Morgunblaðið - 13.08.1999, Page 43

Morgunblaðið - 13.08.1999, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ _______________________________FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1999 43 MINNINGAR dauðanum. Það kom mjög vel í ljós síðustu vikuna sem hann lifði, en þá dvaldist hann á Sjúkrahúsinu á Húsavík og voru hans nánustu hjá honum alian þann tíma. Þá rifjaði hann upp gamla og löngu liðna at- burði og setti þá stundum í spaugi- legan búning, hann gerði sér fulla grein fyrir því að dauðinn nálgaðist og óttaðist ekkert. Hann gekk frá sínum málum af festu og ná- kvæmni. Allt var klárt til brottfar- ar. Eg minnist Halldórs og Rósu konu hans með hlýhug og bið þeim guðs blessunar. Tryggvi Aðalsteinsson. Elsku afí minn. Þá ert þú búinn að fá hvíldina. Kominn til ömmu sem búin er að bíða eftir þér í níu ár. Ég er alveg viss um að nú líður þér vel - nú ertu laus við verki sem oft þjáðu þig, en samt er ég sorg- mædd því ég sakna þín mikið. Eg sakna þess að geta ekki framar skroppið upp í Hvamm til þín að spjalla aðeins. Athuga hvemig þú hefðir það, segja þér fréttir og fá fréttir hjá þér. Það sem þú íylgdist vel með afi - það var sama hvort það voru fréttir úr þjóðlífínu eða bara það sem var um að vera í fjöl- skyldunni. Þú fylgdist vel með því öllu. Oft á tíðum undraði mig hvað þú hefðir gott minni - hvað þú varst skýr þótt þú værir orðinn þetta gamall. Ég sagði stundum við þig að þú hefðir betra minni en ég - að þú myndir ýmislegt sem ég væri búin að gleyma. Enda var það satt, þú þurftir oft að minna mig á ýmsa hluti. Já, afi minn, það hefur verið mér mikils virði og jafnvel ómetanlegt að hafa átt þig að öll þessi ár. Sér- staklega síðustu ár, eftir að þú fluttir á Hvamm - þá urðum við nánari, enda hittumst við þá mjög oft. Ég vildi óska að við hefðum getað átt fleiri ár saman. En kannski er eigingjamt af mér að hugsa svona. Þú talaðir um það síð- ustu dagana þína að þú værir tilbú- inn að fara. Líkamleg heilsa þín var orðin léleg og þú talaðir oft um það að þú gætir ekki hugsað þér að verða ósjálfbjarga og ruglaður gamall maður. Ég var strax farin að hlakka til að hitta þig í jólafríinu þegar ég kæmi heim frá Dan- mörku, en þar ætla ég að vera í vet- ur eins og þú veist. Við vorum búin að tala um það að þá gætum við kannski talað aðeins saman á dönsku - en hana kunnir þú mjög vel - þú varst meira að segja búinn að kenna mér nokkur orð. Takk fyrir það - ég á örugg- lega eftir að nota mér þau. Afi minn, ég sé þig fyrir mér liggjandi á rúminu þínu með út- varpið á bringunni - að hlusta. Um leið og ég kem inn sest þú upp og við skiptumst á fréttum. En hvað þetta voru oft góðar stundir. Ekki síður mikilvægar fyrir mig en þig. Þú hafðir gaman af að segja frá og þú hafðir líka gaman af að hlusta á aðra. Og þú áttir svo gott með að samgleðjast öðrum. Aldrei varstu glaðari en þegar þú vissir að okkur í fjölskyldunni vegnaði vel. Ég get ekld sleppt því að minnast aðeins á Sæa litía, augastein okkar allra. Litli langaafa strákurinn þinn sem þú varst svo hrifinn af. Það var nóg að minnast á hann, þá Ijómaðir þú allur. Enda hafðir þú fylgst með honum frá því hann var í móður- kviði. Oft tókst þú þátt í því sem við tókum okkur fyrir hendur, t.d. minnist ég þess að þegar ég var í skólanum og var að taka próf, þá varst þú jafn stressaður og ég, ef ekki stressaðri og beiðst í ofvæni eftir að heyra í mér um það hvernig mér hefði gengið. Jæja, elsku afi minn, þetta eru kveðjuorð mín til þín. Ég vil þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyr- ir