem þú gafst mömmu og fyrir litla Ijósið sem þið eigið saman. Ég vona að þú hafír gaman af öllu þarna hinum megin og þú hefur væntanlega komist að sannleikan- um um geimverurnar og Elvis Presley, og kannski hvort Guð er kona. Vertu sæll, elsku Kjartan minn, hafðu það gott þarna í Paradís og komdu reglulega og oft í heimsókn. Snorri Orn. Hann var ekki stór daginn sem ég sá hann fyrst, enda ekki nema eins árs. En okkur kom ávallt vel saman og alla tíð síðan var sam- komulagið gott. Enda ákveðið að ekkert færi öðruvísi á milli okkar, en á milli hinna barnanna. Barátta okkar hjónanna var barátta hans og hans líf og framganga var eins og hjá okkur. Þannig var hans ævi og framgangur. 1955, Stefanía, f. 1956, Gunnhildur, f. 1957, Ingibjörg, f. 1962, og Skarphéðinn Þór, f. 1963. Böra Baldurs og konu hans, Áslaugar Magn- úsdóttur, era: Unnur, f. 1957, Amgrímur, f. 1960, Birgir, f. 1963, og Andi-ea, f. 1966. Frá fæðingu var Kjartan á Vöggustof- unni við Sunnutorg þar sem móðir hans vann, þar til hún og Hjörtur hófu búskap. Frá tveggja ára aldri ólst Kjartan upp í Kópavogi og gekk þar í skóla. Lauk skyldunámi og prófí frá Gagnfræðaskóla Kópavogs. Einnig var hann við nám við Kjartan var mjög heilsteyptur maður, skuldaði engum neitt, lagði aldrei af stað án þess að geta stopp- að og heldur var beðið um stund heldur en að skulda. Minningarnar streyma fram og þær eru allar af því góða. Ég er því þakklátur fyrir árin sem eru liðin, alltof fá, en góð. Við hjónin þökkum fyrir allt og allt og vonum að góður guð hafí tekið vel á móti Kjartani þegar hann lagði upp í síðustu ferðina. Hjörtur. Þegar árin færast yfir okkur er tíminn svo fljótur að líða, næstum eins og andartak. Þannig leið síð- asta ár - það hamingjuríkasta í lífí dóttur okkar, Ástu Millu. Hún hafði hitt manninn í lífi sínu, hann Kjart- an Baldursson. Það var unun að horfa á og upplifa ást þeirra og um- hyggju fyrir hvort öðru og vonir þeirra um að fá að stíga sporin sam- an út á æviveginn. Kjartan var yndislegur maður, blíður og ljúfur, og allir sem kynnt- ust honum, löðuðust að honum, bæði fullorðnir og börn. Hann hafði líka alveg einstaka tónlistarhæfi- leika, músíkin var honum í blóð bor- in, öll hljóðfæri léku í höndum hans og gat hann spilað næstum hvað sem var. En þegar allt virtist leika í lyndi, lífíð var svo gott og allt gekk svo vel þá lá hún í leyni, váin sem allir ótt- ast. Kjartan greindist með krabba- mein á haustdögum síðastliðið ár - og hófst þá baráttan, hörð og mis- kunnarlaus sem tók á krafta Kjart- ans og baráttuþrek hans. Samt náði hann rétt fyrir veikindin að planta litlum afleggjara, litlu lífi, sem von er á nú rétt eftir páska og sem við vonum að erfi alla eiginleikana hans. Svona eru vegir Guðs órannsak- anlegir og við verðum að trúa að einhver sé tilgangur hans með þessu öllu saman þótt erfítt sé að skilja hann. Vertu sæll, elsku vinur, og hafðu þökk fyrir allt og allt. Lifðu heill í lífinu eftir lífið. Guð blessi þig og verndi. Þínir tengdaforeldrar, Edda og Björgvin. Þegar ég var lítill átti ég stóran bróður. Það var hann Kjartan sem við kveðjum hér í dag alltof snemma. Hann var svo stór að hann átti rafmagnsgítar. Hann var svo stór að hann gaf sér tíma til að kenna mér að spila á hann, og þó ég færi seinna meir í tónlistarskóla tók ég samt stóra bróður mér til fyrir- myndar í tónlist. Kjartan bróðir hafði ótrúlega tón- listarhæfileika. Honum nægði að heyra lag einu sinni til að geta spil- að það. Ekki nóg með það, hann spilaði jöfnum höndum á píanó, gít- ar, bassa og fleiri hljóðfæri. Við Kjartan ásamt Guðmundi bróður okkar vorum mjög samrýndir í tón- listinni. Við sátum oft saman og Tónlistarskóla F.