Morgunblaðið - 09.05.1999, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 09.05.1999, Qupperneq 36
B6 SUNNUDAGUR 9. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ ‘hRTH Of fH IStWD úæaldur Knstisi* UKfcUMÆ HAiti>\ H!i'AH' /biilaní tximiMi tolla voru árangurslausar, ekkert gert og málum ekki svarað. Það var ekki fyrr en með EFTA-samningi um 1980 að ráðamönnum var ljóst að ekki var við hæfl í siðuðu landi að veita útlendingum yflrburða- stöðu til kvikmyndagerðar á Is- landi, og samkvæmt samkeppnis- reglum EFTA mátti þetta ekki lengur. Tollar af tækjum til kvik- myndagerðar voru felldir niður. Það tók samt mörg ár í viðbót að gera ráðuneytismönnum sem sömdu hérlenda tollskrá ljóst hvaða tæki væru notuð til kvikmynda- gerðar. Eftir að faðir minn dó hófst eitt kostnaðarsamasta eldgosatímabil okkar: Mývatnseldar, svo komu gos og hlaup í Vatnajökli og mörg Heklugos. Fyrstu fímm árin við Kröflu var enginn gígur opinn leng- ur en fjóra klukkutíma og kostaði mflljónir og aftur milljónir að hafa viðbúnað þannig að þetta var allt fest á filmu, sem ég gerði. Ekki einu sinni sjónvarpinu tókst það. Það virtist enginn Islendingur vita hvað átti sér stað við Mývatn. Þetta er ein merkasta eldgosaatburðarás í eldfjalli fyrr og síðar, og skóli fyr- ir Islenska vísindamenn. A einum degi til dæmis lyftist bærinn Reykjahlíð um 30 cm og Námafjall færðist um 2,1 metra. Skýr skila- boð komu frá skattstofu að þetta væri ekki frádráttarbær kostnaður. Eg þurfti að selja húseignir fyrir tugi milljóna á núverði til að halda þessari kvikmyndagerð gangandi. Ekki gat ég talið þetta fram, því að skattstofan hefði þá metið kostnað- inn sem tekjur. Þótt innan við 10% af raunverulegum kostnaði væri getið í skattskýrslu var það strikað út sem skemmtiferðir. Surtseyjar- efni fóður míns týndist árið 1977 í flutningum hjá kvikmyndafyrirtæki í annan bæjarhluta í London. Það var ekki lítið áfall og kostaði miklar utanlandsferðir og uppihaldskostn- að, að rekja hvað hafði átt sér stað. Það tók þrjú ár þangað til að öll gossagan fannst aftur. Allt voru þetta skemmti- ferðir að mati kerfisins. Þótt ótal bréf væru skrif- uð ráðamönnum var enga leiðréttingu að fá. Skattaprósentan hjá mér var yfír 100%. Um 1980 var ég alveg búinn að gefast upp á þessu og ákvað að um leið og Mý- vatnseldamyndin kláraðist myndi ég flytja úr landi og byrja að starfa sem útlendingur á Islandi. Erfíð- lega gekk mér að greiða þessa skattareikninga alla, var settur á uppboð af stjórnvöldum. Bíl minn þurfti ég að fela nálægt gosstöðv- unum heilu veturna svo að dráttar- bílar yfírvaldsins næðu ekki að kló- festa hann. Eg hef verið á stöðug- um uppboðum síðan, en alltaf tekist að bjarga mér á síðustu stundu. Ei-fíðlega gekk að fá lán hjá banka- yfirvöldum með eignir stöðugt á uppboðum. Vonlaust var að fara í mál við yfirvöld, engar verðbætur voru á endurgreiðslum skattayfir- valda, eins og oft kom fram í frá- sögnum blaða um aðila sem höfðu unnið slík mál og svo farið á haus- inn. Inneign sem ég átti hjá manni og hafði áður verið talið tfl tekna, mátti ég ekki afskrifa sem kostnað við gjaldþrot hans. Reyndi ég að tala eðlilega íslensku við þessa aðila og skrifaði bréf, en til einskis. Ég skrifaði yfu-skatta- nefnd og ýmsum ráðherrum bréf en til einskis. Nú hefur reyndar komið í ljós að skattayfirvöld störfuðu ekki samkvæmt lögum, sem mig grunaði. Sömu menn gátu ekki séð um álagningar og verið í yfirskatta- nefnd. Það er ólöglegt í siðuðum löndum Evrópu. Einnig hefur regl- um um verðbætur á endurgreiðsl- um verið breytt þannig að nú er hægt að fara í mál, þótt það sé sjálfsagt orðið of seint fyrir mig á gamalsaldri. Framreiknuð er þessi kvikmynd mín um Mývatnselda, sem ég er að reyna að klára á þessu ári, ein dýrasta kvikmynd sem hér hefur verið gerð, ef reiknuð er