Morgunblaðið - 09.05.1999, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
og í hinum vestræna heimi almennt.
Ein af hverjum tólf konum fær sjúk-
dóminn hér. A sama tíma hefur
erfðaefnið ekki breyst, svo þessi
aukning hlýtur að skrifast aðallega á
breytta lífshætti og umhverfisþætti.
Meðal þess sem rannsakað verður
íyrir tilstyrk hinnar bandarísku fjár-
veitingar til Krabbameinsfélagsins
eru fæðingar- og blæðingarþættir,
geislun, hreyfing og áfengisneysla.
Ahrif þessara þátta geta verið
breytileg milli einstaklinga, að sögn
Jórunnar Eyfjörð, eftir erfðaupplagi
hvers og eins. Því verður kannaður
erfðabreytileiki ýmissa ensíma hjá
þátttakendum rannsóknarinnar. Þar
er að sögn Jórunnar ýmist um að
ræða ensím sem sjá um að afeitra
skaðleg efni, eða sem taka þátt í
myndun hormóna. Að sögn þeirra
Jórunnar og Laufeyjar gefur það
þessari rannsókin sérstakt gildi að í
henni verða tengdir saman margir
erfðafræðilegir þættir og umhverfis-
þættir sem geta tengst brjósta-
krabbameini. Verkefnið er unnið í
samvinnu við samtök krabbameins-
sjúklinga, þ.e. Samhjálp kvenna, og
við krabbameinslækna. Þeir sem
koma að þessu verkefni auk fyrr-
nefndra kvenna hjá Krabbameinsfé-
laginu eru Helgi Sigurðsson læknir
fyrir hönd krabbameinslækna og
Kristbjörg Þórhallsdóttir og Guðrún
Sigurjónsdóttir frá Samhjálp
kvenna.
Islenskar rannsóknir á brjósta-
krabbameini hjá Krabbameinsfélag-
inu og Landsspítalanum hafa þegar
gefið merkar niðurstöður sem tengj-
ast m.a. uppgötvun á stökkbreyt-
ingu sem eykur líkur á brjósta-
krabbameini, aðeins lítill hluti þeirra
kvenna sem fá brjóstakrabbamein
hefur þess breytingu. „Innan við
10% kvenna sem greinast með
brjóstakrabbamein hafa einhvern
arfgengan þátt í sér. Það gerir það
ennþá áhugaverða að skoða þessi
90%, hvað veldur því að þær konur
fá brjóstakrabbamein? Þessi rann-
sókn gengur út á hvort tveggja. Við
leitum í þessu skyni til þeirra
kvenna sem greinst hafa með sjúk-
dóminn og eru á lífi. Fæstar þessara
kvenna eru skilgreindar sem sjúk-
lingar í dag, þær hafa komist yfir
sjúkdóminn,“ sagði Jórunn. „Það
eru um 1.500 konur á lífi í dag sem
greinst hafa með brjóstakrabba-
mein. Við reiknum með að fá um
1.200 konur í rannsóknina, það er þó
kannski nokkur bjartsýni,“ sagði
Laufey. „Við reiknum með að upp
undir 20% þeirra hafi einhverja fjöl-
skyldusögu um krabbamein, um
16% hafa sögu um brjóstakrabba-
mein hjá móður eða systrum. Við
vitum líka að þótt 16% hafi þessa
sögu þá er bara hluti af krabbameini
í þeim hóp vegna arfgengra þátta.
Áhrif getnaðarvamataflna verða
rannsökuð, þau áhrif hafa reyndar
sókn. I haust höldum við upp á
tuttugu ára afmælið og þá verð-
ur hugsanlega tekin afstaða til
þess hvort við reynum að mynda
baráttusamtök að hætti banda-
rísku kvennanna. Það eru líka
ýmis önnur athyglisverð baráttu-
samtök sem starfa að fyrirmynd
þeirra bandarísku, t.d. Europa
Donna, en fleiri og fleiri lönd eru
að fara inn í þau Evrópusamtök.
