Morgunblaðið - 09.05.1999, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 9. MAÍ 1999 31
Sjálfur lærði ég ekki að
nota GSM af viti fyrr en
ég kom til starfa hjá Tali
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kóramót í
Breiða-
gerðisskóla
Á FÖSTUDAG var haldið 80
manna kóramót í Breiðagerðis-
skóla þar sem barnakórar
þriggja skóla hittust og sungu
hver fyrir annan. Hér er Kór
Hólabrekkuskóla sem flutti þrjú
lög. I lok dagskrárinnar sungu
allir kórarnir saman Maístjörn-
una og Kvæðið um fuglana og
enduðu með því að syngja nýstár-
legt pizzulag, sem hafði ekki
minni áhrif en þau að inn í
söngsalinn kom aðstoðarfólk
klyfjað pizzum og gosi, söngfugl-
unum til hressingar.
Á mótinu sungu 6-7 ára og 8-10
ára nemendur í sínum kór hvorir
í Breiðagerðisskóla, 10-12 ára
nemendur í Kór Hólabrekkuskóla
og 6-9 ára nemendur í Kór
Hvassaleitisskóla.
Þetta er í fyrsta skipti sem kór-
arnir hittast, en það voru tón-
menntakennarar skólanna sem
unnu að skipulagningu mótsins.
Undirleikari á pianó var Þorvald-
ur Björnsson.
með samvinnu við það góða fólk
sem þar vinnur munum við róa á
þau mið,“ segir Þórólfur.
En er þetta ekki að fara út í
tóma vitleysu ?
„Nei það tel ég ekki og menn
sporna ekki gegn þróun. Það eru
kannski dæmi um ofnotkun, en hún
á eftir að dempast þegar fram líða
stundir. Sjálfur lærði ég ekki að
nota GSM af viti fyrr en ég kom til
starfa hjá Tali og það sem ég á við
er, að með aukinni fræðslu og
þekkingu munu notkunargæði
aukast. Auk þess tel ég að ekki sé
allt breytingum háð. Mér varð t.d.
hugsað til þess um daginn ef það
væri snúra í Mogganum mínum og
ég gæti ekki farið með hann neitt
nema að vita af innstungu. A sama
hátt gæti ég ekki hugsað mér að
geta ekki tekið Laxness með mér í
flugvélina eða sumarbústaðinn. Fá-
um dettur lengur í hug að nota ein-
göngu línusíma í dag. Bækur og
dagblöð munu halda velli, þetta eru
svo góðir miðlar og það gerir
hreyfanleikinn.“
Hvernig sérðu fyrir þér þróun
Tals, t.d. á næsta ári?
„Við erum afar ánægð með ár-
angur okkar það sem af er og
bjartsýnin með framhaldið er mik-
il. Tæknin er íyrir hendi og sam-
keppnin tryggir markaðsdrifið um-
hverfi. Stærsta verkefnið er að
halda með réttum hætti utan um
þennan mikla vöxt í fyrirtækinu.
Það er mjög auðvelt að vera svo
ánægður með árangurinn að það
slævi kraftinn.
Aframhaldandi árangur mun
nást á sömu forsendum og áður,
með markmiðasetningu, valddreif-
ingu í fyrirtækinu og réttri hug-
myndafræði gagnvart starfsfólk-
inu, að það finni að það hefur
ábyrgð og að störf þess og hug-
myndir séu metin að verðleikum.
Þá erum við að vinna að mótun
þess sem við köllum fjölskyldu-
stefnu sem miðar að því að taka til-
lit til þarfa starfsfólksins utan
vinnustaðarins, auk þess að
tryggja á margvíslegan hátt að það
kynnist vel og eigi sameiginlegar
stundir saman. Við höfum og staðið
að starfsfræðsludögum milli deilda
fyrirtækisins, vikulegum morgun-
verðarfundum með starfsfólkinu og
fjölskylduferðum. Ég gat um það
áðan, að mannauðurinn í fyrirtæk-
inu er mesti styrkur þess.“
MARIA
LÖVISA
FATAHÖNNUN
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 3A • S 562 6999
KLUKKUR
Ármúla 29 - Rvk. Sími 588 4699
Vefsíða: www.oba.is
SLIM-LINE
dömubuxur frá
gardeur
Qfuntv
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 5611680
HfYKJAVlKURSVÆÐIB: Hagkaup, Smáratorgi. Heimskringlan. Kringlunni. lónbarg. Kópavogi. VESTURLANO: Hljómsýn. Aktanesi. Kaupfélag Borgiiróinga. Borgarnesi. Blómsturvellir. Hellissandi. Guðni Hallgrímsson, Gmnitarlirði. VESTFIRÐIR: Rafbóð Jónasar fe Patreksfirði. Póllinn. isafirði. NORÐURLAND: KF Sleingritnsfjaröar, Hólmavík. tf V-
Húnvetninga. Hvammstanga. (f Húnvetninga. Blönduósi. Skagfirðingabúð. Sauðárkróki. KEA. Dalvik. Ljósgjalinn. Akureyri. KF Þingeyinga. Húsavík. Drö. Raularbófn. AUSIURTAND: (F Héraðsbúa. Egilsstöðum. Verslunin Vík. Neskaupsstað. Kauptún. Vopnafirði. (F Vnpnlirðinga. Vopnafirði. (F Héraðsbúa. Seyðisfirði. Tumbræður. Seyðisfirði.tf
Fáskrúösfjarðar. Fáskrúðsfirði. KASK, Djúpavogi. KASK, Höfn Hornafirði. SUDURLAND: Rafmagnsverkslæði (II, Hvolsvelli. Mosfell, Hellu. Heimstækni, Selfossi. (Á. Selfossi. Rás, Porláksböln. Brimnes. Vestmannaeyjum. REYKJANES: Rafhorg, Grindavik. Raflagnavinnust. Sig. Ingvatssonar, Garði. Rafmætti, Hafnarfirði.
JBL hátalarar 200w
Verð 24.900
HITACHI tökuvél
Verð 34.900
Ferðatæki með geisla
Verð 5.900
28" GRUNDIG 100 Hz '
Verð 74.900
28"AKAI sjónvarp
Verð 44.900
28" HITACHI sjónvarp
Verð 57.900
Sími með númerabirti
verð 3.900
JBL og MTX bílamagnarar
29" HITACHI sjónvarp
Verð 74.900
HEINABIÓI
-
Geggjuð tilboð verð
AKAI Nicam myndbandstæki
Fullkomnasta
STEREO
Sjónvarpsmiðstöðin
oq qóð kaup!