Morgunblaðið - 13.08.1999, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 13.08.1999, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1999 SOFFÍA LÁR USDÓTTIR + Soffía Lárus- dóttir fæddist á Sauðárkróki 4. sept- ember 1931. Hún andaðist á Landspft- alanum 4. ágúst síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Þuríð- ur Ellen Guðlaugs- dóttir, f. 24.7. 1905, d. 29.9. 1961, og Lárus Kristinn Run- ólfsson hafnsögu- maður, f. 22.6. 1903, d. 4.10. 1982. Lárus og Þuríður eignuð- ust fimm börn og var Soffía næstelst. Systkini hennar eru Unnur G., f. 26.3. 1930, Lára, f. 28.11. 1932, Run- ólfur Kristinn, f. 5.5. 1934, og Guðlaugur Þór, f. 23.6. 1936, og eru þau öll á lífi. Hinn 5. júní 1954 giftist Soff- ía Sæmundi Eyland Sigur- björnssyni frá Stykkishólmi, f. 11.6. 1930. Foreldrar hans voru Soffía Pálsdóttir, f. 7.7. 1907, d. 28.8. 1995, og Sigurbjörn Krist- inn Kristjánsson, f. 2.8. 1899, d. 27.12. 1977. Soffía og Sæmund- ur slitu samvistum 1981. Þau eiga sjö börn, nitján barnabörn og fjögur barnabarnabörn. Börn þeirra eru: 1) Lárus Sig- urbjörn, f. 7.12. 1952, ógiftur og barnlaus. 2) Birgir Rúnar, f. 21.11. 1954, ógiftur og barnlaus. 3) Grét- ar Már, f. 22.5. 1956, ógiftur og barnlaus. 4) Brynjar Eyland, f. 8.7. 1957, kvæntur Huldu B. Magnús- dóttur, f. 27.8. 1958. Þau eiga þrjú börn. Þau heita Hafsteinn Eyland, f. 13.2. 1983, Eydís Ósk, f. 9.10. 1985, og Orri Freyr, f. 17.11. 1985. 5) Hildur Þuríður, f. 7.8. 1958, gift Þórði Guðna Sigurvinssyni, f. 17.12. 1953. Þau eiga saman fimm börn og tvö barnabörn. Þau heita a) Sigurbjörn Ingvi, f. 29.6. 1976, unnusta hans er Margrét Harðardóttir, f. 14.8. 1975. b) Anna Soffía, f. 29.5. 1979. Unnusti hennar er Ingimundur Barðason, f. 3.5. 1973. Þau eiga saman tvö börn, Lovísu Kristínu, f. 17.3. 1998, og Valdimar Þór, f. 28.4. 1999. c) Guðni Þór, f. 20.6. 1983. d) Jenný Ósk, f. 13.2. 1990, og e) Sæmundur Þór, f. 29.3. 1997. 6) Ómar Örn, f. 13.6. 1960, hann á sjö börn og tvö barna- börn. Börn hans eru: a) Elva Dögg, f. 9.11. 1978, á hún tvö börn með Jóhanni Agúst Tórs- hamar, þau slitu samvistum, börn þeirra eru Máni Freyr, f. 26.10. 1995, og Erla Díana, f. 3.8. 1997; b) Sandra Björk, f. 30.7. 1982; c) Berglind Eva, f. 28.8. 1983; d) Rakel, f. 22.3. 1986; e) Ómar, f. 8.12. 1988; f) Viktor, f. 22.8. 1990; og g) Mimmi Andrine, f. 21.6. 1997. 7) Erling Viðar, f. 23.11. 1961, kvæntur Önnu Fíu Ólafsdóttur. Þau eiga saman fjóra drengi. Þeir eru: a) Andri Þór, f. 21.10. 1984, b) Óli Már, f. 19.4. 1988, c) Arnar Snær, f. 30.7. 1990, og d) Hlynur Logi, f. 10.3. 1994. Soffía ólst upp á Sauðárkróki og hlaut almenna skólagöngu. Hún fór að vinna fyrir sér og vann á Ritsíma Islands í nokkurn tíma. Ung kynntist hún Sæmundi og fluttust þau til Stykkishólms. A meðan börnin voru lítil vann hún ekki utan heimilis. Árið 1969 fluttust þau til Vestmannaeyja með sinn stóra barnahóp. I Vestmanna- eyjum bjuggu þau á Boðaslóð 18. Gosið skall á 1973 og þá fóru allir suður. Fyrst fluttu þau á Seltjarnarnes en síðan í Breiðholt og þaðan til Þorláks- hafnar og hefur hún búið þar síðan að frátöldum árunum 