Morgunblaðið - 30.05.1999, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 30.05.1999, Qupperneq 16
Körfuknattleiks- dómarar eru með skýr skilaboð á treyjum sínum. Iþróttafélög, þjálfarar og „hetjurnar(( þurfa að standa sig betur íforvörnum! Hvemigjyrirmynd er hann? íþrótlafélög, sem vilja láta taka sig alvarlega út frá uppeldis- og for- vamasjónarmiðum, verða að banna reykingar og alla tóbaksnotkun á iþróttasvœðunum. Opinberir styrkir cettu ekki að fást nema markviss stefna i fíknivömum Iiggi fyrir - og að henni séframfylgt. Nonni litli hafði aldrei fengist til að borða hafragraut og gaf litið fyrir allar tilraunir foreldra sinna til að koma grautnum ofan 1 hann. Það var ekki fyrr en Nonni byrjaði að stunda íþróttir að hann fór að borða hafra- graut. Móðir hans skyldi ekkert í sinnaskiptum sonarins og spurði hvort hann hefði fengið hugljómun. „Þjálfarinn sagði að ég yrði betri íþróttamaður ef ég borðaði hafragraut og hollan mat,“ sagði Nonni og fannst grauturinn góður á bragðið. Svona dæmi segja okkur, sem hefur reyndar ætíð verið deginum ljósara, að ábyrgð þjálfara er mikil og það sem þeir segja er yfirleitt „lög“ sem krakk- arnir fara eftir. Þjálfari á ekki ein- göngu að hafa það markmið að „búa“ til góða íþróttamenn heldur fyrst og fremst sjálfstæða einstaklinga sem standa allir vegir færir - innan vallar sem utan. Af þeim sökum á hann stöðugt að hamra á mikilvægi þess að lifa heilbrigðu lífi til þess að betri ár- angur náist - á öllum sviðum. Þjálfar- inn þarf að tala reglulega um skað- semi reykinga og tóbaksnotkunar al- mennt og benda iðkendunum á að láta allt áfengi lönd og leið. I hópí- þróttum er það liðsheildin sem skiptir máli. Ef einn fer út af brautinni og byrjar að reykja, eiga félagar hans og þjálfarinn að gripa í taumana. Samkvæmt lögum eru reykingar bannaðar í öllum húsakynnum sem eru fyrst og fremst ætluð til dagvistar-, félags-, fþrótta- og tómstundastarfa barna og unglinga. Nær bannið til húss og lóðar. Þetta er reyndar svo sjálfsagt mál að óþarfi ætti að vera að minnast á það. íþróttafélögin verða að fara að taka sig saman í andlitinu hvað þetta varðar því munn- og neftó- baksnotkun „fyrirmyndanna" (leik- manna meistaraflokks) hafa aukist verulega slðustu árin. Sömuleiðis er ekki óalgengt að sjá forkólfa fþróttafé- laganna reykja á svæðunum - jafnvel f návist bama og unglinga. Það fþrótta- félag sem vill láta taka sig alvarlega setur fyrir þennan ófögnuð. Og það er undarlegt ef foreldrar láta bjóða sér upp á þetta. Ýmsar veggmyndir eru fyrirliggj- andi hjá Tóbaksvarnanefnd ef þjálfarar vilja dreifa til iðkenda og sómuleiðis ef félögin hafa áhuga á að hengja þau upp í húsakynnum sínum. Þ.Þ. Við emm reyklaus SP-FJÁRMÖGNUN HF ísland í góðum málum? Samkvæmt niðurstöðum sem birtust í tímaritinu Heilbrigðismál í fyrra reykja hlutfallslega færri fslenskir karlmenn en kynbræður þeirra annars staðar á Norðurlöndum, nema f Sví- þjóð. Þar bætist reyndar við að fimmti hver sænskur karlmaður notar munn- og neftóbak. Á fslandi reykja 24% karlmanna 15 ára og eldri daglega og er það mun betra ástand en meðal danskra karlmanna, að ekki sé minnst á þá grænlensku. íslenskar konur standa sig ekki eins vel og karlmenn- irnir. Þær reykja meira en konur í Finnlandi og Svfþjóð en minna en aðrar norrænar konur. Ekki fengust upplýsingar frá Færeyjum Skondnar setningar „Ef hinir fátæku reykja eins og hinir riku - munu þeir deyja eins og hinir ríku.“ „Indjánar reyktu friðarpípu og öðluð- ust frið - langt fyrir aldur fram.“ Sumir segja að það sé allt í lagi að reykja því reykingar drepi bara annan hvem mann. Hvenær myndi hermað- ur, sem kemur heim úr striðinu þar sem helmingur félaga hans dó, halda því fram að byssukúlur væru hættu- lausar af því hann sjálfur lifði af? Hvort er betra að vera latur og með nokkur aukakíló en grannur í gröf- inni? „Maður drepst hvort sem er einhvem tfmann og úr einhverju verður maður að drepast," segja margir reykinga- menn sem eru orðnir þreyttir á áróðri gegn reykingum. Valgeir Skagfjörð, leikari og fyrrum reykingamaður, hitti naglann á höfuðið: „Lffið snýst ekki um það hvemig maður drepst, heldur hvemig maður lifir.“ Við emm reyklaus REYKJANESBÆR skrifstofur Börn eiga skilyrðislausan rétt á reyklausu umhverfi! Ef ein sígaretta er reykt f návist bams er hægt að mæla niður- brotsefni nikótfns í þvagi bamsins þremur dögum síðar. Reykingar foreldra tvöfalda líkumar á þvf að bamið þeirra byrji að reykja og reyki systkini þrefaldast líkumar. Ábyrgð foreldra er mikil en margir eiga erfitt með að horfast í augu við það að vera áhrifamesta fyrirmyndin. „Mér finnst fáranlegt þegar talað er um að reykja eftir kynlíf, algjört „tum off“.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.