Morgunblaðið - 13.08.1999, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 13.08.1999, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Jónas Erlendsson NÝJAR sprungur í Mýrdalsjökli, þvert á hringlaga sprungur sem áður voru fram komnar, komu í ljós þegar flogið var yfir jökulinn í fyrradag. Málefni Skagstrendings V erðbréfaþingið frestar ákvörðun FORRÁÐAMENN Verðbréfaþings íslands funduðu í gær um málefni Skagstrendings hf. Kannað er hvort ákvæði í samþykkt félagsins um að Höfðahreppur skuli ávallt eiga tvo menn í stjórn þess án tillits til hluta- fjáreigu hreppsins standist lög. Stefán Halldórsson, fram- kvæmdastjóri Verðbréfaþingsins, sagði eftir fundinn að ekki yrði grip- ið til aðgerða strax. „Það er ekki sama pressan á okkur eftir að hlut- hafafundi í fyrirtækinu var frestað.“ Fundinum var frestað á miðviku- dag að ósk framkvæmdastjóra Sam- herja. Samþykkt Skagstrendings stóðst lög um skráningu hlutafélaga þegar það var skráð árið 1992. Ástæðan fyrir þessu ákvæði liggur í vilja hreppsnefndarmanna til þess að tryggja að fyrirtækið haldist í byggðinni. Deilur um lögmæti samþykktar Skagstrendings byrjuðu þegar Sam- herji keypti um 40% hlut í Skag- strendingi. Samherji á samkvæmt hlutafjáreign sinni rétt á tveim mönnum í stjórn. Höfðahreppur á rúmlega 20% hlut og er með tvo menn í stjórninni. Fimmti stjórnar- maður kemur frá Burðarási sem á 17% í félaginu. Málið skoðað í víðari samhengi Stefán segir að niðurstaða fundar- ins hafi verið sú að skoða mál Skag- strendings í víðara samhengi. „Við viljum gefa okkur tíma til að skoða hvort samþykktir annarra félaga sem eru skráð á þinginu brjóti í bága við lög um skráningu hlutabréfa sem tóku gildi 1. júlí sl.“ Stefán býst við niðurstöðu um næstu mánaðamót. Mikil átök í Mýrdalsjökli HELGI Björnsson, jöklafræðingur á Raunvísindastofnun, segir að nýj- ar sprungur sem myndast hafa í Mýrdalsjökli sýni að meginhluti jökulsins sé farinn að sýna við- brögð við auknum jarðhita undir jöklinum. „Myndast hafa fjölmargar sam- síða langsprungur, í stefnunni NA- SV með 20-60 metra millibili, sem ná yfir nær allan meginhluta öskj- unnar undir miðjum Mýrdalsjökli. Á þessu svæði hallar jökullinn til austurs og sýna sprungumar að straumur íss hefur vaxið niður að Höfðabrekkujökli og sprangur myndast við tog í ísnum. Orsök þessa er væntanlega sú að aukinn jarðhiti við austurbarma öskjunnar bræðir jökulís og því eykst straum- ur íss þangað frá meginjöklinum. Isinn í meginjöklinum er farinn að sýna viðbrögð við auknum jarðhita,“ segir Helgi. ís sígur að Höfðabrekkujökli Sú spurning vaknar hvort þessar sprungur benda til þess að afrennsli vatnsins sé eitthvað að breytast. „Enn sem komið er beinist ís og væntanlega einnig vatn enn ákveðn- ar en áður að upptökum Höfða- brekkujökuls og svo verður áfram nema fram komi sprungur innan öskjubarmanna, sem snúa gegn hin- um, þ.e.a.s. íhvolfa hlutanum að miðjum jöklinum. Fari svo myndast stór sigketill inni á miðjum jöklin- um og vatn getur safnast