1977-1979, sem þau bjuggu í Kópavogi. Utför Soffíu fer fram frá Þor- lákskirkju í Þorlákshöfn í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku mamma mín. Ég sit hér um- ki'ingd blómum frá ættingjum og vinum og sé þig fyrir mér brosandi innan um þau. Það er svo sárt að þú skulir vera farin, en nú ert þú laus við kvalir og erfið veikindi, sú hugsun gerir þetta þolanlegra. Hvernig þú tókst á veikindum þín- um er ólýsanlegt, slíkur var dugnað- urinn og alltaf varstu að hlífa okkur við óþarfa áhyggjum. En þannig varst þú allt þitt líf. Það er margt sem kemur upp í hugann, svo margt sem ég er þakk- lát fyrir, þó sérstaklega sá tími sem við áttum síðustu mánuði. Þeir hafa verið mér mjög lærdómsríkir og þroskandi. Ég man aldrei eftir þér öðruvísi en að þú hafir haft eitthvað iyrir stafni. Þér féll aldrei verk úr hendi. Til dæmis gastu ekki horft á sjónvarp nema með prjóna í höndunum eða útsaum. Og á meðan þú lást banaleguna prjónaðir þú fallega peysu á þitt yngsta barnabarn, hann Valdimar Þór, og byrjaðh' að prjóna kjól á hana Lovísu Kristínu. Þér var mikið í mun að klára, en tími gafst ekki til. Nú fmn ég angan löngu bleikra blóma, borgina hrundu sé við himin ljóma, og heyri aftur fagra, forna hljóma, finn um mig yl úr brjósti þínu streyma. Eg man þig enn og mun þér aldrei gleyma. Minning þín opnar gamla töfraheima. Blessað sé nafn þitt bæði á himni og jörðu. Brosin þín mig að betri manni gjörðu. Brjóst þitt mér ennþá hvíld og gleði veldur. Þú varst mitt blóm, mín borg, mín harpa og eldur. (Bavíð Stef.) Elsku mamma, ég kveð þig með söknuði og þakka þér traustið og allt sem þú kenndir mér. Hildur. Signi þig Jesús og leggi þér lið, leiði þig ætíð Hans kraftur. Gæti þín Drottinn þinn, gefi þér frið og gleði í hjarta þitt aftur. Kær er minningin um þig, mamma mín, sem af trygglyndi og kærleika hélst fjölskyldu þinni saman þrátt fyrir andstreymi og norðanhvass- viðri í lífinu. Dugnaður þinn og fórn- ariund fyi-ir börnin þín, er mér sterk minning um kærleika þinn. Barngæska þín var einstök og nut- um við börnin þín, barnabörn, barna- barnabörn, svo og önnur börn góðs af vönduðum sauma- og prjónaskap þín- um, sem er í miklum metum hjá þeim sem notið hafa. Handverk þín voru vönduð og sköpunargáfa sterk og fjölbreytt og fiest lék í höndum þér. Nú gengur þú, mamma mín, á Drottins vegum, og trú mín er sú að Guð beri þig nú á höndum sér. Liðin er ævin og þessu jarðneska lífi lokið. Þjáningum er Iokið og skært ljósið er tært og frjálst til nýs hamingju- ríks lífs. Eilíft þakklæti er mér efst í huga við aldahvörf, sem og vonin og kær- leikur til lífs nýrrar aldar. Að hafa getað hjálpað þér af veikum mætti síðustu daga þína er mér mikils virði þar sem þú sýndir æðruleysi og hug- prýði sem sönnuðu ást þína og sanna kristni. Ég þakka þér líf mitt. Ég þakka þér samveruna í lífinu. Ég þakka þér leiðsögn til þroska og vits. Þakklæti að eilífu. Kveðja frá Lárusi og Grétari. Birgir Rúnar Sæmundsson. í dag fylgjum við til grafar tengdamóður minni Soffíu Lárus- dóttur. Kynni okkar Soffíu hófust fyrir 24 árum þegar ég kom með Brynjari syni hennar