Morgunblaðið - 09.05.1999, Page 27

Morgunblaðið - 09.05.1999, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. MAÍ 1999 27 ingar alveg upp að þeim spítala, eins og þeir gerðu bæði við Landspítal- ann og Borgarspítalann. Að hugsa ekki fyrir því að sjúkrahús hafí nægt rými í kring um sig fínnst mér ekki aðeins bera vott um litla framsýni heldur heimsku. Að byggja hús á spítalalóð sem ekkert koma sjúkra- hússtarfsemi við á ekki að þurfa í landi eins og okkar. Ég er mjög móðgaður fyrir hönd Landspítalans og ennþá meira þeirrar deildar Borgarspítalans sem ég hefi sjálfur búið til og hefí ennþá meira dálæti á. Þetta kemur mönnum í koll. Það er svo mikil vitleysa. Þeir læra ekkert af reynslunni. Þeir mega minnkast sín!“ Friðrik víkur talinu að sömu skammsýninni sem iðulega hafi ríkt um rekstur spítalanna: „Þeir sem eru að gagnrýna reksturinn og segja stöðugt „dragið þið saman“, þeir hafa ekki vit á því að það er ekki hægt að reka spítala eins og gróða- fyrirtæki, Bónusverslun eða fisk- vinnslufyrirtæki. Þeir reikna bara í peningum, en taka ekki með í þeim útreikningum hvers virði það er að gera fólk frískt, bæta heilsu þess svo það geti farið að vinna fyrir sér og sínum og njóta lífsgleði, vinnugleði og fjölskyldu gleði. Þetta hafa menn ekki nema fá heilsu sína aftur. Þetta eiga þeir að meta til peninga, en kunna það bara ekki á íslandi." Hann rifjar upp sögu sem Jón Sigurðsson borgarlæknir sagði hon- um. Eftir áramótauppgjör sagði ungur læknir hróðugur: Vitið þið að við erum með lægsta rekstrarkostn- aðinn, t.d. lægsta matarkostnaðinn! Og yfirlæknirinn svaraði um hæl: Ef þetta er rétt, þá verðum við að athuga okkar gang! Maður á ekki að hæla sér af slíkum sparnaði, maður á að spyrja um árangur starfsins. Þetta mættu þeir hugsa einstöku sinnum út í héma,“ segir Friðrik. „En það gera þeir aldrei. Við erum að mörgu leyti dálítið frumstæð." Friðrik Einarsson vill þó taka fram að starf hans hafi verið mjög gefandi. „Auðvitað var samkeppni milli spítala og einstaklinga. Lífið er keppni. Ef maður hefur einhvem metnað, þá vill maður gera betur í dag en í gær. Þá er maður að keppa við sjálfan sig. Alls staðar er sam- keppni, í námi og annars staðar og hún þarf að vera ef hún er heiðarleg og málefnaleg. Við rjúfum lækna- heitið ef við leggjum okkur ekld fram um að gera okkar besta,“ segir hann og ber saman hve lækniseiður- inn var tekinn mildu hátíðlegar í Danmörku en á Islandi. Minnist þess þegar hann hafði lokið danska læknisprófinu, þá sátu þeir 94 með deildarforseta og höfðu saman í kór yfir lækniseiðinn. Gengið úr skugga um að allir hefðu lært hann. „Svo handsöluðum við deildarforseta heitið og skrifuðum undir það. Okk- ur var svo boðið í veislu í kjól og hvítt með konum okkar um kvöldið. Þetta var mjög hátíðlegt og gleym- ist ekki. En héma áttum við nýju læknarnir fjórir bara að koma við hentugleika hver fyrir sig á skrif- stofu háskólaritara og skrifa nafnið okkar þar sem okkur var bent á. Ekki einu sinni gengið úr skugga um að við hefðum lesið þetta.