mig, sérstaklega allar samveru- stundirnar okkar. Vonandi líður þér vel. Bestu kveðjur til ömmu. Rósa. KRISTJANA ELÍASDÓTTIR + Kristjana Elías- dóttir fæddist á Neðri-Vaðli á Barðaströnd 27. júlí 1914. Hún lést í Sjúkrahúsi Reykja- víkur, Fossvogi, 15. júní síðastliðinn og fór útför hennar fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Því lengur sem lifað er, því fleiri samferða- menn og ástvini þurfum við að kveðja áður en kallið kemur til okkar. Kristjana Elíasdóttir og maður henn- ar Jón Jóhannesson voru meðal þeirra vina er ég kynntist fljótlega eftir að ég flutti til Hafnarfjarðar 1951. Við Jana vorum báðar ættaðar úr Barðastrandarsýslu, en þekktumst ekki fyrr en þá. Bæði var aldurs- munur á okkur og ekki miklar samgöngur milli austur- og vestursýsl- unnar. Okkar vinátta hafði þó staðið nær því hálfa öld. Jón lést fyrir fáum árum en Krist- jana í júní í ár. Mér þótti vænt um þessa vinkonu mína. Við hittumst þó of sjaldan en töluðum oft- ar saman í síma. Það er þó ekki langt síðan við fórum út og áttum skemmtilegan dag. Því var mér brugðið er ég heyrði að hún hefði HAFSTEINN GUÐMUNDSSON + Hafsteinn Guð- mundsson járn- smiður fæddist í Reykjavík 4. febrúar 1912. Hann lést á hjartadeild Land- spítalans 16. maí síð- astliðinn og fór útför hans fram frá Lang- holtskirkju 21. maí. Vel fram yfir miðja öldina var stundaður fjöl- þættur búskapur í Reykjavík. Sauðíjáreign var veruleg, enn var tölu- vert um alifugla og svín, og jafnvel nautgripi, og matjurtarækt var margri Ijölskyldunni til búdrýg- inda. Þessi búskapur heyrh- nú að mestu sögunni til, en ég var svo lán- samur að kynnast honum á unglings- árum mínum og þar með ýmsu ágætu fólki, einkum úr hópi fjáreigenda. Það var sumarið 1966, þ.e. fyrir ná- kvæmlega 33 árum, að ég kynntist Hafsteini Guðmundssyni og Hansínu Jónsdóttur á Kambsvegi 33 vegna sameiginlegs áhugamáls, sauðfjárbú- skapar. Hansína, kona Hafsteins, sem lést eftir umferðarslys í Reykjavík 6. júní 1991, var mikill dýravinur og stundaði dálítinn fjárbúskap af kost- gæfni um árabil með dyggilegri að- stoð Hafsteins og annarra í ijölskyld- unni. Ég vissi þá að Hafsteinn vai- járnsmiður að iðn og starfaði jafn- framt sem meðhjálpari og kirkjuvörð- ur í Langholtskirkju. Það var gott að kynnast honum á þessum tíma og nú, þegar hann hefur kvatt þennan heim, er mér Ijúft að minnast hans með nokkrum kveðjuorðum þótt síðbúin séu. Við fyrstu kynni fannst mér Haf- steinn traustvekjandi og vingjamleg- ur og á því fékkst frekari staðfesting eftii' því sem árin liðu. Hann hafði hlý- legt viðmót og létta lund, var viðræðu- góður, hjálpsamur og ráðagóður með afbrigðum. Hafsteinn tók gjaman upp hanskann fyrir þá sem minna máttu sín, hafði ríka réttlætiskennd, og fé- lagshyggja og samkennd komu glögg- lega í ljós þegar verið var að ræða þjóðmálin. Manni leið vel í návist Haf- steins og ég veit að vinimir voru margir sem minnast hans með sökn- uði. Gott var að leita til járnsmiðsins með ýmis verkeftii. í eitt skiptið var smíðaður í snarheit- um jámfótur undir burðarsúlu í íbúðai'hús- inu og skömmu síðar jámverk í handrið við útidyratröppumar. Að- ur höfðu verið smíðuð brennijárn því að tóm- stundabóndinn vildi halda þeim góða sið að brennimerkja hymdu kindumar. Þegar ein dætranna fór að stunda hestamennsku voru sóttar listilega smíðaðar skeifur úr aflinum á Kambsveginum. Þá var Hafsteinn orðinn einn en bar sig vel, glettinn, hressilegur og góðgjam, og minnist ég þeirra heimsókna með ánægju eins og allra okkar fyrri kynna þegar Hansína var með í för. En