Morgunblaðið - 13.08.1999, Side 50
MORGUNBLAÐIÐ
50 FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1999
Heimsmeistaramótið — Fjórða umferð, úrslit
V. Topalov 2690 V. Kramnik 2760 0-1 0-1
M. Adams 2708 A. Dreev 2679 14-14 14-14 1-0 1-0
S. Movsesian 2659 A. Fedorov 2659 14-14 14-14 1-0 14-14
J. Polqar 2671 V. Zviaqinsev 2652 1-0 1-0
A. Khalifman 2628 B. Gelfand 2713 1-0 14-14
L. Nisipeanu 2584 V. Ivanchuk 2702 14-14 1-0
Ivanchuk úr leik
eftir ótrúlegan afleik
SKAK
Las Vegas
HEIMSMEISTARAMÓTIÐ
í SKÁK
30. jiílí - 29. ágúst
VASSILY Ivanchuk (2.702) er úr
leik á heimsmeistaramótinu í skák
eftir tap gegn rúmenska stórmeist-
aranum Liviu-Dieter Nisipeanu
(2.584) í úrslitum fímmtu umferðar.
Það kemur á óvart að Ivanchuk,
einn sterkasti skákmaður heims,
tapi fyrir manni sem er meira en
hundrað stigum lægri á FIDE-
stigalistanum. Það sem vakti þó
mun meiri athygli var hvernig
Ivanchuk tapaði. Eftir jafntefli í
fyrstu þremur skákunum hafði
Ivanchuk svart í þeirri fjórðu, þar
sem tímamörkin voru 25 mínútur á
mann. Hann virtist ekki ætla að fá
neitt sérstakt út úr byrjuninni þeg-
ar hann fórnaði skyndilega biskup á
Í2 í 13. leik, sem Nisipeanu gat ein-
faldlega tekið án þess að bíða tjón
af. Ivanchuk er þar með úr leik í
keppninni, en Nisipeanu mætir
Shirov í sjöttu umferð.
Adams og Dreev
gerðu jafntefli í 25 mín-
útna skákunum, en í
fyrri 15 mínútna skák-
inni vann Dreev skipta-
mun í endataflinu og
'f þótt sigurinn væri
greinilega ekki auðsótt-
ur þá var hann ekki í
nokkurri taphættu. Þá
gerðist óhappið og
hann lék af sér skipta-
mun þegar hann tók
ekki eftir að riddari Ad-
ams setti á hrók. Upp
kom endatafl þar sem
hvor hafði einn riddara,
en Adams peði meira.
Adams vann endataflið
og það má segja að skiptamunsaf-
leikurinn hafi gert út um möguleika
Dreev, því Adams vann seinni skák-
ina örugglega gegn vonsviknum
andstæðingi sínum.
-♦ Úrslit í atskákum má að öðru
leyti sjá í meðfylgjandi töflu, en í
fimmtu umferð tefla:
Kramnik - Adams
Movsesian - Akopian
Polgar - Khalifman
Nisipeanu - Shirov
VISA-lokamdtið
Eftir afleitan árangur í fimmtu
umferð fóru íslensku keppendurnir
aftur í gang í þeirri sjöttu. Helgi
Ass gerði jafntefli við danska stór-
meistarann Sune Berg Hansen, sem
er efstur á mótinu. Jón Viktor virð-
ist nú orðið eiga í fullu tré við stór-
meistarana og gerði jafntefli við
Lars Scandorff. Helgi Ólafsson
vann svo sinn fyrsta sigur á mótinu
þegar hann lagði danska alþjóðlega
meistarann Nikolaj Borge.
Staðan á mótinu er þessi að sex
umferðum loknum:
1.-2. Sune Berg Hansen 4‘A v.
1.-2. Simen Agdestein 4lÆ v.
3. Tiger Hiliarp Persson 4 v.
4. -5. Helgi Áss Grétarsson 314 v.
4.-5. Heikki Westerinen 3Vá v.
6.-9. Jón V. Gunnarsson 3 v.
6.-9. Lars Schandorff 3 v.
6.-9. Einar Gausel 3 v.
6.-9. Jonny Hector 3 v.
