Morgunblaðið - 18.08.1999, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Utanríkisráðherra skoðar virkjanakosti í Jökulsá á Dal og á Fjöllum
Verulegar
breytingar
gerðar frá
fyrstu hönnun
FINNUR Ingólfsson iðnaðarráð-
herra segir að virkjun Jökulsár á
Fjöllum sé ekki á dagskrá og hug-
myndir um virkjun Jökulsár á Dal
verði skoðaðar við gerð ramma-
áætlunar um nýtingu vatnsafls og
jarðvarma. Halldór Ásgrímsson,
utam-íkisráðherra og fyrsti þing-
maður Austurlandskjördæmis, seg-
ist enn vera þeirrar skoðunar að
mikilvægt sé að virkja Jökulsá í
Fljótsdal og Jökulsá á Dal og vekur
athygli á þeim breytingum sem
gerðar hafí verið á hönnun frá því
fyrstu hugmyndir voru settar fram.
Utanríkisráðherra slóst í gær í
for með starfsmönnum Orkustofn-
unar og iðnaðarráðuneytis í skoð-
unarferð um hugsanleg virkjana-
svæði við Jökulsá á Dal og Jökulsá
á Fjöllum. Daginn áður hafði virkj-
anasvæði Jökulsár á Fljótsdal ver-
ið skoðað. „Allt er þetta spuming
um að vega og meta rök sem hníga
í mismunandi áttir,“ sagði utanrík-
isráðherra þegar hann var spurður
hvort afstaða hans til virkjana á
þessu svæði hefði breyst við sér-
staka skoðun svæðisins. „Hér er
mikið af landi sem hefur verulegt
verndargildi. Ég sé að það hafa
verið gerðar miklar rannsóknir,
verið er að vega og meta ýmsa
kosti, og menn tilbúnir til þess að
segja til um hvað af þessu hefur
mest gildi og hvað á að vemda. Ég
hef alltaf verið þeirrar skoðunar að
það ætti að virkja Jökulsá í Fljóts-
dal og Jökulsá á Dal, með sem hag-
anlegustum hætti þannig að sem
minnst spjöll hljótist af. Ég mynd-
aði mér þessa skoðun við uppbaf
stjórnmálaferils míns hér á Aust-
urlandi, taldi að þetta myndi hafa
mikil áhrif á byggðina og búsetu-
skilyrði. Þá tel ég það skipta miklu
máli fyrir byggðaþróun í landinu í
heild að þarna takist vel til,“ sagði
Halldór.
Taugar til Hafrahvamma
Halldór sagði að hugmyndir um
virkjun Jökulsár í Fljótsdal hefðu
breyst mikið til batnaðar frá fyrstu
hugmyndum. Þrátt fýrir það væri
ljóst að ekki yrði virkjað án þess að
fóma Eyjabökkum undir lón. Eftir
stæði spurningin um hvort ætti að
gera það.
Aðspurður hvort hann teldi
skynsamlegt að virkja Jökulsá á
Dal með stíflu við Kárahnúka sagði
Finnur Ingólfsson að hann bæri
sterkar taugar til Hafra-
hvammagljúfra. Lagði hann á það
áherslu að ekki stæði til að sökkva
gljúfrunum eins og stundum væri
Ráðherra segir stefnt að sölu FBA í dreifðri eignaraðild
Sparisjóðirnir höfðu ekki
ástæðu til að ætla annað
FINNUR Ingólfsson viðskiptaráð-
herra segir að ekki hafi orðið stefnu-
breyting hjá ríkisstjóminni varðandi
sölu Fjárfestingarbanka atvinnulífs-
ins með dreifðri eignaraðild og for-
ystumenn sparisjóðanna hafí enga
ástæðu haft til að ætla að um slíka
breytingu yrði að ræða.