í botni öskjunnar svipað og nú gerist í Grímsvötnum í Vatnajöldi. Enn er enginn vísbending um að svo sé komið en væntanlega hefur af- rennslissvæði að Höfðabrekkujökli þegar vaxið frá því sem áður var. Enn stærri hluti Mýrdalsjökuls veitir því vatni til Mýrdalssands og að sama skapi minni hluti til Sól- heimasands og niður Markai-fljót. Kötluhlaup færi því niður Mýrdals- sand við gos innan enn stærra svæðis en talið var áður en breyt- ingar hófust á jöklinum eftir 20. júlí.“ Engin aukning hefur orðið í ám síðustu daga og segir Helgi að fylgj- ast þurfi vel með þeim á næstunni. Ef engin aukning verði í ánum á sama tíma og greinileg merki komi fram um aukinn jarðhita sé það ákveðin vísbending um að vatn safnist fyrir undir jöklinum. Bygging sérhannaðs kvikmyndavers stendur fyrir dyrum Fyrsta skóflustungan verður tekin á morgun ÚTLITSTEIKNING að kvikmyndaverinu sem verður við Fossaleyni í Grafarvogi í Reykjavík. FYRSTA skóflustungan að fyrsta sér- hannaða kvikmyndaverinu á íslandi verðrn- tekin á morgun, laugardag, á lóð íslenska kvikmyndaversins við Fossaleyni í Grafarvogi í Reykjavík. Ráðgert er að reisa þar tvö stúdíó og þjónustubyggingar en í fyrsta áfanga verður annað verið byggt. Jón Þór Hannesson kvikmynda- gerðarmaður tjáði Morgunblaðinu að helstu eigendur Islenska kvilonynda- versins væru Saga-Film, Islenska kvikmyndasamsteypan og Agúst Baldursson, sem hefur mikið starfað að leikstjóm auglýsingamynda. Aðrir hluthafar eru ýmsir fjárfestar. Hug- myndin er að reisa á 15.000 fermetra lóð fyrirtækisins alhliða þjónustuver lyrir íslenska kvikmjmdagerð en fyrir utan tvö kvikmyndaver verður þar að- staða fyrir búningagerð, skrifstofur, starfsmenn og síðan smíðaverkstæði. Alls verða byggingamar um 5.500 fer- metrar að flatarmáli. Kvikmyndaverin verða nefnd Óskar og Loftur til heið- urs tveimur frumkvöðlum í íslenskri kvikmyndagerð, Óskari Gíslasyni og Lofti Guðmundssyni. I fyrsta áfanga verður stærra stúd- íóið byggt. Er það 1.200 fermetra bygging með 10 metra lofthæð og þar muni aðilar að félaginu fá inni með verkefni sín auk þess sem aðrir geti einnig fengið aðstöðuna leigða. Ráð- gert er að Ijúka byggingu fyrsta áfangans um næstu áramót. Arkitekt er Gylfi Guðjónsson og segir Jón menn hafa skoðað kvikmyndaver í öðr- um löndum við undirbúning hönnunar. Kostnaður er áætlaður um 120 milljónir króna og segir Jón Þór hraða uppbyggingarinnar ráðast af þróun í íslenskri kvikmyndagerð á næstu árum. Hann segir löngu tíma- bært að fá aðstöðu sem þessa, fyrir- tækin hafi búið við misjafnar aðstæð- ur, fengið inni í bráðabirgðahúsnæði hér og þar á höfuðborgarsvæðinu vegna einstakra verkefna. Hann sagði þetta gerbreyta aðstöðu til kvik- myndagerðar enda sérhannað hús. Lækkun dollars hefur lítil áhrif Miðgengi dollarans frá 1. janúar til 12. ágúst 1999 1.jan. 1-feb. Lmars Lapr. Lmaí Ljúni Ljúlí Lág. DOLLAR hefur lækkað úr 75,50 krónum í 72,72 krónur á tímabilinu 14. júlí til 11. ágúst sl. í gær stóð dollarinn í 72,96 krónum miðað