Morgunblaðið - 09.05.1999, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 09.05.1999, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 9. MAÍ 1999 4 4 ÁGÚST ÁRNI JÓNSSON + Ágúst Árni Jónsson var fæddur á Dalvík 14. janúar 1924. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 5. maí síðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Jón Emil Agústsson, sjómaður á Dalvík, f. 1888, d. 1947 og Jóhanna S. Halldórsdóttir, f. 1891, d. 1975. Systk- ini Árna eru: Páll, d. 1982. Hann bjó á Siglufirði; Óli d. 1963 og Halldór Ragnar, d. 1996, þeir bjuggu á Dalvík; Almar bú- settur á Dalvík; Sigríður býr í Svarfaðardal og Kristján býr í Hafnarfirði. Árni kvæntist 17. júlí 1947 Sveinsínu Ingibjörgu Hjartar- dóttur, f. 25. 8. 1924, d. 9.11. 1998. Foreldr- ar hennar voru Hjört- ur Björgvin Helgason, í Sandgerði, f. 1898, d. 1994 og kona hans Sveinbjörg Jónsdóttir, f. 1903, d. 1978. Ámi og Sveinsína eignuð- ust 7 syni 1) Jón Emil, f. 29.9. 1948, hann á dóttur, stjúpson og tvö barnabörn, sambýlis- kona hans er María Jónsdóttir og á hún einn son. 2) Hjörtur Björgvin, f. 4.5. 1952, eiginkona hans er Unnur Halldórs- dóttir, þau eiga 4 böm. 3) Árni Björn, f. 21.10. 1953, d. 6.2. 1953. 4) Páll Ingi, f. 26.8. 1957, eiginkona hans er Margrét Sveinbjömsdóttir og eiga þau þijú börn og eitt barnabarn. 5) Helgi, f. 11.2. 1962, Elskulegur tengdafaðir minn hefur kvatt þetta líf. Hann gerði það ekki með miklum látum og fór nokkuð snögglega, eiginlega án þess að láta vita af sér. Hann var svo sem enginn hávaðamaður í lif- anda lífi, hrópaði ekki á torgum, barst aldrei á. Eg held að hann hafi langað til að fá að fara með þessum hætti, fyrirvaralaust eftir skamm- vinn veikindi. Eg er heldur ekki frá því að blessunin hún Sína tengda- mamma hafi laðað hann til sín yfir á æðra tilverusvið, svo sterk voru böndin milli þeirra í lifanda lífi. Ég hef notið þeirrar gæfu að eiga samleið með Ama Jónssyni í tæp þijátíu ár og aldrei minnist ég þess að þar bæri skugga á. Ég sá hann fyrst við kokkastörf í eldhúsinu í Héraðskólanum á Laugarvatni. Ég var þá nýfarin að slá mér upp með Hirti syni hans og fannst forvitni- legt að kíkja á foreldra kærastans. Ég þorði þó ekki að gefa mig á tal við þenna hávaxna, myndarlega mann á þeirri stundu. Hins vegar þótti mér ekki veiTa að vinkonur mínar sem unnu þama báru honum vel söguna og hef ég oft gegnum tíð- ina fengið að heyra hrós og jákvæð- ar athugasemdir um Ama frá sum- arstelpunum á Laugarvatni. Þegar ég kom inn í fjölskylduna varð mér fljótlega ljós sú gagn- kvæma ást og virðing sem ríkti milli Ama og Sínu. Það var sérlega nota- legt að vera nærri þeim, aldrei heyrðist styggðaryrði falla milli þeirra og augljóst var að þau vora samtaka í lífsbaráttunni. Heimilið var stórt, sex sprækir strákar og vissulega þurfti að fara sparlega með því efnin vora ekki mikil. Þama átti sannarlega vel við orð- takið „Sá á nóg sem sér nægja læt- ur“. Areynslulaus gestrisni, vin- semd, húmor og hlýja ásamt snyrti- mennsku og reglusemi setti svip sinn á heimilishaldið og laðaði að gesti og gangandi. Þangað var gott að koma og þar var gott að vera. Á þessum áram vann Árni hjá Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins en þar var hans starfsvettvangur tæplega þrjátíu ár. Um helgar og í sumarleyfum starfaði hann sem kokkur í Glaumbæ og seinna í Sig- túni og um árabil á sumarhótelinu í Héraðsskólanum á Laugarvatni. Þegar synirnir fóra að tínast að heiman og heimilishaldið varð létt- ara hætti hann slíkri aukavinnu og nýtti frítímann til að sinna ýmsum hugðarefnum sínum. Vissulega fór nokkur tími í viðhald húss og lóðar en í því eins og öðra voru þau Sína samtaka um að hafa hlutina í lagi og ósjaldan hitti maður Áma í Hlaðbænum með pensil í hendi að mála þakskegg eða glugga. Hann var