10.-11. Heigi Ólafsson 2‘/2 v.+
10.-11. Ralf Akesson 2'/2 v.+
12.-13. Torbjom R. Hansen V/2 v.
12.-13. Nikolaj Borge VA v.
14. Heini Olsen 1 v.
Helgarskákmót hjá TR
Taflfélag Reykjavíkur heldur
helgarskákmót 13.-15. ágúst. Tefld-
ar verða sjö umferðir eftir Monrad-
kerfi. Fyrstu þrjár umferðimar eru
með 30 mínútna umhugsunartíma
en í fjórum síðustu umferðunum er
umhugsunartíminn IV2
klst. á 30 leiki og síðan
30 mínútur til viðbótar
til að ljúka skákinni.
Umferðatafla:
1.-3. umf. 13.8. kl. 20-23.
4. umf. 14.8. kl. 10-14.
5. umf. 14.8. kl. 15-19.
6. umf. 15.8. kl. 10:30-
14:30.
7. umf. 15.8. kl. 15-19.
Veitt verða verðlaun
fyrir þrjú efstu sætin,
kr. 12.000, kr. 8.000 og
kr. 5.000.
Þátttökugjald er kr.
1.500 fyrir 16 ára og
eldri (kr. 2.000 fyrir
utanfélagsmenn), en
kr. 600 fyrir 15 ára og
yngri (kr. 1.000 fyrir
utanfélagsmenn). Skráning fer fram
á mótsstað.
Skákmót á næstunni
Tilkynningar um skákmót og
aðra skákviðburði sendist til skák-
þáttar Morgunblaðsins með a.m.k.
viku fyrirvara. Tölvupóstfangið er
dadi@vks.is. Einnig má senda at-
hugasemdir við skákþættina á sama
póstfang.
18.8. Borgarskákmótið kl. 16.
21.8. SH. Útimót í Firði kl. 14.
27.8. Skákþing Kópavogs.
31.8. SÞÍ. Landsliðsflokkur.
31.8. SÞÍ. Kvennaflokkur.
Daði Örn Jónsson
Vassily
Ivanchuk
Eru rimlagardínurnar óhreinar!
Vib hreinsum:
Rimla, strimla, plíseruð og sólargluggatjöld.
Setjum afrafmagnandi bónhúð.
Sækjum og sendum ef óskaó er.
v5::;'E-Níj«
U toækuúhránsunm
Sófheimor 35 • Sími: 533 3634 • OSM: 897 3634
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050
Ýmis tilboÖ
í hverri viku.
Oplð alla daga frá kl. 10 tll 19
í DAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Morgunblaðið/Gunnlaugur Briem
Islandsmeistararnir í rallý 1998 á fullri ferð.
Mótorsport góður þáttur
ÁHUGAMAÐUR um rall-
íþróttina hafði samband
við Velvakanda og vildi
hann koma á framfæri
ánægju sinni með umfjöll-
un þáttarins Mótorsport á
Stöð 2 um rallíþróttina og
bifreiðaíþróttir almennt.
Segir hann að Birgir
Bragason, umsjónarmað-
ur Mótorsports, geri þess-
ari íþrótt mjög góð skil.
Fjallað sé fagmannlega
HÉR er orðsending til Ell-
erts B. Schram: Haltu
áfram að hugsa upphátt.
Þú ert alveg frábær.
Guðrún Jacobsen, Berg-
staðastræti 34, taktu sem
oftast upp pennann þinn.
Það er okkur öllum í hag.
Vinarkveðjur,
Fína.
um aksturinn, skemmti-
legar myndir sýndar og
sérstaklega hafði hann
haft gaman af að sjá upp-
töku frá keppninni á
Hólmavík, þar sem
myndavél var höfð inni í
bílunum og samanburður
gerður á akstri tveggja
bfla. Hvetur hann aðra
fjölmiðla til að fylgja for-
dæmi Stöðvar 2 og gera
íþróttinni betri skil.
STEFÁN hafði samband
við Velvakanda og sagðist
hann hafa lesið grein
Jónínu Benediktsdóttur í
Morgunblaðinu sl. þriðju-
dag og vera henni sam-
mála. Sagðist hann stund-
um þurfa að loka augunum
þegar hann sæi fyrirsagnir
DV.