við miðgengi. Að því er fram kemur í máli forsvarsmanna fyrirtækja hérlendis hefur gengisþróunin ekki haft umtalsverð áhrif á inn- eða út- flutning því á sama tíma hafa evr- ópskar myntir styrkst sem og jen- ið. Lækkun dollara gagnvart krón- unni hefur í för með sér að allur út- flutningur í dollurum verður óhag- stæður. Þess ber þó að geta að gengi dollars er enn mun hærra en í upphafi árs þegar dollarinn var rétt rúmar 69 krónur. Ásgeir Daníelsson, hagfræðing- ur hjá Þjóðhagsstofnun, segir að mikilvægustu markaðir landsins séu ekki í Bandaríkjunum en lík- legt megi telja að meirihluti er- lendra lána sé í dolluram. Lækkun dollara ætti því að koma skuldur- um til góða. Einar Sigurðsson, framkvæmda- stjóri hjá Flugleiðum, segir að gengislækkun dollars hafi jákvæð áhrif á rekstur félagsins, ef eitthvað er, fyrir félagið. Jákvæðu áhrifin felist í því að hærra hlutfall gjalda en tekna er í dollurum þannig að fé- lagið þarf að kaupa dollara fyrir aðra gjaldmiðla. Ef gengi dollarans lækkar fær félagið því fleiri dollara fyrir hverja krónu. Meðal helstu út- gjalda sem breytast með gengi doll- ars era eldsneytiskaup, viðhalds- kostnaður og fleira. í efnahagsreikningi félagsins era skuldir færðar í dolluram en áhrif gengissveiflna á eignabreytingar jafnast út vegna þess að flugvéla- kosturinn er jafnframt endur-metinn í takt við gengisbreytingar. Utflutningxir enn hagstæður Hjá Sölumiðstöð hraðfrystihús- anna fengust þær upplýsingar að lækkun dollars hefði fram að þessu ekki haft áhrif á sölu sjávarafurða til Bandaríkjanna. Mest væri fram- leitt á Bandaríkjamarkað þessa dagana en yrði áframhald á lækkun dollars yrði það skoðað hvort hafin yrði framleiðsla inn á Evrópumark- að þar sem gjaldmiðlar hafa styrkst í samanburði við dollar. Hann segir jafnframt að afurðaverðshækkun sem orðið hafi í Bandaríkjunum vegi upp lækkun á dollar. Jónas Þór Steinarsson, fram- kvæmdastjóri Bílgreinasambands- ins, segir að bílainnflutningur sé ekki mikill frá Bandaríkjunum til íslands. Þar sé aðallega um að ræða bfla frá Chrysler en gengismálin séu með öðrum hætti nú en áður. Jónas Þór minnist þeirra tíma þeg- ar mikil lækkun varð á gengi sterl- ingspunds sem leiddi til mikils inn- flutnings á Ford Cortina frá Bret- landi. Nú tryggi innflytjendur sig gagnvart gengisbreytingum með ýmsum hætti. Nýkaup 17-47% lækkun á svínakjöti VERSLANIR Nýkaups lækka í dag, föstudag, ferskt svínakjöt úr kjötborði um 17-47% á meðan birgðir end- ast. Tilboðið stendur aðeins í dag eða á meðan birgðir end- ast og nær það til 10-12 tonna af svínakjöti. Sem dæmi má nefna að svínabógur, sem kostaði kr. 569 kostar nú kr. 379, svínakótilettur, sem áður kostuðu kr. 1.049 kosta nú kr. 749, svínahnakki, sem kostaði kr. 859, kostar nú kr. 498, svínarifjasteik, sem kostaði kr. 379 kostar nú kr. 198, svínabógssneiðar, sem áður kostuðu kr. 699 kosta nú kr. 395 og svína sirloin sneiðar, sem kostuðu áður kr. 756 kosta nú kr. 499.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.