laginn verkmaður og húsnæði fjölskyldunnar og bifreiðir bára vott um snyrtimennsku hans og nostursemi. Hann vann sér létt, hugsaði málin vel og gekk svo til verka fumlaust og lauk því sem hann ætlaði sér á skömmum tíma. Við höfðum stundum í flimtingum að hann ætti það til að drífa sig í að mála eldhúsið eftir kaffi og borðaði svo kvöldmatinn við dúkaða eld- húsborðið eins og vant var. Það var ekki slæmt að eiga hann að í slík- um verkefnum þegar synimir fóra að búa og íbúamir í Skipholti 47 nutu þessara eiginleika Árna varð- andi ýmis smáviðvik í blokkinni. Ófáar vélarnar, heddin og gírkass- amir vora hífð upp úr bílum fjöl- skyldumeðlima enda var það hans fyrsta verkefni í Skipholtinu að koma sér upp bflskúr. Stangveiðar voru honum hug- leiknar, í því eins og öðru sóttist hann ekki eftir fjölmenni eða flott- heitum. Hann renndi gjaman fyrir silung í vötnum í nágrenni borgar- innar, fór einstaka sinum í lax í ódýrar ár og alltaf held ég að hann hafi komið með fisk heim. A.m.k. var steiktur silungur, hreinasta lostæti, oft á borðum hjá Árna og Sínu. Hann dundaði líka við flugu- hnýtingar og málaði vatnslita- myndir sem prýða heimili fjöl- skyldunnar. Þegar honum og bræðrum hans áskotnaðist land- skiki í Holti, föðurleifð sinni utan við Dalvík, leið ekki á löngu áður en þar var risið lítið sumarhús sem átti efth' að veita þeim Sínu margar ánægjustundir. Þar var alltaf nóg að starfa og útsjónarsemi Ama birtist þar í ýmsum myndum. Af framangreindu mætti ætla að tengdapabbi hafi alltaf verið á fullu að græja þetta og hitt en svo var ekki. Hann átti líka sínar letistund- ir og gat setið tímunum saman og horft á sjónvarpið, jafnvel svo að sumir fullyrtu að hann myndi hverfa inn í skjáinn eitthvert kvöldið. Þá var ánægjuleg sú hefð að synimir komu í Skipholtið til að horfa á ensku knattspymuna með „gamla manninum" á laugardags- eftirmiðdögum. Á seinni áram tók hann virkari þátt í eldhúskróksum- ræðunum í Skipholtinu, þar sem lífsgátan var leyst yfir kaffibolla og kökusneið. Ami var ljúfur afi sem sló á létta strengi og gaf sér tíma fyrir leik og sprell. Litlu barna- bömin sem nú era að feta sínu fyrstu spor missa af miklu að kynn- ast honum ekki nánar. Hin eldri ylja sér við margar góðar minning- ar um hann. I vetur þegar hann varð sjötíu og fimm ára fóra nokkr- ir úr fjölskyldunni með honum á veitingahús þar sem sonarsonur hans og nafni kokkaði ofan í mann- skapinn. Hann lék við hvem sinn fingur og naut þess að borða kræs- ingarnar og dreypa á góðu koníaki. Við vorum staðráðin í að fara að stunda vertshúsin með honum en það verður að bíða betri tíma. Tengdapabbi var laus við stress, a.m.k sá ég hann aldrei flýta sér og líklega hefði hann komið síðastur í mark ef hann hefði skráð sig í lífs- gæðakapphlaupið, en það gerði hann aldrei sem betur fer. Honum fylgdi einhver ró, sem á stundum sambýliskona hans er Mábil G. Másdóttir og eiga þau eina dótt- ur og Helgi á eina dóttur úr fyrri sambúð. 6) Hilmar, f. 15.3. 1963, hann á einn son 7) Guðni, f. 3.1. 1967 sambýliskona hans er Lilja Loftsdóttir, og eiga þau einn son. Barnabörnin eru þrettán og barnabarnabömin þijú. Árni ólst upp í föðurhúsum á Dalvík. Hann lærði matreiðslu á Hótel Borg og seinna í Kaup- mannahöfn og var um árabil bryti á farskipum, m.a. Foldinni sem síðar varð Drangajökull og einnig á Arnarfellinu. Árni réðst til starfa á Rannsóknar- stofnun fiskiðnaðarins og starf- aði þar sem sérhæfður rann- sóknarmaður tæp þrjátíu ár þar til hann fór á eftirlaun. Sam- hliða vinnu þar vann hann um árabil sem matreiðslumaður í Sigtúni við Austurvöll, svo og á sumarliótelinu í Héraðsskólan- um á Laugarvatni. títför Árna verður gerð frá Háteigskirkju á morgun, mánu- daginn 10. mai og hefst athöfnin klukkan 13.30. gat eflaust kynt undir óþolinmæði