Hafsteinn var ekki aðeins úrvals jámiðnaðarmaður og sómi sinnar stéttar. Hann var einnig hagur á tré, byggði hús og breytti m.a. kofum í vistleg fjárhús með viðeigandi innrétt- ingum. Naut ég vissulega góðs af vegna samvinnu okkar Hansínu í fjár- búskapnum á árunum í kringum 1970. Á erfiðum tímum hjá okkur reykvísk- um fjáreigendum var Hafsteinn meðal traustustu bakhjarlanna. Hann átti sterkar rætur í íslenskri sveitamenn- ingu, alinn upp á Barðaströnd við fjörðinn breiða, og skildi hvemig fá- einar kindur gátu verið ungum sem öldnum til yndis og ánægju, ekki síst í ys og þys þéttbýlisins. Umhyggjan sem þau hjón báru fyrir fjáreign minni var einstök, sérstaklega á há- skólaárum mínum erlendis, og er ég þeim ævinlega þakklátur fyrir þann stuðning. Fyrir tilstilli þeirra Haf- steins og Hansínu kynntist ég öðrum ágætum fjárbændum, þeirra á meðal Helgu Larsen á Engi og Ólafi Helga- syni á Hamrafelli sem einnig reyndust mér afar vel. Hafsteinn var drengur góður í orðs- ins fyllstu merkingu og hans minnist ég með virðingu og þökk. Aðstand- endum öllum sendi ég og fjölskylda mín einlægar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Hafsteins Guð- mundssonar. Ólafur R. Dýrmundsson. + Hjartans þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR JÓNSDÓTTUR frá Halldórsstöðum í Reykjadal. Steinunn Aðólfsdóttir, Páll Hafliðason, Emil Aðólfsson, Margrét Árnadóttir, Pálína H. Aðólfsdóttir, Jakob Ólafsson, Jóna A. Aðólfsdóttir, Reynir Karlsson, barnabörn og barnabarnabörn. orðið fyrir áfalli. Það leið aðeins rúm- ur sólarhringur þar til hún lést. Ég fékk að líta til hennar á spítalann. Hún svaf þá.djúpum svefni og nú er hún heima hjá Honum sem sagði: „Hver sem lifir og trúir á mig mun aldrei að eilífu deyja.“ Ekki gat ég fylgt henni til grafar þar sem ég var á förum til útlanda en langaði þó að skrifa hér fáein síðbúin kveðjuorð. Við hjónin stofnuðum okkar fyrsta heimili við Strandgötuna í Hafnar- firði. Jón og Kristjana bjuggu þá við Austurgötu. Stutt var á milli, bömin okkar og Steinunn yngsta barn þeirra léku sér alltaf saman. Synirnir Birgir og Jóhannes voru eldri. Ein- hverjir héldu að ég hefði átt Stein- unni, þetta dökkhærða barn, áður en ég gifti mig, þar sem mín börn voru öll Ijóshærð eins og faðir þeirra. Kristjana var hörkudugleg hvaða vinnu sem hún stundaði. Eitt sinn kom ég til hennar og fór að spyrja hana hvað hún hefði fyrir stafni þann daginn. Hún svaraði því og mér varð á að hugsa: „Ég hefði nú skipt þessu á þrjá daga.“ Mér er enn í minni hjálpsemi þeirra hjónanna þegar við vorum að standsetja húsið okkar við Móabarð. Þau áttu bæði margar vinnustundir þar. Þau færðu sig reyndar líka úr miðbænum og upp á „Holt“ og bjuggu sitt heimili einnig við Móabarð. Enn vorum við ná- grannar. Maðurinn minn Guðni Guð- mundsson var iðnrekandi og þurfti á þeim tíma að flytja vélarnar inn í stofuna okkar, hálfstandsetta, meðan gengið var frá húsnæði er byggt var yfir reksturinn. Ég mun aldrei gleyma þeim degi, er þessir flutning- ar stóðu yfir. Ég var mjög lasin og heimilið nánast á hvolfi, þá kemur Jana og býðst til að hjálpa. Hjá mér var gestkomandi, frænka mín serri> „ekki var allra“, eins og sagt er. Hafði hún yfirleitt ekki haft mikil samskipti við Jönu. Frænka, sem þá var orðin gömul kona, segir strax við mig: „þiggðu að hún hjálpi þér.