Við höfum hins vegar ekki rætt
um að ganga í slík samtök enn
sem komið er.“
Umræður urðu á heimráð-
stefnunni um hvernig byggja eigi
upp aukna vísindalega þekkingu
og hvað þrýstihópar þurfa að
kunna og skilja. „Bent var þar á
mikilvægi þess að skoða með
gagnrýnum huga rannsóknanið-
urstöður og koma þeim á
„mannamál" og einnig var bent á
að endurtaka ekki að óþörfu
rannsóknir sem búið er að fá nið-
urstöður í, t.d. í sambandi við
hormóna- eða lyfjaineðferð og
síðast en ekki síst var rætt um að
fylgja eftir niðurstöðum ef þær
gætu orðið okkur „brjóstakon-
um“ til hagsbóta," sagði Guðrún
ennfremur. Einnig var fjailað um
hvernig vekja ætti athygli á mál-
efnum kvenna sem fengið liafa
brjóstakrabbamein og loks var
yfirlit um meðferðina sjálfa, ár-
angur og nýjungar. I sambandi
við krabbameinsmeðferðir kom
fram að auk hefðbundinna lyfja-
verið mjög mikið rannsökuð og þvert
ofan í það sem menn héldu virðast
þær ekM hafa miMl áhrif, nema hvað
meðan þær eru teknar þá er áhætta
kvenna hvað brjóstakrabbamein
snerti aðeins hærri en hinna sem
ekki eru á pillunni. „En þá er yfir-
leitt verið að rannsaka konur innan
við fertugt, en sjaldgæft er að konur
á þeim aldri fái brjóstakrabbamein.
Áhrif hormónataflna verða líka rann-
sökuð, þær hafa í fór með sér heldur
aukna áhættu á brjóstakrabbameini
en konur þurfa þó að hafa teMð þær
fimm ár eða lengur til þess að þess-
ara áhrifa gæti. Þetta er þó mjög
mismunandi milli einstaklinga og
einmitt slíkir þættir eru meðal þess
áhugaverða sem ætlunin er að skoða
í þessari rannsókn Krabbameinsfé-
lagsins," sagði Laufey.
Aðrir þættir sem konur ráða ekki
við, svo sem hvenær þær byrja að
hafa blæðingar og hætta að hafa
blæðingar, verða skoðaðir. „Þeim
mun yngri sem konur byrja að hafa
LÍNURIT sem sýnir brjósta-
krabbameinsáhættu þeirra sem
hafa stökkbreytingar í BRCA-
genum við hækkandi aldur.
blæðingar þeim mun meiri er áhætt-
an. Fyrir tíðir er vitað að brjóst-
vöðvinn sMptir sér og þá eru frumur
viðkvæmari fyrir að fá stökkbreyt-
ingar," sagði Laufey. „Það kann því
að sMpta máli hvað marga tíðahringi
konur fara í gegn um. Um þetta
spyrjum við í þessari faraldsfræði-
legu rannsókn. Það, að eiga bam
gefur konum svolitla vörn gegn
brjóstakrabbameini, trúlega vegna
þess sem gerist í brjóstvefnum við
meðgönguna. Það er líka nokkur
vöm fyrir konu að vera ung þegar
hún eignast fyrsta barnið, það er líka
verndandi að eignast mörg böm.
Hver og einn þessara þátta er ekki
stór en safnast þegar saman kemur.
Brjóstagjöfin vemdar ungar konur
frá því að fá krabbamein. Það virðist
vera fremur slæmt að vera þungur
eftir tíðahvörf og svo virðast háar
konur vera í auMnni áhættu hvað
brjóstakrabbamein snertir. Líkams-
rækt virðist vera verndandi en
áfengisneysla virðist vera til skaða í
einhverjum mæli. Loks spyrjum við
um geislun, hvort konui- hafi fengið
berMa og hafi orðið fyrir geislun sem
börn. Mest áhrif virðist geislun hafa
fyrir tvitugt. Allt þetta ætlum við að
rannsaka, við notum þau leiðarhnoð
sem við höfum,“ sagði Laufey.