Í.H. Frá barn- æsku var tónlistin stór þáttur í lífí Kartans. Flestar helgar til margra ára spilaði hann á hin- um ýmsu stöðum við hin marg- víslegu tækifæri. Hann lék einnig nokkram sinnum fyrir Islendinga erlendis. Kjartan fór ungur til sjós á millilandaskip og vann uppfrá því margvísleg störf. Síðustu árin starfaði hann sem bflstjóri á Kópavogshæli. Þar kynntist hann eftirlifandi konu sinni, Ásdísi Emelíu Björgvinsdóttur, sjúkraliða frá Ákranesi, f. 10. ágúst 1960, dóttir hjónanna Guðrúnar Eddu Júlíusdóttur og Björgvins Hagalínssonar. Sonur Ásdísar er Snorri Orn Kristinsson, f. 9. ágúst 1981. Kjartan og Ásdís gengu í hjónaband 28. desember í Ár- bæjarkirkju. Hún gengur með þeirra fyrsta barn. Utför Kjartans verður gerð frá Árbæjarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. hlustuðum á eitthvað nýtt eða spil- uðum saman. Einu sinni á góðum sumardegi fórum við út í garð með hljóðfærin og héldum tónleika fyrir nágrennið. Það eru mörg minningabrotin sem hrannast upp á þessari stundu. Eins og þegar pabbi varð sextugur og við bræðumir spiluðum saman fyrir dansi. Fyrsti dansleikur sem ég fór á með konu mína var í Garð- inum þar sem Kjartan spilaði ásamt hljómsveitinni Miðlunum. Á seinni árum bárum við oft sam- an bækur okkar í tónlistinni og ræddum um heima og geima. Ég vil kveðja stóra bróður með þessum orðum Hallgríms Péturs- sonar: Ég lifi’ í Jesú nafni í Jesú nafni’ eg dey, þó heilsa’ og líf mér hafhi, hræðist ég dauðann ei. Dauði, ég óttast eigi afl þitt né valdið gilt, í Kristi krafti' eg segi: Kom þú sæll þá þú vilt. Guð blessi Ásdísi, Snorra og ófædda barnið. Skarphéðinn Þór og fjölskylda. Elsku bróðir. Mikið vomm við systkinin heppin að eiga þig sem bróður. Lilja reyndi mikið að ala okkur upp og taldi mörgum trú um að hún hefði séð um okkur öll frá fæðingu. Samt varst þú alltaf stóri bróðir. Þú varst sá sem spilaðir fyrir okkur lögin sem okkur fannst flott og gaman var að syngja. Það var nefni- lega alveg nóg fyrir þig að heyra lag einu sinni, þá gastu spilað það. Eig- inlega var líka sama hvaða hljóðfæri þú reyndir við, þú gast spilað á allt. Sem unglingur var æðislegt að eiga bróður á skellinöðru, sem átti allar nýjustu plöturnar og spilaði alltaf það sem hann var beðinn um og miklu meira. Við systkinin litum mjög upp til þín. Þú hættir í skóla eftir skyldunám og fórst að vinna. Fórst til Ameríku á Jökulfelli og keyptir allar nýjustu plöturnar og við nutum góðs af. Þú vannst í Brauð hf og færðir okkur alltaf nýbakað rágbrauð þegar þú komst heim. Okkur fannst þú aðal- lega vera í vinnu til að færa okkur spennandi hluti. Margt var brallað en tónlistin var aldrei langt undan. Sem strák gekk þér illa að læra að spila eftir nótum, þú varst svo miklu fljótari að spila eftir eyranu. Þegar þú varst orðinn fullorðinn fórstu í tónlistarnám hjá FIH og lærðir m.a. að lesa nótur og tón- fræði. Þrátt fyrir að þú ynnir fyrir þér með alls kyns verkamannavinnu varstu frá unglingsaldri í hljóm- sveitum. Eignaðist íbúð og fleira með því að spila. Ferðaðist til út- landa til að spila, t.d. á Edinborgar- hátíð, í London, Frakklandi og Portúgal. Þú varst mjög liðtækur í trjárækt í Hvalfirði með mömmu og pabba. Saman börðust þið við að fá trjá- KJARTAN BALDURSSON gróður til að vaxa við