Morgunblaðið - 09.05.1999, Síða 6
6 SUNNUDAGUR 9. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
____________________________FRÉTTIR
Fjórir létu lífíð og
sendiráðið nær ónýtt
Belgrad. Reuters, AFP, AP.
Þúsundir námsmanna mótmæla í Kína
Reuters
NÁMSMENN hrópa slagorð gegn NATO við sendiráð Bandaríkjanna
í Peking.
Grýttu sendiráð
og líktu Clinton
við Hitler
Hong Kong, Peking. AFP, Reuters, AP.
KINVERJAR greindu frá því í
gær að þrír hefðu fallið og 21 særst
er sprengjum var varpað á sendi-
ráð þein-a í Belgrad skömmu fyrir
miðnætti í gær. Tveir blaðamenn
létu lífið í árásinni, Xu Xinghu, er
starfar fyrir dagblaðið Guangming
og Shao Yunhuan, er starfaði fyrir
hina opinberu fréttastofu Xinhuan.
Þá lét Zhu Ying, eiginkona Xu, líf-
ið. Júgóslavneska Tanjug-frétta-
stofan sagði að eitt lík til viðbótar,
sem ekki er búið að bera kennsl á,
hefði fundist í grennd við sendiráð-
ið.
Sendiráðið er til húsa í nýrri
fimm hæða byggingu í nýlegu
íbúðahverfi í Belgrad. Sjá mátti
stór göt á útveggjum á jarðhæð og
flestir gluggai- byggingarinnar
höfðu brotnað. Virtust stórir hlutar
af sendiráðinu gjöreyðilagðir eftir
sprengjuárásina.
Byggingin er á stórri lóð en í um
tvö hundruð metra fjarlægð eru
SÆRÐUM starfsmanni sendi-
ráðsins hjálpað ut úr bygg-
ingunni eftir loftárás NATO.
stórar íbúðarblokkir, verslunar- og
skrifstofubyggingar.
Ibúar og starfsmenn sendiráðs-
ins höfðu mai'gir flúið út í gegnum
glugga og á einum stað mátti sjá
hvar fjórum lökum hafði verið
hnýtt saman og þau látin hanga út
um glugga á annarri hæð bygging-
arinnar.
Loftárásir NATO á Belgrad að-
faranótt laugardagsins eru sagðar
hafa verið þær umfangsmestu frá
því árásir hófust fyrir einum og
hálfum mánuði. Hófust þær með
því að grafítsprengjum var vai’pað
á rafstöðvar þannig að borgin varð
að mestu rafmagnslaus og myrkv-
uð auk þess sem starfsemi vatns-
veitna lamaðist að hluta.
Meðal skotmarka NATO voru
höfuðstöðvar júgóslavneska her-
ráðsins, ráðuneyti lögreglumála og
lögreglustöð í miðborg Belgrad.
í götunni Srpskih Vladaj-a, sem er
í um þrjú hundruð metra fjarlægð,
brotnuðu rúður verslana og verslun-
armiðstöð á jarðhæð hæstu bygg-
ingar Belgrad, skemmdist verulega.
Fréttastofan Beta sagði einn
hafa fallið er sprengjum var varpað
á Hótel Júgóslavíu, sem er í um
fjögur hundruð metra fjarlægð frá
kínverska sendiráðinu. Að sögn
NATO hafa sveitir skæruliðafor-
ingjans Ai'kans aðsetur í hótelinu.
Arkan, sem nýlega var ákærður
fyrir stríðsglæpi af stríðsglæpa-
dómstólnum í Haag, neitaði því
hins vegar í samtölum við blaða-
menn að hann og menn hans hefðu
haft afnot af hótelinu.
Þá bárust fregnir af sprenging-
um við Batajnica-herstöðina og
sögðust íbúar í nágrenninu hafa
séð þrjár stýriflaugar fljúga í átt
að herstöðinni.
Einnig var ráðist á skotmörk
víðsvegar um Júgóslavíu, s.s. í
borgunum Novi Sad, Nova Pazova
og Bogutovac.
UM þrjú þúsund námsmenn mót-
mæltu í rúma fjórar klukkustundir
fyrir utan bandaríska sendiráðið í
Peking í gær, vegna loftárása Atl-
antshafsbandalagsins (NATO) á
kínverska sendiráðið í Belgrad á
föstudag. A.m.k. fjórir létu lífið í
árásunum og um 20 manns slösuð-
ust. Námsmennirnir kveiktu í
bandarískum fánum og hrópuðu
ókvæðisorð í garð NATO og Banda-
ríkjastjórnar, líktu Bill Clinton, for-
seta Bandaríkjanna, við Hitler og
köstuðu steinum, tómötum og flösk-
um að víggirtu sendiráðinu með
þeim afleiðingum að gluggar og úti-
ljós brotnuðu. Kröfðust námsmenn-
irnir að fá að hitta James Sasser,
sendiherra Bandaríkjanna, sem að
sögn ríkisreknu fréttastofunnar
Xinhua sætti harðri gagnrýni í kín-
verska utanríkisráðuneytinu fyrr
um daginn. Yfir hundrað lögreglu-
menn stóðu vörð um mótmælin og
lögðu, að sögn Xinhua, blessun sína
yfir þau. Talsmenn bandaríska
sendiráðsins kvörtuðu sáran við
kínversk stjórnvöld yfir slælegri ör- i
yggisgæslu meðan á mótmælunum
stóð, en enginn starfsmaður sendi-
ráðsins slasaðist. Um 800 manns
söfnuðust saman fyrir utan aðsetur
bandaríska ræðismannsins í Shang-
hai og um 10.000 manns efndu til
mótmæla í borginni Guangzhou.
