Morgunblaðið - 14.07.1999, Page 1
156. TBL. 87. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Hörð átök milli námsmanna og öryggissveita á götum Teheran
Khatami segír óeirðirnar
ógna öryggi þjóðarinnar
Teheran. Reuters, AFP, AP.
ÞÚSUNDIR námsmanna gengu
berserksgang um götur Teheran í
gær eftir að óeirðalögreglan hafði
beitt táragasi til að kveða niður mót-
mæli þeirra gegn írönsku klerka-
stjórninni. Þetta eru mestu gcitu-
óeirðir sem blossað hafa upp í Iran
frá því klerkastjórnin komst til valda
í íslömsku byltingunni fyrir tuttugu
árum. Hundruð sjálfboðaliða úr röð-
um íslamskra heittrúarmanna komu
lögreglunni til hjálpar og gengu um
miðborgina til að koma í veg fyrir að
óeirðirnar breiddust út. Mohammad
Khatami, forseti landsins, sem hefur
lofað lýðræðisumbótum, fordæmdi
óeirðirnai- í gærkvöldi og sagði þær
ógna öryggishagsmunum landsins og
umbótastefnu sinni.
„Ég er viss um að þessir menn
hafa illt í hyggju. Markmið þeirra er
að kynda undir ofbeldi í samfélaginu
og við ætlum að stöðva þá,“ sagði
Khatami um námsmennina í sjón-
varpsávarpi.
Fyrr um daginn höfðu lögreglu-
menn beitt táragasi til að dreifa hópi
rúmlega 10.000 námsmanna sem
söfnuðust saman við háskólann í
Teheran til að krefjast lýðræðisum-
bóta þótt stjórnvöld hefðu bannað
slíkar mótmælaaðgerðir. Sjónarvott-
ar sögðu að útsendarar írönsku
leyniþjónustunnar hefðu hleypt af
byssum upp í loftið.
Tugir námsmanna
handteknir
Oryggissveitunum tókst að dreifa
mannfjöldanum með hjálp íslamskra
sjálfboðaliða, sem gengu í skrokk á
námsmönnunum með kylfum. Náms-
mennirnir söfnuðust aftur saman ná-
lægt háskólanum, kveiktu í strætis-
vögnum, brutu rúður í verslunum og
reyndu að kveikja í byggingu dag-
blaðs, sem styður klerkastjórnina,
áður en lögreglan stöðvaði þá.
Fregnir hermdu að tugir náms-
manna hefðu verið handteknir.
Islömsku sjálfboðaliðarnir voru á
verði við mikilvæg gatnamót í mið-
borginni til að koma í veg íyrir frek-
ari mótmæli.
Áður höfðu hundruð námsmanna
20 farast í
flóðum og
aurskriðum
FLÓÐ og aurskriður hafa orðið
rúmlega 20 manns að bana 1 Rúm-
enfu og Ungverjalandi síðustu
daga.
Að minnsta kosti 15 manns fór-
ust þegar aurskriða fóll á hús
verkamanna og fjölskyldna þeirra
við stifiu í Retezat-fjöllum í vestur-
hluta Rúrnemu í fyrradag. 22 slös-
uðust og nokkurra annarra er enn
saknað.
Um 1.250 hús hafa skemmst eða
eyðilagst vegna flóða í Rúmeniu
síðustu tvær vikur og hartnær 500
manns hafa misst heimili sfn. 130
brýr hafa einnig eyðilagst.
Reuters
IRONSK öryggissveit stöðvar göngu námsmanna við háskólann í Teheran. Lögreglan beitti táragasi til að
kveða niður mótmæli rúmlega 10.000 námsmanna í grennd við háskólann í gær.
reynt að ryðjast inn í innanríkisráðu-
neytið, sem stjórnar lögreglunni.
Stærsta útimarkaði borgarinnar var
lokað vegna átakanna og sjónarvott-
ar sögðu að algjör ringulreið hefði
verið í miðborginni.
Reiði mótmælendanna beindist
einkum að Ali Khamenei erkiklerki,
æðsta trúarleiðtoga Irana, sem hefur
hingað til verið álitinn hafinn yfir
alla gagnrýni. Námsmennimir hróp-
uðu vígorð gegn Khamenei og kröfð-
ust þess að hann segði af sér. Nokkr-
ir borgarbúar gengu til liðs við
námsmennina og hrópuðu með þeim:
„Við viljum ekki ofbeldisstjórn."
Utifundur til stuðnings
klerkasljórninni
Khamenei erkiklerkur flutti
ávarp, sem var endurtekið hvað eftir
annað í útvarpi og sjónvarpi, og
kenndi „óvinum íslams“, einkum
Bandaríkjunum, um óeirðirnar. Áður
hafði Bandaríkjastjórn hvatt stjórn-
völd í íran til að virða mannréttindi,
meðal annars tjáningar- og funda-
frelsið.
Eitt af helstu málgögnum klerka-
stjórnarinnar sakaði námsmennina
um að reyna að kollvarpa íslamska
stjórnkerfinu. Nokkrar íslamskar
stofnanir hvöttu landsmenn til að
fjölmenna á útifund sem ráðgerður
er við háskólann í Teheran í dag til
að fordæma námsmennina.