í viðtali Morgunblaðsins síðastlið-
inn laugardag við Guðmund Hauks-
son, sparisjóðsstjóra og stjómarfor-
mann eignarhaldsfélags sparisjóð-
anna, nefndi hann sem eina skýringu
á sölu á eignarhlut í Fjárfestingar-
banka atvinnulífsins að athygli
þeirra hefði verið vakin á því að rík-
issjóður kynni að hafa frjálsari hend-
ur um sölu á FBA en áður var talið,
það er að segja að dreifð eignaraðild
væri ekki eins afdráttarlaust skilyrði
og áður var rætt um. Finnur Ingólfs-
son viðskiptaráðherra sagði að ríkis-
stjórnin hefði ekki breytt um stefnu
varðandi þetta atriði þegar það var
borið undir hann. „Það er samstaða
milli stjórnarflokkanna um að selja
verði fjármálastofnanirnar með
dreifðri eignaraðild til þess að
tryggja samkeppni á markaðnum til
lengri tíma litið og stuðla að því að
unnt sé að veita fjármálaþjónustu á
sem lægstu verði.“
Bundnir af útboðslýsingu
„I þessu viðtali var Guðmundur
Hauksson að kvarta undan því og
talaði um það sem ástæðu sölunnar,
að sparisjóðirnir hefðu ekki fengið
nógu skýr svör frá ríkisstjórninni
um næstu skref. Vegna þessa vil ég
segja að sparisjóðirnir fengu sömu
svör og aðrir og þeir hafa reyndar
háft betri aðgang að upplýsingum en
aðrir. Þeir komu í vor til að spyrjast
fyrir um sölu á 51% eignarhlut ríkis-
ins og var þá sagt að um það yrði
ekkert ákveðið fyrr en að loknum
kosningum. Ég bauð þeim að vera í
beinu sambandi við ráðuneytisstjór-
ann um upplýsingar, ekki einhvern
starfsmann ráðuneytisins. Þá var
þeim bent á það sem kemur skýrt
fram í útboðslýsingu við fyrstu sölu
að ríkið vildi stefna að dreifðri eign-
araðild í annarri umferð sölunnar til
að tryggja sjálfstæði FBA. Þegar af
þeirri ástæðu gátu þeir vitað hvernig
staðið yrði að málum því við erum
bundnir af þeim yfirlýsingum sem
gefnar eru í útboðslýsingu. Þeir
komu til mín aftur í sumar og spurðu
um næstu skref. Þá sagði ég að ríkis-
stjórnin yrði vonandi tilbúin fyrir lok
ágúst til að taka ákvarðanir um
hvernig staðið yrði að sölunni. Alltaf
hefrn- verið lögð áhersla á að salan
færi fram á árinu,“ segir Finnur.
Leggur ráðherra á það áherslu að
forráðamenn sparisjóðanna hafí ekki
haft ástæðu til að ætla að stefnu-
breyting væri á döfínni hjá ríkis-
stjórninni.
haldið fram. Eigi að síður myndu
mikil mannvirki breyta ásýnd
svæðisins. „Þetta er mjög góður
virkjunarkostur og hann verður
skoðaður í tengslum við aðra við
gerð rammaáætlunar um nýtingu
vatnsafls og jarðvarma og sam-
kvæmt lögum verður ekki virkjað
þarna nema fram hafí farið um-
hverfismat," sagði Finnur.
Skoðað út frá lífskjörum
Varðandi virkjun Jökulsár á Dal
sagði Halldór Ásgrímsson að þann
kost yrðu menn að meta frá öllum
hliðum, meðal annars náttúru-
vemd, atvinnu og lífskjörum fólks-
ins í landinu. „Ég tel að þessi sjón-
armið geti farið ágætlega saman.
Hér er um að ræða mjög stórt mál
sem mér finnst að menn hafi oft
fjallað um með heldur einfoldum
hætti. Ég var til dæmis afar undr-
andi yfir skrifum leiðarahöfundar
Morgunblaðsins, það er eins og
þetta snúist fyrst og fremst um af-
stöðu umhverfisráðherra og ráð-
herrann eigi að hafa allt aðra
stefnu en ríkisstjómin. Það verður
að samræma stefnuna og svona
skrif eru ekki samboðin fjölmiðl-
um,“ segir Halldór.
Morgunblaðið/Golli
Finnur Ingólfsson iðnaðarráðherra, Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra og nokkrir starfsmenn Orkustofnunar og iðnaðarráðuneytis
skoða Dimmugljúfur í Jökulsá á Dal í kynnisferð um virkjanasvæði
norðan Vatnajökuls.