Flestir mótmælendumir voru
námsmenn sem færa vildu ræðis-
mönnum Bandaríkjanna, Þýska-
lands, Frakklands, Ítalíu, Bretlands
og Danmerkur bréf til að mótmæla .
árásunum. í Hong Kong mótmæltu
um 100 manns fyrir utan aðsetur
bandarísku og bresku ræðismann-
anna og héldu á kröfuspjöldum sem
m.a. stóð á: „NATO, hættið að
drepa saklaust fólk!“ Aður en mót-
mælendur héldu á brott afhentu
þeir talsmönnum bandaríska ræðis-
mannsins bréf þar sem þau mót-
mæltu árásunum.
Reuters
STARFSMENN sendiráðsins klifra út um glugga á stórskemmdri
byggingunni.
Tvær fjölskyldur hættu við Islandsferð og fjölskylda rafvirkjans Nazims Beqiris komst því öll með
Tilfinninga-
þrungin
kveðjustund
Skopje. Morgunblaðið.
STUNDIN var tilfinningaþrungin
þegar fjörutíu og sjö flóttamenn
stigu upp í langferðabifreið í Br-
azda-búðunum við Skopje í Ma-
kedóníu í gærmorgun - og lögðu af
stað til nýrra heimkynna; Islands.
Fólkið var glatt að komast úr búð-
unum en táraflóðið fór ekki framhjá
neinum viðstaddra þegar það
kvaddi vini og ættingja sem eftir
urðu í búðunum.
Það eru þrjár fjölskyldur
Kosovo-Albana sem koma til Is-
lands að þessu sinni. Talið var á
föstudagskvöld að allt væri klappað
og klárt en í gærmorgun kom í ljós
að svo var alls ekki; tvær fjölskyld-
ur af fjórum, sem ákveðið var á
föstudag að kæmu til landsins,
hættu við. Önnur var fjölskylda
húsgagnasmiðsins Rasims Begas,
sem viðtal birtist við í Morgunblað-
inu í gærmorgun; hann ákvað þeg-
ar til kom að þiggja ekki íslands-
ferð heldur bíða og vona að hann
kæmist með fólk sitt til Þýskalands
þar sem tveir sona hans búa. I
hinni fjölskyldunni voru 13 manns
á föstudag en í gærmorgun þegar
fulltrúar íslenska Rauða krossins,
félagsmálaráðuneytisins og útlend-
ingaeftirlitsins komu að sækja fólk-
ið hafði hópurinn stækkað - systur,
bræður og börn höfðu bæst við og
þessi tiltekna fjölskylda var orðin
að 30 manns. Þá var sjálfhætt við,
en í staðinn fyrir þessa tvo hópa
var ákveðið að taka ættingja raf-
virkjans Nazmis Beqiris, sem Raf-
iðnaðarsamband Islands tók upp á
sína arma þegar hópur flóttamanna
kom til iandsins á dögunum. Ætt-
ingjar hans hér voru einmitt 24 -
jafn margir og hættu við þannig að
ekkert vandamál skapaðist við
það.
Morgunblaðið/Sverrir
SIGRÍÐUR Guðmundsdóttir, skrifstofustjóri hjá Rauða krossi íslands, heldur á einu fjölmargra barna sem
íslendingarnir liittu í Makedóníu.
Auk þeirra fjörutíu og sjö sem
væntanlegir voru með þotu Islands-
flugs til Egilsstaða eru fimm til við-
bótar með leyfi til að koma til ís-
lands. Vandamálið er að þeir eru
enn einhvers staðar í Kosovo - hluti
einnar fjölskyldunnai' sem kom í
gær, en um leið og viðkomandi
komst út úr heimalandinu geta þeir
komist til íslands.
24 í einni fjölskyldunni
Hópurinn sem hélt frá Makedón-
íu í gær verður á Eiðum næstu vik-
urnar en síðan verður honum skipt
upp, helmingur flyst til Reyðar-
fjarðar en hinir eiga að búa á Dal-
vík. Þess má geta að í einni fjöl-
skyldunni eru 24 - ættingjar raf-
virkjans áðumefnda, í einni 13 og í
þeirri þriðju 10.