Mótmælin gegn klerkastjórninni
hafa staðið í sex daga og kostað að
minnsta kosti tvo lífið, auk þess sem
tugir hafa særst. Mótmælin hafa
breiðst út til að minnsta kosti átta
annarra borga í Iran.
■ Síðustu forvöð/20
Þá hafa sex manns látið lífið og
1.600 þurft að flýja heimili sín af
völdum flóða í Ungverjalandi.
Ungverskir hermenn aðstoða hór
Reuters
fjölskyldu við að flytja búslóð sína
úr húsi sem eyðilagðist í þorpinu
Hevesvezekeny í miðhluta Ung-
verjalands.
Tóbaksfyrirtæki
gagnrýnd
Notkun
aukaefna
„hneyksli“
London. Reuters.
TÓBAKSFYRIRTÆKI hafa
sett aukaefni í sígarettur til að
auka ávanabindandi áhrif
þeirra, að því er fram kemur í
skýrslu sem gefin var út 1 gær.
Breskur krabbameinsrann-
sóknarsjóður (ICRF), baráttu-
samtök gegn reykingum (ASH)
og yfirvöld í Massachusetts í
Bandaríkjunum unnu skýrsl-
una í sameiningu.
Greint er frá rúmlega 60
skjölum úr fórum tóbaksverk-
enda þar sem fjallað er um
aukaefni í sígarettum. „Mér
finnst þetta vera hneyksli - að
verið sé að gera sígarettur
meira ávanabindandi um leið og
því er haldið fram opinberlega
að nikótín sé alls ekki ávana-
bindandi," sagði fi'amkvæmda-
stjóri ASH.
Skjölin voru gerð opinber í
tengslum við nýgengin dóms-
mál í Bandaríkjunum. Fram
kemur að flest þeirra 600 auka-
efna sem notuð eru í sígarettur
í Evrópusambandsríkjum séu
ekki nauðsynleg og fæst þeirra
hafí verið notuð fyrir 1971.
Aukaefnin séu m.a. notuð til
þess að auka bragð af tóbaks-
reyk, draga úr lykt af reyknum
og auka áhrifin af nikótíninu.
Deila Kínverja og
Taívana magnast
Peking, Taipei. Reuters.
RAÐAMENN í Kína hafa brugðist
ókvæða við ummælum forseta Taív-
ans þess efnis að kínversk og taív-
önsk stjórnvöld ættu að falla frá
þeirri afstöðu að aðeins væri til „eitt
Kína“. Kínverska fréttastofan Xin-
hua sagði í gær að með þessum um-
mælum hefðu „Taívanar kallað yfir
sig mikla ógæfu“.
Lee Teng-hui, forseti Taívans,
sagði í samtali við þýska útvarpið
Deutsche Welle um helgina að Kína
og Taívan ættu að líta á sig sem tvö
aðskilin ríki og Kínverjar þyrftu því
að falla frá þeirri afstöðu að Taívan
væri hluti af Kína og undir stjórn
þess.
Ráðamenn á Taívan ítrekuðu af-
stöðu sína þrátt fyrir mótmæli Kín-
verja og hvöttu stjómvöld í Kína til
að setjast að samningaborði og leysa
deiluefni með viðræðum en ekki
vopnum.
,Að leysa deiluefni okkai’ með stríði
samræmist í engu hegðun ríkja eftir
kalda stríðið. Viðræðui' eru eina rétta
leiðin,“ sagði Lin Chong-pin, háttsett-
ur taívanskur embættismaður.
Viðræðum um bætt sam-
skipti stefnt í hættu
Ráðamenn á Taívan gengu þó ekki
svo langt að lýsa yfir sjálfstæði en
kröfðust þess að viðræður um bætt
samskipti ríkjanna, sem ráðgerðar
eru í október, færu fram á þeim
grundvelli að um tvö ríki væri að
ræða. Óttast fréttaskýrendur að
deilan stefni viðræðunum í hættu.
Fjölmiðlar í Kína sögðu ummæli
Taívana ögrun við kínversk stjórn-
völd þar sem þau léðu ekki máls á að
breyta þeirri afstöðu sinni að Taívan
væri aðeins hérað í Kína.
Viðbrögðin á Taívan voru einnig
hörð en þar sökuðu fjölmiðlar og
stjórnmálaskýrendur forsetann um
að stefna viðkvæmum samskiptum
Taívans við meginlandið í hættu.
Varð vitni að
morði á fjöl-
skyldu sinni
Atlanta. Reuters.
ELLEFU ára drengur í Atl-
anta í Bandaríkjunum varð
vitni að morði á fjölskyldu sinni
í fyrradag en komst sjálfur lífs
af þar sem morðingjanum tókst
ekki að hleypa af byssu sinni.
Morðinginn, 39 ára karlmað-
ur, hélt drengnum meðan hann
myrti móður hans, fjögur
systkiniog írænku. Drengurinn
slapp og faldi sig í fataskáp en
morðinginn fann hann. Maður-
inn miðaði byssu að höfði
drengsins og reyndi að hleypa
af, en tókst það ekki af ein-
hverjum ástæðum.
Morðinginn svipti sig síðan
lífi. Móðir drengsins hafði sagt
manninum að hún vildi binda
enda á samband þeirra.