Hver þekkir vísurnar
og höfunda?
HAFT var samband við
Velvakanda og hann beð-
inn um aðstoð við að finna
höfunda að eftirfarandi
vísubrotum. Eins hafði við-
komandi áhuga á að eign-
ast vísurnar í heild sinni.
Fyrst þá er ég fór af staó
fjarri öllum pínum
húrraði ég heiman að
íhjólbörunummínum.
Og:
Þama liggur Þuríður
þar var margur piltur áleitinn
Og.
Farðuvel
þín komin er stundin.
Þeir sem gætu gefið þess-
ar upplýsingar vinsamlega
hafið samband við Ragn-
heiði Garðarsdóttur í síma
564 4999.
Léleg þjóuusta
ÉG keypti í Raftækja-
verslun Islands Creda-
þvottavél í endaðan októ-
ber ‘97. Nýlega bilaði vélin
og var viðgerðarkostnað-
urinn um 9 þúsund krónur.
Var vatnsdælan ónýt og
sagði viðgerðarmaður að
það væri ekki okkar sök,
það væri vegna þess að
pakkning hefði gefið sig og
væri það galli. Vildum við
að verslunin tæki þátt í
kostnaðinum með okkur,
þeir borguðu a.m.k dæluna
upp á 3.600 kr. en við rest-
ina. Við töluðum við ungan
afgreiðslumann sem vildi
allt fyinr okkur gera en yf-
irmenn hans vildu ekkert
koma til móts við okkur.
Finnst okkur þetta ekki
góð þjónusta.
Hanna íris Guðmundsd.,
Suðurbraut 8, Hf.
Tapað/fundið
Myndavél týndist
við Baulu
MYNDAVÉL, Canon
EOS, týndist í fjallgöngu á
Baulu í Borgarfirði. Þeir
sem hafa orðið varir við
myndavéiina hafi samband
í síma 567 2694. Þórarinn
Tyrfingsson.
Gleraugu týndust
ÍMjódd
MÁNUDAGINN 9. ágúst
týndust gleraugu. Var síð-
ast með þau í Búnaðar-
bankanum í Mjódd. Þau
voru í skreyttu leður-
hulstri. Skilvís finnandi
hringi í Mörtu Tómasdótt-
ur í síma 553 8377. Fund-
arlaun.
Dýrahald
Kanína
fæst gefins
LÍTIL hvít kanína fæst
gefins. Upplýsingar í síma
553 0084.
Orðsending
Sammála Jónínu
ÞESSIR hressu krakkar frá Akur-
eyri söfnuðu fiöskum og notuðu
ágóðann til að styrkja Rauða kross-
inn. AIls söfnuðu þau 3.510 krón-
um. Þau eru frá vinstri: Vigdís
Arna Magnúsdóttir, Brynjar Darri
Jónasson, Elvar Þdr Bjarnason og
Ólafur Jóhann Magnússon. Reynd-
ar kváðust strákarnir hafa séð um
söfnunina en af góðmennsku sinni
leyfðu þeir henni Vigdísi Örnu að
vera með á myndinni.
Morgunblaðið/Kristján
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI hefur til margra ára
notað Öskjuhlíðina sem útivist-
ar- og göngusvæði og fagnaði því
mjög á sínum tíma þegar fallið var
frá hugmyndinni um Fossvogsbraut-
ina sem átti meðal annars að liggja
meðfram Öskjuhlíðinni sunnan-
verðri. Þessi áður fáfarna og frið-
sæla gönguleið meðfram sjónum er
nú orðin fjölfarin, jafnvel of fjölfarin
að mati eigingjarns Víkverja sem
naut þess að ganga einn úti í náttúr-
unni án þess stöðugt að vera að
mæta fólki. Hitt er annað mál að
lofsvert er að svo vel hafi tekist til
með göngustíginn, og nú síðast bað-
aðstöðuna og kaffihúsið í Nauthóls-
vík, að fleiri eru famir að uppgötva
dýrðina.