“ Það þarf ekki að orðlengja það að Krist- jana kom hlutunum í lag á mettíma. Eftir það var hún í miklum metum hjá frænku. Ég minnist þess einnig er ég þurfti að halda veislu vegna brúðkaups dóttur minnar, að við tók- um á leigu sal sem var í ágætu ásig- komulagi að okkur sýndist. Líklega gerði sá, sem lánaði okkur salinn sér ekki grein fyrir því að allir vaskar - voru stíflaðir og það var meiri háttar vandamál að ganga frá eftir svo stóra veislu, og þurfa að þvo upp leirtau í bölum. Þar kom Jana mín enn og hjálpaði okkur. Þannig mætti lengi telja. Eftir áratugalanga vináttu eru minningarnar mai-gar og fátt af þeim fest á blað. Ég minnist yndislegra stunda á þeirra fallega heimili. Þar sem sungið var og glaðst í sameigin- legri trú. Sá hópur stóð fast saman. Margir þeirra eru farnir heim til Drottins, en minningin lifir. Ég kveð mína elskulegu vinkonu með innilegu þakklæti frá mér og mínum. Ég votta Steinu minni, Jóa og Birgi og fjöl- skyldum þeirra samúð og bið þeim öllum blessunar í nútíð og framtíð. , Jóhanna F. Karlsdóttir. HAPPDRÆTTI dae vinnitiffarxiir fáist Vinningashrá 14. útdráttur 12. ágúst 1999 íbúðarvinningur Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvðfaldur) 35356 Ferðavinningur Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur) 26886 4680 1 48609 54125 F erðavinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 íri 755 11344 23200 37183 58274 73652 6568 15444 31488 39684 58457 76919 H ú Kr. 10.i sbú 000 n a ð a r v i n Kr. 20, ningur 382 10758 26311 34113 42564 48900 59035 71124 621 10950 26848 34595 42998 49220 59593 72338 1921 12250 27464 34787 43148 50648 59606 72452 2718 13265 27643 35781 44149 52022 60010 75209 3444 14218 27666 35911 44165 52168 61 76 S 75379 6484 17170 29259 37754 45551 53461 61986 75877 7078 17769 30196 38832 47752 54668 63533 76359 7615 20026 30263 39246 48285 55181 65687 76540 8765 21615 30309 39550 48297 56260 68439 79419 9345 22377 30468 40236 48402 56560 69129 9495 22738 30716 40420 48618 56728 69373 9851 24351 31477 41704 48706 58281 69625 10367 24755 33560 41769 48876 58449 71068 Húsbú Kr. 5.000 n a ð aivi Kr. 10.i n n i n g u r 000 (tvöfaldur) 780 10521 23958 35105 42586 52308 62721 73091 962 10687 24200 36444 42735 52467 62841 73388 1102 11073 24234 36644 42979 52619 62877 73454 1650 12431 24265 36647 43845 52773 62959 73594 2170 12470 24327 36722 43894 52873 63140 74601 2577 13065 24790 36784 44304 53239 63221 75428 2793 13564 24989 36854 44342 53637 64602 75930 3517 13911 25186 36956 44575 54052 64908 76118 3576 14529 25404 36999 44601 54143 65249 76836 3758 14776 26617 37033 45371 54375 65278 76945 4055 14815 26750 37501 45386 54634 65894 77198 4646 14981 26909 37623 45389 54638 66187 77398 4655 15331 27371 37775 45821 54853 66495 7,7538 5412 15530 27817 37819 46069 55062 66838 77711 5808 16736 28189 37836 46176 55911 66991 77948 6217 16912 28282 38062 46181 56185 67232 77957 6289 17065 28650 38998 46195 56251 67264 78491 6326 17333 29500 39167 47306 56261 67289 78655 6556 17436 30132 39351 47584 56424 67510 78878 6636 17517 30308 39429 48614 56460 67857 78935 7362 18858 30403 39760 48767 56591 68620 79197 7651 19697 30961 40035 49011 58257 69268 79323 7807 20387 31520 40515 49070 58613 69316 79373 8130 20405 31860 40682 49633 59422 69440 79391 8331 20422 31861 40919 49754 59471 70322 79612 9275 20686 32552 40927 50470 60210 70884 79798 9489 20994 32802 41025 51076 61263 70909 9530 21193 33075 41122 51145 61320 71263 9890 21211 33676 41124 51273 61530 71333 9998 21591 33709 41864 51735 61742 71438 10065 21745 34258 42181 52023 62576 71954 10227 23027 34547 42226 52146 62598 72795 Niestu útdrættir fara fram 19. & 26. ágúst 1999. Heimasiða á Intemeti: www.das.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.