Morgunblaðið - 09.05.1999, Side 1

Morgunblaðið - 09.05.1999, Side 1
103. TBL. 87. ÁRG. SUNNUDAGUR 9. MAÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS NATO segir árás á sendiráð Kína vera hræðiieg mistök - Solana boðar rannsókn en ítrekar nauðsyn áframhaldandi loftárása Kínverjar æfír og kalla árásina stríðsglæp Aleið S til Islands FJÖRUTÍU og sjö flóttamenn frá Kosovo kvöddu í gærmorgun ætt- ingja sína með tárum áður en þeir stigu upp í langferðabifreið og héldu frá Brazda-búðunum í Makedóníu en áfangastaður þeirra er Island. Meðal þeirra sem nú koma eru 24 ættingjar rafvirkjans Nazims Beqiris sem þegar er kominn til landsins. ■ Tilfinningaþrungin/6 Brussel, Peking, New York, London, Belgrad. Reuters, AP. TALSMENN Atlantshafsbandalagsins (NATO) sögðu í gær að í loft- árásum bandalagsins á Belgrad seint á föstudag hefðu verið gerð „hræðileg mistök" er sprengjum var varpað á sendiráð Kína í höfuð- borginni með þeim afleiðingum að fjórir fórust, þar af tveir kínverskir blaðamenn, og 21 særðist. Um þrjátíu manns voru sofandi inni í sendi- ráðsbyggingunni er sprengjurnar féllu. Javier Solana, framkvæmda- stjóri NATO, sagði á laugardag að árásin yrði rannsökuð og að niður- stöður hennar yrðu gerðar opinberar. Lýsti hann atvikinu sem „sorgleg- um mistökum" en sagði jafnframt að atvikið myndi ekki hindra áfram- hald loftárása á skotmörk í Júgóslavíu. Jamie Shea, talsmaður NATO, sagði á blaðamannafundi í Brussel í gær að oirustuþotur bandalagsins hefðu ráðist á ranga byggingu og varpað hitastýrðum sprengjum. Fyrirhugað skotmark hefði verið bygging sem hýsti skrifstofur júgóslavneska hersins og stóð rétt við sendiráðið. „Ráðist var á ranga byggingu. Atvikið er hræðileg mis- tök,“ sagði Shea. Itrekaði hann þó að loftárásum bandalagsins á júgóslavnesk skotmörk mundi verða fram haldið. Kínversk stjómvöld lýstu því yfir í gær að atvikið væri „stríðsglæpur" sem kallaði á refsingu. Bandarísk stjórnvöld hörmuðu atvikið. Peter Burleigh, aðstoðarsendihen-a Bandai-íkjanna hjá SÞ, sagði á að- faranótt laugardags að NATO myndi aldrei ráðast á borgaraleg skotmörk, hvað þá erlend sendiráð vísvitandi. „Við verðum að líta á at- burðina í réttu samhengi, sem er eftirfarandi: Aðeins einn maður ber ábyrgð á deilunni í heild sinni [...] nafn hans er Slobodan Milosevic,“ sagði Burleigh. Rússnesk stjómvöld hafa hætt við þriggja daga íyrirhug- aða vinnuferð Igors Ivanovs, utan- ríkisráðherra Rússlands, til Bret- lands vegna árásarinnar. Keizo Obuchi, forsætisráðhema Japans, harmaði árásina á laugardag. „Kína er mikið ríki og atburðurinn veldur okkur miklum áhyggjum," sagði Obuchi og lagði áherslu á að tninað- ur milli Japans, Bandan'kjanna og Kína væri forsenda alþjóðlegs póli- tísks og efnahagslegs stöðugleika. „Villimannlegar og siðlausar aðgerðir" Kínverjar fóni fram á það á að- faranótt laugardags að haldinn yrði neyðarfundur öryggisráðs Samein- uðu þjóðanna í höfuðstöðvunum í New York. Talið er að hart hafi verið deilt á þriggja klukkustunda löngum lokuðum fundi öryggisráðs- ins en í lok fundarins var lögð fram sameiginleg yfirlýsing ríkjanna fimm sem fast sæti eiga í ráðinu þar sem þau lýstu atvikinu sem „áfalli er valdi áhyggjum". Áður