“ Gaman að kenna Friðrik hafði látið þau orð falla að sér hefði alltaf þótt gaman að kenna og margir gamlir nemendur hans róma kennsluna og hve skemmtileg- ur hann var. „Eg var farinn að kenna í Háskólanum áður en ég var kominn í fasta stöðu á Landspítal- anum,“ segir hann. „Byrjaði sem sjálfboðaliði. Mér fannst prófessor Snorri Hallgrímsson, sem ég var að vinna með, hafa svo mikið að gera og bauðst til að taka þennan og hinn tímann fyrir hann. Hann vildi það. Ég varð svo stundakennari 1954 og dósent 1958. Ég kenndi skurðlækn- ingar og var skikkaður til að byrja kennslu í þvagfæram, sem ekki var kennt áður. 1953 var ég boðinn til Bandaríkjanna í þrjá mánuði. Snorri samdi við mig um að veita mér leyfi með því skilyrði að ég tæki að mér þessa kennslu. Ég not- aði því tækifærið til að kynna mér þar kennslu í þvagfærafræði. Ann- ars var ég aðallega að kynna mér rekstur spítala. Ég kenndi líka að fara með ljóð Hannesar Haf- steins „í hafísnum". Það kallaði á þá spurningu hvort hann væri ljóð- elskur. Hann kvaðst kunna urmul af Ijóð- um og ekki kæmi sá dagur að hann færi ekki fyrir sjálfan sig með 5-10 ljóð. Sem drengur og unglingur lærði hann heilu ljóðabálkana og kann þá enn, öll erindin, svo sem Helgu Jarlsdóttur eftir Davíð Stef- ánsson, Gunnarshólma og Ferðalok Jónasar Hallgrimssonar o.s.frv. Hann segir það svo mikla þjálfun á heilann og það haldi honum við. Maður þarf að þjálfa heilann engu síður en skrokkinn. Og ljóð geti maður farið með aftur og aftur, raunar ekkert gaman að því nema kunna þau. Hann kveðst hafa lært að lesa um leið og hann fór að tala. Magnús Guð- mundsson vinnumaður heima hjá honum í Hafranesi við Reyðarfjörð setti hann á hné sér á hverju kvöldi og sýndi honum stafina og lét hann svo kveða að. Og 9 ára gamall fór hann að læra kvæði. Þegar ekki var farskóli þá réðu foreldrar hans og fólkið á hinum bænum kennara fyrir börnin, systkini hans 8 og 4 á hinum bænum. Og 16 ára gamall fór hann í Gagnfræðaskólann á Akureyri, en lenti svo í framhaldi í fyrsta árgang- inum sem útskrifaði stúdenta úr reglulegu námi í Menntaskólanum á Akureyri 1931. Og þaðan lá leiðin í læknisfræðina í Háskóla Islands. Það ákvað Friðrik sama daginn enda bara um fjórar deildir að velja. Með ilm af jóskum heiðum Friðrik kann ekki eingöngu ljóð eftir þjóðskáldin sem hann lærði í æsku. Það sýnir hann er hann hefur yfir ljóð eftir Matthías Johannes- sen, sem hann kveðst oft fara með: Þú komst inn í líf mitt, eins og leiti sér skjóls sproti í skugga skógarsvölum. Við gengum saman í grænu lyngi eins og sól fari geislum götur og stígi í dimmum dölum. Þannig gengum við grýttavegi inn í skóg fullan af skuggum og greinum á dimmum degi, horfðumst í augu og sól hvarf til jökla stiklaði á steinum og óð dalinn í ökkla: Komst þú inn í líf mitt með lyngilm af heiðum. Þetta hefur Matthias ort til Hönnu konu sinnar, sem kom inn í líf hans af Hólsfjöllum, grípur við- mælandi orðið um leið og Friðrik fer með síðustu ljóðlínumar. Og spyr hvort Friðrik sé e.t.v. að hugsa um sína konu Ingeborg þegar þetta ljóð leikur honum á vöram. Hann