Morgunblaðið - 30.03.1999, Síða 80

Morgunblaðið - 30.03.1999, Síða 80
MORG UNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITffTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 ÞRIÐJUDAGUR 30. MARZ 1999 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK 528 milljóna króna tap hjá KEA í fyrra ♦ ♦♦ TAP varð af rekstri Kaupfélags Ey- firðinga og dótturfélaga á síðasta ári og nam það 528 milljónum króna. Þetta er mun lakari niðurstaða en á árinu á undan þegar félagið var gert upp með 19 m.kr. hagnaði. Að stærstum hluta er um að ræða tap dótturfélaga sem einkum skýrist af erfiðum rekstri sjávarútvegsfyrir- tækisins Snæfells. Tap móðurfélags- ins nam 130 milljónum og er það í samræmi við fyrirliggjandi áætlanir að sögn stjórnenda félagsins. Rekstrartekjur samstæðunnar ^námu 10.581 m.kr. og rekstrargjöld 10.757 milljónum króna. Rekstrar- tekjur móðurfélagsins námu 6.565 milljónum króna þar sem rekstur Snæfells var inni í tölum móðurfé- lagsins á síðasta ári. Rekstrargjöld námu 6.584 m.kr., fjármagnsliðir voru neikvæðir um 185 milljónir og tap af reglulegri starfsemi nam 152 milljónum. Eiríkur S. Jóhannsson kaupfé- lagsstjóri segir að rekstur móðurfé- lagsins sé innan þeirra áætlana sem gerðar voru og afkoman komi því J* ekki á óvart. „Við réðumst í mikla tiltekt sem hafði í for með sér tíma- bundinn kostnað og kemur niður á rekstrarreikningi félagsins á árinu, þótt færa megi rök fyrir því að raun- verulegt tap vegna viðkomandi þátta hafi verið komið til áður. Nið- urstaðan hvað varðar sum dótturfé- lögin er á hinn bóginn veruleg von- brigði. Að stærstum hluta er þetta vegna erfiðleika hjá Snæfelli hf., einkum í rækjuvinnslu og veiðum og vinnslu uppsjávarfiska. Þessir rekstrarþættir, sem eiga bróður- partinn af tapinu hafa nú verið seld- ir frá félaginu en í staðinn gengum Holtavörðuheiði Arekstur í veðurofsa TVEIR harðir árekstrar urðu á Holtavörðuheiði í Norðurár- dalshreppi seint í gær, en þar voru sjö til átta vindstig, hálka, blindhríð og mikill skafrenn- ingur og kóf sem varnaði öku- mönnum sýn. Ekki urðu alvar- leg meiðsli á fólki en talsverðar skemmdir á ökutækjum og eru þrjú þeirra talin óökufær á eft- ir. í fyrra tilvikinu rákust jeppi og sendibifreið saman en í því seinna var um að ræða árekst- ur fólksbíls og flutningabíls. Flutriingabifreiðin lenti utan vegar og tók talsverðan tíma að draga hana upp á veg aftur. Ekki voru sjáanleg meiðsli á fólki en ein stúlka var flutt til rannsóknar á heilsugæslustöð- ina í Borgarnesi. Veðurofsinn náði hámarki um klukkan 17 í gær og stóðu lögregla og björgunarsveitar- menn í ströngu í gærdag við að aðstoða ökumenn í erfiðleikum. Ruðningstæki frá Vegagerðinni gi-eiddu fjölda ökumanna leið en heiðin var auglýst lokuð fyr- ir umferð fólksbifreiða síðdeg- is. Skilja þurfti nokkrar bifreið- ir eftir vegna ófærðar, tvær voru dregnar út fyrir veg og dráttarbíll sendur eftir þeiiri þriðju. við til samstarfs við Síldarvinnsluna í Neskaupstað, sem er mjög traust fyrirtæki í þessum geira sjávarút- vegs. Staðan í dag er því allt önnur en um áramót og það sýnir styrk stjómenda félagsins að taka á vand- anum með þessum hætti.“ Losa óhagkvæmar einingar Eiríkm- bendir á að frá því að hann tók við stjómartaumunum hjá KEA á síðasta ári hafi verið ráðist í fjölþættar aðgerðir með það fyrir augum að snúa rekstrinum við. Stjómskipulagi félagsins var breytt og rekstrinum skipt upp í minni ein- ingar með það að markmiði að losna við þær einingar sem era óhag- kvæmar og stækka og efla þær sem falla betur að rekstrinum, með því t.d. að leita samrana við önnur félög. „Af því sem hefur gerst á síðustu mánuðum get ég nefnt sölu á brauð- gerðinni og Bifreiðaverkstæði Dal- víkur, apótekin era orðin hluti af stærstu lyfsölukeðju landsins og við eram í formlegum viðræðum við kaupfélög bæði austan og vestan við okkur um samvinnu í mjólkur- og kjötvinnslu," sagði Eiríkur. Þá kem- ur fram í fréttinni að fleira sé á döf- inni sem markvisst sé unnið að. Aðalfundur KEA verður haldinn laugardaginn 17. apríl nk. Siggi Sveins kveður SIGURÐUR Valur Sveinsson, leik- maður og þjálfari handknatt- leiksliðs HK úr Kópavogi, tók þátt í síðasta kappleik sínum í gær- kvöldi, því lið hans var slegið út úr Islandsmótinu af deildar- og bikar- meisturum Aftureldingar í Mos- fellsbæ. Sigurður varð fertugur ekki alls fyrir löngu, en ferill hans í meist- araflokki og atvinnumennsku er- lendis spannar 25 ár. Fáir eða engir íþróttamenn hafa náð slíkri hylli sem Sigurður Sveinsson enda varð einum íþróttaáhugamanna að orði eftir leikinn, „það er bara einn Siggi Sveins.