„Við ætlum líka að skoða fjöl-
breytni í genum, sem eru lítið
áhættutengd, gen sem ákvarða ens-
ím, þetta hefur verið mjög mikið
rannsakað en gengið illa að fá eitt-
hvað marktækt út úr þeim rann-
sóknum, vegna þess að þeir hópar
sem skoðaðir hafa verið eru mjög
breytilegir og því erfitt að staðla
nokkrar niðurstöður úr þessu. Talið
er að ensímsamsetning einstaklings
skipti máli í sambandi við krabba-
mein, rannsóknir sem gerðar hafa
verið á reykingum og lungna-
krabbameini styðja þá niðurstöðu.
Ensímsamsetningin skiptir máli
fyrir næmi einstaklinga á eiturá-
hrifum. Við teljum út frá okkar eig-
in rannsóknum og annarra að þetta
skipti máli. Við munum hafa í þess-
ari fyrirhuguðu rannsókn marga
þætti um hvem einstaMing til að
vinna úr, það ætti að gefa okkur
mikla möguleika.
Ástæðurnar fyrir því að við fáum
þennnan styrk eru nokkrar, ein sú
helsta er að við höfum þegar birt
margar rannsóknir um brjósta-
krabbamein á íslandi. Við höfum
líka reynt að meta áhættuna,
hversu mikil hún raunverulega er.
Haldið var að áhætta þeirra sem
væru með stökkbreytingu í BRCA-
genum, væri yfir 80% um sjötugt. I
ljósi þessarar meintu áhættu voru
ungar konur hvattar til þess að láta
taka af sér bæði brjóstin. Við efuð-
umst um að þessar niðurstöður
ættu við hér og fengum út að áhætt-
an væri innan við 40% hjá íslensk-
um konum. Þetta studdi niðurstöð-
ur úr umdeildri bandarískri könnun.
Gerð var rannsókn á gyðingum af
Ashkenazy-uppruna í Bandaríkjun-
um og þar kom út að áhætta þeirra
væri um 50% á að fá brjóstakrabba-
mein. Við ætlum nú að halda áfram
okkar rannsóknarvinnu og munum
því leita til íslenskra kvenna sem
greinst hafa með brjóstakrabba-
mein og vonum að þær bregðist vel
við, svari spurningalistum, gefi
blóðsýni. Við vonum einnig að þær
þeirra sem eiga ættingja sem hafa
fengið brjóstakrabbamein hvetji
nánustu ættingja til að taka þátt í
fjölskyldurannsókn okkar. Eina
umbunin sem við getum veitt er að
kannsM verður hægt að komast að
því hvað veldur þessum sjúkdómi,“
sögðu þær Jórunn Erla og Laufey
að lokum.
og geislameðferða væri aukning
í stofnfrumuígræðslum. „Enda
sýna tölur að gæði lífs eru meiri
eftir þessa meðferð en áður var
talið. Þarna vitna ég í hollenskan
krabbameinslækni sem kynnti
þetta efni,“ sagði Guðrún. Hún
gat þess líka að einn hópfundur
hefði verið um hvernig Sam-
hjálparkonur gætu bætt sig sem
stuðnings-þrýstihópur. Rætt var
um áhrifamátt sjálfskoðunar
bijósta. „Þessi þáttur er ekki
jafn sjálfsagður alls staðar. Víða
í Afríku þykir ekki sæma að
kona standi nakin að ofan fyrir
framan spegil og þreifi sín eigin
brjóst og það virðist mjög erfitt
að breyta menningarlegum hefð-
um, þótt það sé konum til hags-
bóta.“
I lok ráðstefnunnar var hópn-
um skipt eftir löndum og heims-
álfum og þeir látnir setja fram
óskir um úrlausn á brýnustu
vandamálum sinna landa. „Ósk-
irnar voru í beinu samræmi við
það þjónustustig sem veitt var á
hverjum og einum stað, allt frá
að létta hulu af leyndinni í það að
láta eingöngu færustu sérfræð-
inga meðhöndla bijóstakrabba-
mein og koma upp miðstöðvum
þar sem konur fengju þá aðstoð
og meðferð, bæði læknisfræði-
lega og sálfélagslega, sem þær
telja sig þurfa. Þess má geta að
íslenskar krabbameinsrannsókn-
ir fá mikla athygli og gjarnan
vitnað í þær í ýmsum umræðum
á ráðstefnunni, þ.e. rannsóknir
Krabbameinsfélagsins.