játar því: „Hún kom inn í líf mitt með ilm af jósku heiðunum." Ingeborg hitti hann af tilviljun á sjúkrahúsi í Vejle, þar sem hann hafði tekið að sér vakt um jól, af því hann hafði ekkert annað að fara. Hún fylgdi honum til íslands og enn feta þau samstiga saman sinn ævi- veg. Við víkjum talinu að því að nú sé að síga á seinni hlutann af ævinni. Friðrik kveðst ekki kvíða endalokun- um, því hann ætli að lifa áfram svo framarlega sem hann fái að vera með Ingeborg. Annars kæri hann sig ekkert um það. „Ég veit að guð muni taka tillit til þeirrar óskar og ég fái að vera með henni. Það er mín vissa. Hitt er annað mál,“ bætir hann við, „að ef það verður ekki að ég lifi áfram, þá veit ég ekkert af því.“ Hann kvaðst ekki hafa nokkrar áhyggjur af endalokunum.“Maður verður að reyna að óttast ekki það óhjákvæmilega. Það sem maður getur hvort eð er ekki breytt." Og hann er ekkert að velta því fyrir sér hvað taki nákvæmlega við eftir við- skilnaðinn. „En ég þarf á nýjum líkama að halda og finnst ég eiga það skilið," eru síðustu orðin sem Friðrik segir þegar þau hjónin fylgja gestinum niður og úr hlaði. STÚDENTAR frá Akureyri 1931 á 25 ára stúdentaafmælinu: Páll Hallgrimsson, sýslumaður, Hörður Bjarna- son húsameistari rikisins, dr. Friðrik Einarsson læknir, Sigurður Þórarinsson jarðfræðingur, Kristján Krist- jánsson gjaldkeri Bæjarútgerðar, próf. Jón Sigtryggsson tannlæknir, Ólafur Björnsson hagfræðingur, Tryggvi Pétursson hankaútibússtjóri í Hveragerði og Jón Magnússon fréttastjóri Ríkisútvarpsins. I SKURÐDEILDINNI á Borgarspítala Frá vinstri: Svala hjúkrunarkona, Frosti Sigurjúnsson læknir, yflr- læknirinn Friðrik Einarsson, yfirskurðstofu-hjúkrunarkonan Valgerður Kristjánsdóttir, Þórarinn Guðnason læknir, Jón Nielsson læknir, Þorbjörg Magnúsdóttir svæfingarlæknir og þrír læknakandidatar, yst Sigurður B. Þorsteinsson læknir. alltaf það sem kallað er klínik, þar sem nemamir greina sjúkdóminn og við ræðum svo um hann og greininguna í áheym hinna. Það þótti mér skemmtilegasta kennslan og þar held ég að mér hafi tekist best upp.“ Friðrik tók upp þá nýjung að kenna í fyrirlestram, eins og gert var í Danmörku en tíðkaðist ekki hér. Nemendum var hlýtt hér yfir eins og bömum, segir hann. Árin í Hafnarbúðum Síðustu starfsárin tók Friðrik að sér að vera læknir endurhæfingar- og langlegudeildar, sem komið hafði verið upp í Hafnarbúðum. „Hafnar- búðir voru ein af deildum Borgar- spítalans og lagðar undir skurð- deildina mína vegna þess að þar varð svo mikið innlyksa af öldruðu fólki. Því fengum við 25 rúm í Hafn- arbúðum. Ég ætlaði að láta mína sérfræðinga skiptast á um að sinna þeim, 2-3 mánuði í einu, en þeir vora svo óánægðir með það og vildu helst ekki gera það. Einhverju sinni á fundi í sjúkrahúsnefndinni voru ræddar kröfur til að gera þetta góða deild, sem ég var sammála. Þá sagði ég við formanninn Öddu Báru: Leysir það málið ef ég tek þetta að mér? Ég á þrjú ár eftir af mínum starfstíma, en ég skal bara fórna því til þess að þetta verði sem best. Ég skal taka að mér Hafnarbúðir þenn- an tíma þar til ég verð sjötugur," útskýrir Friðrik. Og það varð. í Hafnarbúðum tók hann upp nýjung. „Ég bjó til þessi hvíldar- pláss, sem ekki voru hér áður. Hafði laus 4 pláss til að geta hvílt heimili sem önnuðust sjúk gamalmenni einn mánuð í senn. Það var vinkona mín Jónína Pétursdóttir hjá heimil- isþjónustunni afar ánægð með, enda vandræðin oft mikil í heimahúsum. Síðan var það tekið upp á fleiri stöð- um.