á heimili þeirra Sæmundar í Þorlákshöfn og hann kynnti mig fyrir foreldrum sínum. Ári síðar byrjuðum við að vinna í Þorlákshöfn og bjuggum þá á heimili þeirra hjóna. Góð vinátta tókst þá með okkur Soffíu sem síðan hefur styrkst í gegnum árin. Hófum við Binni síðan búskap í Þorlákshöfn og bjuggum þar, þar til fyi'ir þremur árum að við fluttumst í Hafnarfjörð. Ég er þakklát fyrir öll árin sem við áttum saman og allt sem ég lærði af henni í gegnum tíðina. Soffía var mikil húsmóðir og hannyrðakona jafnt við saumaskap og prjóna enda bar heimilið þess glöggt merki, svo og allur sá fatnaður sem hún hefur prjónað og saumað á barnabörnin. Barnabörn Soffíu áttu í henni dýr- mætan vin sem þau gátu alltaf leitað til í raunum sínum. Við flutning okk- ar í bæinn breyttist samband barna okkar við ömmu þeirra úr daglegu samneyti í helgarferðir og til lengri dvalar yfir sumartímann. Þá styrkt- ist samband þeirra við enn nánari kynni. Eiga þau eftir að sakna ferð- anna til ömmu í Þorlákshöfn mikið. Einnig áttu þau dýrmætar stundh' með henni í þau skipti sem hún dvaldi hjá okkur á liðnu ári. Síðastliðið ár hefur Soffía átt við erfið veikindi að stríða sem hún tók með miklu æðruleysi og sagði að við yrðum að taka því sem að höndum bæri og þakka fyrir þær stundir sem okkur hafa verið gefnar. Síðasta kvöldið sem Soffía var heima áttum við góða stund saman og ræddum ýmis mál. Ekki veit ég hvað rak mig til hennar í þetta skipti en ætíð verð ég þakklát fyrir þá ákvörðun að fara austur að heilsa upp á hana áður en við færum í ferðalag. Elsku Soffía, okkar eina huggun er að nú líður þér betur. Eftir sitjum við með allar góðu minningarnar að ylja okkur við og rifja upp með börn- unum á erfiðum tímum. Margs er aó minnast, margt er að þakka. Guði sé lof fýrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. t Okkar ástkæra INGER ESTER NIKULÁSDÓTTIR, Birkimel 6, Reykjavík, lést á Vífilsstaðaspítala að kvöldi miðvikudagsins 11. ágúst. Björn Hólm Magnússon, Valdís Magnúsdóttir, Oddur Örvar Magnússon Hafrún Magnúsdóttir, Elínborg Magnúsdóttir, Anna Fía Emilsdóttir, Kjartan Jónsson, Hulda Sigríður Skúiadóttir, Karl Hallur Sveinsson, Gunnar Þór Guðjónsson, Margrét Ólöf Magnúsdóttir, Benedikt Grétar Ásmundsson, barnabörn og barnabarnabarn. Far þú í friði, íriður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V.Briem) Kveðja. Hulda B. M. standa við minn hluta samkomulags- ins, leyndarmálið sem aðeins ég og þú vissum. Ég mun því kveðja þig, Soffía amma, með orðum sem eru mér mikils virði: „Drottin er miíS* hirðir, mig mun ekkert bresta.“ Hafsteinn Eyland. Elsku amma mín. Það er komið að kveðjustund en svona gengur lífið fyrir sig. Ég á eftir að sakna þess að koma í heimsókn til þín, hjálpa þér eða gera eitthvað skemmtilegt. Ég man alltaf efth' því þegar þú varst að kenna mér að prjóna og sauma á saumavélina þína. Við saumuðum fot á Binna, bangsann minn. Svo bökuð- um við kleinur saman og ég gerði risa kleinukall og þú hlóst að honum. En nú kveð ég þig með bæn sem þú kenndir mér, amma mín: Nótt er úti, nú er ég inni. Nærri vertu, Jesú, raér, vemdaðu mig á