sumarbústað- inn. Ef eitthvert okkar vantaði hjálp við eitthvað varstu alltaf kominn og tilbúinn til aðstoðar. Þú og Magnús Þór voruð góðir félagar og þú ræddir mikið við hann sem og annað ungt fólk um nauðsyn þess að afla sér menntunar og hve þú sæir alltaf eftir því að hafa hætt í skóla. Það væri ástæða þess að þú neyddist alltaf til að vinna láglauna- vinnu og spila á misjafnlega skemmtilegum böllum til að geta eignast það sem þú þyrftir. Mikil var forvitni systra þinna þegar þú læddir út úr þér við mömmu að þú værir nú búinn að eignast kærustu. Fljótlega fengum við svalað forvitni okkar þegar þú komst með Ásdísi og kynntir hana fyrir fjölskyldunni. Þið fóruð að búa saman í mars á síðasta ári ásamt Snorra syni Ásdísar. Mikil ham- ingja og gleði. í ágúst fréttist að von væri á barni og mikil var eftir- væntingin og ánægjan. Sú gleði stóð ekki lengi því í sept- ember greindist þú með krabba- mein, fórst í mjög erfiðar aðgerðir og meðferðir en alltaf seig niður á við. Baráttan hefur verið hörð og erfið og þú varðst að lúta í lægra haldi. Við vonuðum öll að þú fengir þína æðstu ósk uppfyllta og fengir að sjá litla barnið þitt en það varð ekld. Á sunnudaginn vildir þú vita hve langt væri í tónleikana þína og hverjir ætluðu að spila á þeim. Þeg- ar ég var búin að telja þá upp sem ég mundi eftir sagðir þú: Mikið eru allir góðir. En fólk vildi fá að gera eitthvað fyrir þig. Þú varst svo oft búinn að rétta okkur hjálparhönd. Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af Ásdísi, Snorra og litla barninu. Það á okkur að og það er sko heilmikið. Ég veit líka að þú ert hjá þeim og okkur og styrkir og hjálpar okkur öllum í gegnum erfiða tíma. Hvíl í friði, elsku bróðir, við syngjum fyrir þig á tónleikunum. Sigrún. Við dánarbeð Kjartans var lesinn þessi sálmur: Þótt heilsu mína særi sótt og sigri þrekið lúi, Guðs náð mér veikum veitir þrótt Ég veit á hvem ég trúi. Þótt dauðinn bregði beittri sigð og brátt að mér hann snúi, ei voði sá mér veldur hryggð. Égveitáhvernégtrúi. (H. Hálfd.) Kjartan vissi á hvað hann trúði, það var á lífið, tilveruna, gleðina, hamingjuna og ekki síst trúði hann á ástina, framtíðina og fjölskyld- una. Við erum stór og sterk fjöl- skylda, höfum alltaf staðið saman ef eitthvað hefur bjátað á, eins ef eitthvað hefur staðið til, í gleði og sorg, en síðustu mánuðir hafa verið ótrúlega erfiðir og svo óréttlátt að horfa á ungan mann í blóma lífsins hrörna og visna af hræðilegum sjúkdómi, krabbameini. Hann miðl- aði samt af trú sinni á lífið, ekki er langt síðan honum var það mjög hugleikið að ræða um fyrirgefn- ingu og jákvæði, aldrei erfa neitt, ekki vera reiður. Það var eins og hann hafi vitað af þeirri reiði sem hefur verið innra með okkur, þeirri sorg sem við börðumst við. Kjartan var einstaklega ljúfur maður með fastar skoðanir á hlutunum, hafði gaman af að ræða málin og ef hann fann eitthvert áhugavert efni þá kynnti hann sér það til hins ýtrasta, s.b. trú hans á að líf hafí verið á jörðinni fyrir okkar líf. Hann las allt sem hann náði I um það efni og það var rætt fram og aftur. Eitt sinn kom ég í heimsókn til hans. Þá var hann að lesa í Bibl- íunni og ég stríddi honum eitthvað á því en hann sagðist þá vera að lesa hana eins og hverja aðra sögu- bók til að geta tekið þátt í þeirri umræðu sem var þá í gangi í þjóð- félaginu og hann sagði að þetta væri hin besta saga. Þegar við vorum að alast upp í Kópavogi var goggunarröðin alls- ráðandi í virðingarstiganum, sá