Morgunblaðið - 13.08.1999, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1999 45
BRIPS
IJmsjðn Arnór
Ragnarsson
Erlendur Jónsson
vann sumarleik S/L
MÁNUDAGINN 9. ágúst spiluðu
30 pör 14 umferðir með 2 spilum á
milli para með Mitchell-fyrirkomu-
lagi. Meðalskor var 364 og efstu
pör voru:
N/S
Isak Öm Sigurðsson - Gylfi Baldursson 468
Jón Viðar Jónmundss. - Kristinn Karlss. 443
Gestur Halldórsson - Pórir Flosason 418
Jón Hjaltason - Steinberg Ríkarðsson 412
A/V
Helgi Bogason - Vignir Hauksson 466
Unnar Atli Guðmundss. - Helgi Samúelss. 424
Guðm. Þ. Gunnarss. - Frimann Stefánss. 397
Sigrún Pétursd - Harpa Fold Ingólfsd. 386
Þriðjudaginn 10. ágúst var spil-
aður Mitchell-tvímenningur með
þátttöku 22 para. Spilaðar voru 9
umferðir með 3 spilum á milli para.
Meðalskor var 216 og efstu pör
voru:
N/S
Helgi Bogason - Rúnar Einarsson 275
Andrés Þórarinsson - Halldór Þórólfsson 258
Omar Óskarsson - Hlynur Vigfússon 239
Esther Jakobsdóttir - Gylfi Baldursson 232
A/V
Sigtryggur Jónss. - Guðmundur Ágústss. 262
Jórunn Fjeldsted - Helgi Samúelsson 258
Kristinn Karlss. - Jón Steinar Kristinss. 225
Sigurleifur Guðjónsson - Bjöm Bjarnason 220
Erlendur Jónsson skoraði flest
bronsstig 4 kvöld í röð frá byrjun
Sumarbrids til 31. júlí. Hann skor-
aði 111 bronsstig og fær í verðlaun
40.000 kr. ferðaúttekt hjá Sam-
vinnuferðum/Landsýn. SL og
Sumarbrids óska Erlendi til ham-
ingju.
Gylfí Baldursson skoraði 88
bronsstig dagana 2. ágúst til 6.
ágúst og hefur tekið forystu í
Hornafjarðarleiknum, en 1. ágúst
tók Hornafjarðarleikurinn við af
Sumarleik SL og Sumarbrids. Sá
spilari sem skorar flest bronsstig 4
kvöld í röð frá 1. ágúst til 10. sept-
ember fær fría flugferð, hótelgist-
ingu, mat og þátttökugjald á
Hornafjarðarmótið 1999 sem verð-
ur haldið helgina 24.-26. septem-
ber.
Sumarbrids 1999 er spilaður 6
daga vikunnar, alla daga nema
laugardaga. Spilamennska byrjar
alltaf kl. 19. Spilaðir eru Mitchell-
tvímenningar með forgefnum spil-
um, nema á miðvikudögum og
sunnudögum en þá er spilaður
Monrad Barómeter og pörum gef-
inn kostur á að taka þátt í Verð-
launapotti. Eftir að tvímenningn-
um lýkur á föstudögum er spilað
Miðnætur-útsláttar-sveitakepppni
og kostar 100 kr. á mann hver um-
ferð. Einnig er spiluð sveitakeppni
alla daga fyrir frídaga ef þátttaka
næst. Spilarar sem eru 20 ára og
yngri spila frítt í boði Bridssam-
bandsins.
Kaffisala í Ölveri
%
SUMARBÚÐIR KFUM og K
að Ölveri í Melasveit eru nú að
ljúka sumarstarfi sínu. Sumar-
búðirnar voru stofnaðar árið
1940 og hafa starfað óslitið síð-
an en verið sterfræktar frá ár-
inu 1952 í Ölveri. Sjö fastir
starfsmenn störfuðu í Ölveri i
sumar og var forstöðukona
Hulda Björg Jónasdóttir.
Metaðsókn var í sumarbúð-
irnar í sumar og dvöldu þar á
fjórða hundrað börn og ung-
lingar í 9 flokkum. Krakkarnir
njóta lífsins við ýmsa leiki, úti-
vist, kvöldvökur og síðast en
ekki síst fræðast þau um
kristna trú.
Starfsemi sumarbúðanna
byggist á sjálfboðavinnu árið
um kring. Undirbúningur fyrir
hvert sumar er mikill og hefur
Ölver þar notið velvilja margra
sem vert er að þakka.