mín vinna, ASAMA tíma og við íslend- ingar hreykjum okkur af handritunum og hvemig við höfum varðveitt sög- una eru flestar framkvikmynda- filmur og myndbönd þjóðarinnar að skemmast eða eru á seinasta snún- ingu. Líftími frumkvikmynda er svona 50 ár, myndbanda 10 ár. Handrit okkar tíma er myndmál, tónupptökur og heimfldarkvik- myndir. Ég ætla í þessari blaða- grein að lýsa því umhverfi sem menn sem hafa unnið af heilindum að björgum menningarverðmæta, með því að festa heimildir á filmu, hafa orðið að búa við. Faðir minn Osvaldur Knudsen málarameistari var fæddur 1899. Hann hóf töku heimildarljósmynda þrettán ára gamall. Eftir seinna stríð hóf hann töku heimildarkvik- mynda. Hann sá nauðsyn þess að festa á kvikmyndafilmu íslenskt þjóðfélag, atvinnuhætti, náttúra og þjóðkunna menn. Allt kostaði hann þetta sjálfur. Að lokum var svo •komið að 85% af kvikmyndum um ísland í íslenska skólakerfmu voru kvikmyndir eftir hann. Hann nán- ast gaf þjóðinni þessa vinnu sína og fjármuni sem þetta kostaði. Hann fékk aðeins greiddan tvö- faldan kópíeringarkostnað mynd- anna. Á sama tíma neituðu yfirvöld honum um að draga kostnaðinn frá til skatts. Hann hvorki reykti, drakk né stóð í utanlandsferðum. Allir hans fjármunir fóru í þetta átak. Þrettán ára gamall, árið 1957, byrjaði ég að hjálpa honum við þetta starf hans, er hann þurfti að hafa tvær kvikmyndavélar í gangi í einu er við kvikmynduðum opnun málverkasýningar Júlíönu Sveins- dóttur í Þjóðminjasafninu, að við- stöddum helstu forráðamönnum þjóðarinnar. Sautján ára byrjaði ég að sýna kvikmyndir föður míns út gang. Síðustu myndir hans voru gerðar og kostaðar af okkur báð- um. Ég er líklega elsti starfandi kvikmyndagerðarmaður landsins, þannig að ég veit nú nokkurn veg- inn hvernig þessi mál hafa þróast í gegnum árin. Einfaldir hlutir eins og að koma fflmum í framköllun og fá vinnu- kópíur og annað vinnsluefni var stórmál. Var það einungis vegna þess að ég var mikið viðloðandi í London frá 1964 til dauðadags föð- ur míns 1975 að þetta var mögu- legt. Ég minnist er ég gekk frá tæknilega og .tónsetti eina þekkt- ustu kvikmynd hans: „Sveitina milli sanda, í London í október 1964. Var það í fyrsta skipti sem íslensk kvik- mynd var frágengin að hætti at- vinnumanna, með mörgum tónrás- um og fullkominni blöndun. Tollar á kvikmyndatækjum voru þá um 200 prósent. Tónvinnslutæki voru dýr og allar tilraunir okkar að fá tollaundanþágu, þótt faðir minn væri vel kynntur, voru árangurs- lausar. Þannig að allt varð þetta að gerast í London. Erfitt var að kaupa gjald- eyri á svörtum markaði til að að kaupa tækin fram hjá kerfinu og koma þeim í bútum til landsins. Ég minnist hvernig ég meðan á Surtseyjargos- inu stóð þurfti að smygla kvik- myndatækjum til landsins, til þess að hægt væri að kvikmynda þennan merkisatburð. Á sama tíma fékk er- lent kvikmyndafólk, sem tilkynnti yfirvöldum komu sína, margt hvert fríar ferðir, fría bílaleigubíla, uppi- hald og annan kostnað og svo fengu þeir að koma með tækin tollfrjálst til landsins. Það þótti svo merkilegt að einhver útlendingur skyldi sýna landinu áhuga. Það var niðurlægjandi í eigin landi að smygla menningunni með þessum hætti. Endalausar viðræð- ur við stjórnvöld um niðurfellingu Erum við farin að éta handritin aftur? spyr Vilhjálmur Osvaldarson Knudsen í grein um íslenska heimildarkvikmyndagerð. ÓSVALDUR Knudsen stendur vaktina í Heimaey 1973. um allt land á sumrin til að hjálpa honum að hafa upp í kostnað. Frá árinu 1964 sá ég um allar bréfaskriftir hans, meðferð og varðveislu frumkvikmynda og hjálpaði honum við tæknilegan frá- ■•■■ ■ ■ ■: ■■ - k- . - ■ ■ V. •' ■ -T. •<€« »— UXHHMCM _______ SUWíÉV w*«». tto.au ÓSVALDUR Knudsen og sonur hans Vilhjálmur árið 1975. í ANNARRA MANNAFÖTUM
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.