Það þótti ótrúlega áhrifaríkt
þegar áströlsku konurnar sögðu
frá því þegar þær fóru í þinghús-
ið í Canberra og báðu um stuðn-
ing þingsins til aukinna framlaga
í baráttunni við bijóstakrabba-
mein. Þær stungu við þetta tæki-
færi tíuþúsund litlum konustytt-
um úr bleiku plasti niður í jörð-
ina og séð að ofan mynduðu þær
þannig eina risastóra konustyttu
með sömu Iögun og litlu stytturn-
ar. Þessar tíu þúsund styttur áttu
að tákna þær konur sem greinast
með brjóstakrabbamein í Ástral-
íu á ári hveiju. í kring var stillt
upp hvítum konustyttum sem
táknuðu þær konur sem deyja á
ári hveiju úr bijóstakrabba-
meini. A bakhlið hvítu styttnanna
höfðu ættingjar og ástvinir skrif-
að kveðjur til kvenna sem látist
höfðu úr bijóstakrabbameini,
það var ótrúlega áhrifaríkt að sjá
þennan þögla aðstandendalióp
ganga fram og stinga niður stytt-
unum hvítu í kringum bleiku
stytturnar. Mér varð hugsað
heim, því í kringum 115 bleikar
kvenstyttur myndu sjást á Aust-
urvelli ef þetta væri gert þar og
Ijöldi hvítu styttnanna yrði 25 til
30, því sá er hópur kvenna sem
deyr árlega af völdum
bjróstakrabbameins á íslandi,"
sagði Guðrún að lokum.
SUNNUDAGUR 9. MAÍ 1999 11
Eigum allt fyrir
sumarið
Buxna- og pilsdragtir ósamt kjólum.
Gallafatnaður í 3 litum.
Bolir og sportgallar
í góðum stærðum
og mörgum litum.
Opið í dag, sunnud., kl. 13-17.
tnnarion
Síðustu 22 sætin
Stökktu til
Benidorm
9. júní 1 eða 2 vikur
frá kr. 29.955
Heimsferðir bjóða nú þetta ótrúlega tilboð til Benidorm hinn 9. júní,
þessa vinsælasta áfangastaðar íslendinga. Þú bókar núna og tryggir þér
sæti í ferðina 9. júní og íjórum dögum fyrir brottför hringjum við í þig
og tilkynnum þér á hvaða gististað þú gistir í fríinu. Á Benidorm er
sumarið byijað og hér nýtur þú frísins við frábærar aðstæður og um
leið getur þú valið um spennandi kynnis-r
ferðir með fararstjórum Heimsferða.
Verð kx.
29.955
M.v. hjón með 2 böm, 2-11 ára,
vikuferð 9. júní, skattar innifaldir.
Verð kx.
39.990
M.v. 2 í herbergi/íbúð, vikuferð 9.
júní, skattar innifaldir.
Verð kr.
39.955
Verð kr.
49.990
M.v. hjón með 2 börn í íbúð. 2
vikur, 9. júní, skattar innifaldir.
M.v. 2 í studio/íbúð, 2 vikur. 9.
júní, skattar innifaldir.
HEIM! :>FER ÐIR
mma 3Sð i
Austurstræti 17, 2. hæð • sími 562 4600 • www.heimsferdir.is
Fréttir á Netinu ýi> mbl.is
/\L-L.TAf= eiTTH\SA£> A/ÝT7