Aðalfjáröflun sumarbúðanna
er kaffísala í lok sumars ár
hvert. Undarfarin ár hafa
margir lagt leið sína í Ölver
þann dag. Kaffísalan verður nú
sunnudaginn 15. ágúst.
KEISINSLA
BRIAN TRACY INTERNATIONAL
PHOENIX-námskeiðið
Leiðin til hámarks árangurs!
• Vegur til velgengni
• Markmiðasetning
• Virkja hœfileika
• Þroska persónuleika til velgengni
• Útrýma neikvœðum tilfinningum
• Áhyggjubaninn
• Árangursrik lögmál farsœldar
Námskeið hefjast 16. ágúst
á Hótel Loftleiðum.
Leiðbeinandi er Sigurður Guðmundsson.
Súnar: 557-2450 / 896 2450
heimasíða: www.sigur.is netfang: sigurdur@sigur.is
í umvinnu viö Innjýn Performance Systems
TILKVNNINGAR
Tilkynning frá
sóknarnefnd
Lágafellssóknar
Að Mosfelli í Mosfellsdal ferfram fornleifa-
rannsókn undir stjórn próf. Jessebyock dagana
15.—31. ágúst 1999. Tilgangur rannsóknarinn-
ar er fyrst og fremst að aldursgreina grunn
gamallar kirkju sem fannst norðan kirkjugarðs-
ins fyrir fáum árum. Aðeins verða grafnir litlir
skurðir og allt rask sem af því hlýst verður lag-
fært þegar að rannsókn lokinni. Þeir sem eiga
erindi að Mosfellskirkju eru beðnir velvirðingar
á hugsanlegum óþægindum af þessum
sökum.
FUNOIR/ MANNFAGNAÐUR
Frestun á hluthafafundi
Skagstrendings hf.
Áður boðuðum hluthafafundi Skagstrendings
hf. sem halda átti föstudaginn 13. ágúst nk.
er frestað.
Stjórnin.
TIL SÖLU
Áhugaverð fyrirtæki til sölu
Vínveitinga- og skemmtistaður
Notalegur200 manna vínveitinga- og skemmti-
staður í miðbænum. Er í fullum rekstri.
Fiskvinnsla
í góðum rekstri og glæsilegu eigin húsnæði.
Söluturn
Snyrtilegur og vel staðsettur söluturn. Er með
góða rekstrarafkomu, svo sem að fastirtekju-
liðir standa undir daglegum rekstrarkostnaði.
Iðnaðar- og verslunarhúsnæði
Nánari upplýsingar á skrifstofunni.
íbúðir
Góð 2—3 herb. íbúð í Breiðholti, (laus 1. nóv.).
4ra herbergja íbúð í steinhúsi í miðbænum
(laus).
Norræna FjárfestingaMiðstöðin ehf.
Hafnarstrœti 20, v. Lækjartorg. Sími 552 5000.
Ódýrt — ódýrt
Lagerútsala
Leikföng, gjafavörur, sportskór.
Opið kl. 13 til 18 fimmtudag og föstudag.
Skútuvogi 13, (við hliðina á Bónus).
BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Auglýsing um breytingu á aðalskipulagi Kjalarness
1990-2010 og deiliskipulag fyrir hluta jarðarinnar Vallár
í samræmi við 21. og 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari
breytingum, er hér með auglýst til kynningar tillaga að breytingu á aðalskipulagi
Kjalarness 1990-2010 og tillaga að deiliskipulagi fyrir spildu úr landi Vallár
Kjalarnesi.
Aðalskipulagstillagan lýtur að því að breyta landnotkun spildu jarðarinnar Vallár úr
landbúnaðarsvæði í sumarbústaðarbyggð. Deiliskipulagastillagan lýtur að því að
gert er ráð fyrir að á spildunni sé heimilt að byggja sumarhús/frístundahús.
Tillögurnar liggjaframmi í sal Borgarskipulags og byggingarfulltrúa í Borgartúni 3,1. hæð,
virka daga kl. 10.00 - 16.00 frá 13. ágúst til 10. september 1999. Ábendingum og
athugasemdum skal skila skriflega til Borgarskipulags Reykjavíkur fyrir 24. september
1999.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar.
13. ágúst 1999
Þorvaldur S. Þorvaldsson, skipulagsstjóri.