Gasleki hjá
Norðuráli
STEYPUSKÁLI Norðuráls, álvers-
ins á Grundartanga, var rýmdur um
klukkan tvö í gærdag eftir að starfs-
maður varð var við gasleka úr einum
gastankinum við skálann. Gasið sem
lak er svokallað própangas, en það
er notað til að halda mótum heitum.
Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi
olli bilun í öryggisloki lekanum. Hún
sagði að viðeigandi öryggisráðstaf-
anir hefðu verið gerðar, slökkviliðið
á Akranesi hefði komið á staðinn og
verið í viðbragðsstöðu á meðan tank-
bíll frá Gasfélaginu hefði tæmt
gastankinn. Hættan var afstaðin
rúmum tveimur tímum eftir að lek-
ans varð vart.
Að sögn Ragnars Guðmundssonar,
framkvæmdastjóra fjármála- og
stjórnunarsviðs, var ekki bráð hætta
á ferð.
„Öryggisreglur okkar kveða á um
að við svona aðstæður er svæðið girt
af og næsta bygging rýmd í öryggis-
skyni. En tankurinn stendur ut-
andyra og það loftar vel um hann,“
segir Ragnar.
„Við erum með reglulegt eftirlit
með öllum gasbúnaði í verksmiðj-
unni og tankurinn var skoðaður síð-
ast í morgun og þá virtist allt vera í
lagi.“ Um 700 kg voru á tanknum
þegar bilunin varð en alls tekur hann
1.000 kg. Própangasið er notað í
steypuskála við framleiðslu.
-----------------
Samþykkt
mati Verð-
bréfaþings
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ gerir í
svari sínu við erindi Verðbréfaþings,
um viðskiptahætti við kaup eignar-
haldsfélagsins Orca S.A. á hlutabréf-
um í Fjárfestingarbanka atvinnulífs-
ins, ekki athugasemd við þá ákvörð-
un Verðbréfaþingsins að stöðva við-
skipti með hlutabréf í FBA og óska
eftir viðbótarupplýsingum um hver
stæði að kaupunum.
Verðbréfaþingið bað í síðustu viku
um túlkun Fjármálaeftirlitsins á 26.
grein kauphallarlaganna, svokölluð-
um flöggunarreglum, sem kveða á
um upplýsingaskyldu hluthafa á
verðbréfaþingi. Haft var eftir Hel-
enu Hilmarsdóttur hjá Verðbréfa-
þingi íslands í Morgunblaðinu í síð-
ustu viku að tilgangur erindisins
hefði verið að vekja athygli á því að
flöggun til Verðbréfaþings hefði ekki
samræmst lögunum.
„Með hliðsjón af hlutverki Verð-
bréfaþingsins, sem er að hafa eftirlit
með því að verðbréfamarkaður sé
heilbrigður, traustur og gagnsær,
taldi Fjármálaeftirlitið að Verð-
bréfaþingið hefði svigrúm til að meta
efni flöggunar og óska í framhaldi af
því eftir viðbótarupplýsingum. Við-
komandi aðilum bar að veita allar
þær upplýsingar sem þeir höfðu á
þeim tíma sem Verðbréfaþing óskaði
eftir þeim,“ segir Páll Gunnar Páls-
son, forstjóri Fjármálaeftirlitsins.
Páll segir að svar Fjármálaeftir-
litsins muni fyrst og fremst hafa þá
þýðingu að menn komi til með að
átta sig á túlkuninni á þessu ákvæði
og hvernig eftirlitsaðili lítur á það.
Sérblöð í dag
www.mbl.is
48 SfiMIR
TMskra
Verðlaunakrossgáta
► Þættir íþróttir
► Kvikmyndir Fólk
Hálfur mánuður
af dagskrá
frá miðvikudegi
til þriðjudags
8SleUR
► I VERINU í dag er fjallað um fyrirhugaða
ráðstefnu uni fískeldi á íslandi og Islensku
sjávarútvegssýninguna sem hefst 1. september
nk. Ennfremur er sagt frá nýjungum í fisk-
vinnslu, auk þess sem hefðbundnar upplýsingar
um aflabrögð og markaði er að fínna í blaðinu.
4 SÍDUR
Viking sýnir
Guðjóni
áhuga
Verðum að
nota skalla-
mennina
Eldskírn
Kristins
og Ólafs
B1
B2
B4
4 SÍUUIt