sem átti sér eitthvað til ágætis eins og að eiga stóran bróður naut mikillar virðingar og þegar þú keyptir þér skellinöðra var ekki frekar reynt að keppa um þann virðingartitil, það fór ekki á milli mála, við unnum á þinn kostnað. Það var oft fjörugt í Löngu- brekkunni þegar við vorum þar öll, átta börn, mamma og pabbi og seinna Magnús Þór og svo enn seinna Guðrún Rósa. Kjartan var hálfbróðir okkar en það gerði hann frekar sérstakari og skemmtilegri að okkur fannst. Pabbi gat ekki ver- ið honum meiri pabbi en hann var, milli þeirra var eitthvað sérstakt samband, þeir fóru saman til rakar- ans og pabbi hefur oft sagt okkur söguna af því þegar ókunnur maðm' dáðist að því hve líkir þeir væru feðgamir. Tónlistin átti hug Kjartans frá barnæsku og það er þjóðsaga í fjöl- skyldunni þegar fyrsta hljóðfærið kom inn á heimilið og Kjartan sex ára settist við það og spilaði þau lög sem hann kunni án þess að neinn hefði kennt honum þau. Oft voru sagðar sögur af Kjartani og munu þær geymast í minning- unni og vera sagðar á góðum stund- um og öraggt að barnið hans mun fá að heyra þær oft og mörgum sinn- um. Mamma talaði oft um það þeg- ar hún gekk með Kjartan og þegar hann fæddist. Hann var svo lítill og grannur enda fæddur fyrir tímann. Fyrstu mánuðina var hann á vöggu- stofu þar sem mamma vann en þeg- ar hann var 11 mánaða fóru þau að búa mamma og pabbi og þar með eignaðist Kjartan pabba sem ásamt mömmu umvafði hann og okkur öll ást og umhyggju áhyggjulausra æskudaga þar sem ramminn var heimilið og umhverfið allt tryggt og öruggt. Kjartan var einstaklega sam- viskusamur og góður starfsmaður hvað sem hann tók sér fyrir hendur. Hann var ekki stór og ekki þrekinn en seigur og duglegur. Alltaf lét hann skuldbindingar sínar ganga fyrir öllu öðru þó það þýddi að hann þyrfti að hjóla eða ganga í vinnuna af því hann átti ekki fyrir bensíni eða í strætó. Það að hann skyldi ekki lifa það að sjá litla barnið sitt fæðast er óskiljanlegt og ekki hægt að skilja neinn tilgang með því. Hann átti fal- legt heimili þar sem litla fjölskyld- an, Kjartan, Ásdís og Snorri, hreiðruðu um sig. Þangað var nota- legt að koma og yndislegt að finna kærleikann sem geislaði milli þeirra. Þar ætluðu þau að eiga sér framtíð með Snorra og litla barninu sem von er á eftir tvær til þrjár vik- ur. Það að hann skuli skilja eftir þennan litla sprota er stórkostlegt og í raun kraftaverk og vonandi verður það Ásdísi huggun í sorginni og um ókominn tíma þegar minn- ingarnar sækja á. Elsku Ásdís, Snorri, mamma og pabbi og allir hinir sem syrgja, það eru engin orð sem hugga, minningin lifir ljúfsár og falleg um ungan mann með stóra sál. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vöm í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. S. Egilsson) Þín systir Stefanía. Minningarnar brjótast fram í hugann nú þegar við kveðjum Kjartan bróður minn í dag. Þegar ég fór að muna eftir mér sem krakki í Kópavoginum, þá eyddi þessi stóri bróðir mörgum sumrum í sveit hjá Boggu frænku og Jóhanni. Og hvað var hægt að líta upp til hins hugum stóra kúrekstrai-meist- ara er hann kom heim á haustin úr sveitinni. Ekki hafði hann kannski stækkað mikið en í mínum augum var hann stærstur. Eitt vorið er við íjölskyldan, mamma, pabbi og allur barnahóp- urinn vorum á leið austur í Laugar- dal til Dísu og Ragnars var ákveðið að stoppa aðeins á leiðinni til að börnin gætu rétt úr sér. Það vár

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.