_____________________________________________________________________________
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Hörðuvöllum
1, Selfossi, þriðjudaginn 17. ágúst 1999 kl. 10.00 á eftirfar-
andi eignum:
Asparlundur 2, ásamt 1.600 fm lóð úr landi Miðfells, Þingvallahreppi,
þingl. eig. Þb. Ólafur Benedikt Þórðarson, gerðarbeiðendur Samvinnu-
sjóður (slands hf. og Þingvallahreppur.
Borgarbraut 1, (úr landi Stóru-Borgar), Grímsneshreppi, hluti C, þingl.
eig. Drífandi ehf„ gerðarbeiðandi Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf.
Hjarðarholt 15, Selfossi, þingl. eig. Baldur Valdimarsson, gerðarbeið-
andi Lifeyrissjóður Suðurlands.
Jörðin Arabæjarhjáleiga, Gaulverjabæjarhreppi, undansk. 2 ha lands
ehl. gþ„ þingl. eig. Gunnar Kristinn Þorvaldsson, gerðarbeiðandi
íslandsbanki hf. höfuðst. 500.
Jörðin Villingaholt — spildur, Villingaholtshreppi, ehl. gþ„ þingl.
eig. Helgi Kristjánsson og Gréta S. Jónsdóttir, gerðarbeiðandi Lands-
banki Islands hf„ aðalbanki.
Lóð nr. 132, úr Öndverðarnesi, Grímsneshreppi, þingl. eig. íris Mjöll '
Valdimarsdóttir, gerðarbeiðandi íslandsbanki hf„ útibú 526.
Skólavellir 14, Selfossi, íb. i kjaliara, þingl. eig. Ásgeir Hrafn Símonar-
son, gerðarbeiðandi húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar.
Sólvellir, Stokkseyri, ehl. gþ„ þingl. eig. Pálina Ágústa Jónsdóttir
og Kristinn Jón Reynir Kristinsson, gerðarbeiðandi Daníel G. Björns-
son.
Strandgata 5, Stokkseyri, íb. 0102 og 0202, þingl. eig. Jóhannes Helgi
Einarsson, gerðarbeiðandi Ingvar Helgason hf.
Unubakki 18—20, Þorlákshöfn, ehl. 010103, sem er 254,9 fm og 24,17%
heildareignar., þingl. eig. Netagerð Ármanns og Bragi Kristjánsson,
gerðarbeiðendur Atvinnuþróunarsjóður Suðurlands og Ölfushreppur.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
12. ágúst 1999.
YMISLEGT
Til sölu — meðeigandi
Framleiðslu- og þjónustufyrirtæki í örum vexti
leitar að meðeiganda. Mikil verkefni framundan.
Viðkomandi þarf að geta lagtfram 10 milljónir
fyrir 50% hlut í fyrirtækinu. Frekari upplýsingar
gefur Björn í síma 896 8934.
FÉLAGSLÍF
Dagskrá 14. og 15. ágúst 1999
Laugardagur 14. ágúst
Kl. 11.00 Bamastund. Náttúru-
fræðsla og leikir. Hefst við þjón-
ustumiðstöð og tekur um 1 klst.
Kl. 13.00 Skógarkot —
Hrauntún. Gengið á milli eyði-
býla, á ferðinni verður fjallað um
náttúrufar og búsetu í Þingvalla-
hrauni. Gangan hefst við þjón-
ustumiðstöð og tekur ríflega 3
klst. Sjálfsagt er að vera vel
skóaður og hafa með sér ein-
hverja hressingu.
Sunnudagur 15. ágúst
Kl. 11.00 Guðsþjónusta í
Þingvallakirkju.
Kl. 13.00 Lambhagi — Vatns-
kot. Gönguferð með strönd
Þingvallavatns þar sem fuglalíf
og gróðurfar verður í brenni-
depli. Þetta er róleg 2—3 klst.
ganga sem hefst á bilastæði
ofan við Lambhaga. Gott er að
hafa sjónauka meðferðis.
Kl. 15.00 Þinghelgarganga.
Létt ganga um þinghelgina fornu
þar sem rætt verður um sögu
þings og þjóðar á Þingvöllum.
Gangan tekur rúmlega 1 klst. og
hefst við kirkjuna.
Þátttaka í dagskrá þjóð-
garðsins er ókeypis og allir
eru velkomnir.
Nánari upplýsingar veita
landverðir í þjónustumiðstöð
þjóðgarðsins, sími 482 2660.
augl@mbl.is
fRwgnftMaMfr