“ Grænlandsævintýri En hvenær hafði hann tíma til að sinna Grænlandi með öllu þessu? „Það er löng saga. Það mun hafa verið um 1950 að sjúkraflugið til Grænlands hófst. Grænland er tveir ólíkir heimar, Austurströndin og Vesturströndin. Austurströndin hafði enga möguleika á spítalavist fyrir dauðveikt fólk nema á Islandi. Þeir símrituðu til Nuuk og báðu um hjálp og Nuuk setti sig í samband við Gufunes, sem aftur hafði sam- band við konsúl Dana Lúðvíg Storr og hann bað mig um hjálp í sjúkra- flugi. Ég sagði já og gerði það alltaf eftir það. Þessar ferðir era hvergi skráðar, en við Sveinn Sæmundsson blaðafulltrúi FÍ teljum að þær hafi verið 40-50 talsins. Margar urðu býsna ævintýralegar. Einu sinni með Jóhannesi Snorrasyni misstum við samband við allan heiminn í niðadimmu á leið til Meistaravíkur, því sambandið við Osló hvarf, og einu sinni fór ég dramatíska ferð með Ingimari Sveinbjörnssyni til Danneborg og með Bimi Pálssyni til að sækja konu sem bjarndýr hafði ráðist á. Svo var það 1971 að Grænlands- stjóm og danska Grænlandsráðu- neytið bauð okkur í þakklætisskyni fyrir þessa sjúkrahjálp til þriggja vikna ferðalags um Grænland. Við flugum til Narsarssuak þar sem beið okkar skip. Við ferðuðumst um vesturströndina og var veisla á hverjum stað. I kveðjusamsæti í Nuuk sló Bögge landlæknir Græn- lands því fram í ræðu hvort ég gæti hugsað mér að koma og leysa af í sumarfríum á Grænlandi á nokkrum stöðum. Ég sagði umsvifa- laust já. Og við vorum þar í sumar- leyfinu 1974, 1975 og 1976 og 1977. Ég var tvö sumur í Narssaq og hafði Eiríksfjörðinn og tvö sumur við Christianshaab og svo styttri tíma víðar. Þetta heillaði okkur gjörsamlega. Vesturströndin er yndisleg. Þar er t.d. alltaf logn nema getur komið hnúkaþeyr. Og kyrrðin alger. Þarna var læknabát- ur notaður í læknisvitjanir og stór- kostlegt að sigla milli jakanna." Friðrik segir að sér hafi líkað vel við Grænlendinga. Þeir hafi sín vandamál, áfengisvanda og kyn- sjúkdóma. Og segir mér kíminn sögu: „Danir tóku upp á því á mjög afskekktum stöðum að gefa hverj- um fullorðnum manni brennivíns- staup eftir ákveðnum reglum. Grænlendingarnir fundu upp á því að geyma snafsinn og spýta upp í einn, svo hann fengi þó nóg til að finna á sér. Danimir bragðust við þessu og sögðu að þeir fengju ekk- ert brennivín nema þakka fyrir um leið. Og ekki var hægt að segja gu- anack, takk, nema kyngja !“ Friðrik var að taka saman í hug- anum hvað hann ætlaði að segja um Grænland á samkomunni dag- inn eftir, því sjónin leyfír honum ekki lengur að lesa af blaði. Gat þess um leið að hann ætlaði fyrst

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.