en hinn formlegi fundur hófst lýstu fulltrúar Rússa í öryggisráðinu því yfir að NATO væri sekt um „villi- mannlegar og siðlausar“ aðgerðir. Sendiherrar Kína og Rússlands kröfðust þess að loftárásum yrði hætt tafarlaust. Fulltrúi Breta sagði við sama tilefni að ásakanir þess efnis að ráðist hefði verið gegn kínverska sendiráðinu með ráðnum hug væri stórkostleg afbökun á sannleikanum. Hin sameiginlega yfirlýsing hef- ur ekkert lagalegt gildi og er talin hafa verið langt frá tillögum Kín- verja. Talið er að stjórnvöld í Pek- ing hefðu kosið að í yfirlýsingunni stæði að árásin hefði verið brot á alþjóðalögum og að Sameinuðu þjóðii-nar myndu rannsaka tOdrög atviksins. Árásin gæti haft alvarlegar afleiðingar í för með sér Kínversk stjómvöld kölluðu James Sasser, sendiherra Banda- ríkjanna í Kína, á sinn fund og komu „harðorðum mótmælum" sín- um á framfæri. Fyrir utan banda- ríska sendiráðið í miðborg Peking, höfuðborg Kína, söfnuðust hundruð námsmanna saman til mótmæla- fundar. Viðstaddir hrópuðu ókvæð- isorð og fognuðu ákaft er banda- ríski fáninn var brenndur. Segja sjónarvottar að lögreglumenn sem Morgunblaðið/Sverrir., Reuters SLÖKKVILIÐSMENN í Belgrad virða fyrir sér eyðilegginguna sem varð er sendiráð Kína var sprengt f loftárásum NATO á föstudagskvöld. voru á staðnum hafi látið mótmælin óáreitt. Árásirnar voru gerðar rúmum sólarhring eftir að vesturveldin og Rússland komust að samkomulagi um hvemig standa ætti að gerð sameiginlegra friðar- tOlagna vegna ástandsins í Kosovo. Á fóstudag fyrir- skipaði Borís Jeltsín, for- seti Rússlands, að Igor Ivanov hætti við fyrirhug- aða ferð til Bretlands nú um helgina. Sögðu tals- menn forsetans ástæðuna vera „að staða mála á Balkanskaga hefði versnað skyndilega.“ I Bretlandi sagði Robin Cook, utanrík- isráðherra, að loftárásirn- ar myndu halda áfram þrátt fyrir tjónið sem Kín- verjum hefði verið valdið. Sagðist hann harma að hinn rússneski starfsbróð- ir hans hefði hætt við vinnuferð sína en ítrekaði að hann teldi ekki að atvik- ið myndi stefna samskipt- um NATO og Rússlands í voða. „Ég harma að utanrfldsráð- herra Rússlands komi ekki til fund- ar við mig. I allri einlægni sé ég ekki hvernig það getur hjálpað neinum," sagði Cook í viðtali við BBC í gær. Síðar um daginn var haft eftir Cook að hann hefði rætt við Ivanov sem hefði sagt að af heimsókn sinni til Bretlands myndi verða „eins fljótt og auðið væri“. Viktor Tsjernómýrdín, sérlegur sendifulltrúi Rússlands í Kosovo- deilunni, hélt til Þýskalands í gær þrátt fyrir árásina á sendiráð Kín- verja. Lýsti hann því yfir að árásin kynni að stofna viðkvæmum friðar- umleitunum í mikla hættu. „Þetta er ekki árás, þetta er villimennska, villimennska," sagði Tsjernómýrdín við komuna til Bonn. Sérfræðingar í alþjóðamálum telja að árásin á föstudag geti flækt hugsanlegt friðarferli í stríðinu á Balkanskaga. Árásin hafi ekki get- að verið gerð á verri tíma. Til lengi-i tíma litið geti afleiðingarnar orðið mjög neikvæðar þar eð með árásinni hafi verið ráðist á þriðja aðila sem ekki á þátt í stríðinu. ■ Fjórir láta lífið/6 STÓR STYRKUR í NÝJA KRABBAMEINSRANNSOKN Kirnðir frdmsínistnaður

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.