Eins og margoft hefur komið fram
á síðustu vikum lofar baðaðstaðan í
Nauthólsvík góðu. Menn eru jafnvel
strax farnir að velta fyrir sér hvort
gert sé ráð fyrir of litlu svæði þar
sem fólk getur dýrkað sólina eða
baðað sig því mannfjöldinn hefur
verið þvflíkur og slíkur á góðviðris-
dögunum í sumar að erfitt verður að
sjá að fleiri geti komist að þegar búið
verður að opna svæðið formlega. Og
skyldu bílastæðin vera á nægilega
stóru svæði sé litið til framtíðar? í
kjölfar nýja kaffihússins og breyt-
ingarinnar á ströndinni hefur um-
ferðin á Nauthólsvíkurveginum (frá
Loftleiðahótelinu og út að sjó) aukist
margfalt. Áður átti maður kannski
von á að mæta 2-3 bflum meðan
gengið var á götunni en nú skipta
þeir tugum. Því er nauðsynlegt að
leggja göngu- og hjólreiðastíg með-
fram götunni sem og að lækka há-
markshraðann niður í 30 km. Þó að
göngustígur hafi verið lagður að
hluta til meðfram trjánum í Öskju-
hlíðinni - og verður kannski fullklár-
aður einhvern tímann, dugir það
ekki til. Umferð gangandi og
hjólandi fólks mun samt sem áður
aíltaf verða meðfram veginum. Eins
mættu eigendur skemmanna og hús-
anna á svæðinu taka sig taki og mála
húsin og gera þau upp. Það er ekki
beint huggulegt að sitja í kvöldsól-
inni á kaffihúsinu og horfa á þessi
illa hirtu hús. Þau eru verulegt lýti í
annars fallegu umhverfi.
XXX
MEÐ vaxandi samkeppni á síð-
ustu árum hefur þjónusta fyrir-
tækja hér á landi aukist til muna. Að
sama skapi gerir almenningur sér
grein fyrir hvað góð þjónusta skiptir
miklu máli og er fljótur að snúa sér
að nýju fyrirtæki telji hann sig ekki
fá þjónustu við hæfi. Nú dugir við-
skiptavininum ekki lengur að af-
greiðslufólk á kassa stórmarkaðanna
bjóði vélrænt góðan daginn heldur
vill hann að sér sé sinnt eins og hann
sé eini viðskiptavinur fyrirtækisins.
Finni viðskiptavinur strax í byrjun
að hann skipti starfsmanninn máli
geta ýmis óþægindi orðið lítilvæg
komi þau upp á. Fyrir þessu fann
Víkverji í sumar þegar hann þurfti að
leggjast inn á spítala vegna aðgerðar.
Vegna sumarlokana var búið að sam-
eina deildir og urðu sumir sjúkling-
anna að liggja tímabundið frammi á
gangi. Að vísu getur sjúklingur ekki
snúið sér annað ef hann er óánægður
með spítalaþjónustuna en vissulega
skiptir viðmót starfsfólks máli og þá
ekki síst hvernig tekið er á móti sjúk-
lingunum í upphafi.
Við komuna á spítalann lögðu
starfsmenn mikið upp úr því að sjúk-
lingnum væri gerð grein fyrir að-
gerðinni, honum var fylgt af mis-
munandi starfsmönnum í þær rann-
sóknir sem hann þurfti að gangast
undir í stað þess að vera sendur
„niður ganginn til hægri og svo aftur
til vinstri þar sem stendur..." Einnig
var skýrt frá því að sérstakur hjúkr-
unarfræðingur og sjúkraliði væru
„hans“. Þetta viðmót í upphafi varð
til þess að á meðan á spítaladvölinni
stóð gat Víkverji óhikað hnippt í
„sitt“ fólk þegar á þurfti að halda,
sem veitti honum ákveðna öryggis-
kennd og þá vissu að starfsfólkið
væri ágætlega inni í hans málum. Og
þótt hann lenti frammi á gangi sætti
hann sig fyllilega við það, allt vegna
þess hversu vingjarnlegt starfsfólk
deildar 12G á Landspítalanum var í
upphafi. Starfsfólk á þakkir skildar
fyrir að sýna umhyggju og lipurð við
erfið starfsskilyrði þar sem deildin
er jafnvel á öðrum endanum og þús-
und hlutir bíða eftir að verða gerðir.