sál og sinni. Sofna ég vært í örmum þér. ^ Eydís Ósk. Elsku Soffía amma. Nú er sá tími kominn í lífi mínu að við þurfum að kveðjast. En þó að við kveðjumst og þú farir til himna veit ég að þú munt alltaf vera hjá mér og ert alltaf til staðar þegar eitthvað bjátar á. Ég mun aldrei gleyma þeim degi sem ég kom og heimsótti þig í síðasta skipti. Þau orð sem þú mæltir eru orð sem ætíð hafa verið og munu verða mér kær. Þegar ég hugsa um það sem þú sagðir fer hugur minn að reika til baka. Ég sé og heyri allt það skemmtilega sem við gerðum saman. Og sérstaklega mun sumarið sem ég bjó hjá þér vera minnisstætt, þegar þú sagðir mér sögurnar á kvöldin um það hvernig ég hefði byrjað mat- reiðsluferil minn í eldhúsinu á Skál- holtsbrautinni, búinn að tæma alla kryddstaukana og gera úr því mall. Ég veit að einn góðan veðurdag mun ég heyra þig segja þessi orð aftur: „Elsku vinur minn, ertu kominn að heimsækja ömmu?“ Þessi orð sem þú síðast mæltir við mig mun ég heyra aftur og allar þær sögur sem þú hefur sagt mér. En það mun líða langur tími. Á þessum tíma mun ég Elsku amma mín. Nú ertu farin frá okkur og við munum ætíð sakna þín. En lífið gengur áfram og við vit- um að nú líður þér betur. Við minn- umst þess sem þú gerðir fyrir okkur, allra sagnanna sem þú sagðh- okkur af strákunum þínum þegar þeir voru litlir. Og eins hvernig þú hugsaðir alltaf um okkur þegar eitthvað var að. En nú ertu farin á betri stað en þú verður ávallt með okkur í huga ojf" sál. Nú kveð ég þig, elsku amma mín. Guð veri með þér. Orri Freyr. Elsku amma okkar hefur nú feng- ið hvíldina eftir erfið veikindi sl. mánuði. Alltaf var gott að koma til hennar ömmu og fá hjá henni bestu kleinur í heimi og hlýjustu sokka og vettlinga sem til voru. Amma var dugleg kona og í veik- indum sínum kvartaði hún aldrei. Af einstaki-i hugprýði mætti hún örlög- um sínum með staðfastri trú á að hlutir hefðu sinn ákveðna gang í ver- öld okkar mannanna. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof íyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V.Briem.)f. * Elsku amma, takk fyrir allt sem þú gafst okkur. Guð blessi þig og minningu þína. Far þú í friði. Sigurbjörn Ingvi, Anna Soffía, Guðni Þór, Jenný Ósk og Sæmundur Þór. + Ástkær móöir okkar, ÞÓRHALLA BJÖRNSDÓTTIR, hjúkrunardeildinni Víðihlíð, Grindavík, sem lést mánudaginn 9. ágúst, verður jarö- sungin frá Grindavíkurkirkju miövikudaginn 18. ágúst kl. 14.00. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Börn hinnar látnu. + Útför eiginkonu minnar, móður okkar og tengdamóður, SIGRÍÐAR ÞORVALDSDÓTTUR frá Hjarðarholti, Borgarvík 23, Borgarnesi, fer fram frá Reykholtskirkju laugardaginn 14. ágúst kl. 13.00. Jarðsett verður í Hjarðarholtskirkjugarði. Jón Þór Jónasson, María Jónsdóttir, Þorvaldur Tómas Jónsson, Hrefna Bryndís Jónsdóttir, Ragnheiður Laufey Jónsdóttir, Siggeir Lárusson. + Föðurbróðir minn, SIGURÐUR NÍELSSON, Oddagötu 5, Akureyri, verður jarðsunginn frá Skinnastaðakirkju laugardaginn 14. ágúst kl. 14.00. Jarðsett verður í Snartastaðakirkjugarði. Jón Friðjónsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.