þeirra sem vilja að allt gerist helst í gær. Við leiðarlok er það kannski þessi ró sem ég sakna mest, hún er sjaldgæf nú til dags og eiginlega er erfitt að lýsa henni með orðum. Hún var einhver furðuleg blanda af hæglæti, vandvirkni, leti, afskipta- leysi, nægjusemi, iðjusemi, seiglu og kærleika. Nærvera hans var góð, faðmlag hans innilegt og þétt, brosin breið. Að leiðarlokum era mér ofai-lega í huga sú mikla gæfa sem mér hefur fallið í skaut að eignast svona góða og hlýja tengdaforeldra. Þau vora áhugasöm um velferð okkai-, sam- glöddust í sigram, studdu í mótlæti, kröfðust einskis, dæmdu aldrei, elskuðu okkur eins og við erum og létu okkur finna það í stóru og smáu. Að því búum við og bömin okkar og nú er það okkar að ávaxta það pund og heiðra þannig minn- ingu þeirra. Ég kveð Áma Jónsson með þakklæti fyrir samverana, full- viss um að hlýja hans vermir okkur um ókomna tíð. Fari hann í friði. Unnur Halldórsdóttir. Ég ætlaði ekki að trúa þessu þegar mér bárast fregnimar. Svo stutt síðan amma fór og nú þú. Þetta stóð nú ekki til eins og þú sagðir mér sjálfur þegar við hitt- umst á laugardaginn. Sumarið á næsta leiti og þú ætlaðir að gera svo margt. Allar veiðiferðirnar sem þú ætlaðir með Geira, ferðin norð- ur, sem nú verður ekkert úr. Við voram farin að hlakka svo til að fá þig í heimsókn í nýja húsið að mála og gera fínt og í eldhúsið í Brúar- torgi að segja okkur hvemig átti EKKI að laga matinn. Þú ætlaðir að koma strax og þú værir búinn að hrista af þér „pestina“. En ég veit að þú varst leiður að vera héma án ömmu, hún var perlan þín og skarðið sem hún skildi eftir sig í þinni tilvera sem okkar allra var ekki hægt að fylla. Ég veit að hún tekrn- á móti þér opnum örmum og þar verða fagnaðarfundir. Þið eruð saman núna eins og ykkur var ætl- að og vakið yfir okkur. Elsku afi minn, takk fyrir öll mjólkurglösin, kökurnar, sögumar, húmorinn, og samverastundimar í Skipó. Þú skilar kveðju til ömmu „er þa’kki?" „Þegar þú ert sorgmæddur skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess sem var gleði þín“ (Spámaðurinn). Þín Sigrún. BlómaUúáin öaiðshom v/ KossvogskiFkjuga^ð ‘ Sírni: 554 0500 “ + Þökkum innilega öllum þeim, sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, LÁRUSAR LÚÐVÍKS KJÆRNESTED fyrrv. verkstjóra, Hraunteigi 30. Guðrún Egilsdóttir Kjærnested, Magnús Kjærnested, Ásdís Kristinsdóttir, Emilía Kjærnested, Karl Stefán Hannesson, Sigrún Kjærnested, fvar Magnússon, Ragnar Kjærnested, Ástríður Jensdóttir, afabörn og langafabörn. + Alúðarþakkir færum við öllum þeim sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug í orði og verki við fráfall elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, ÞÓRÐAR THORS. Svanhildur J. Thors, Lára Thors, Jón Aðalsteinn Þorgeirsson, Iðunn Thors, Jakob Hagedorn Olsen, Jóna Thors, Örn Thors, Svanhildur Thors, James M. Fletcher og barnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar, tengdamóður og ömmu, MARGRÉTAR PETERSEN ORMSLEV. Áslaug Gyða Ormslev, Ásgeir Pálsson, Margrét Guðrún Ormslev, Leifur Franzson, Pétur Úlfar Ormslev, Helga Möller, Jens Gunnar Ormslev, Arnheiður Stefánsdóttir og barnabörn. + Innilegar þakkir fyrir alla samúð, vináttu og hlýhug við andlát eiginmanns míns og föður okkar, JÓNS STEFÁNSSONAR, Tindum 1, Kjalarnesi. Herdís Guðjónsdóttir, Jón Sveinbjörn Jónsson, Stefán Atli Jónsson, Marteinn Helgi Jónsson. f* + Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, ODDS J. ODDSSONAR, Skeiðarvogi 147, Reykjavik. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki 4. hæðar hjúkrunarheimilisins Skjóls. Ragnhildur Stefánsdóttir, Stefán Ómar Oddsson, Ása B. Áskelsdóttir, Ríkharður Oddsson, María Viggósdóttir, María Oddsdóttir, Stefán Oddsson og barnabörn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.