Morgunblaðið - 13.08.1999, Síða 8

Morgunblaðið - 13.08.1999, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Brynjar Gauti Róið á Þingvallavatni ÞINGVALLAVATN er bæði djúpt og kalt og því viturlegt að skoða það og náttúru hins friðlýsta helgistaðar íslendinga á kajak, eins og þessi ungi drengur gerði á sunnudaginn. Vatnið endurspeglar ekki aðeins töfra Þingvalla, staðarins sem hefur verið samtvinnaður sögu þjóðarinnar frá öndverðu, heldur er það hrein náttúruperla útaf fyrir sig. I vatninu eru hyldjúpar gjár og mikill þörungagróður sem er undirstaða dýralífsins en í vatninu eru m.a. fjögur afbrigði af bleikju sem eru einstæð í heiminum. Til hamingju með stúdentsprófið Vilt þú að börnin fari í framhaldsnám? Le'rtaðu eftir ávöxtun sem hæfir draumum þínum - vertu áskrifandi að verðbréfasjóðum Kaupþings. !S KAUPÞING Kaupþing hf. • Ármúla 13A • Reykjavik slmi 5151500 • fax 5151509 • www.kaupthing.is Norrænir byggingardagar Litið til nýrrar aldar Norrænir bygging- ardagar verða haldnir í Há- skólabíói og á Hótel Sögu dagana 5. til 8. september í haust. Þá koma saman fulltrúar frá öllum greinum sem tengjast byggingar- og skipulagsmálum á Norð- urlöndum. Fyrsta slík ráðstefna var haldin í Stokkhólmi 1927 og hafa slíkar ráðstefnur verið haldnar síðan, fyrst á 5 ára fresti en á þriggja ára fresti síðan eftir seinni heimsstyrjöld. Is- lendingar gengu í þessi samtök á ráðstefnu í Ósló 1938. Þorvaldur S. Þorvaldsson skipulags- stjóri Reykjavíkurborg- ar er formaður stjórnar Norræna byggingardagsins á Islandi. Hann var spurður hvað ætti að fjalla helst um að þessu sinni á ráðstefnunni? „Vinnuheiti ráðstefnunnar var að „kíkja undir pilsfald nýrrar aldar“, sérstaðan núna er sú að við höldum ráðstefnu svo nálægt aldamótum. Ráð- stefnan heitir Norðurlönd - heimurinn, á nýrri öld. Ráð- stefnan hefst sunnudaginn 5. september, þá er boðið upp á sýnisferð um borgina og haldin móttaka í Ráðhúsi Reykjavíkur um kvöldið þar sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri mun líta til nýrrar aldar. Síðan hefst ráðstefnan í Háskólabíói mánudaginn 6. september. Heiðursfyrirlesari er Vigdís Finnbogadóttir fyrrum forseti íslands, hún kallar erindi sitt Skyggnst inn í næstu öld. Síðan koma fyrirlestrar og listvið- burðir til klukkan 16.30 um eft- irmiðdaginn. Meðal fyrirlesara er prófessor Norman Pressman frá Kanada, sem fjallar um vetrarborgir. Daginn eftir er sérstaða í-áðstefnunnar sú að fólk fær að velja úr tíu mála- flokkum sem kynntir verða, þá skipta menn sér eftir efni og fara í ferðir um höfuðborgar- svæðið þar sem t.d. er sýnd ný húsagerðarlist, skipulagsmál, húsfriðun, félagslegar stofnanir, rannsóknir í byggingariðnaði, hitaveita og rafveita, vatnsveita, skolp, höfnin í Reykjavík og og tölvutækni í byggingariðnaði. Ferðimar standa hálfan daginn svo þátttakendur geta farið í tvær ferðir ef þeir vilja. Einnig er boðið upp á eina dagsferð sem heitir Þjóðgarðurinn - skipulagning hálendis íslands, þar sem á Þingvöllum verður kynnt skipulag hálendisins. Daginn eftir er boðið upp á héils dags ferðir sem að hluta til eru tengdar Landsvirkjun, gefst þá fólki tækifæri til að ~ _ skoða virkjunarfram- sem kvæmdir og fleira." eiga erindi til -Hvaða gildi hafa margra svona ráðstefnur? Þorvaldur S. Þorvaldsson ►Þorvaldur S. Þorvaldsson fæddist 1933 í Reykjavík en ólst upp í Hafnarfirði. Hann lauk stúdentspröfi 1954 frá Mennta- skólanum í Reykjavík og stund- aði nám við Konunglegá lista- háskólann í Kaupmannahöfn, þaðan lauk hann námi í húsa- gerðarlist 1962. Hann starfaði tvö ár á arkitektastofu í Dan- mörku og hjá Húsameistara ríkisis til ársins 1967. Þá stofn- aði hann arkitektastofu með Manfreð Vilhjálmssyni og rak hana ásamt Manfreð til 1984 er hann tók við starfi skipulags- stjóra Reykjavíkur, sem þá hét forstöðumaður borgarskipu- lags. Þorvaldur er kvæntur Steinunni Jónsdóttur og eiga þau þrjú börn. „í fyrsta sinn var ráðstefna af þessu tagi haldin í Reykjavík 1968. Hún bar yfirskriftina Húskostur og þá vom þátttak- endur 900. Næst var ráðstefna haldin í Reykjavík 1983 undir yfirskriftinni Er íbúðaþörfínni að verða fullnægt?, þá voru um 1.000 þátttökugestir. Nú em breyttar aðstæður og ráðstefn- urnar haldnar árlega til skiptist á Norðurlöndunum, við geram því ráð fyrir að þátttakendur núna verði rösklega 300. Gildi svona ráðstefna fyrir þátttak- endur er að fá yfirsýn yfir allt sem tengist byggingar- og skipulagsmálum á Norðurlönd- um. Eins og áður hefur komið fram er ekki aðeins um að ræða arkitektúr heldur allt það sem tengist byggingar- og skipu- lagsmálum.“ -Hver er helsta spurning ráðstefnunnar í ár? „Helsta spurningin núna er: Er tO norrænn arkitektúr? Eig- um við einhvern sameiginlegan arf á Norðurlöndum í húsagerð og skipulagsmálum, sem skiptir máli að halda í?“ - Hver er þín skoðun á því? „Þetta er erfið spurning og það hefur hvergi verið fjallað um þetta í þá vem að reyna að skilja hvað við eigum sameigin- legt. En manni, sem horfir á þetta utan að, eins og t.d. pró- fessor Norman Pressman, finnst hann sjá mikil tengsl milli Norðurlanda, sem greini þau frá öðmm Evrópulöndum. Spurn- ingin er hins vegar hvað er það sem teng- ir? Er það trúin, birt- an, myrkrið, veðrátt- —an, hinn sögulegi arf- ur? Hvað er það sem tengir?“ - Eru Islendingar duglegir að taka þátt í þessum ráðstefn- um? „Miðað við þátttöku í fyrri ráðstefnum og eins og menn hafa skráð sig í dag þá er þetta aðallega fólk frá hinum Norður- löndunum. Við vildum gjarnan sjá fleiri íslendinga. Við teljum að umræðurnar sem þarna fara fram eigi erindi til svo margra."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.