Morgunblaðið - 30.05.1999, Blaðsíða 19
{
„Það þykir ekki lengurflott að reykja
- segir Ásta Kristjánsdóttir hjá Eskimo-fyrirsœtum.
u
„Aðalstarfsemi okkar felst í því að leita
að stelpum og strákum, byggja þau
upp, aðstoða þau við að koma sér
upp góðri möppu með myndum og
senda þau út til að vinna þegar þau
eru tilbúin. t>á bjóðum við einnig upp
á fyrirsætunámskeið og sjáum alfarið
um Ford-fyrirsætukeppnina. Svo má
ekki gleyma skrifstofu okkar í
Síberiu,“ segir Ásta Kristjánsdóttir,
annar eigenda Eskimo, en alls eru um
900 manns, frá nýburum til niræðs, á
skrá hjá fyrirtækinu.
Ásta segir að stúlkur sýni fyrirsætu-
störfum aukinn áhuga frá ári til árs.
áhugann á þessu starfi að við fáum í
kringum 200 heimsóknir á dag á
heimasíðuna okkar. t>ar eru myndir af
öllum sem eru á skrá hjá okkur og
fyrirtæki eða auglýsingastofur geta nú
orðið bókað fyrirsætur í tökur á
heimasiðunni. í þessu felst mikil hag-
ræðing."
Hvers vegna ákváðuð þið að stúlkur
sem ekki reyktu gætu eingöngu tekið
þátt í Ford-keppninni?
„Það gefur augaleið að reykingar og
fyrirsætustarfið eiga ekki samleið. Peir
sem hafa áhuga á fyrirsætustörfum
eru að vissu leyti að fjárfesta i útlitinu
„Þekktustu fyrirsætur heims eru sterk-
ar fyrirmyndir og stúlkur tengja þær
beint og óbeint við þau föt sem þær
klæðast - og eru oft að leita að ein-
hverri ímynd. Það segir töluvert um
og það er ekki gáfulegt að eyðileggja
eigin söluvöru. Þeir sem reykja fá fyrr
hrukkur, gular tennur og fingur og
húðin verður fljótl grá þannig að við
viljum stuðla að þvi að okkar fyrirsæt-
ur séu til fyrirmyndar i þessum efn-
um. Ef þær reykja ekki eiga þær mun
meiri möguleika í framtíðinni. Svo er
það hreinlega hallærislegt að reykja.
Við leggjum mikið upp úr því að þeir
sem eru hjá okkur hugi vel að matar-
æðinu, stundi heilbrigt líf og séu til
fyrirmyndar i alla staði.“
Hver voru viðbrögðin við þessu skil-
yrði?
„Þau voru mjög góð. Aðeins tvær
stúlkur, sem sóttust eftir að taka þátt i
keppninni, reyktu en þær hættu um
leið. Það var ekkert mál fyrir þær.“
Ásta telur að hópþrýstingur sé helsta
ástæða þess að ungar stúlkur byrji að
reykja. „Sumir í hópi byija að fikta og
þá fylgja kannski fleiri í fótspor
þeirra. Oft reykja allir i ákveðnum
hópum eða enginn. Ég held að marg-
ar byrji lika af forvitni og halda að
það sé síðan ekkert mál að hætta.
Reyndin verður síðan önnur. Það er
ekki lengur töff að reykja eins og það
þótti áður þannig að ég held að það
muni draga úr reykingum ungra
stúlkna í nánustu framtíð."
Hvers konar skilaboð virka best á
ungar stúlkur svo þær byrji ekki að
reykja?
„Pað þarf að gera þeim grein fyrir þvi
hvaða afleiðingar reykingar hafa á
þær. Reykingar er ekki grennandi,
það er ekki flott að reykja, stelpur
sem reykja fá frekar appelsinuhúð
(cellulite) en aðrar stelpur og svo hafa
rannsóknir sýnt að stelpur eða konur
sem reykja eru að jafnaði þyngri en
stelpur sem ekki reykja. Um daginn
greindi Sjónvarpið frá niðurstöðum
rannsókna á afleiðingum reykinga á
Ásta Kristjánsdóttir.
krakka sem byrja snemma að reykja.
Þeir þroskast seinna en aðrir og geta
orðið fyrir varanlegum heilaskemmd-
um. Ef krakkar heyra um svona stað-
reyndir hlýtur að vera erfitt að byrja
að reykja eða halda því áfram."
Þ.Þ
19
Bjami Armannsson,
framkvcemdastjóri FB
„Ég trúi því ekki almennt að fólk sem
reykir hafi lagt það saman hve miklum
peningum það eyðir í reykingar...."
Við erum reyktaus
stspk
JL Sparisic
Sparisjóður Kópavogs
Við erum reyklaus
3 Reykj avílauifoi’g
wnm>.reykjavik.is
Árið 1995 urðu Flugleiðir íyrsta flugfélagið í Evrópu
til að bjóða farþegum sínum upp á reyklaust flug á
öflum leiðum félagsins.
FLUGLEIDIR
Traustur íslenskur ferðafélagi