“ ■ Afturelding/B3 Vaxandi gagnrýni á álagningu fasteignaskatts á landsbyggðinni Miðast við markaðsverð í Reykjavík SVEITARFÉLÖGIN á lands- byggðinni innheimta fasteigna- skatta af íbúðarhúsnæði og ýmsum eignum sem notaðar eru til atvinnu- rekstrar miðað við sérstakan álagn- ingarstofn sem tekur mið af fast- eignamati í Reykjavík en ekki fast- eignamati og þar með markaðsverði á viðkomandi stað. Munurinn getur verið margfaldur og vegna þess að hann hefur verið að aukast hefur fyrirkomulag innheimtunnar sætt vaxandi gagnrýni. „Nú er þetta farið að bíta með vaxandi þunga því munur á fast- eignamati fer vaxandi en verðmæti eignanna er ekkert meira en matið segir til um. Með því að leggja skatt á allt annað verð era sveitar- félögin að grafa undan atvinnu- rekstri á landsbyggðinni," segir Þórarinn V. Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri Vinnuveitendasam- bands íslands, en starfsmenn sam- takanna vinna að athugun á málinu. Hann rökstyður skoðun sína með því að segja að landsbyggðin eigi undir högg að sækja og fýrirtækin þurfi á að halda allri þeirri sérstöðu sem landsbyggðin býr yfir, þar á meðal ódýrari fasteignum fyrir reksturinn. Vafí um lögmæti Ferðaþjónustufyiirtæki í strjál- býli hafa sérstaklega orðið fyrir barðinu á fyrirkomulaginu að und- anfórnu í kjölfar samræmingar inn- heimtu fasteignaskatts við samein- ingu sveitarfélaga. Agúst Sigurðs- son á Geitaskarði, formaður Félags ferðaþjónustubænda, segir að tilvik af þessu tagi séu enn fá en þeim fari fjölgandi. Dæmi séu um að fast- eignagjöld hafi hækkað tvö- eða þrefalt milli ára hjá ferðaþjónustu- fyrirtækjum þótt byggingar hafi ekld stækkað. Telur Agúst að vafi leiki á um lögmæti skattlagningar af þessu tagi, þar sem gjaldstofninn sé ekki í samræmi við það verð sem menn geti fengið fyrir eignina. „Þetta eru bein skilaboð um að fólk sem býr úti á landi eigi ekki að fjár- festa á landsbyggðinni," segir Agúst Sigurðsson. ■ Grafa undan/52-53 Morgunblaðið/Kristinn Flugvél snúið til Akureyrar TWIN Otter flugvél Flugfélags ís- lands sem var í leiguflugi frá Græn- landi til Isafjarðar í fyrradag, var snúið til Akureyrar vegna bilunar í mælitækjum, en mælar vélarinnar sýndu ranglega að skíði hennar væru niðri. Flugvélin hafði flogið fjórum sinn- um til Grænlands með menn og bún- að bresks vísindaleiðangurs þegar atvikið varð í flugtaki frá Græn- landi. Sigurður Aðalsteinsson hjá flugfélaginu segir að aðeins flug- mennirnir tveii- hafi verið í vélinni og engin hætta hafi verið á ferðum. Atlantshafsbandalagið 50 ár frá sam- þykkt Alþingis ÞESS er minnst að í dag eru lið- in 50 ár frá því að Alþingi sam- þykkti tillögu um að ísland gengi í Atlantshafsbandalagið, NATO, og yrði þannig einn af stofnaðilum þess. Við völd var samsteypustjóm Alþýðuflokks, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks undir for- ystu alþýðuflokksmannsins Stef- áns Jóhanns Stefánssonar. Hart var deilt á þingi um málið dögum saman og svo fór að Alþýðu- flokkur og Framsóknarflokkur klofnuðu en aðildin var þó sam- þykkt með 37 atkvæðum gegn 13, tveir sátu hjá. Atkvæðagreiðslan í Samein- uðu þingi fór fram 30. mars og söfnuðust mörg þúsund manns saman við Alþingishúsið. Kom til harðra átaka milli andstæð- inga aðildarinnar og lögreglu sem varði þinghúsið og naut hjálpar varaliðs óbreyttra borg- ara. Loks var beitt táragasi og leystist þá hópurinn upp á skammri stundu. ■ Árásin á Alþingi/40

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.